Alþýðublaðið - 11.08.1988, Blaðsíða 5
Fi'rtihrtt'u'dagur 11. ágúst 1988
5
FRÉTTASKÝRING
Ómar Friðriksson
skrifar
Ríkisstjórnin undirbýr efnahagsaðgerðir
NHNIRNERSUILEH)
Á TEIKNIRORÐINU
Ráðgjafarnefnd Þorsteins er að mestu hœtt að gœla við gengisfellingartillögur
og skoðar niðurfœrsluleið í samráði við Þjóðhagsstofnun.
Gengisfelling ekki dagskrármál en ráðherrar óttast mjög gjaldeyrishamstur úr
bönkum og hafa uppi viðbúnað.
Eru sjónarmið Framsóknar og Alþýðuflokks að mœtast?
í efnahagsmálastöðunni
standa stjórnvöld nú frammi
fyrir tveimur valkostum sem
þau hafa sjálf sett sér: Ann-
ars vegar er rætt um grimmar
og sársaukafullar aðhalds- og
niðurskurðaraðgerðir. Geng-
isfellingu og mikinn niður-
skurð ríkisútgjalda þar sem
stjórnvöld vilja ekki hvika frá
því að afgreiða fjárlög fyrir
næsta ár hallalaus. Raunar
stefnir fjármálaráðherra að
því að rikissjóður skili tekju-
afgangi. Hins vegar er rætt
um svokallaða „niðurfærslu-
leiö“.
í efnahagsmálunum eru
ólik sjónarmið uppi. Þá er
aðeins háif sagan sögð þvi á
pólitiska sviðinu er bjargráða
ekki síður þörf. Ríkisstjórnin
hefur komið fram sem sund-
urlaus hópur ráðherra með
sérskoðanir. Framsóknar-
menn hafa haldið stífa fundi
undanfarið og ekki farið leynt
með það. Viðfangsefnið: leið-
ir til að leysa vanda atvinnu-
lífs. Sumir vilja þó halda því
fram að framsóknarmenn séu
þarna að leika pólitískar sjón-
hverfingar því tillögur þeirra
lágu þegar fyrir i vor eftir
miðstjórnarfundinn fræga.
Þó bendir ýmislegt til að þar
sé alvaran á ferðum. Þeir
hafa aðallega beitt þeirri
aðferð að „yfirheyra“ áhrifa-
menn til að kortleggja stöð-
una. Á öðrum vettvangi eru
svo ráðherrar Alþýðuflokks-
ins sem vinna nú hörðum
höndum að fjölmörgum verk-
efnum sem snerta fyrirhug-
aðar efnahagsaðgerðir, undir-
búning fjárlaga- og lánsfjár-
lagagerðar og önnur mikil-
væg stjórnarfrumvörp fyrir
haustþingið.
Margt bendir til þess að
sjónarmið Framsóknar- og
Alþýðuflokks séu að mætast
og að þessir flokkar geti
stillt saman strengi fyrir
stóru ákvarðanirnar sem
teknar verða í síðari hluta
mánaðarins og ( haust. Ráð-
herrar Alþýðuflokksins hafa
ræðst mikið við á síðustu
dögum um verkefni sín enda
heyra flest mál, sem mest
brennur á um þessar mundir,
undir þeirra ráðuneyti. I dag
kemur svo þingflokkur
Alþýðuflokksins saman til
fundar þar sem staða mála
og vinnubrögð á næstunni
verða til umræðu. í fyrradag
hittust Steingrímur og Jón
Baldvin á löngum fundi þar
sem efnahagsmál og staða
atvinnulífsins voru rædd.
Ekkert hefur heyrst frá sjálf-
stæðismönnum þó vitað sé
að þeir hafa eitthvað samráð
um stöðuna, en sjálfur verk-
stjórnandinn er fjarri öllu
gamni í opinberri heimsókn
og síðan vikufríi vestur í
Bandaríkjunum. Áður greip
hann þó til þess ráðs að
skipa „forstjóranefndina“ til
að koma með tillögur um
aðgerðir til að bæta stöðu út-
flutningsfyrirtækjanna. Þessi
ákvörðun er einsdæmi í
stjórnmálasögunni og hefur
nefndin hlotið ýmis heiti s.s.
„Lítla rikisstjórnin" eða
„Skuggaráðuneyti Þorsteins".
Tilgangurinn hefurvafist fyrir
ýmsum og hefur Alþýðublað-
iö áreiðanlegar hiemildir fyrir
því að þessi ákvörðun for-
sætisráðherra hafi mælst
heldur illa fyrir meðal margra
stjórnarliöa. Sumir benda þó
á að þarna hafi Þorsteini tek-
ist það snjallræði að þagga
niður í háværustu gengisfell-
ingarforstjórunum og gert þá
samábyrga fyrir aðgerðum
ríkisstjórnarinnar. A móti
benda menn á að með þessu
hafi Þorsteinn tekið gifurlega
áhættu. Rikisstjórnin hyggst
ekki fella gengið á næstunni
en óttast mjög að svipað
ástand skapist og í maí þar
sem mikil spákaupmennska
og gjaldeyrisútstreymi þving-
uðu fram gengisfellingu fyrr
en til stóð. Nefndarskipunin
hefði hæglega getað ýtt
skriðunni af stað, þar sem í
henni sitja atvinnurekendur
sem hafa margsinnis krafist
stórfelldrar gengislækkunar
til bjargar útflutningsfyrir-
tækjunum og samkeppnis-
greinunum.
VIOBÚNAÐUR
Af einhverri ástæðu hefur
ekki fariö af stað nein mark-
tæk gengisfellingarpanik en
stjórnvöld fylgjast þó grannt
með og eru I viðbragðsstöðu.
Sendir Seðlabankinn við-
skiptaráðherra reglulega upp-
lýsingar um breytingar á
gjaldeyrisútstreymi á hverjum
degi. Að fyrirmælum Jóns
Sigurðssonar hefur einnig
verið komið á eftirlitsreglum
sem koma eiga í veg fyrir að
Seðlabankinn afgreiði gjald-
eyrisbeiönir umfram það sem
þegar er farið á gjalddaga til
að koma í veg fyrir gjaldeyris-
spákaupmennsku. Meiri við-
búnaður er þó hafður uppi.
Hreyfingar í viðskiptalifinu
eru undir smásjá enda má
ýmislegt hafa til marks um
gjaldeyrisspákaupmennsku
s.s. bifreiðaútsölur bila-
umboðanna. Stjórnvöld geta
að sjálfsögðu ekki gripið
beint inn i viðskiptin á mark-
aðnum en hafa ýmis vopn í
hendi s.s. að hækka að
bragði innflutningsgjöld á
bílum.
NIDURTALNING Á DAGSKRÁ
„Skuggaráðuneyti Þor-
steins" hóf störf sl. föstudag
og hefur haldið fundi tvisvar
á dag. Stefnt er að því að
nefndin Ijúki störfum í lok
næstu viku, þ.e. að tillögurn-
ar liggi fyrir þegar forsætis-
ráðherra kemur heim frá
Bandaríkjunum. Nefndar-
menn hafa verið sem lokuð
bók við fréttamenn en skv.
heimildum blaósins var um-
ræðuefni i fyrstu eingöngu á
gengisfellingarnótum. Þar var
talað um allt að 30% gengis-
fellingu. Síðan urðu þeir þó
að fara að horfast i augu við
marghliða staðreyndir, sem
forstjórar í atvinnulífinu þurfa
yfirleitt ekki að hafa á borð-
inu hjá sér en eru að sjálf-
sögðu daglegt umhugsunar-
efni stjórnvalda, nefnilega
afleiðingar gengislækkunar
fyrir verðbólguþróun. Hag-
fræðingar telja að 25—30%
gengisfelling þýði a.m.k. 70%
verðbólgu í desember. Þeir
uröu einnig að meta hvaða
afleiðingar gengisfelling
hefði fyrir uppfærslu á skuld-
um fyrirtækja, á hækkun
nafnvaxta og aukna fjár-
magnsbyrði. Rýrnun kaup-
máttar fylgdi aö sjálfsöðgu i
kjölfarið og hvernig áttu
nefndarmenn að meta áhrif
þess á vinnumarkaði?
Reynslan af tveimur gengis-
fellingum á þessu ári sýnir
aukin heldur að jákvæð áhrif
þeirra eyðast á örfáum
mánuðum. Þegar nefndar-
menn höfðu áttað sig á
þessu munu þeir hafa farið
að ræða niðurfærsluleiðina
svokölluðu, en efnahagssér-
fræðingar stjórnarflokkanna
skoða hana nú af mikilli
athygli. Leiðin byggist á því
að lækka tilkostnað greina
atvinnulífsins og hefur reynd-
ar aðeins einu sinni verið
reynd hér, þ.e. af ríkisstjórn
Emils Jónssonar árið 1959.
Nefndin hefur samráð við
Þjóðhagsstofnun við mat á
niðurfærsluleiðinni, enda
telja menn þar á bæ að hún
ætti' að geta skilað talsverð-
um árangri. Hún er hins veg-
ar mjög erfið I framkvæmd
því i henni felst það einfald-
lega að allur kostnaður er
færður niður með handafli;
laun, fjármagnskostnaður og
verölag i einu vetfangi.
Niðurfærsluleiðin vekur
margar spurningar þar sem
aðstæður í dag eru allt ann-
ars eðlis en 1959. í hnotskurn
er vandinn i dag afleiðing af
mistökum við efnahagsstjórn
á síðustu 15 árum sem lýsir
sér í hruni fyrirtækja-
strúktúrsins í landinu. Á ár-
unum 1978-1984 töpuðu fyrir-
tæki eigin fé í óðaverðbólgu
og söfnuðu skuldum. Síðan
fengu þau þriggja ára góðæri
en brugðust þannig við að
þau héldu áfram að safna
skuldum. Nú standa þau
frammi fyrir skilvirkri verð-
tryggingu og háum raunvöxt-
um sem eru að sliga atvinnu-
lífið og stjórnvöld þurfa að
vinna úr vandanum við alger-
lega nýjar aðstæður.
STJÓRNARSLIT í HAUST?
Þótt lítið hafi borið á þvi
opinberlega að ríkisstjómin
vinni að efnahagsaðgerðum
er hörkuvinna i gangi í ein-
stökum ráðuneytum og sér-
stökum starfshópum flokk-
anna. Það sem ráöið verður
úr stööunni er að ráðherrarnir
reyna að draga gengisfell-
ingu á langinn þó fullvíst sé
aö gengið verði fellt eftir ein-
hverjar vikur. Kjarni efnahags-
aðgerðanna liggur í fjárlaga-
gerðinni og einstökum verk-
efnum á sviði viðskipta- og
peningamála. Þessi mál
munu koma fram í pökkum,
bæði í tengslum við efna-
hagsaðgerðir og stjórnar-
frumvörp fyrir þingið. Þar má
nefna vinnu við að finna leið-
ir til að draga úr víxlhækkun-
aráhrifum á peningamarkaði
og afleiöingar af því að lög-
binda lækkun vaxta á verð-
tryggðum skuldbindingum. I
vor lá fyrir frumvarp um
skattlagningu fjárfestingar-
lánasjóða og veðdeilda sem
ekki fékkst samþykkt þá en
fer líkloga í gegn núna og
svo eru menn að meta mögu-
leika á miklum niðurskurði
og lækkun kostnaðar á út-
gjaldahlið fjárlaga. Stjórnvöld
íhugaeinnig hvernig megi
auka möguleika fyrirtækja á
að auka eigið fjármagn svo
ekki þurfi sífellt að auka tekj-
ur þeirra með gengisfellingu
þegar harðnar á dalnum.
Huga menn m.a. að þvi
hvernig gera megi hlutabréf
arðbærari og hvernig gera
megi fyrirtækjum kleift að
auka eigið fjármagn með
hlutafjárútboðum. Hér er þó
aðeins fátt eitt nefnt af þeim
verkefnum sem eru á borðum
ráðherranna og eftir er að ná
pólitlskri samstöðu. Líkureru
taldar á að Framsókn og
Alþýðuflokkur gætu náð
saman um þetta en svo er
opin spurning hvort Fram-
sókn ætlar að spila úr stöð-
unni með því að ganga úr
stjórninni í haust ef kröfur
flokksins ná ekki fram að
ganga og Alþýðuflokkurin
að standa og/eóa falla með
verkum slnum. Sjá'ío* Jis-
flokkurinn er aftur a móti
sem lokuð bók.