Alþýðublaðið - 23.11.1988, Page 8
MÞYBUBUBI9
Miövikudagur23. nóvember 1988
TÖLUM SAMAN UM ALNÆMI!
Alnœmisvika hefst í dag
Ólafur Ólafsson landlæknir og Guömundur Bjarnason heilbrigðisráðherra kynntu dagskrá alnæmisvikunnar
sem hefst i dag, ásamt nýskipaðri landsnefnd um alnæmisvarnir. Kjörorð vikunnar er TÖLUM UM ALNÆMI!
AB-mynd/Magnús Reynir.
A heimsráðstefnu heil-
brigðisráðherra í Lundúnum í
janúar s.l. var ákveðið að
1. desember 1988 yrði um
heim allan tileinkaður barátt-
unni gegn alnæmi undir kjör-
orðinu: TÖLUM SAMAN UM
ALNÆMI! íslendingar eiga
þó óhægt um vik að helga
baráttunni gegn alnæmi
þennan dag, þar sem þessi
dagur er táknrænn fyrir okk-
ur auk þess sem við minn-
umst þess nú í ár að 70 ár
eru liðin frá því aö ísland
varð fullvalda ríki. Þess i stað
hefur verið ákveðið að halda
hér alnæmisviku dagana 23,-
30.nóvember. Tilgangur
hennar er að auka almenna
umræðu um alnæmi og er
markmið þeirrar umfjöllunar
margþætt. Ný upplýsinga-
herferö um alnæmi mun hefj-
ast í skólum, ný kynningar-
og fræðslumynd verður sýnd
í Sjónvarpinu i kvöld, og
sýndir verða þættir um al-
næmi í Fræðsluvarpinu alla
vikuna. Þá er verið að leggja
siðustu hönd á þátt um al-
næmissjúkling sem lést fyrr
á þessu ári.
Heilbrigðisráðherrar 148
ríkja héldu heimsráðstefnu
um fyrirkomulag alnæmis-
varna í Lundúnum í janúar s.l.
Fulltrúar þessara ríkja sam-
þykktu einróma að 1. desem-
ber skuli tileinkaður barátt-
unni gegn alnæmi. I kjölfar
þessarar ráðstetnu skipaði
heilbrigðismálaráðherra
landsnefnd um alnæmis-
varnir, en henni er ætlað að
samræma aðgerðir gegn al-
næmi og stuðla að mark-
vissu starfi og samvinnu heil-
brigðisþjónustunnar, annarra
opinberra aðila, sveitar-
stjórna,kirkju, skóla, félaga-
samtaka og annarra þeirra
aðila sem vilja leggja þessari
baráttu lið. Skipulagning al-
næmisvikunnar er eitt af
fyrstu verkefnum landsnefnd-
arinnar, en starfsmaður á
vegum nefndarinnar hefur
séð um alnæmisfræðslu i
skólum og fjölda vinnustaða.
Samtök áhugafólks um al-
næmisvarnir verða stofnuð í
framhaldi af alnæmisvikunni,
og er þeim ætlað að styðja
við bakið á sýktum einstakl-
ingum.
GEGN ALNÆMI
Tilgangur alnæmisvik-
unnar er að auka almenna
umræðu um alnæmi og er
markmið þeirrar umfjöllunar i
sex liðum:
1) Að draga úr óþarfa áhyggj-
um fólks við að smitast
þegar líkur á þvi eru engar.
2) Að draga úr fordómum
gegn smituðum með því
að auka þekkingu almenn-
ings á smitleiðum
alnæmis.
3) Að vekja athygli á vanda
smitaðra og aðstandenda
þeirra.
4) Að koma af stað umræðu
um „ísjakann”, þ.e. þann
fjölda einstaklinga sem
eru smitaðir án þess að
vita það og halda því
áfram að breiða út smit
nema allir gæti að sér.
5) Að leggja áherslu á að
þekking okkar á smitleið-
um gerir okkur kleift að
forðast alnæmissmit.
6) Að skírskota til ábyrgðar
hvers einstaklings.
Til að kynna alnæmisvik-
una hafa verið serld út bréf til
skóla og heilsugæslustööva.
Þá munu fjölmiðlar taka mik-
inn þátt í að kynna málefnið.
Ný kynningar- og upplýsinga-
mynd fyrir sjónvarp hefur
verið gerð og verður hún
sýnd í fyrsta skipti í sjón-
varpi i kvöld. Jafnframt verð-
ur gert nýtt veggspjald byggt
á efni myndarinnar. Tveir nýir
þættir hafa verið gerðir í
samvinnu við Fræðsluvarpið
og verða þeir báðir sýndir í
alnæmisvikunni auk þess
sem þeir hafa verið fjölfald-
aðir af Námsgagnastofnun til
notkunar í skólum. í öörum
þættinum koma fram nem-
endur úr 9. bekk Hlíðaskóla, í
hinum eru nemendur úr
Menntaskólanum i Hamra-
hlíð, og munu nemarnir fá
svör við spurningum sínum
um alnæmi. Einnig hefur ver-
ið gerður þáttur um alnæmis-
sjúkling sem lést úr alnæmi
fyrr á þessu ári. Útvarpsaug-
lýsingar um alnæmismál
verða leiknar á útvarpsstöðv-
unum. Alþjóðaheilbrigðis-
stofnunin er með klukku-
stundar langan þátt í vinnslu,
og verður sá þáttur sýndur
víða um heim þann 1. desem-
ber, en seinna hér á landi.
ísland verður með 7 mínútna
innlegg í þennan þátt. Al-
næmisvikunni lýkur svo með
tónleikum í Háskólabíói
— GEGN ALNÆMI — þar
sem Bubbi, Hörður Torfason
og Megas koma fram^Tón-
listarmennirnir koma fram
endurgjaldslaust og rennur
allur ágóði af tónleikunum til
Samtaka áhugafólks um
alnæmisvarnir, sem stofnuð
verða á alþjóða alnæmisdag-
inn þann l.desember.
FRÆÐSLA í SKÓLUM OG
Á VINNUSTÖÐUM
Þáttur í þessari fræðslu-
herferð um alnæmi er að
senda út bækling til kennara,
lækna og hjúkrunarfræðinga
um allt land með fræðsluefni
um alnæmisvarnir. Þettaer
ætlað til kennslu og kynning-
ar fyrir efstu bekki grunn-
skóla, og er meiningin að
kennsla samkvæmt kennslu-
leiðbeiningum bæklingsins
taki a.m.k. 2-4 kennslustundir
í hverjum bekk. Er álitið mjög
nauðsynlegt að þessi
fræðsla tengist kynfræðslu
almennt.
Hættan á alnæmi er eitt af
erfiðustu heilbrigðisvanda-
málum heimsins. Ef smitleið-
ir breytast ekki frá því sem
nú er vitað er mjög líklegt aö
unnt verði að hindra út-
breiðslu veikinnar meðal
þess fólks í áhættuhópnum
sem mótækilegt er fyrir
fræðslu. Mikil vinna er lögð í
að finna bóluefni gegn al-
næmi, en trúlega er langt í
land þar til slíkt efni finnst.
Landlæknir lýsti yfir áhyggj-
um sínum vegna þeirra sem
virðast vera „ónæmir” fyrir
fræðslu um alnæmi, því þeir
munu breiða sjúkdóminn út.
Taldi landlæknir nauðsynlegt
að útvegað yrði fjármagn til
að verja á félagslegu sviði,
t.d. að auknar yrðu fjárveit-
ingar til Útideildarinnar, sem
kemur bágstöddum ungling-
um til hjálpar. í áhættuhóp-
um framtíðarinnar verður trú-
lega aðallega að finna þá
homma og gagnkynhneigða
jafnframt vímuefnaneytend-
um af báðum kynjum, sem
eru lítt móttækilegir fyrir
fræðslu. Bæklingarog fjöl-
miðlafræðsla á ekki greiða
leið til þessa fólks. Það verð-
ur því að leita það uppi og
freista þess með öllum ráð-
um að gera því Ijósa hætt-
una. Forvarnir á þessu sviði
verður að stórefla, og sagði
landlæknir að nokkurra millj-
óna króna fjárveiting gæti
sparað hundruð milljóna síð-
ar meir. Vel skipulögð
fræðsla á vinnustöðum er
ekki síður mikilvæg en
fræðsla í skólum því þar er
t.d að finna fólk sem hættir
snemma í skóla.
Landlæknir var uggandi
yfir því að framlag ríkisins til
alnæmis fyrir árið 1989 hafi
verið lækkað um helming frá
árinu 1988. Einnig virðast
sveitarfélög ekki þekkja sinn
vitjunartíma, þvl lítið hefur
verið um framlög frá þeim til
þessara mála. Hinsvegar
njóta alnæmissjúklingar
skilnings á vandamálum sín-
um að því leyti að þeir fá
greiddar örorkubætur ef þeir
geta ekki haldið vinnu sinni
og séð fyrir sér sjálfir.
AUKIN FRÆÐSLA
- FÆRRI SÝKTIR
Algengt er að fólk geri sér
ranghugmyndir um smitleiðir
alnæmisveirunnar. Slíkt elur
vitanlega á fordómum og út-
skúfun alnæmissjúklinga úr
samfélaginu. Margir telja að
dagleg umgengni við alnæm-
issjúkling geti valdið smitun,
að hægt sé að smitast í
sundlaugum, af salernisset-
um og við kossa. í raun eru
smitleiðirnar aðeins þrjár; við
samfawr, með blóði og frá
sýktri móðurtil barns. Opin
umræðaog öll umfjöllun um
sjúkdóminn hefur í för með
sér aukna þekkingu og skiln-
ing á sjúkdómnum og það
sem sjúklingurinn þarf að
ganga í gegnum. Andlegt
ástand alnæmissjúklings er
nógu bágt fyrir þó ekki komi
þar á ofan alger útskúfun úr
samfélagi við aðra. Aukin
fræðsla á að hafa í för með
sér verulega fækkun smit-
aðra einstaklinga á komandi
árum, og bættum lifsháttum
fyrir sýkta einstaklinga. Með
þvi aö þekkja smitleiðir og
stunda ekki áhættusamt lif-
erni er hægt að koma í veg
fyrir smitun.
ALNÆMI A ISLANDI
Alls hafa fundist 45 einstaklingar hér á landi sem greinst hafa með ýmis
einkenni alnæmisveirunnar. Eftirfarandi töflur sýna flokkun þessara
sjúklinga.
DREIFING EINSTAKLINGA MED MÓTEFNI GEGN HIV EFTIR MISMUNANDI HÓPUM MIDAÐ VID 30. SEPTEMBER 1988
Hópar einstakllnga Karla Konur Samtals (%>
Hommar/tvikynhneigðir 32 0 32 (71.1)
Fikniefnaneytendur/sprautur 7 1 8 (17.8)
Hópur 1 og 2 1 0 1 ( 2.2)
Gagnkynhneigðir 1 2 3 ( 6.7)
Blóöþegar 0 1 1 ( 2.2)
Dreyrasjúkiingar 0 0 0 (0.0)
Samtals 41 4 45 (100)
FLOKKUN EINSTAKLINGA, SEM SMITAÐIR ERU AF HIV, EFTIR EINKENNUM OG ALDRI MIÐAD VIÐ 30. SEPTEMBER 1988
Aldurshópur Alnæmi Forstigseinkenni Einkenna lausir Samtals
ARC* LAS"
0—9 0
10—19 1 1
20—29 1 2 10 12 25
30-39 3 5 7 15
40—49 1 1 1 3
50-59 1 1
Samtals 7 2 16 20 45