Alþýðublaðið - 02.11.1988, Síða 5
Miðvikudagur 2. nóvember 1988
5
Fjárlagafrumvarp 1989
MEGINEINKENNI
FJÁRLAGA-
FRUMVARPS 1989
• Tekjuafgangur rikissjóós
veröur 1.184 m.kr., eóa 1,6%
af ríkisútgjöldum.
• Ríkisútgjöld hækka um
0,3% af landsframleióslu
milli 1988 og 1989, eöa úr
27,4% í 27,7%. Aö raungildi
hækka útgjöld ríkissjóðs
um 0,8% á næsta ári.
• Til að unnt sé aö snúa nær
3 milljaröa króna halla á ár-
inu 1988 í rúmlega 1 millj-
arös króna afgang á árinu
1989 hækka tekjur ríkis-
sjóós mun meira en út-
gjöld. Þessi viðsnúningur
svarar til um 5% af ríkisút-
gjöldum, eða um 1% af
landsframleiðslu.
• Tekjur ríkissjóös hækka um
11A% aö raungildi frá fjár-
lögum 1988, eöa sem nem-
ur tæplega 1 milljaröi
króna. Tekjur ríkissjóðs af
landsframleiöslu veröa
28,1%.
• Verulega er dregiö úr opin-
berri fjárfestingu, sem mun
í heild minnka um rúmlega
3% aó raungildi frá þessu
ári.
• Fjárfesting ríkissjóðs sjálfs
dregst mun meira saman,
eöa um tæplega 7% aö
raungildi.
• Ríkissjóður mun engin er-
lend lán taka á næsta ári.
• Ríkissjóður mun greiða
niður skuldir sem nemur 1,9
milljörðum króna. Til sam-
anburðar má nefna, að á
þessu ári er áætlað, að 31/2
milljarður króna bætist við
skuldir ríkissjóðs.
• Erlendar lántökur opinberra
aðila og opinberra lána-
sjóða minnka verulega, eða
úr 8,9 milljörðum í ár í 5,9
milljarða á næsta ári. Hér er
um nær 40% lækkun í er-
lendri mynt að ræða.
• Þessi áform-um lækkun
skulda ríkissjóðs og minni
erlendar lántökur þýða veru-
legan samdrátt í umsvifum
opinberra aðila á innlendum
og erlendum lánamörkuð-
um.
• í heild er áætlaö, að erlend
lántaka þjóðarbúsins til
lengri tíma muni verða 6,3
milljarðar á næsta ári,
samanborið við 11,1 milljarð
í ár. Að meðtöldum skamm-
tímalánum minnkar erlend
lántaka úr 13,6 milljörðum á
þessu ári í 9,6 milljarða á
því næsta.
• Útgjaldaþensla ríkisins er
stöðvuð án þess þó að
skerða margvíslega þjón-
ustu á sviói velferðarmála,
menningarstarfsemi, félags-
mála og umhverfisverndar.
Ýmis framlög til fram-
kvæmda eru skorin niður
og rekstri i ríkisstofnunum
og fyrirtækjum veitt aukið
aðhald.
• Aukin tekjuöflun ríkisins
miðast við, að þeir, sem
hafa mestar tekjur og eignir
og hafa ráðstafað mestu til
lúxuseyðslu og fjárfestinga
á unclanförnum árum, beri
stærstan hluta aukinnar
skattbyrði. Skattbyrði fólks
með lægri tekjur og skatt-
byrði barnmargra fjöl-
skyldna hækkar ekki. Tekju-
öflunin á einnig að halda
aftur af innflutningi og fjár-
festingu.
ÚTGJALDASTEFNA
Stefnt er að því að stöðva
útgjaldaþenslu ríkisins án
þess þó að skerða þá þjón-
ustu, sem veitt er af stofn-
unum á sviði velferðarmála,
menningarmála og um-
hverfismála. Þessu marki
verður náó með því aö
endurmeta ráðstöfun þess
fjár, sem varið er til sam-
eiginlegra þarfa, fresta
framkvæmdum eða dreifa
þeim á lengri tíma og beita
ströngu aðhaldi í rekstri.
• Dregið er úr framkvæmdum,
ekki síst þar sem mest
þensla hefur ríkt. í stað
þess að hefja nýjar fram-
kvæmdir er lögð áhersla á
að Ijúka þeim framkvæmd-
um, sem í gangi eru. Fé til
framkvæmda svo sem á
vegum stjórnarráðsins og
Ríkisspítala var takmarkað.
• Ýmis framlög, svo sem til
fjölmargra framkvæmda-
sjóða, endurgreiðslu sölu-
skatts í sjávarútvegi og
jöfnunargjalds í iönaði og
óskipt framlög til fram-
kvæmda, verða nær óbreytt
að krónutölu milli ára og
lækka því að raungildi.
• Dregið verður skipulega úr
starfsmannafjölda ríkisins
og miðað við að ná vinnu-
aflsnotkun niður um 2,5% á
ári í nokkur ár. Beitt verði
virku eftirliti með nýráðn-
ingum og yfirvinnu þannig
að þessu marki verði náð.
• Þjónustustofnanir verðleggi
og selji þjónustu sína í
auknum mæli í samræmi
við tilkostnað, þar á meðal
óbeinan kostnað ríkissjóðs
svo sem húsnæði, verð-
tryggingu á lífeyri o.fl. Sem
dæmi má nefna Vinnueftir-
lit ríkisins, Húsameistara
ríkisins og Rafmagnseftirlit
rikisins.
• Starfsemi stofnana og ein-
stök viðfangsefni þeirra
verða tekin til sérstakrar at-
hugunar, starfsemin lögð
niður, flutt til annarra eða
hagrætt. Sem dæmi skulu
nefnd Sala varnarliðseigna,
lög- og tollgæsla í Keflavík,
Skipaútgerö rikisins og
skiparekstur og vitaþjón-
usta á vegum Vitastofnunar.
• Lög um framhaldsskóla
koma ekki til framkvæmda
á árinu 1989 að þvi er
kostnað og þar meö aukin
útgjöld ríkisins varöar. Það
mál þarf að skoða í tengsl-
um við aðra verkaskiptingu
ríkis og sveitarfélaga.
• Sparnaöur í heilbrigðiskerf-
inu verði stóraukinn með
breyttu skipulagi og verð-
ákvörðunum i lyfjasölu.
Tekiö verði upp aö nýju til-
vísunarkerfi varðandi þjón-
ustu sérfræðinga og rekstri
rannsóknastofa hagrætt.
• Gert verður átak i því að
efla ráðdeild í rekstri og
framkvæmdum. Gerðar
verða strangari kröfur um
kostnaðaráætlanir og
kostnaöarmat framkvæmda
og um rekstraráætlanir fyrir
stofnanir og starfsemi í
undirbúningi. Einnig verða
gerðar ráðstafanir til að fyr-
irbyggja ónauósynlega
eyðslu og efla aðhald i al-
mennri starfsemi stofnana
og ráðuneyta.
•Á grundvelli framangreindra
atriða var upphafleg út-
gjaldaáætlun Fjárlaga-og
hagsýslustofnunar lækkuð
um 1.700 milljónir króna.
RREYTTAR
ÁHERSLUR
í TEKJUÖFLUN
Eitt brýnasta stefnumál rík-
isstjórnarinnar er að halda
verðbólgunni í skefjum, enda
er það grundvallarforsenda
fyrir því, að árangur náist á
öðrum sviðum efnahagsmála.
Til þess að sú lækkun verö-
bólgu og vaxta, sem þegar er
orðin, verði varanleg, er nauð-
synlegt, að ríkissjóður skili
rekstrarafgangi á næsta ári.
Þótt tekist hafi að draga úr
útgjöldum, næst þetta mark-
mið ekki nema með því að
ríkissjóði verði jafnframt
tryggðar auknar tekjur.
Megináherslan i nýrri
tekjuöflun á næsta ári er, að
þeir aðilar sem eiga miklar
eignir og eru með háar tekjur
beri meiri hluta aukinnar
skattheimtu. Auk þess er
með breyttri tekjuöflun
hamlað gegn innflutningi og
fjárfestingu. Helstu breyt-
ingar á tekjuhlið fjárlaga-
frumvarpsins eru eftirfarandi:
• Hækkun á ýmsum óbeinum
sköttum svo sem vöru-
gjaldi, bensíngjaldi og inn-
flutningsgjaldi af bílum.
Auk þess að styrkja fjáhag
ríkissjóðs draga þessar að-
gerðir úr innflutningi og þar
með úr viðskiptahalla.
• Þá er gert ráð fyrir hækkun
eignarskatta. Þyngst vegur
hærra skattþrep fyrir þá
einstaklinga, sem eiga
skuldlausa eign yfir ákveðn-
um mörkum, t.d. yfir 12
m.kr. hjá hjónum. Auk þess
komi almenn hækkun á
eignarskatti einstaklinga og
fyrirtækja, úr 0.95% í 1,0%.
Núverandi eignarskattsauki
helst þó óbreyttur.
• Stefnt er að margvíslegum
breytingum á tekjusköttum
fyrirtækja. Gert er ráð fyrir
að herða ákvæði skattalaga
þess efnis, að tekjur i formi
hlunninda, hvort sem það
eru bílaafnot, úttektir á
reikning fyrirtækis eða
lánafyrirgreiðsla, komi til
skattlagningar. Jafnframt
verða heimildir fyrirtækja til
þess að leggja hluta af
hagnaði sínum inn á sér-
reikninga skertar. Loks
verða afskriftareglur fyrir-
tækja endurskoðaðar.
• Jafnframt er stefnt að breyt-
ingum á tekjusköttum ein-
staklinga. Fyrirhugað er að
hækka skatthlutfallið, en
jafnframt hækka persónu-
afslátt, þannig að skattbyrði
lægri tekna breytist lítið
sem ekkert. Þá hækki
barnabætur sérstaklega.
Einnig er til athugunar að
taka upp sérstakt skattþrep
á háar tekjur. Ennfremur er
gert ráð fyrir skrefi í þá átt
að samræmaskattlagningu
tekna, hvort sem þær eru
laun, raunvextir, arður eða
söluhagnaður.
• Þá er og stefnt að frekari
samræmingu í skattlagn-
ingu pening'astofnana með
þvi að gera veðdeildir og
fjárfestingalánasjóði tekju-
skattskyld með sama hætti
og bankar eru nú. Áformað
er, að orkufyrirtæki verði
skattlögð með almennum
hætti.
• Á sölu happdrættismiöa og
hliðstæða starfsemi verði
lagður 12% söluskattur
eins og nú er á margvíslegri
þjónustu. Þessi starfsemi
hefur vaxið mikið að um-
fangi að undanförnu, en
talið er, að velta happ-
drætta nemi um 31/2 millj-
arði króna á þessu ári og
geti orðið u,m 4 milljarðar á
næsta ári. Ólíklegt er, að
12% skattur verði til að
draga mikið úr sölu happ-
drættismiða og því má
ætla, að hann verði að
mestu borinn af þeim sem
miöana kaupa. Á hinn bóg-
inn kemur einnig til greina,
að í stað þessa fyrirkomu-
lags verði stærri hluta tekna
af sölu happdrættismiða
varið til rekstrar á þeirri
starfsemi, sem byggð er
uþp af happdrættisfé en
síðan rekin fyrir fé úr opin-
berum sjóðum.
t MINNING t
RAGNAR KJARTANSSON
myndhöggvari
I dag fer fram frá Dómkirkj-
unni í Reykjavík útför
Ragnars Kjartanssonar,
myndhöggvara og heióurs-
félaga Myndhöggvarafélags-
ins í Reykjavík.
Ragnar var löngu þjóð-
kunnur listamaður. Hann hóf
listnám sitt hér heima undir
handleiðslu Guðmundar
Einarssonar frá Miðdal og
síðar Ásmundar Sveinssonar,
myndhöggvara. Hann stund-
aði einnig listnám við Valand
listaskólann í Gautaborg og
hafði vinnustofu í Uppsölum
um tveggja ára skeið.
Listferil sinn hóf Ragnar
sem leirkerasmiður, vareinn
stofnenda Funa keramik og
síðar Glits h.f. árið 1958, þar
sem hann var forstöðumaður
til ársins 1967. Frá þeim tíma
helgaði hann sig höggmynda-
listinni og var stórvirkur á því
sviði. Hann hélt fjölda sýn-
inga hér heima og erlendis.
Hann var framkvæmdastjóri
og þátttakandi í útisýningun-
um á Skólavörðuholti á árun-
um 1967-72, sem voru mikil-
vægt framlag í þróun högg-
myndalistar á (slandi.
Ragnar vann ötullega að
þvi að efla samstöðu mynd-
listarmanna og var einn aðal-
hvatamaður að stofnun
Myndhöggvarafélagsins í
Reykjavík 1972 og átti stærst-
an þátt í því að félagið fékk
vinnuaðstöðu á Korpúlfsstöð-
um. Ragnar sýndi þar mikinn
stórhug og framsýni og með
ómældu sjálfboðastarfi hans
og annarra hefur þar skapast
góð starfsaðstaða sem hefur
og mun reynast myndhöggv-
urum ómetanleg. I virðingar-
og þakklætisskyni fyrir störf
í þágu myndlistar og Mynd-
höggvarafélagsins var hann
gerður að fyrsta heiðurs-
félaga þess í apríl sl.
Ragnar var stór maður,
stórbrotin persóna og eftir
hann liggja mörg stærstu
listaverk landsins, s.s. „Auð-
humla“ á Akureyri, „Bárður
Snæfellsás" á Snæfellsnesi
og „Björgun" á Siglufirði sem
er minnisvaröi um drukknaða
sjómenn, en lif i sjávarþorp-
um var honum alla tíð hug-
leikið yrkisefni, enda leituðu
margir slíkir staðir til hans
um gerð útiverka. Sökum
þess hve verk hans eru um-
fangsmikil og dreifð, verður
þeim seint safnað saman
undir annað þak en himin-
hvolfið.
Ragnar kenndi um langt
árabil við Myndlistarskólann í
Reykjavík, þar sem hann var
lengi skólastjóri og einnig
við Myndlista- og handíöa-
skóla Islands. Kynni mín af
Ragnari hófust er ég var svo
lánsöm aö gerast nemandi
hans. I kennslunni var
Ragnar einstakur, gaf mikið
af sjálfum sér og var óspar á
hvatningu og stuðning við
nemendur sina og reyndist
hann mörgum ungum mynd-
listarmanninum ómetanleg
stoð og stytta eftir að skólan-
um sleppti. Heilsan varð hon-
um fjötur um fót seinustu
árin en hugurinn var alltaf
frár eins og „stóðið" hans
sem var sett upp á ný við
Miklubraut rúmri viku fyrir
andlát hans.
Myndhöggvarafélagið vott-
ar Katrínu konu hans og
börnum þeirra innilega sam-
úð. Góður vinur og félagi er
kvaddur með virðirtgu og
þökk. \
F.h. Myndhöggvarafélagsins í
Reykjavík
Ragnhildur Stefánsdóttir.