Alþýðublaðið - 29.07.1988, Síða 1

Alþýðublaðið - 29.07.1988, Síða 1
Skattar fyrirtœkjanna 1988 LANDSBANKINN 06 EIMSKIPA- FÉLAGIÐ GREIÐA MEST Álögð heildargjöld íslenskra aðalverktaka aukast úr 153 milljónum í 370 miðað við árið á undan. Alagningarskrár skattstjóra verða lagðar fram í dag. Vegna skattlausa ársins 1987 eru nú aðeins iagöar fram skrár yfir gjaldaálagningu lögaðila og félaga. Á álagn- ingarskrá Reykjavíkur kemur fram að Landsbanki íslands greiðir hæstu heildargjöld lögaðila i ár, samtals kr. 230.515.144. Á siðasta ári voru iagðar kr. 74.713.871 á Landsbankann sem greiddi þá heldur minni gjöld en SÍS sem nú er í þriðja sæti með kr. 111.846.102 í heiidarskatta. Annar gjaldahæsti lögaðilinn i ár í Reykjavík er Eimskipafé- lagið sem þarf nú að greiða alls kr. 147.457.602 í gjöld en á siðasta ári voru lagöar kr. 55.914.579 á Eimskipafélagið. í skattskrá Reykjanesum- dæmis sem lögð er fram í dag, kemur fram að íslenskir aðalverktakar þurfa alls að greiða kr. 369.602.843 í heild- argjöld á árinu en í fyrra voru heildargjöld fyrirtækisins 153.227.580 kr. - Athygli vekur að Olíufélag- ið h.f. sem var þriðji hæsti gjaldandinn á síðasta ári með heildargjöld alls kr. 73.330.437, er nú í 15. sæti með 39.461.332 í samanlögð gjöld. Þá hefur álagning á nokkra banka hækkað mjög frá siðasta ári, þannig er Búnaðarbankinn nú fjórði hæsti gjaldandinn með 108.345.236 i samanlögð gjöld en var með rúmlega 18 milljónir á siðasta ári. Einnig er Iðnaðarbankinn og Spari- sjóður vélstjóra ofarlega á lista yfir hæstu tekjuskatta lögaðila í ár. Sjá nánar frétt og töflur á bls. 5. N130TK I ...... .... ... Einkaþota forstjóra Pepsi Cola i Bandarikjunum Roger Enrico, bíður stillt og prúð á Reykjavikurflugvelli á meðan hann rennir fyrir lax. Slik risafyrirtæki munar ekki um að íáta lúxusþotu standa óhreyfða í viku eða tiu daga. Á baksíðunni er viðtal við islenskan samkeppnisaðila hans sem nýlega kvað sér hljóðs á gosdrykkjamarkaðnum. GERÐARDÓMUR GÆTI AÐEINS FARIÐ Á EINN VEG segir Eyjólfur Konráð Jónsson um ágreining Dana, Fœreyinga og Grœnlendinga um íslenska efnahagslögsögu Dómsmálaráðuneytið hefur samkvæmt ákvörðun dóms- málaráðherra og sjávar- útvegsráðherra óskað eftir því viö utanríkisráðuneytið aö það itreki það við hlutaðeig- andi stjórnvöld i Danmörku, Færeyjum og Græniandi hvar mörk íslenskrar efnahagslög- sögu eru. Eyjólfur Konráð Jónsson formaður utanrlkisnefndar Al- þingis sagði í samtali við Al- þýðublaðið að Danir hefðu mótmælt því fyrir löngu síð- an að við notuðum Kolbeins- ey sem grunnlínupunkt, en það höfum við alltaf gert og það kemur alls ekki til greina að því verði breytt af okkar hálfu. „Við munum hvergi hvika frá því og við höfum neitað að ræða þetta mál frekarvið Dani. Færeyski tog- arinn sem nú um helgina var tekinn i íslenskri lögsögu var ekki staddur á neinu gráu svæði því þetta svæði er ótvírætt okkar eign,“ sagöi Eyjólfur. Eyjólfur sagði einnig að Danir hefðu fyrir hönd Græn- lendinga óskað eftir að þeir fái óskertar 200 mílur í átt til Jan Mayen eins og við Is- lendingar, en íslendingar og Norðmenn hafa samið um sameiginleg réttindi að mið- línu milli Grænlands og Jan Mayen. Okkar réttindi byggð- ust á allt öðru en þeirra krafa. „Við stöndum fast á því að þarna eigi miðlína að ráða eins og almennt er í hafrétt- inum og að engin rök séu fyr- ir þvi að þeir eigi að fá óskertar 200 milur eins og við. Það byggist á sögulegum rétti okJ<ar því þessi eyja er alveg eins íslensk og norsk. Þegar Norðmenn gerðu tilkall til hennar árið 1927 spurðu þeir danska utanríkisráðu- neytið hvort það gerði nokkra athugasemd við það, og þá áskildi Jón Þorláksson for- sætisráðherra á þeim tíma ís- lenskum borgurum þann sama rétt á eyjunni og Norð- mönnum. „Við eru því reiöu- búnir að vísa málinu fyrir gerðardóm þar sem hann get- ur aðeins farið á einn veg“ sagði Eyjólfur Konráð. Gerð- ur var samningur sem tryggði okkur réttindi þótt Norðmenn fengju formlega yfirráðarétt yfir eyjunni. Þá sagði Eyjólfur ennfremur að við mættum veiða 85% af loðnu á þessu svæði en Norðmenn aðeins 15%. Utanríkismálanefnd Al- þingis svaraði i gær fyrir- spurn sjávarútvegsráðherra og utanríkisráðherra um hvort hún gerði einhverjar athugasemdir við það að norsk.i flotinn sem ekkert hefur fengið á sínu svæði frá þvi 10. júlí s.l. mætti fá allt að 40 þús. tonn af sínum kvóta innan íslenskrar efnahagslög- sögu. Utanríkismálanefndin samþykkti það og mun því Norðmönnum verða heimiluð veiði þar. Þorsteinn Pálsson, forsæt- isráðherra, fór ásamt Árna Kolbeinssyni ráðuneytis- stjóra í sjávarútvegsráðuneyt- inu, og fleirum til Færeyja í gær. Þar mun hann sitja fund með Atla Dam lögmanni Færeyja og Jonathan Mosz- feldt formanni landsstjórnar Grænlands, þar sem þessi mál verða líklega rædd.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.