Alþýðublaðið - 28.09.1988, Page 6
6
Miðvikudagur 28. september 1988
SMÁFRÉTTIR
Perlukvöld
fyrir sælkera
Hótel ísland mun á næst-
unni taka upp þá nýbreytni
aö bjóöa margrómuðum lista-
kokkum að sjá um sérstök
sælkerakvöld í Norðursal
hótelsins. Við köllum þau
Perlukvöld, því við ætlum að
reiða sjálfar perlur matar-
gerðarlistarinnar fram fyrir
matargesti.
Við stefnum að því að
dekra alla sanna sælkera upp
úr skónum og munum í engu
spara til að gleðja munn
þeirra og maga.
Sá fyrsti til að ríða á vaðið
er listakokkurinn Brynjar
Eymundsson, sem gestir
Gullna Hanans á síðustu
árum hafa sannkallaða matar-
ást á. Næstkomandi föstu-
dagskvöld og laugardags-
kvöld og sömu kvöld helgina
þar á eftir (29.9.d og 30.9.)
býður hann aðdáendum sín-
um gömlum og nýjum upp á
sérstakan Gala-matseðil, þar
sem perlur matargerðarlistar-
innar verða bornar fram af
framúrskarandi þjónaliði.
Á matseðlinum er m.a.:
Reyklaxa-rúlluterta, narineruð
fyllt villigæs, ábætirinn „Perl-
an þín“ og heimalagað kon-
fekt. Þá verður gestum boðið
upp á ýmislegt góðgæti utan
matseðilsins, sem kemur
mönnum gleðilega á óvart.
Leiklist á
fjölmiðlaöld
Leiklistarsamband íslands
stendur fyrir leiklistarþingi
laugardaginn 1. og sunnudag-
inn 2. október 1988. Þingið
mun fjalla um samband leik-
listarog fjölmiðla út frá
ýmsum sjónarmiðum milli
leiklistarfólks og þeirra sem
stýra Ijósvakafjölmiðlunum.
Fundarstaður er Leikhús-
kjallarinn og hefst þingiö
stundvíslega kl. 10.00 ár-
degis.
Tekið skal fram að nauð-
synlegt er að tilkynna þátt-
töku og þurfa þátttökutil-
kynningar að berast skrif-
stofu FIL fyrir 22. september
nk. Skrifstofan er opin virka
daga kl. 15.00 — 17.00 og
síminn er 26040.
Erindi um
umhverfismál
í verkfræðideild Háskóla
íslands verða á næstu vikum
flutt 10 erindi um umhverfis-
mál. Til þeirra er stofnað fyrir
nemendur í deildinni, en að-
gangur er öllum frjáls, eins
þeim, sem ekki eru nemend-
ur i háskólanum. Umsjón
hefur Einar B. Pálsson, pró-
fessor, og veitir hann upplýs-
ingar.
Erindi verða flutt á mánu-
dögum kl. 17.15 í stofu 158 í
húsi verkfræðideildar,
Hjarðarhaga 6.
Stjórn S.R.
tekur ekki
afstöðu til
Granda-sölu
Fundur í stjórn og trúnað-
armannaráði Sjómannafélags
Reykjavíkur haldinn 21. sept-
ember 1988 tekur ekki af-
stöðu til þeirra deilna sem
upp hafa risiö vegna söluand-
virðis hlutabréfa Reykjavíkur-
borgar í Granda h.f.
Fundurinn fagnar áfram-
haldandi útgerð og rekstri
Granda h.f. Einnig þeim
áhuga sem fram hefur komið
hjá forsvarsmanni nýrra hlut-
hafa i viðræðum við fulltrúa
Sjómannafélags Reykjevíkur
um frekari eflingu fyrirtækis-
ins hér í Reykjavík.
Markaður
möguleikanna
Þeim sem áhuga hafa á
börnum, unglingum og kvik-
myndum gefst nú tækifæri til
að sækja sýningu og fyrir-
lestra þar sem fjallað er um
hvernig vinna megi á skap-
andi hátt að gerð og notkun
lifandi mynda með börnum
og unglingum.
Sýningin Markaður mögu-
leikanna er hugmyndabanki
að skapandi vinnu með kvik-
myndir og myndbönd. Sýn-
ingin er haldin að frumkvæði
Norræna Starfshópsins um
Börn og Barnamenningu,
sem að þessu sinni ákvað að
fjallað yrði um þemað börn
og lifandi myndir. Sýningin
og fyrirlestrar verða haldnir í
Kennslumiðstöö Námsgagna-
stofnunar vikuna 17-21
október.
Dagskrá og aðrar upplýs-
ingar verða veittar í Kennslu-
miðstöð Námsgagnastofn.un-
ar, Laugavegi 166, sími:
28196.
Rit um börn
með Downs
syndróm
Rit það sem hér er lítillega
sagt frá kom nýverið út á
vegum Landssamtakanna
Þroskahjálpar og Öryrkja-
bandalags íslands. Sambæri-
legt efni var upphaflega gefið
út í Noregi, hefur komið þar
út í nokkrum útgáfum og
verið þýtt á önnur Norður-
landamál. Það birtist hér í
þýðingu Guðnýjar Bjarnadótt-
ur læknis, sem einnig skrifar
formála, en sjálf á hún barn
með Downs syndróm. Þá
leggja aðrir íslendingar orð í
belg.
I ritinu er einnig fjallað um
hvað Downs syndróm er og
hverjar séu orsakir þessa
ástands. Sagt er frá því
hvernig þannig barn þroskast
og hagnýtar ráðleggingar
gefnar s.s. um íæðu og um-
önnun, mál og tal og hreyf-
ingar og leiki þess. Þá er að
finna i þessu hefti vísbend-
ingar um hvert hægt er að
snúa sér við þessar kringum-
stæður.
Óskir foreldra fatlaðra
barna verða sífellt háværari
um upplýsingar og fræðslu
ýmiss konar. Er því mikill
fengur að þessu riti sem von-
andi uppfyllir að einhverju
leyti þær óskir.
Þó efni þess sé mióað við
börn með Downs syndróm
leikur enginn vafi á að það
kemur foreldrum annarra fatl-
aðra barna, sem og öðrum
áhugasömum, einnig að
gagni.
Ritið, sem er 20 siður í
stóru broti, verður til sölu i
bókaverslunum og á skrif-
stofum Þroskahjálpar og
Öryrkjabandalags og kostar
þar 500 krónur.
Iðja á flkur-
eyri varar við
kjaraskerðingu
Almennur félagsfundur í
Iðju félagi verksmiðjufólks á
Akureyri, 17. september 1988,
fagnar framkomnum ályktun-
um frá stjórn Landssam-
bands iönverkafólks, mið-
stjórn ASÍ og formannafundi
ASÍ.
Fundurinn varar stjórnvöld
harðlega við að beita kjara-
skerðingu til þess að ná
markmiðum sínum við stjórn-
un efnahagsmála. Langlund-
argeð iðnverkafólks er á þrot-
um. Iðnverkafólk hefur mjög
lágt taxtakaup. Taxtakaup
sem almennt er á bilinu frá
33.000 til 44.000. Það sjá allir
að ekki er raunhæft að
skerða þetta kaup eða þann
kaupmátt sem að baki því
stendur.
Fundurinn skorar á stjórn-
völd að grípa nú þegar til
raunhæfra efnahagsráðstaf-
ana í anda þeirra hugmynda
sem miðstjórn og forseti ASÍ
hafa lagt fram.
Fundurinn skorar á stiórn-
völd aö grípa nú þegartil raun-
hæfra efnahagsráðstafana í
anda þeirra hugmynda sem
miðstjórn og forseti ASÍ hafa
lagt fram.
Fundurinn ítrekar fyrri
ályktanir félagsins um kjara-
skerðingaraðgerðir stjórn-
valda frá þvi í vor og skorar á
stjórnvöld að aflétta þeim
höftum sem eru í gildandi
bráðabirgðalögum á frjálsum
samningsrétti. Lög eins og
bráðabirgðalög ríkisstjórnar-
innar eiga ekki að þekkjast
hjá frjálsum þjóðum.
Fundurinn skorar á verka-
fólk að vera viðbúið að brjóta
á bak aftur, með öllum tiltæk-
um ráðum, allar tilraunir
stjórnvalda til kjara- og kaup-
máttarskerðingar.
F.h. Iðju félags verksmiðju-
íólks
Kristín Hjálmarsdóttir
Sókn
mótmælir
Stjórn og trúnaðarmanna-
ráð Starfsmannafélagsins
Sóknar mótmælir harðlega
setningu bráðabirgðalaga um
frestun á samningsbundinni
launahækkun fyrir septemb-
ermánuð. Með gengisfelling-
um og sífelldri hækkun á
vöru og þjónustu hefur nú
þegar veiið gengið of langt í
að skerða gildandi kjara-
samninga. Félagsmenn
Starfsmannafélagsins Sóknar
teljast ekki til þess hóps í
landinu er þiggur ómældar
yfirborganir og sporslur
hverskonar í launaumslög
sín, heldur taka laun sam-
kvæmt gildandi launatöxtum.
Við mótmælum því öllum
áformum um lækkun launa,
slík lítilsvirðing við láglauna-
fólk verður ekki liðin. Slæm
staða efnahagsmála þjóðar-
innar er á engan hátt lægst-
launuðu hópum þjóðarinnar
að kenna, því skorum við á
þjóðkjörna þingmenn að
virða gerða kjarasamninga og
leita gáfulegri leiða til lausn-
ar efnahagsvandans, en að
skerða meira en oröið er laun
þeirra er mmnst mega sín.
VISTHEIMILI BARNA
Mánagötu 25
Starfskraftur óskast í 70% starf viö ræstingu og
afleysingar í eldhúsi.
Upplýsingar gefur forstööumaður í síma 12812.
Laus staða
Dósentsstaða í almennum málvísindum, hálft starf, við heim-
spekideild Háskóla íslands er laus til umsóknar. Laun sam-
kvæmt launakerfi starfsmanna rikisins. Umsóknir ásamt ræki-
legri skýrslu um visindastörf umsækjenda, ritsmíöar og rann-
sóknir, svo og námsferil og störf, skulu hafa borist menntamála-
ráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík, fyrir 25. október n.k.
Menntamálaráðuneytið,
23. september 1988.
KRATAKOMPAN
KRATAKAFFI
Munið kratakaffið miðvikudaginn 28. sept. kl. 20.30
í Félagsmiðstöðinni Hverfisgötu 8-10.
Gestir fundarins verða Birgir Árnason og Björn Frið-
finnsson aðstoðarmenn Jóns Sigurðssonar.
Komum, spjöllum og spáum í pólitíkina.
Alþýðuflokkurinn
□ i 2 7“
5
6 □ 7
s 9
10 □ íí
□ 12 P
13 □ 1 _ □
* Krossgátan
Lárétt: 1 kofa, 5 afturenda, 6
ílát, 7 umdæmisstafir, 8 næg-
ur, 10 eins, 11 gæfa, 12 grandi,
13 gifta.
Lóðrétt: 1 fönn, 2 mögl, 3 inn-
an, 4 stífi, 5 kvöð, 7 patta, 9
gangflöturinn, 12 bókstafur.
Lausn á síðustu krossgátu.
Lárétt: 1 efnin, 5 afla, 6 fló, 7
kg, 8 rindil, 10 ár, 11 ósa, 12 y I u r,
13 ansar.
Lóðrétt: eflir, 2 flón, 3 na, 4
naglar, 5 afráða, 7 kisur, 9dóla,
12 ys.
• Gengið
Gengisskráning 181 ■ 23 september
1988
Kaup Sala
Bandarikjadollar 46,790 46,910
Sterlingspund 77,952 78,152
Kanadadollar 38,368 38,467
Dönsk króna 6,4873 6,5040
Norsk króna 6,7367 6,7540
Sænsk króna 7,2475 7,2661
Finnskt mark 10,5182 10,5451
Franskur franki 7,3144 7.3331
Belgiskur franki 1.1879 1,1909
Svissn. franki 29,4833 29,5589
Holl. gyllini 22,0890 22,1456
Vesturþýskt mark 24,9042 24,9681
itölsk lira 0,03335 0,03343
Austurr. sch. 3,5400 3,5491
Portúg. escudo 0,3024 0,3031
Spánskur peseti 0,3748 0,3758
Japanskt yen 0,34718 0,34807
irskt pund 66,744 66,915
SDR 24.11 60,2913 60,4459
ECU ■ Evrópumynt 51,5860 51,7183
• Ljósvakapunktar
• RUV
21.20 Ólympíusyrpa. Þeir
sem sváfu af sér leik íslend-
inga og Sovétmanna um nótt-
ina fá sinn skammt.
• Stöð 2
21.30 Eign handa öllum.
Hannes Hólmsteinn heldur
áfram að ausa úr skjóðu visku
sinnar og stjórnar umræðu-
þætti um einkavæðingu.
• Rás 1
19.35 Glugginn. Ragnheiður
Gyða gægist út og viðrar sig.
Þetta er þáttur um menning-
una.
• Rás 2
18.03 Sumarsveifla. Gunnar
Salvarsson og Kristín Björg
hafagefist uppogÓlafurÞórð-
arson tekur sér hvíld frá spila-
kassanum og gerir væntan-
lega síðustu tilraunina til að
sveifla sumrinu, enda stutt til
jóla.
• Bylgjan
12.00 Mál dagsins, maður
dagsins og hugsanlega hund-
ur dagsins.