Alþýðublaðið - 02.11.1988, Side 4

Alþýðublaðið - 02.11.1988, Side 4
4 Miðvikudagur 2. nóvember 1988 FRÉTTASKÝRING n Ómar Friöriksson skrifar r.ji Fjárlagafrumvarp 1989 ENGINN GLEÐIBOÐSKAPUR sagði fjármálaráðherra þegar hann kynnti fjárlagafrumvarpið á fréttamannafundi í gœr. Ráðherra kvaðst œtla að fylgja því strangt eftir að markmið um tekjuafgang náist. Stefnt er að þvi að rikissjóður greiði eingöngu niður skuldir erlendis í stað þess að bæta við skuldabaggann. A-mynd/Magnus Reynir. „í þessu fjárlagafrumvarpi er ekki mikill gleðiboðskap- ur,“ sagöi Ólafur Ragnar Grímsson, fjármálaráðherra, þegar hann kynnti fjárlaga- frumvarp 1989 fyrir frétta- mönnum í gær. Heildartekjur rikissjóðs á næsta ári eru áætlaðar 77.315 millj. króna en heildar- útgjöld 76.131 milljónir. Sam- kvæmt þessu á ríkissjóður að skila tæplega 1200 millj. kr. tekjuafgangi á næsta ári en svo miklum tekjuafgangi hefur ekki veriö fylgt úr hlaði frá árinu 1980.. Þessi tekju- afgangur svarar til 1,6% af heildarútgjöldum ríkissjóðs. Frumvarpið tekur mið af forsendum þjóðhagsáætlun- ar. Er gengið út frá því að innfent verðlag hækki um 12% að meðaltali milli ára. Launabreytingar á milii ára eru áætlaðar 8% og hækkun vísitölu byggingarkostnaðar 10%. Þá er meðalverð á er- lendum gjaldeyri áætlað 7% hærra en árið 1988. í frunmvarpinu er stefnt að verulegum samdrætti í opin- berri fjárfestingu. Aðhald verði veitt að útgjöldum rikis- sjóðs, á sama tíma og haldið verði uppi óbreyttu þjónustu- stigi á sviði velferðarmála. Stefnt er að því að ríkissjóð- ur greiði niður skuldir í stað þess að bæta við þær og að stórlega verði dregið úr er- lendum lántökum opinberra aðila. Þá er gert ráð fyrir því í lánsfjárlögum sem lögð verða fram síðar í vikunni aö hið opinbera taki engin er- lend Ián á næsta ári en lán- tökuheimildin innanlands takmarkist við 4,7 milljarða kr. EIGNARSKATTAR Talsverðar breytingar eru ráðgerðar í álagningu eignar- skatta.Annars vegar verður núgildandi skatthlutfall hækkað úr0,95% í 1% jafnt hjá einstaklingum og félög- um. Þá verður tekið upp nýtt skattþrep í eignarskatti ein- staklinga á skuldlausa eign yfir 6 millj. kr. og hjá hjónum sem eiga yfir 12 millj. kr. skuldlausa eign. Tekjur rt'kisins af sérstök- um skatti á skrifstofu og verslunarhúsnæði eru áætl- aðar 235 milljónir kr. á þessu ári en stefnt er að hækkun skatthlutfallsins sem á að geta gefið um 425 millj. á næsta ári. TEKJUSKATTAR Tekjuskattar einstaklinga og fyrirtækja eiga að gefa af sér 11,4 milljarða kr. Þar af er áætlað að tekjuskattur ein- staklinga skili ríkissjóði rúm- lega 9 milljörðum kr. Athuga ber þó að á yfirstandandi ári eru tekjur af staögreiðslu- skatti aðeins til innheimtu í ellefu mánuði en verða inn- heimtir á tólf mánuðum 1989. SÖLUSKATTUR Á næsta ári er búist við áframhaldandi samdrætti þjóðarútgjalda, og þar með í söluskattsveltu, um 2-3%. Miðað við þessa veltu- forsendu og að almennt verð- lag hækki um 11-12% á næsta ári er reiknað með að tekjur af söluskatti verði um 34,3 milljarðar að meðtöldum tekjum af nýjum 12% sölu- skatti á sölu happdrættis- miða. BJÓRINN Frá 1, mars á næsta ári verður ÁTVR heimilt að selja áfengt öl og lauslega metið er ætlað að hagnaður áfeng- isverslunarinnar aukist um 900-950 m.kr. á næsta ári vegna bjórsölunnar. Á móti vegur nokkur samdráttur i áfengis- og tóbaksneyslu landsmanna. Samtals er því áætlað að ríkissjóður fái i sinn hlut 5,6 milljarða kr. af hagnaði ÁTVR á árinu. GJÖLD AF INNFLUTNINGI Tekjur af innflutningsgjaldi eru áætlaðar 1,2 milljarðar á næsta ári, tekjur af bensín- gjaldi 2,6 milljarðar og heild- artekjur af aðflutningsgjöld- um 6,4 milljarðar kr. Skattar af launagreiðslum eiga að gefa 5,6 milljarða aðr- ir óbeinir skattar gefa 10,8 milljarða. í heild gefa beinir skattar ríkinu 14 milljarða kr. á næsta ári. Óbeinir skattar 59,8 milljarða og aðrar tekjur eru upp á 3,5 milljarða kr. ÚTGJÖLD Launaliður frumvarpsins fyrir næsta ár hækkar alls um 1.972 millj. kr. frá þvl sem áætlað er að verði í ár. Fjár- málaráðherra upplýsti á blaðamannafundinum í gær að gert verði sérstakt átak til að draga úr mannaflanotkun ríkisins. Hefur launaliður frumvarpsins verið lækkaður um 600 milljónir vegna þessa. Auknar kröfur eru gerðar í frumarpinu um sértekjur þeirra stofnana sem ætlað er að standa undir rekstri sín- um. Er gert ráð fyrir því að þær skili fé í ríkissjóð sem nemur um 20% launakostn- aðar. Hugum næst að einstök- um dæmum varðandi útgjöld ráðuneyta, stofnana og ákveðinna málaflokka: Á útgjöldum til Alþingis ber hæst hækkun á sérfræði- legri aðstoð við þingflokka sem hækkar um 58% á milli ára (18 milljónir). Hönnunar- kostnaður vegna nýbyggingar Alþingis er felldur niður á fjárlögum næsta árs. Heildarframlag til Háskól- ans hækkar um 14% milli ára. Framlag til jöfnunar á námskostnaði verður 50 millj- ónir i frumv. sem er tvöföldun frá árinu í ár. Þá er gert ráð fyrir 56% hækkun til Kvik- myndasafns islands sem er að miklu leyti til komið vegna varðveislu eldri kvikmynda. Heildarframlag til iþrótta- mála snarlækkar úr 51,3 millj- ónum í ár í 42,5 milljónir á næsta ári. Framlag til reksturs sendi- ráða íslands erlendis verður samtals 239,6 milljónir kr. og hækkar um 28% frá núgild- andi fjárlögum. Gert er ráð fyrir óbreyttum starfsmanna- fjölda í sendiráðum erlendis. Endurgreiðsla gjalda í landbúnaði nemur samtals 453 milljónum kr. og þar af er endurgreiðsla kjarnfóður- gjalds um 383 milljónir en framlag þetta er ætlað til að greiða niður áhrif söluskatts á nautakjöt, svínakjöt, kjúkl- ingaog egg. Heildarframlag ríkissjóðs vegna uppbóta á útfluttar landbúnaðarafurðir verður samtals 1,1 milljarður kr. á næsta ári. RÍKISFYRIRTÆKI OG SJOÐIR í B-HLUTA Ráðstöfunarfé Lánasjóðs- ins nemur 2.532 milljónum kr. og hækkar um 17% frá fjár- lögum 1988. Skv. útvarpslögum skulu 10% af tekjum Ríkisútvarps- ins af auglýsingum og afnotagjöldum renna til fram- kvæmdasjóðs RUV. Frum- varpið nú gerir ráð fyrir lægri upphæð en sjóðnum ber miðað við áætlaðar tekjur eða 120 milljónum. Þá munu tekjur vegna aðflutnings- gjalda renna óskiptar í ríkis- sjóð sem fyrr. Gert er ráð fyrir 350 millj. kr. lántöku til að Ijúka við byggingu Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar. Fjárveiting til Byggingar- sjóðs ríkisins nemur 1.120 millj. í frumv. og er það 70 millj. kr. meira en í ár. Lántök- ur sjóðsins nema alls 7.290 millj. og eiga lánveitingar sjóðsins að geta numið 8.215 millj. kr. á næsta ári sem er um 45% hækkun á milli ára. Fjárveiting til Byggingarsjóðs verkamanna hækkar aðeins um 80 millj. kr. Gert er ráð fyrir að 510 millj. fari til kaup- leiguíbúða. LÁNSFJÁRÁÆTLUN Áætlað er að framkvæmdir við byggingar og mannvirki hins opinbera dragist saman um rúmlega 3% á næsta ári. Fjármálaráðherra kynnti svo- kallaða 20 mánaða viðmiðun- arreglu á fréttamannafundin- um í gær. Hún miðast við að framkvæmdir á vegum opin- berra aðila sem miðast við útgjaldaþörf í 12 mánuði verði teygðar yfir 20 mánuði til að dreifa útgjöldunum. Þannig er m.a. gert ráð fyrir að upphafleg fram- kvæmdaáform Landsvirkjun- ar fyrir næsta ár dreifist 20 mánaða tímabil. Þannig verða áform um framkvæmdir fyrir 1.950 millj. dregnar niður í kr. 1.420 milljónir á næsta ári. Þróunarfélaginu er heimil- uð 100 millj. kr. erlend lán- taka á næsta ári .Þá er sú stefna mörkuð að ekki skuli veita ríkisábyrgðir fyrir nýjum fjárfestingarlánum. Fjárlagafrumvarp 1989 Skipting tekna 5.95% °.g3% H Söluskattur g3 Innflutningsgjöld ö Bcinir skaltar ö Vörugjald n Launaskattar W Vaxtatekjur ö HagnaÖur ÁTVR ö Ymsir óbcinir skattar 0 Ýmislcgt Fjárlagafrumvarp 1988 Ráöstöfun tekna 14.3% | Hcilbrigöis- og tryggingamál ö Fræðslumál ö Samgöngumál ö Búnaöarmál □ NiöurgrciÖslur | Dóms- og lögreglumál ö Vcxlir ö Húsrueði V} Útvegsmál Q Annað 6.2% \AJ6% Fjárlög 1988 Endurskoðuð áætlun 1988 Fjárlaga- Irumvarp 1989 m.kr. m.kr. m.kr. 1. Tekjur 63.091 66.486 77.315 2. Gjöld -63.065 -69.467 -76.131 3. Tekjur umfram gjöld 4. Útstreymi á 26 •2.981 1.184 lánareikningum 5.175 5.637 5.880 5. Lánsfjárþörf brúttó . . 5.149 8.618 4.696 6. Lántökur alls 5.165 6.062 4.700 Innlend lán 4.260 4.920 4.700 Erlend lán 905 1.142 7. Greiðsluafkoma 16 •2.556 4

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.