Alþýðublaðið - 26.08.1988, Side 2

Alþýðublaðið - 26.08.1988, Side 2
2 Föstudagur 26. ágúst 1988 MtfÐlfBLMÐ Útgefandi: Blaö hf. Framkvæmdastjóri: Hákon Hákonarson Ritstjóri: Ingólfur Margeirsson Fréttastjóri: Kristján Þorvaldsson Umsjónarmaöur helgarblaðs: Þorlákur Helgason Blaðamenn: Haukur Holm, Ingibjörg Árnadóttir og Ómar Friðriksson. Dreifingarstjóri: Þórdls Þórisdóttir Setning og umbrot: Filmur og prent, Ármúla 38. Prentun: Blaðaprent hf., Síðumúla 12. Áskriftarsíminn er 681866. Áskriftargjald 800 kr. á mánuði. í lausasölu 50 kr. eintakið virkadaga, 80 kr. um helgar. NÚ ÞARF SAMSTÖÐU Stjómarflokkamir eru sammála um aö kanna til hlítar hugmyndir um niöurfærslu launa og verðlags sem ráögef- andi nefnd um efnahagsmál, skipuö af forsætisráöherra, hefur sett fram. Þaö eru jafnframt eölileg viðbrögö stjórn- arflokkanna þriggja aö setja fyrirvara viö sumar tillögur ráögjafarnefndarinnar, enda er skýrsla hennar meira í ætt við lausarhugmyndiren fullmótaö plagg. Meginmarkmiö- ió meö niðurfærsluleiðinni svonefndu erað ná niðurverð- bólgu. Þaö er augljóst aö mesti vandi efnahagsstjórnar á íslandi er veröbólgan og því verður aö berjast meö öllum tiltækum ráöum aö komaveröbólgu á íslandi niðurásvip- að stig og í helstu nágrannalöndum okkar; ekki aðeins timabundió, heldur til frambúðar. Þaö þarf aö uppræta orsakir verðbólgunnar; langvarandi jafnvægisleysi í opin- berum fjármálum og lánsfjármálum og átök um tekju- skiptingu og um atvinnu- og byggöaþróun. Um þessi mál þarf rfkisstjórnin að násamstööu. Sú leið sem nú er könn- uö, svonefnd nióurfærsluleiö, getur skilaö árangri því aö- eins aö hún nái til allraþátta þjóðlífsins. Annars eykur niö- urfærsluleiöin enn áójöfnuóinn í þjóöfélaginu. Verði niðurfærsluleióin valin verður því aö tryggja aö hinni óhjákvæmilegu kjaraskerðingu verði jafnað jafnt á alla; fyrirtæki sem einstaklinga, jafnt á opinberan rekstur sem í einkageira. Samtímis veröur aö verja kjör hinna tekjulægstu í samfélaginu og komaí veg fyriraö greiöslu- byröi heimila af húsnæöislánum þyngist. En þaö er fleira sem veröur að hyggja aö í efnahagspakka niöurfærslunn- ar. Þaö er löngu tímabært aö skattleggja fjármagnstekjur hátekjufólks umfram venjulegan sparnað almennings. Þaó er siólaust aö hópur manna í þjóöfélaginu fái aö leika lausum hala og auógast af fjármagni einu saman í takt við hávaxtastefnuna án þess aö leggja neitt af mörkum til framleiðslu verömæta. Ríkið og sveitarstjórnir verða aö ganga á undan meö góöu fordæmi. Tryggja veröur afgang á fjárlögum fyrir næsta ár og endurskoöa skattaálögur, draga saman útgjöld og stórherða aðgerðir gegn skatt- svikum. Hió opinbera jafnt sem sveitarfélög verður að draga úr framkvæmdum og hér má Reykjavík ekki skerast úr leik, svo ekki aukist enn misvægiö milli höfuóborgar- svæöis og landsbyggðar. Á sama tíma þarf aö takmarka lántökuheimildir og lánveitingar fjárfestingarlánasjóöa svo dragi úr framkvæmdum einkaaöila. En umfram allt veröur nióurfærsluleióin að vera sanngjörn og réttlát, verði hún valin. Ríkisstjórnin veröuraö ábyrgjast að fram- kvæmdinni veröi skipt jafnt niður á alla aöila. Sé lögbind- ingu beitt veröur sú lögbinding aö gilda jafnt um verðlag sem laun. Þjóóin stendur frammi fyrir alvarlegri efnahagsvanda en oft áöur. Gjaldþrot fyrirtækjaog heimila um allt land blasa vió. Við þurfum á þjóöarsátt aö halda um leiðir sem skila okkur varanlegum árangri. Stríösyfirlýsingar forseta Al- þýöusambands íslands eru meö öllu ótímabærar áöur en ríkisstjórn Þorsteins Pálssonar hefur ákveöiö og fullmót- aö efnahagsaögeröirnar. íslenska þjóöin þarf síst af öllu á langvarandi átökum á vinnumarkaöi að halda, ósam- stööu og almennri upplausn. Viö þurfum víötæka sam- stööu til aö vinna okkur út úr þeim vanda sem við blasir. ÖNNUR SJÓNARMIÐ TIMINN gerir nugmyndír stjómarflokkanna um niður- færsluleið svonefnda að um- talsefni í forystugrein i gær. Tíminn bendir á, að gallar þessarar leiðar hafa verið út- hrópaðir meðan hinar jákvæðu hliðar hennar hafa nánast ekki fengið neina um- fjöllun. Tíminn segir: „Eftirtektarvert er aö i um- ræðum um nauðsyn efna- hagsráðstafana, sem eðlilega hafa aukist eftir að niður- færsluhugmyndin komst í al- mæli, er varla staðnæmst við að ræða sjálfan vandann, sem við er að giíma, heldur einblint á ágalla þeirra leiða, sem til greina koma við lausn á efnahagsöngþveitinu. Það væri illa farið, ef þjóð- in og forystulið hennar í hópi stjórnmálamanna og for- manna hagsmunasamtaka almennings halda áfram að deila um leiðir út úr ógöng- unum, þar til þjóðin og þjóð- arleiötogarnir hrapa út af bjargbrúninni. Hvað niöurfærsluleiöina varðar þá er æskilegt að allir geri sér grein fyrir þvi að hún er því aðeins fær að öll áhrifaöfl þjóðfélagsins standi á bak við hana. Niðurfærslu- leiðin er vissulega rothögg á pólitískar kreddur og þær patentlausnir, sem móðins er að veifa sem allrameinabót á borð við óhefta markaös- hyggju eða slagorðavaðal um kjaraskerðingu, ef reynt er að rjúfa vítahring verðbólgu- skrúfunnar. Niðurfærsluleiðina verður að skilja þannig — og fram- kvæma þannig — aö í henni felist þær heildarráðstafanir sem gera þarf til þess að koma útflutnings- og sam- keppnisatvinnuvegunum á réttan kjöl.“ Og síðar í leióaranum segir Tíminn: „Það sem er aö drepa ís- lenskt atvinnulíf er verðbólga og framkvæmdaþensla á höf- uðborgarsvæðinu. islensk út- flutningsstarfsemi er ósam- keppnisfær að selja vörur sínar á erlendum mörkuöum. Samkeppnisiðnaður í landinu stenst ekki samkeppni við innflutta vöru. Fjármagnið er orðiö að markaðsvöru á opin- berum svartamarkaöi innan i þröngum og lokuðum fjár- magnsmarkaði íslensks hag- kerfis. Ef umrædd niðurfærslu- leið liggur út úr þessu öng- þveiti, þá ættu ráðamenn þjóðarinnar aö fara hana. Rík- isstjórnin lýsir yfir því aö hún sé að kanna þessa leið sem úrræði til lausnar efnahags- vandans. Þaö er ástæöa til að skora á önnur ráðaöfl þjóðarinnar að gera slíkt hið sama. Fordómalaus athugun ætti engan að skaða.“ Skrifar Tíminn. A öörum stað á leiöarasiðu- Tímans birtist aö venju pistill eftir aöstoöarritstjóra blaðs- ins, Odd Ólafsson. Að þessu sinni fjallar Oddur um fisk- verö og hve dýr fiskur er til íslenskra neytenda. Timinn er þeirrar skoðunar aö niðurfærsluleiðin sé rökkuð niður áður en hún hafi veriö skoðuð eöa hinar jákvæðu hliðar hennar athugaðar. Oddur: Fiskverð ótrúlega hátt til íslenskra neytenda Oddur skrifar: „í Tímanum í gær var sagt að 100 kr. hafi fengist fyrir kiló af ýsu i Bretlandi. Fyrr í mánuðinum var það á 77 kr. á sama markaði. Morgunblaið sagði frá 70 kr. meðalverði á ýsu á fisk- mörkuðum i Bretlandi i júní. Sama mánuð var meðalverð á ýsu í Hafnarfirði 46,43 kr. kílóið, en á fiskmarkaði Suð- urnesja var meðalveröið á ýsu í júli 53,22 kr. Á Faxa- markaði var meðalverðið 47,21 kr. í júlimánuði. DV sagði þær fréttir, einn- ig i gær, að á Faxamarkaði hafi fengist 61—64 kr. fyrir kílóið af ýsu. Tvær stórlúður voru seldar á 160 kr. kílóið. Allt er þetta náttúrlega heildsöluverö og fiskur er seldur hausaður i smásölu, eða jafnvel flakaöur, nema stórlúðan, og skattur leggst á með álagningunni. Þetta verð getur hvert ein- asta heimili á landinu borið saman við þaö sem greitt var fyrir siðustu máltíð af ýsu eða lúðu. Samt sem áður er fiskur óheyrilega dýr til íslenskra neytenda. Ef þeir sem fiskinn draga, verka og selja bæru gæfu til að draga úr okrinu tif islenskra neytenda og gefa þar með kost á ódýrri og hollri fæðutegund mundi þaö vera meiri og betri kjarabót en flestar ráðstafanir aðrar. Það gæti jafnvel farið svo að þeir hefðu efni á aö reka út- gerö og fiskvinnslu áfram, ef þeir aðeins hefðu það vit í kollinum að reyna að græða meira á öðrum en einmitt því sama vinnuafli sem þeir segj- ast ekki hafa efni á að borga kaup. Ef heimilin ættu þann val- kost að einhver ódýr fæðu- tegund væri á boðstólum mundi þaö geta lækkað heimiliskostnað verulega og haft áhrif til að draga úr vöru- veröi og þar með verðbólgu." Segir í sjónarmiðum Odds Ólafssonar. MORGUNBLAÐIÐ fjaii ar í leiðara í gær (líkt og Al- þýðublaöiö) um tilboðið I Granda hf. Sigurjón Péturs- son, fulltrúi Alþýðubanda- lagsins í borgarstjórn, hefur lagst gegn því að Reykjavík- urborg selji hlut sinn i Granda hf. Morgunblaðið hef- ur hins vegar aðra skoóun á því máli. Blaðið segir: „Eftir tilkomu Granda hf. 1985 hefur tekist að halda þannig á rekstri fyrirtækisins aö bæöi 1986 og 1987 skilaði hann hagnaöi. í ár hefur fé- lagið glímt viö samskonar erfiöleika og önnur útgerðar- og fiskvinnslufyrirtæki og í vor var gripið til hagræðingar og annarra ráðstafana til að koma í veg fyrir halla. Þegar ákveðið var fyrir forgöngu Daviðs Oddssonar, bqrgar- stjóra, að sameina BÚR og ísbjörninn snerust vinstri- sinnar í borgarstjórn Reykja- víkur gegn þeim ráðagerðum. Þeir hafa siðan leitast viö að gera uppbyggingarstarfið i Granda hf. sem tortryggileg- ast og oftar en einu sinni lát- ið eins og fyrirtækiö væri að stíga sín síðustu skref. Það er í hróplegri aðndstööu við þann málflutning allan, að nú skuli fjögur einkafyrirtæki taka höndum sman og gera 500 milljóna króna tilboð i eignarhlut Reykjavikurborgar í Granda hf., en hann er 241 milljón króna. Ef eitthvaö hefði verið að marka það, sem talsmenn vinstrisinna í borgarstjórn Reykjavíkur hafa sagt um þetta mál, heföi mátt ætla að hér væri um byrði og vandræðafyrirtæki fyrir borgarsjóð að ræða, sem hann mætti þakka fyrir að geta losnað viö.“ Þessi sama skoðun kom fram í leióara Alþýðublaðsins I gær og eru því blöðin tvö innilega sammála í þessu máli. Og ekki orð meira um þaó. Kona ein kærði eiginmann sinn fyrir líkamlegt of- beldi. Þegar hjónin mættu í réttarsalinn kom í Ijós aö maðurinn var afar veikburöa og sat í hjólastól. Konan var meö mikiö glóðarauga. Dómarinn spurói: „Ætlaröu aö segja mér, kona góö, aö jafnpervisinn maður og í hjólastól þar aö auki hafi getað gefið yöur þetta glóöarauga?“ Konan svaraði: „Hann var hvorki pervisinn né í hjóla- stól þegar hann sló mig!“

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.