Tíminn - 21.11.1967, Side 7
ÞRIÐJUDAGUR 31. nóvember 1967.
Rautt sortutyn
rGuSmundur Frímann:
Rautt sortulyng.
ALmenna bókafélagið, Reykjavík
967.
Þetta er annað smásögusafnið,
sem Gu'ðimundur Frímann gefur út
Fyrir þrem árum kom út eftir
Jjann SvartJárdalssólin og fieiri smá
•»gur og vakti sú bók nokkra at-
liygli og hlaut misjafna dóma. Má
vera að svo verði einnig um þetta
sögusafn. Engan efa tel ég þó á
því, að áður en lýkur verði báðar
þessar bæ-kur viðurkenndar og
skipað á bekk með ljóðum höfund
arins, en á því sviði hefur aildrei
leikið neinn efi á hæfileikum hans.
Guðmundur Frámann er ágætt
ljóðskáld, söngrænn, ljúfur og
þýður, þó að ha:nn eigi einnig til
tregasáran streng. Hann er fiðlar
inn meðai íslenzkra skálda, sem
nær hinum ólíklegustu veðrabrigð
um í strengleik sinn eins og tátt er
um þá, sem skynja sorg og gleði
Mfsins með meiri næmleik en aðrir.
Smásögur Guðmundar hafa allir
hin sömu einkenni og kvæðin. Mér
þykir sennilegt, að hann hafi fyrst
hugleitt efni sumra þeirra til ljóða
gerðar, en það hafi orðið Ijóða-
forminu ofviða og þess vegna orðið
að smásögu. Stíil hans er ljóðrænn
og blæibrigðaríkur, oft svo að unun
er að lesa hann.
í þessari bók: Rautt Sortulyng,
eru átta smásögur og allar góðar.
Bezt þykir mér þó sagan: Stór-
þvottur á hausti, sem er einkar
vel gerö saga og ógleymanieg í
einfaldleik sinum.
f stórbrimi skolast líkin upp á
ströndina, reköld allra átta og
heimshafa. Lífsþreyttar og fálátar
konur taka á móti þeim, þvo þau
og gera þeim til góða eins og
unnt er, þegar hingað er komið
sögu. Meðal þeirra, sem hafið skil
ar á land, er lík af gömium og
nýjum elskuga annarrar þvotta-
konunnar, sem hún hefur kvatt
aðins fyrir fám klukkustundum.
Hún hafði hitt hann eina ögur-
stund, er hún var ung, og iátið vel
að honum, áður en hann hvarf út
í veröldina tii að lifa rótlausu
flökkulífi farmannsins, og aftur
hittir hún hann af tilviijun og
hlynnir að honum, áður en hann
leggur á hinzta vaðið. Reyndar
sýnist hún vera hálfs hugar í ást
sinni. Það er meira kveneðli henn-
ar og móðurtilfinningar, sem ráða
í viðskiptum þeirra. Konan er
þarna ímynd algæzkunnar, sem
tekur hina þreyttu og þjáðu í
faðm sinn og veitir þeim hvíld.
Og einmitt þess vegna fellur það
einnig í hlut hennar að veita hon-
um þessa síðustu þjónustu og loba
augum hans undir nótt allra
nótta.
Enginn ræður í það að fullu,
hvaö hrærist í sál konunnar. En
meistaralegá er fórnarverki henn
ar lýst, sem ástmeyjar og móð-
ur.
Lóla með rauða hárið, er saga
um ástina, lífið og dauðann. Þetta
er sterk saga, og miskunnariaus
lýsing á því, hvernig frilla Máva-
hlíðaibóndans tryllist í frygð sinni
í sama mund og hann flytur heim
lik konu sinnar eina dimma haust-
nótt. Einhverjir mundu kannske
hneykslast á því, hvernig höfund
urinn stefnir þessum atburðum
hverjum gegn öðrum. En með því
lætur hann ofsa dauðans og
sköpunarinnar vegast á með blindu
tiliitsíeysi eins og oft virðist eiga
sér stað.
Mýrarþoga er saga um berkla-
veíku systurnar, sem hverfa hver
af annarri niður í kirkjugarðinn,
sögð af þrúgandi dapurleik.
Aitar hafa sögur Guðmu.ndar
Frimanns til sfns ágætis nokkuð.
Þær eru stærri í sniðum en
þær virðast í fyrstu, mál
far hans auðugt og áferðar-
gott. Hann segir sögur sínar af
mikilli list, af því að hann Iifir
þær. Þær eru hluti af skynjun
hans af lífinu, ægilegu og unaðs
legu í senn. Höfundurinn lýsir líf-
inu eins og hann skynjar það af
samúð og tilfinningu, og hann hef-
ur hugrekki til að gera þetta,
hvor1 sem það kann að hneyksla
menn eða ekki.
Fyrsta viðleitni hvers rithöfund
ar ætti að vera sú, að vera sann-
ur. Án þess verður ekkert gagn
að ritum hans, enginn listrænn
árangur eða aukinn skilningur á
lífinu
Guðmundur Frímann hefur
aldrei látizt vera neitt annað en
hann er. List hans er orðin til fyrir
djúpa innlifun og samúð með allri
lifandi veru.
Benjamín Kristjánsson.
Fasteignasalan Garðastræti 17
símar 24B47-15221
TIL SÖLU
Einbýlishús við Gufunes, 4ra herb., bílskúr. Góð-
ar geymslur. Girt og ræktuð lóð. Hagkvæmir
greiðsluskilmálar.
Einbýlishúsið Sólvellir við Hvassahraun, sem er
3 herb., ásamt útihúsum og hektara af ræktúðu
landi. Útborgun við samning 35 þús. Góð að-
staða til að reka hærsnabú
Árni Guðjónsson hrl., Þorsteinn Geirsson hdl.
Helgi Ólafsson, sölustjóri Kvöldsími 40647.
SKRIFSTOFA
Stuðningsmenn séra Bjórns Jónssonar, við prest-s-
kosningar í Hallgrímsprestakalli, er á Frakka-
stíg 12, kjallara, opm daglega kl. 16—22- —
Sími 10675.
BRONCO EIGENDUR
ÞOKULJÓSIN
komin
Pantanir óskast sóttar sem fyrst.
S M Y R I L L
Laugavegi 170 Sími 12260.
AUGLÝSIÐ í TÍMANUIVI
FYRSTIR með STÆRRA rými
320 lítra DJÚP-
FRYSTIRINN
STÆRRA geymslurýnii
miðað við utánmál.ryð-
frír, ákaflega öruggur í
notkun, fljótasti og bezti
djúpfrystirinn.
KPS-djúpfryst er
örugglega djúpfryst.
Aðalumboð: Einar Farestveit & Co. Vesturgötu 2
Verzlunin Búslóð við Nóatún.
Baldur Jónsson s/f Hverfisgötu 37.
FEILER REIKNIVELIN
fer sigurför um
landiS
• LEGGUR SAMAN
• DREGUR FRÁ
• GEFUR KREDITÚTKOMU
• STIMPLAR Á STRIMIL
Feiler reiknivélin kostar rafknúin
7.504.00
handknúin
5.687.00
Fullkomin viðhaldsþjónusta á
eigin verkstæSi.
SKRIFSTOFUVELAR H.F.
% ^
Hverfisgötu 33.
Sími 20560.
Sænsku gæðavörurnar frá:
STAR-Producter
Fata- og eldhússkápa, inni og útihurðir afgreið-
um við með stuttum afgreiðslufresti. Hagstætt
verð. Vönduð vara. Sýmshorn og myndlistar á
skrifstofunni.
BYGGIR H.F. — Sími 17672 — 34069.
Fyrirliggjandi:
Eikarparkett — Lakk og listar — Plast-gólfdúkur
m/filti — Plastic-gólffíísar — Lím — Eik og
eikarspónn — Teak & Teakspónn — Mahogany
og spónn — Krossviður 4 og 6 mm. — Veggflísar.
BYGGIR H.F. — Sími 17672 — 34069.
BLAÐBURÐARBORN
óskast í eftirfalin hverfi:
Hraunbæ og Rofabæ.
f
Bankastræti 7. Sími 12323