Alþýðublaðið - 12.10.1988, Blaðsíða 8
Miðvikudagur 12. október 1988
FRÉTTASKÝRING
Sólveig Ólafsdóttir
skrifar
VEITINGAMENN
VIÐ SVARTAN
I BARATTU
MARKAÐ
Baráttan við „svarta mark-
aðinn” í veitingarekstri var
eitt efnið sem tekið var fyrir
á aðalfundi Sambands veit-
inga- og gistihúsa í síðustu
viku. Þar er átt við þá aðila
sem stunda veitingarekstur
án þess að hafa tilskilin leyfi
stjórnvalda til slíkrar starf-
semi, og greiða þar af leið-
andi engin opinber gjöld af
rekstrinum. Félagsheimili og
einkasaiir eru helstu aðilar i
þessum geira, og er áætlað
að þeir hafi nú svipaða mark-
aðshlutdeild og hinn löglegi
veitingarekstur, sem er eng-
an veginn fær um samkeppni
á þessum grundvelli, og verð-
ur að sæta því að vera undir-
boðinn. Sé grafið undan veit-
ingahúsarekstri með þessu
móti, getur það komið alvar-
lega niður á ferðamannaiðn-
aðinum.
„Svarti markaðurinn” hefur
lengi veriö viö lýði, en
ófremdarástand hefur nú
skapast I kjölfar hækkunar á
söluskatti og staögreiöslu
skatta. Félagsheimili og salir
í einkaeigu geta nú boðið
viöskiptavinum sinum upp á
mun ódýrari þjónustu en
tíðkast meðal veitingahúsa,
sem engan veginn geta veitt
sama verð vegna hinna opin-
beru gjalda sem þau verða að
greiða. Starfsfólk í veitinga-
rekstri flykkist líka yfir til
þessara aðila því þar er hægt
að komast hjá staðgreiðslu
skatta af launagreiðslum.
Það má því ætla að þessi
starfsemi kosti ríkissjóð
væna upphæð á hverju ári.
Stjórnvöld hafa viðurkennt
vandann, en enn hefur ekkert
verið gert í þessum málum.
Lýtur engu eftirliti
„Svarti markaðurinn sam-
anstendur af félagsheimilum
og einkasölum, og megnið af
þeim er hluti neðanjarðarhag-
kerfisins, þó aö visu séu til
félagsheimili sem reki veit-
ingastarfsemi fyriropnum
tjöldum. Þetta hefur verið
vandamál alla tíð, en eftir að
söluskatturinn hækkaði upp I
25%, og staðgreiðslan kom
til sögunnar og fældi fólkið
frá okkur og yfir á svarta
markaðinn, er þessi sam-
keppni orðin nánast óbæri-
legt,”sagði Erna Hauksdóttir,
framkvæmdastjóri Sambands
veitinga- og gistihúsa,
„ýmsar skemmtanir sem áður
voru haldnar á skemmtistöð-
um hafa nú færst út I félags-
heimilin þvi að þau geta boð-
ið miklu lægra verð. Það er
ekki möguleiki að bjóða upp
á það verð sem félagsheimil-
in eru að undirbjóða okkur
með, með því að greiða öll
tilskilin gjöld.” Hér er um að
ræða söluskatt á veitingar,
vin og aðgöngueyri. Erna
. •'
Með „svarta-
m avk aðsbrask i * ‘
félagsheimilanna í
veitingarekstri er
verið að kippa
fótunum undan
löglegu veitinga-
húsunum. Komi
ekki til kasta
stjórnvalda í þess-
um málum gœtu
tóm veitingahús
orðið mun algeng-
ari sjón í framtíð-
inni.
kvað öryggis- og heilbrigðis-
eftirlit einnig mjög ábótavant
með þessum rekstri. Lögleg
veitingahús væru undir eftir-
liti vínhúsaeftirlitsins, en
enginn hefði eftirlit með fé-
lagsheimilum og einkasölum.
Þar er ekki lögbundin dyra-
varsla, og enginn til að fylgj-
ast með aldurstakmörkunum,
og því sem þar fer fram. Veit-
ingamenn væru að vonum
orðnir langþreyttir á því að
stjórnmálamenn og lögreglu-
yfirvöld skuli sífellt horfa
með blinda auganu á þennan
markað.
Jafnstór markaðshlutdeild
í máli Ernu kom fram að
stjórnvöld hefðu viðurkennt
þennan vanda, en enn hefði
ekki verið ráðin nein bót í
þessum málum þrátt fyrir
gefin loforð. „Við erum ekkert
á móti félagsheimilum þar
sem þeir sem þau eiga safn-
ast saman og nýta sína áð-
stöðu til ýmissa félagsstarfa,
heldur að þeir séu komnir í
beina samkeppni við okkur
án þess aö búa við sömu
reglur og við. Við viljum að
þeir þurfi að sækja um veit-
ingaleyfi nákvæmlega eins
og veitingahús ef þeir eru að
leigja sali sína fyrir Pétur og
Pál.” Markaðshlutdeild fé-
lagsheimila í veitingarekstri
er orðin gífurleg nú síöustu
ár. Erna kvaðst telja að stóla-
fjöldi í félagsheimilum og
einkasölum sé mjög svipaður
og ( löglegum veitingahús-
um, eða um 6000 stólar á
hvorum markaði fyrirsig.
Þetta væri þvl mikil blóðtaka
fyrir veitingahúsastéttina,
þau væru ekkert á móti sam-
keppni, en þá yrðu allir að
sitja við sama borð.
200 milljón króna
tap ríkissjóðs?
„Ég hef engin dæmi í
höndunum, en veit með vissu
að þetta er til staðar. Við hjá
veitingahúsunum sjáum að
það er stór hluti viðskipta
sem fer frá okkur yfir á þessi
hús,” sagði Wilhelm Wess-
man veitingamaður á Hótel
Sögu. „Það er alveg greini-
legt að þeir gefa afslátt upp á
söluskattinn, en ég held að
þeir fari ekki mikið neðar í
verði. Svo sleppa þeir við allt
sem kallast launatengd gjöld;
launaskatt, Iífeyrissjóði og
ýmis félagssgjöld — auk
þess sem sem þeir greiða
ekki rúllugjöld, stefgjöld
o.þ.h.” Wilhelm hefur verið að
geta sér þess til hve mikið
tap það sé fyrir veitingahús
og ríkissjóð að félagsheimili
og einkasalir fái óáreitt að
starfa við veitingarekstur
með þessum hætti. „Ég
skaut á það í gamni, aö mið-
að við að eðlileg nýting á
þessum stólum sem um er
að ræða væri um 1,5 kvöld í
viku að meðaltali á ári, og að
þetta eru hátt í 60 hús hér á
Reykjavíkursvæðinu þá ættu
þau að vera með u.þ.b. millj-
arð í veltu á ári, og með því
að bakreikna þjónustu- og
söluskattinn af því, þá erum
við komin með 200 milljónir
fyrir utan önnur gjöld.”sagði
Wilhelm.
Skaðar ferðamannaiðnaðinn
Þessi starfsemi félags-
heimilinna er að mestu ein-
skorðuð við vetrarmánuðina.
Nú er verið að byggja upp
ferðamannaiðnað hérlendis
og er aðalvertíðin yfir sumar-
timann/en forsenda þess að
þessar þjónustugreinar sem
að honum standa geti „lifað
af” er að þeir geti haldið eðli-
legri markaðshlutdeild allan
ársins hring. Það eru því fleiri
hliðar á þessu máli en ein-
ungis beint tap fyrir veitinga-
húsareksturinn, þar sem það
orsakar minna fjármagn til
þessa reksturs, og flestir
geta verið sammála um að
nauðsynlegt sé að haldi velli.
„Það að þessi rekstur er að
stela frá okkur viðskiptum
þýðir beinlínis, í því sam-
hengi, að okkar samkeppnis-
aðstaða versnar, og erfiðleik-
ar okkar verða meiri þar sem
við getum ekki haldið okkar
eðlilegu hlutdeild í þessum
markaði,” sagði Wilhelm.
„Við verðum að eiga eðlileg-
an aðgang að honum.”
Lausn í höndum
fjármálaráðherra
Bjami Sigtryggsson hjá
fjármálaráöuneytinu sagði að
til hefði staðið að ráðast í
þessi mál nú í haust, en
vegna stjórnarslitanna hefði
ekki orðið af því. Fyrrverandi
fjármálaráðherra hefði ráð-
gert að tilkynna á aðalfundi
Sambands veitinga- og gisti-
húsa nú í síðustu viku, að all-
ur veitingahúsarekstur ætti
að lúta sömu lögmálum, og
að þær kröfur yrðu gerðar til
félagsheimila sem stæðu í
slíkum rekstri, að þau hefðu
, veitingaleyfi og gætu full-
nægt öllum reglugerðum
varðandi heilbrigðis- og ör-
yggisatriði. Bjarni sagðist
ekki vita um afstöðu hins
nýja fjármálaráðherra varð-
andi þetta mál, en tíminn yrði
að ieiða það í Ijós.