Alþýðublaðið - 08.07.1988, Qupperneq 5

Alþýðublaðið - 08.07.1988, Qupperneq 5
Föstudagur 8. júlí 1988 5 FRETTASKYRING Kristján Þorvaldsson skrifar Landbúnaðarkröfur upp á milljarð KERFIÐ STOKKAÐ UPP Samkomulag um 90 milljónir í niðurgreiðslur; en ekki 160 milljónir. Að öðru leyti er beðið eftir tillögum landbúnaðarnefndar um heildarskoðun Ríkisstjórnin hefur enn ekki náð samkomulagi um landbúnaðarmálin, þótt ákvörðun hafi verið tekin um hækkun á niðurgreiðslum á hefðbundnum landbúnaðar- vörum vegna hækkana á söluskatti, sem urðu við bú- vöruveröshækkun í júní. Fyrr í vikunni var því haldið fram að um væri að ræða hækkun sem miðaðist við september, til jafns við söluskattshækk- unina í mars og júni, og að upphæðin næmi 160 milljón- um. „Þetta er ekki nema hálf- ur sannleikur," sagði Jón Baldvin Hannibalsson fjár- málaráðherra við Alþýðublað- ið í gær. Því er Ijóst, að enn leita stjórnarflokkarnir leiða til að leysa ágreininginn í heild sinni. Eins og menn muna var talsveröur ágreiningur fyrir nokkrum vikum um útgjöld til landbúnaóarmála og áhrif þeirra á ríkisfjármálin. Að sögn Jóns Baldvins stóð málið um kröfur um aukin rikisútgjöld upp á rúman milljarð. Niðurstaðan varð sú að sett var á laggir nefnd, sem ætlað er aö fara yfir allt svið landbúnaðarútgjaldanna. Nefndin er á vegum stjórnar- flokkanna þriggja og em- bættismenn, einkum i fjár- málaráðuneytinu, vinna að ýmsum tillögum í þeim efn- um. „Kjarni málsins er því sá, aö landbúnaðarmálin eru til heildarskoðunar," segir Jón Baldvin. „Það eina sem ríkis- stjórnin samþykkti í lok júní var að tekjuauki ríkissjóös af söluskatti, vegna hækkunar á landbúnaðarverói 1. júní, skyldi fara til aukinna niður- greiðslna að þessu sinni.“ Að sögn Jóns tekur þetta til tímabilsins frá júní til sept- ember. Upphæðin sem um er að ræða er 90 milljónir króna. Að öðru leyti er þess einfald- lega beðið, að nefndin sem vinnur að endurskoðun í landbúnaðarmálum komi með tillögur sínar. Jón Baldvin segir að nefndinni sé einkum ætlað aö lýsa forsendum sem þurfi til að nýta það fé sem varið ertil stuðnings við landbún- aðinn betur en nú er gert. Meðal helstu atriða í þeirri endurskoðun er t.d.: 1) Að hætta að verðbæta inn- an verðlagsársins þær af- urðir sem þegar hafa verið staðgreiddar á hverju hausti af afurðastöövum. 2) Að vaxta- og geymslu- gjöld, sem eru eðlilegur þáttur í framleiðslukostn- aði, sölu- og dreifingar- kostnaði, færist inn í verð- lagsgrundvöll landbúnað- arafurða, ( stað þess að hækka sjálfkrafa niður- greiðslutölur fjárlaga. 3) Að breyta stjórn Fram- leiðnisjóðs og skoða möguleikana á því, að minnka þann þátt sem fer til útflutningsbóta, en auka fremur þann þátt sem fer til þess að kaupa upp fulivirðisrétt og hraða búháttabreytingunum. Með öðrum orðum, aö laga heildarframleiðslu landbúnaðarafurða að markaðseftirspurn, fyrr en ella hefði verið. 4) Aö endurskoða lög um jarðræktar- og búfjárrækt- arstyrki, þannig aö bak- reikningum vegna fram- kvæmda frá liðinni tíó verði ekki framvegis vísað með sjálfkrafa hætti til greiðslu, heldur verði menn að sækja um slikar framkvæmdir fyrirfram og fá þær heimilaðar, þannig að hægt sé að halda þess- um útgjöldum innan ramma fjárlaga. 5) Leita leiða til þess að draga úr millifærslum og öðrum útgjöldum til þjón- ustustofnana landbúnað- arins, á sama tíma og bændur verða að taka á sig í vaxandi mæli ýmsar byröar vegna minnkandi framleiðslu. Þá koma til álita langvar- andi „strúktúr“breytingar, eins og t.d. að auka áherslu á svæðaskipulag í landbúnaði, þ.e. að dregið verði úr sauð- fjárrækt á tilteknum svæð- um: Annars vegar á þeim svæðum þar sem auóvelt er aö stunda annan búskap, eða leita annarra starfa, hins vegar á þeim svæðum sem sérstaklega eru í hættu vegna ofbeitar eöa gróður- eyðingar. Ennfremurað tryggja að fjárveitingar til að græða örfoka land og stöðva gróðureyðingu komi að full- um notum með því að setja hertar reglur um bann við lausagöngu búfjár. Þetta mið- ar að því að það fjármagn sem varið ertil landgræðslu og skógræktar nýtist betur, en verði ekki étið upp jafnóð- um. I viðtölum hefur Jón Helgason landbúnaðarráð- herra tekið fram, að hann geti enga ábyrgð borið á þeim tölum um niðurgreiðsl- ur sem haldið hetur verið fram að þessu sinni. En í fjöl- miðlum hafa 160 miiljónir verið nefndar. „Mér finnst þetta rétt og skynsamlegt af landbúnaðarráðherra, því rétta talan vegna þessarar ákvörðunar er um 90 milljón- ir. Hvorki meiri né minni,“ sagði Jón Baldvin þegar blaðið spurði um nákvæma tölu. Jón Sigurðsson við- skiptaráðherra sagði í sam- tali við blaðið að hann kann- aðist ekki við samkomulag um að niðurgreiðslur ættu aö vera til samræmis við hækk- un söluskattsins. Viöskipta- ráðherra, sem fer með niður- greiðslumá! í samráði við landbúnaðarráðherra, var er- lendis þegar rikisstjórnin tók ákvörðun um 90 milljón krón- urnar. Jón sagði að upphæö niðurgreiðslna vegna sölu- skatts væri ekki ágreinings- mál innan ríkisstjórnarinnar, heldur vandamál sem þyrfti að leysa. Landbúnaðarnefndin var upphaflega skipuð fulltrúum landbúnaðar- og fjármálaráð- herra. Siðan óskaði forsæt- isráðherra eftir þvi að eiga aðild að nefndinni, sem þýddi að Ólafur ísleifsson efna- hagsráðunautur tók sæti í henni. Nefndin er þvi skipuð fulltrúum allra stjórnarflokk- anna, en að sögn Jóns Bald- vins er vinnan að mestu í höndum embættismanna í fjármálaráðuneytinu. Búist er við að nefndin Ijúki störfum á næstu vikum.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.