Alþýðublaðið - 24.06.1988, Blaðsíða 6
6
Föstudagur 24. júní1988
+ MINNING +
ANNA JÓNA JÓNSDÓTTIR
/ 2.7. 1956
d. 11.6. 1988
Samtal í kaffitíma um aö
sýningin veröi alltaf aö hafa
sinn gang — the show must
go on... Ungi leikarinn segir
þaö sem við hin vitum líka,
að þannig sé með leikhúsiö,
sjónvarpið, kvikmyndirnar,
þennan bransa. Þaö sé engin
önnur leiö. Ef einhver fellur
frá eöa forfallast veröur bara
aö fá annan í staðinn og þaö
meö hraöi, fá nýjan Ijósa-
mann, nýjan búningahönnuð,
æfa annan leikara inn í hlut-
verkiö...
— Um daginn, sagöi hann,
vissum viö ekki einu sinni
hversu alvarlega veik leikkon-
an var þegar byrjað var aö
æfa inn i hlutverkið hennar
— hún heföi eins getaö verið
dauövona.
Sumum okkar hinna fannst
máliö ekki alveg svona ein-
falt. Anna Jóna orðaði hugs-
anir okkar hinna um að þaö
væri óhugnanleg hliö á leik-
húsinu, hvernig fólk yröi aó
vinna þó það væri fárveikt og
slys eöa dauösföll breyttu
ekki gangi sýningarinnar þó
að hver einstaklingur móti
verkiö meira meö sál sinni og
líkama í þessari vinnu en
nokkurri annarri. Sýningin
hefur alltaf forgang, og sköp-
un einstaklingsins veröur aö
hverju ööru tannhjóli sem
hefur brotnaö og þarf að
skipta um.
Tveim dögum síðar kemur
þetta samtal upp f hugann
þegar óhugnaöurinn steypist
yfir okkur. Anna Jóna er dáin.
Hún var svo sannarlega eitt-
hvaö miklu meira en skarð
sem þurfti aö fylla. Eins og
allir vita sem kynntust henni
haföi hún bæöi hlýja og
sterka nærveru, sem var stór
og ómissandi þáttur í vinnu
okkar. Undir svona kring-
umstæðum verður staöreynd-
in um aö sýningin verði aö
hafa sinn gang ömurleg. Við
reynum aö halda starfi henn-
ar áfram, en getum auövitaö
aldrei gert þaö eins vel og ef
hennar heföi notiö áfram.
Sorg okkar er djúp og viö
samhryggjumst aöstandend-
um innilega.
Fyrir hönd samstarfsfólk í
„Degi vonar" á Sjónvarpinu.
Lárus Ýmir Óskarsson
Nýr stjórnar-
formaður í
Norræna
húsinu
Á stjómarfundi Norræna
hússins, sem haldinn var í
Reykjavík 14. júní sl. var
Hákon Randal, fylkisstjóri í
Hörðalandi, Noregi, kosinn
stjórnarformaöur. Varafor-
maöur var kjörinn Guðlaugur
Þorvaldsson rfkissáttasemj-
ari, sem hefur veriö formaöur
stjórnarinnar sl. 8 ár.
Ráóningartími núverandi
forstjóra, Knuts 0degárds
rennur út um næstu áramót.
FRÁ MENNTAMÁLARÁÐUNEYTINU
Lausar stöður við
framhaldsskóla
Viö Menntaskólann í Kópavogi er laus til umsóknar
hálf kennarastaöa í tölvufræði og hálf staöa í bók-
færslu.
Viö Sjómannaskólann í Reykjavík er laus til umsókn-
ar staöa umsjónarmanns.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri
störf sendist menntamálaráöuneytinu, Hverfisgötu
4, 150 Reykjavík, fyrir 8. júlí næstkomandi.
Umsóknarfremstur á áöur auglýstum kennarastöð-
um viö eftirtalda skóla framlengist til 1. júlí næst-
komandi. Viö Framhaldsskólann að Laugum vantar
kennara í stærðfræöi og ensku, þá er laust hluta-
starf í viðskiptagreinum. Viö Menntaskólann og Iðn-
skólann á ísafirði eru lausar kennarastööur í eftir-
töldum greinum: Ein staöa í þjóðhagfræði, rekstrar-
hagfræði og öðrum viðskiptagreinum, hlutastööur í
félagsfræöi, ensku og staöa námsráðgjafa. Þá vant-
ar stundakennara í sálarfræöi, heimspeki og lög-
fræöi.
Þáerlaus til umsóknarstaðakennaraí tölvufræði og
stundakennarastaóa í íslensku við Menntaskólann
við Hamrahlíð.
Umsóknir um stundakennslu sendist skólameistara
viökomandi skóla.
Menntamálaráðuneytið
AUGLÝSING
frá undirkjörstjórn í Mosfellsbæ
Kjörstaðurvegnaforsetakosninga25. júní 1988 verö-
ur í Varmárskóla.
Kjörstaöur opnar kl. 10.00 árdegis og kjörfundur
stendur til kl. 23.00
SÖLUSKATTUR
Viöurlög falla á söluskatt fyrir maímánuð 1988, hafi
hann ekki verið greiddur í síöasta lagi 27. þ.m.
Viðurlög eru 4% af vangreiddum söluskatti fyrir
hvern byrjaöan virkan dag eftir eindaga uns þau eru
orðin 20%, en síðan reiknast dráttarvextir til viö-
bótarfyrir hvern byrjaðan mánuö, taliö fráog meö 16.
júlí.
Fjármálaráðuneytið
ÚTBOÐ
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar fyrir hönd
Skólaskrifstofu Reykjavíkur óskar eftir tilboöum [
gerð loftræstikerfis í sundlaug Árbæjarskóla
Reykjavík. Útboösgögn eru afhent á skrifstofu vorri
aö Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík gegn krónur 15.000.-
skilatryggingu. Tilboðin veröa opnuö á sama staö
fimmtudaginn 7. júlí kl. 14.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 — Simi 25800 — Póstholf 878 — 101 Reykjavilt
Sumarferð Alþýðuflokksins
Alþýöuflokksfélögin í Reykjavík og á Reykjanesi fara í
sameiginlega sumarferð laugardaginn 2. júlí n.k. og aó
þessu sinni verður haldið I austur.
Ferðaáætlun:
1. Lagt af stað frá BSÍ kl. 9.30.
2. Komið við í Hveragerði og á Selfossi, þar bætast i hóp-
. inn hressir félagar af Suðurlandi.
3. Ekið sem leið liggur í Þjórsárdal, þarverðursnætt nesti.
Við skoðum þjóðveldisbæinn og rústirnar að Stöng.
Farið veröur í sund (hafið með ykkur sundföt).
4. Þessu næst verður haldið upp á hálendið. Virkjanirnar
við Hrauneyjarfoss og Sigöldu heimscttar.
5. Næsti áfangastaður er Skiðaskálinn i Hveradölum með
viðkomu í Hveragerði. Þar verðurtekið á móti hópnum
með veglegri víkingaveislu. Ef vel viðrar verður grillað
úti.
Áætlaður komutími til Reykjavíkur er kl. 23.00. Reyndir
fararstjórar og leiðsögumenn veröa með hópnum. Verð
fyrir fullorðna kr. 1.800,- og verð fyrir börn yngri en 12 ára
kr. 800.-.
Skráning þátttöku eráskrifstofu Alþýðuflokksins Hverfis-
götu 8-10 frákl. 10-16 alla virkadagasími 91-29244. Athugið
greiðslukortaþjónusta.
Alþýðuflokkurinn.
Frá stuðningsmönnum
Vigdísar Finnbogadóttur
Á kjördag, laugardaginn 25. júni, höfum við skrifstofur til aðstoðar kjósendum sem hér segir:
Aöalskrifstofa Suöurlandsbraut 14
Kosningastjórn og kosningasjóöur, sími 31236
Kjörskrá og upplýsingar um kjörstaöi,
sími 681200 (6 línur)
Bílaskrifstofa, sími 38600 (5 línur) og 84060
Skrifstofa Garöastræti 17
Samband viö kjördæmi utan Reyjavíkur
Kosningasjóöur
Bílaskrifstofa \>*
Símar 11651, 17765, 17823, 17985, 18829, 18874.
Hafiö samband viö sem flesta og hvetjið þá til að kjósa
XVIGDÍS FINNBOGADÓTTIR