Tíminn - 09.12.1967, Blaðsíða 16
BORGARFULLTRÚAR Á BORGARSTJÓRNARFUNDl
Ræddu hækkunina
VIÐ HITA
RAFOFNS!
Það var viða kalt við Skólavörðustíginn heldur en í kj allaraíbúðum, eins og þessi mynd sýnir, sem tekin var
( gær i verzluninni Föndur. Þar voru afgreiðslustúlkurnar jafnkappkiæddar og viðskiptavinirnir, sem stóðu
fyrir framan búðarborðið, og þær reyndu að verma loppna fingurna á heitum kaffibolla! (Tímamynd Gunnar)
Saga úr kuldanum
EJ-Reykjavík, fimmtudag.
Frétt TÍMANS í dag, um að
9 stiga frost hefði mælst í íbúð
hér í Reykjavík á fimmtudaginn,
hefur vakið mikla athygli. Ástand
ið í umræddri íbúð var litlu
skárra i dag, en þá mældist þar
um 7 stiga frost. Er hér um að
ræða kjaUaraíbúð. Hún er að
Skólavörðustíg 44 — einum versta
staðnum í bænum hvað hjtave'tn
f kuldaköstum viðvíkur og gólf-
kuldi því mikill, en á gangi er
einnig trégólf.
Blaðið hafði í dag samband við
húsráðenda, Rófoert Ágúistsson, og
spurði hann nánar um málið.
— Iívernig var hitimn hjá þér,
þegar kuldakastið hófst?
— Það byrjaði með því, að
heitavatnið fór á daginn, en kom
aftur um kl. 12 á miðnætti. Var
hdinn sæmilegur, þann skamma
tíma sem hans naut við. Daginn
eftir fór hitinn aftur á móti
snemma um morguninn, en kom
aiftur upp úr bádeginu. Var
nokkur hiti til kvöldsins, en
þá hvarf hann að nýju.
— Og hvenær keyrði svo um
þverbak?
— Það var mjög vont ástand
á miðvikudaginn. Nokkur hiti
kom um morguninn, en hann fór
um klukkam 14. Heitavatnið var
svo lítið þann daginn, að heita
vatnsteljiarinn mældi það ekki!
Þessi kuldi stóð svo fram ti'l kl.
8,30 á fimmtudagsmorguninn, að
ÖMitill hiti kom, en hann fór um
hádegi þann dag og hef ég ekki
orðið var við hann síðan.
— Hivenær mældiist um 9 stiga
frost í íbúðinni?'
— Það var í gærdag, fimmtu
dag, um kl. 4,30 síðdegis, að
mælirinn sýndi um 9 stiga frost.
— Og hver var kuldinn í da2?
— Mæhrinn sýndi í morgun um
7 stiga frost.
Framhald á bls. 15.
GÞE-Reykjavík, föstudag.
Svo sem fram kom í blaS-
inu í dag urðu í gær miklar
umræður um hækkun hita-
veitugjalda á borgarstjórnar-
fundi. Nístingskuldi var í
salnum, og máttu borgarfull-
trúar vart vera að því að hlýða
á ræður hvers annars, því að
þeir voru í óða önn að færa
til rafmagnsofna, berja sér
til hita, og ganga um salinn
til að fá blóðið á hreyfingu.
Þeir skiptust á við að sitja við
miðstöðvarofninn og ylja sér, og
höfðust varla við inni í salnum.
Uppi á áheyrendapöllunum var
ástandið öllu verra, og sátu áheyr
endur dúðaðir í frökkum og með
trefla, en skulfu samt af kulda.
Frú ein, sem uppi á pöllunum sat,
og hiýddi á ræður borgarfulltrúa
spratt skyndilega á fætur undir
miðri ræðu Guðmundar Vigfús-
sonar og hrópaði yfir salinn: „Ég
Framhald á 14. síðu
Héraðsvötn loka vegi um Skagafjörð
OÓ-Reykjavík, föstudag.
Héraðsvötn í Skagafirði hafa
bólgnað mjög í frostunum und
anfarið og síðustu þrjá daga
hafa þau flætt yfir veginn á
Akratorfunni og lokað honum
fyrir umferð. Þá stíflaðist
Dalsá og flaut mikð klaka-
hröngl yfir veginn og lokaðist
hann um tíma, en síðan hvarf
áin með öllu og er nú hægt
að aka hann en svellbólstrar
eru þar yfir öllu.
Stífian í Dalsiá er langt ofan
tBmmaammmmmKm
við veginn og mun enginn
hætta á að hún bresti í bráð.
Ekki er fært um veginn á Akra
torfunni, eins og áðúr er sagt,
en hægt er að komast á jepp
um á svelli ofan við veginn en
stórir bílar komast hvergi. Hné
"atn er nú þama á veginum,
og hefur ekki hækkað í tvo
daga en er að frjósa og gerir
það umferð hálfu verri en
ella. Nokkuð hefur dregið úr
frosti fyrir norðan og er í dag
12 stig.
í dag stóð til að Vegagerðin
aðstoðaði bíla á leiðinni milli
Reykjavíkur og Akureyrar. Var
ve6urinn ruddur á állri leið-
inni, en ekki er e-nn vitað hvort
tekizt hefur að koma bílum yfir
Héraðsvötn. Öxnadalsheiði var
rudd í morgun og er nú fær
stórum bílum. Rétt er að taka
íram, að þótt Vegagerðin að-
stoði bíla eru það aðeins stórir
bílar sem h-ægt er að koma um
fjallvegi, það er að segja flutn
ingabílar og rútur. Reynt var í
dag að fá hald i'yrir oílana ut-
an við veginn á Akratorfunni,
því sjálfur vegurinn var algjör
lega ófær.
Hriðarveður var í Eyjafirði i
dag og vegirnir út fjörðinn
beggja megin ófærir Hins veg
ar voru bílar aðstoðaðir í Borg
arfirði, út á Snæfellsnes og
um Bröttubrekku.
Vegir um Suðurland voru
færir, nema um uppsveitir
Árnesssýslu var aðeins fært
Framhald á 14. síðu
Konuhjartað
slær eðli-
lega í
manninum
NTB-Höfðaborg, S-Afríku,
föstudag.
Louis Washkansiky, maður
inn, sem hjartað var grætt í
fyrir tæpri viku síðan, er
enn við góða líðan. í dag
svaf hann djúpum svefni og
nýjá hjartað sló jafnt og
örugglega. Nú er farið að
hilla undir þann möguleika
að hann geti verið heima hjá
konu sinni um jólin. Allt
bendir nú til þess að líkami
hans aðlagist hjartanu úr
PTamhaJa á 14. síðu
Framsóknarkonur
Félag framsóknarkvenna
Reykjavík heldur jóláfund si-r
miðvikudaginn 13. desember næ,
komandi kl. 8,30 í samkomus
Haiiveigarstaða. Skemmtiatr.: U]
lesl.ur frú Guðlaug Narfadóttir, i
Frank M. Halldórsson flytur erin-
og-sýnir skuggamyndir úr Pale
ínuför. Félagsko-num er heimilt t
taka með sér gesti á fundinn.
Stjórnin
Akranes
BUI
Framsóknarfélag Akraness held
ur skemmtisamkomu í félagsheim
ili sínu, að Sunnubraut 21, sannu
daginu 10. des. næstkomandi, kl.
8.30. Spiluð verður framsóknar-
vist og sýndar kvikmyndir. Öllum
hcimill aðgangur meðan húsrúm
leyfir.
Skipulagsbreytingin hjá Síldarútvegsnefnd er samkvæmt
Einróma ósk saltenda fyrír norían og austan
OÓ-Reykjavík, föstudag.
Mikil blaðaskrif hafa undanfarið
verið um starfstilhögun Síldarút-
vegsnefndar og er ástæðan su að
Félag Síldarsaltenda á Norður- og
Au.ouriandi óskaði þess að skrif-
stofu ncfndarinnar í Ileykjavík
verði íalln yfirumsjón með síldar-
söltun og sölu á síld veiddri fyrir
norðan land og austan, en að skrif
stofur verði áfram á Siglufirði,
eins og verið hefur til þessa og
á Austurlandi. Viðbrögð ýmissa
aðila voru þau að krefjast að skrif
stofan á Siglufirði annaðist áfram
yfirumsjón með söltun og sölu á
síld og stendur deilan um hvor
skrifstofan eigi að gegna þessu
hlutverki.
Síldarútvegsnefnd hefur nú
veana þessa ágreinings sent frá sér
eftirfarandi tilkynningu:
„Vegna villandi ummæla, sem
fram hafa komið í blöðum og
starfstilhögun Síldarútvegsnefnd-
ar, vill nefndin tilkynna að svo-
hiióðandi samþykkt var gerð á
f-undi hennar þann 12. séptember
s. 1. um þetta mál:
Svo sem kunnug-t er hefir Síld
arútvegsnefnd starfrækt tvær
skrifstofur í tæpa tvo áratugi, þ
e. á Siglufirði og í Reykjavík en
áður hafðj nefndin aðeins skrif
stofu á Siglufirði. Skrifstofan á
Sigiuúrði hefii m.a. haft umsjón
síldar frá Norður- og Austurlandi
og séð um innkaup og dreiflngu
á tunnum, salti og ýmsum iiðrum
síldarsöltunarvörum 'yrir bað
söltunarsvæði. Skrifstofa nefndar
innar í Reykjavík hefir annazt
hliðstæð störf að því er söltun á
Suður og Vesturlandi snertir. Auk
þess hefir skrifstofa nefndarinuar
í Reykjavík haft umsjón með sölt
un og útflutningi á þeirri vetrar
síld, sem söltuð hefir verið á Aust
jafnframt komið á fót skrifstofu útvarpi í sambandi við breytta með söltun og útflutningi salt ur- og Norðurlandi síðustu árin
Skrifstofa nefndarinnar á Siglu-
firði uefui séð um rekstur Tunnu
verksnnðja ríkisins á Siglufirði og
Akureyri. ,
Samkvæmt lögum þeim, um
Síldarútvegsnefnd og útflu-tning
saltaðrar síldar, sem tóku gildi 21
apríl 1962, er gert ráð fyrir að
nefndin hafi skrifstofur á Siglu
firði og í Reykjavík, en ekkert tek
ið fram um það á hvorum st-aðnum
skuli vera aðalskrifstofa ne-fndar
Framihald á 14 síðu