Alþýðublaðið - 26.08.1988, Qupperneq 1
Ríkisstjórnin og ASÍ
SAMRÁD EKKI
ÚTILOKAÐ
Á fundi miðstjórnar Al- I að tryggja kaupmátt fólks. I
þýðusambandsins í gær var því sambandi hljótum við að
ákveðið að hitta ríkisstjórn- tryggja stööu þeirra sem erf-
ina að máli og kanna nánar iðast eiga. Af þeim sökum
hvaö hún hefur fram að færa varð niðurstaða okkar sú, aö
áður en ákvörðun veröur tek- óhjákvæmilegt væri að við
in um ósk rikisstjórnarinnar, könnuðum afstöðu ríkis-
sem fram kom i gær, um stjórnarinnar til einstakra
samráð vegna efnahagsað- þátta málsins áður en við
geröa á nótum niðurfærslu. segðum miklu meira,“ sagði
„Það sem snýr að okkur er | Ásmundur Stefánsson, for-
seti ASI, við Alþýðublaðið eft-
ir fundinn.
Klukkan átta árdegis geng-
ur miðstjórnin á fund ríkis-
stjórnarinnar. Eftir þann fund
verður líklega haldið áfram
að ræða möguleikann á sam-
ráði.
„Mér sýnast þessi fyrstu
viðbrögð á þann veg, að mið-
stjórnin vilji ræða nánar hvað
stjórnvöld telja að þessi leið
eigi að innifela," segir Karvel
Pálmason, varaformaður
Verkamannasambandsins.
Samkvæmt heimildum Al-
þýðublaðsins hafa Framsókn
og kratar ákveðnar hugmynd-
ir um um hvað slíkt samráð
getur snúist. Nánar er fjallað
um það í fréttaskýringu á bls.
3.
Anker Jergensen
„Norðurlönd
úr einangrun“
„Noröurlönd veröa aö
losna úr einangrun," sagði
Anker Jorgensen, fyrrum for-
sætisráðherra Oana, á fundi
norrænna bankamanna á
Hótel Sögu i gær. Fjallaöi
hann um samvinnu Noröur-
landa og samskipti við önnur
Evrópulönd.
„Samvinnan má ekki kosta
hvað sem er,“ sagði Anker og
taldi t.d. ekki koma til greina
að umhverfismálum yrði fórn-
aö á kostnað markmiða
Evrópubandalagsins um
frjáls viðskipti og afnám allra
hindrana. Þá hefur hann og
miklar efasemdir um hugsan-
lega skattastefnu bandalags-
ins og telur fráleitt að Danir
fórni markaðri velferðar-
stefnu.
Danir eru einir Norður-
landaþjóða í Evrópubanda-
laginu, en Anker Jorgensen
segir samvinnu Norðurlanda
nauðsynlega til þess að hag-
ur þeirra verði ekki fyrir borð
borinn í viðræðum þeirravið
Evrópubandalagið.
í helgarblaði Alþýðublaðs-
ins verður rætt nánar við
Anker Jorgensen.
Anker Jorgensen: Samvinna við EB má ekki kosta hvað sem er.
Eggjastríð
UPPÁ
KRÓNU
sama verð í
verslunum
Neytendasamtökin hafa
kært samtök eggjaframleið-
enda fyrir samráö í verðlagn-
ingu. Frá því hefur veriö sagt
i Alþýðublaðinu að verðlagn-
ing á eggjum hljóti að vera
með undarlegum hætti i
verslunum. Frá því í mars
hefur verð á eggjum t.d. verið
upp á krónu hið sama í Hag-
kaup og Miklagarði, tveimur
stærstu matvöruverslunum
landsins. Verð á kílói var i
mars 199 krónur, og hefur
siðan færst samhliða i báð-
um mörkuðum upp í 298 kr. í
júlí sl.
Samkvæmt verðkönnun Al-
þýðublaðsins, sem fram-
kvæmd var í byrjun vikunnar,
er verð á eggjum áfram
óbreytt og nákvæmlega hið
sama í verslununum tveimur.
298 kr. kostar kg.
Formaður eggjaframleið-
enda var kallaður á fund í
Verðlagsstofnun í gær og var
samtökunum gefinn frestur
til að útskýra stööuna út frá
þeirra bæjardyrum séð og
leggja fram nauðsynlegar
upplýsingar. Guðmundur Sig-
urðsson á Verðlagsstofnun
segir áð í ítarlegri verökönn-
un stofnunarinnar, sem lauk
um miðjan ágústmánuð, hafi
komið í Ijós að smásöluverð
á eggjum sé upp á krónu hið
sama í öllum verslunum, sem
könnunin náði til. Það sama
gildi og um heildsöluverðið.
Það sé þó of snemmt að full-
yrða að um ólögmæta við-
skiptahætti sé að ræða. For-
maður í félagi eggjabænda
segir að 1—2 risar á
markaðnum marki leiðina, og
aðrir fylgi í kjölfarið með
sama verð. Formaður eggja-
bænda telji að með aðgerð-
um eggjabænda fyrr á árinu
hafi komist á jöfnuður á
markaðnum. I dag sé ekki um
umframframleiðslu að ræða.
Kallar Guðmundur þetta selj-
endamarkað, þar sem selj-
endur ráði nú ferðinni. Eggja-
framleiðendur haldi því samt
fram að ekki sé um samráð
að ræða. „Eftir sem áður er
þetta spurning um rétt og
órétt á markaði," segir Guð-
mundur Sigurðsson á Verð-
lagsstofnun.
MIKAUPÞING
NORÐURLANDS HF
Ráðhústorg 5 • Akureyri Sími 96-24700