Alþýðublaðið - 07.02.1989, Síða 4

Alþýðublaðið - 07.02.1989, Síða 4
4 Þriöjudagur 7. febrúar 1989 Þriðjudagur 7. febrúar Samtökin Tjörnin lifi senda borgastjórn bréf Grunnur ráohússins fór 170 milljónum umfram samþykkta fjárhagsáætlun Lagt til aö framkvæmdum veröi frestað fram yfir kosningar I tillögu að fjárhagsáætlun Reykjavikurborgar 1989 er gert ráð fyrir 365 milljónum króna til framkvæmda við fyr- irhugað ráðhús við Tjörnina. í því sambandi vekja samtökin Tjörnin lifi athygli á því að kostnaður við grunn þessa mannvirkis 1988 fór langt fram úr áætlun. í fjárhags- áætlun þess árs voru 160 milljónir ætlaðar til fram- kvæmda við grunninn en nú gerir útkomuspá fyrir 1988 ráð fyrir að kostnaður við þessar framkvæmdir nemi 230 milljónum króna. Þá eru ótaldar 100 milljónir af tekj- um bílastæðasjóðs borgar- innar árið 1988 sem runnið hafa i húsgrunninn. Heildar- kostnaður við grunninn á síð- asta fjárhagsári nemur skv. þessu a.m.k. 330 milljónum, þ.e. 170 milljónum, eða 106%, umfram samþykkta fjárhagsáætlun. í bréfi sem Samtökin komu á framfæri við borgarstjórn segir: „Samtökin Tjörnin lifi mót- mæla þessari meðferð al- mannafjár og einnig þeirri ráðagerð að verja 365 milljón- um á þessu fjárhagsári til framkvæmda viö ráðhúsið. Er borgarstjóri fylgdi til- lögu að fjárhagsáætlun 1989 úr hlaði lét hann svo um mælt að deila um staðsetn- ingu ráðhúss hafi verið til lykta leidd. Svo er ekki. Viljayfirlýsing tíu þúsund Reykvíkinga gegn ráðhúsi á þessum stað lá fyrir áður en framkvæmdir hófust en var virt að vettugi. Samtökin Tjörnin lifi fóru síðan fram á það að Reykvíkingar fengju tækifæri til að tjá vilja sinn í þessu máli um leið og for- setakosningar færu fram í júní en þá var jafnframt geng- iö til atkvæða um staðbundin málefni í ýmsum sveitarfé- lögum. Framkvæmdir á tjarn- arbakkanum voru þá enn á frumstigi en þessum tilmæl- um var hafnað. Vegna ofangreindra um- mæla borgarstjóra skal at- hygli vakin á því að ráðhús- deilan verður ekki til lykta leidd fyrr en Reykvíkingar segja hug sinn. Um leið og mótmælt er þeirri ráðstöfun á fé almenn- ings sem að ofan greinir og fjölmörg brýnni verkefni en bygging glæsihalla eru látin sitja á hakanum vilja samtök- in Tjörnin lifi vekja athygli á þeirri staðreynd að enn eru þau umhverfisspjöll sem mestu skipta ekki orðin, þ.e. sú röskun á tjarnarsvæðinu sem bygging stórhýsis hefði í för með sér. Enn er ráðrúm til að koma í veg fyrir að mann- virkið rísi upp fyrir vatnsborð. Unnt er að Ijúka gerð blla- geymslu án þess að óbæt- anleg spjöll verði á þessum stað og án þess aö fjármunir fari í súginn. Við afgreiðslu fjárhags- áætlunar 1989 mælast sam- tökin Tjörnin lifi til þess að frekari framkvæmdum við ráðhús verði frestað fram yfir borgarstjórnarkosningar 1990.“ Frá Borgarskipulagi KYNNING Á SKIPULAGI VIÐ TJARNARGÖTU Á vegum Reykjavíkurborgar hefur verið unnið að endurskipulagi á Tjarnargötu og tjarnarbökkunum. Ákveðið var að efna til kynningar þannig að íbúða- eigendur og íbúar við Tjarnargötu ásamt öllum almenningi væri gefinn kostur á að koma með athugasemdir og ábendingar. Sýning á tillögunum verður í glugganum á Gallery Borg frá 7—14 febrúar og að því loknu hjá Byggingar- þjónustunni við Hallveigarstíg 1 út febrúarmánuð. Athugasemdir þurfa að hafa borist Borgarskipulagi að Borgartúni 3 (3. hæð) fyrir 1. mars 1989. !ff ÚTBOÐ Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar fyrir hönd byggingadeildar borgarverkfræðings óskareftir til- boðum I nýbyggingu Hagaskóla. Um er að ræða upp- steypu og fullnaðarfrágang úti og inni á ca. 600 m2 einnar hæðar húsi. Útboðsgögn verðaafhent áskrifstofu vorri Fríkirkju- vegi 3 Reykjavík gegn kr. 10.000.- skilatryggingu frá og með miðvikudeginum 8. febrúar n.k. Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 21. febrúar 1989 kl. 11.00. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR Frikirkjuvegi 3 — Simi 25800 — Posthí)ll 878 — 101 fieykjavik Austurrikismenn vilja hafa áhrif í Evrópu og meö því ad gera EB- ríkjum Ijóst strax, aö landiö óski inngöngu telji þeir slíkra áhrifa aö vænta fyrr. Slikt myndi fela i sér að tekið yrði tillit til hlutleys- is þeirra í utanríkismálum. FRIENOI.V FIÍO.NI A 10 / Viennese Waltz. The sound that enchante delegates at the end of the Congress < Vienna 1814-15. Nowadays conferenc jelegates flying on Austrian Airlines ca: injoy the same “air”. In other words ther s a h a r m o n i o u s link betwee: zonferences and the Viennese Waltz. Henc :he saying “Dancing on Air”. The Frikndi.y way tö FLY. UTLOND AUSTURRÍKI SÆKIR UM AÐILD AÐ EVRÓPUBANDALAGINU Hlutleysisstefnan er þrándur í götu í EFTA-rfkjunum ræða menn mikið afstöðuna til Evr- ópubanda-lagsins, EB, en innan EB láta menn málefni EFTA sér í léttu rúmi liggja. Til þess eru menn of upp- teknir af eigin áformum um að flýta því eftir mætti að koma á sameiginlegum opn- um innri markaði. Eins og margoft hefur verið nefnt er stefnt að því að flestum þeim hindrunum sem nú standa í vegi fyrir því verði rutt úr vegi fyrir árslok 1992. Engar nýjar umsóknir EFTA-rikin eru nú sex eftir: ísland, Noregur, Sviþjóð og Finnland, auk Sviss og Aust- urríkis. Spyrji menn embætt- ismenn í Brussel hvert við- horf þeirra sé til málefna EFTA-ríkjanna, má flokka svör þeirra í þrennt: í fyrsta lagi er enginn áhugi á því að fjölga aðildar- rfkjum EB fyrr en innri mark- aðurinn erorðinn raunveru- leiki. í öðru lagi er því svarað til, að þótt eitthver EFTA-ríkj- anna sendi inn umsókn um aðild að Evrópubandalaginu þurfi ekki að reikna með því að slikri umsókn yrði svarað fyrr en einhvern tima eftir 1995. Og í þriðja lagi svara menn þvi til, að þau ríki sem sækist eftir aðild verði að sækja um hana án nokkurra sérívilnana. Þess vegna má segja, að þegar sagt er hér á landi að Island muni ekki sækjast eft- ir fullri aðild að bandalaginu, þá er ( þeirri fullyrðingu rugl- andi framsetning. Það er eng- in aðild til nema full aðild. Aukaaðild að Evrópubanda- laginu er hvorki til né fyrir- huguð. Evrópubandalagið er og verður fjölskylda ríkja með náið pólitískt samstarf, næstum þvi eins og Banda- ríki Norður-Ameríku. Utanrík- ispólitlskt hlutleysi Sviþjóðar, Finnlands og Sviss er þvi eitt þeirra mála sem gera hugs- anlega umsókn þessara rikja flókið mál. Það er einmitt þetta sama mál, sem hefur valdið titringi innan rlkisstjórnar Austurrik- is, en hún hefur ákveðið aö leggja fram formlega umsókn um aðild að EB á þessu ári. Það ætlar Frans Vranitsky, kanslari leiðtogi jafnaðar- manna, að gera að öllum lík- indum í aprilmánuði. Alois Mock, utanríkisráðherra Aust- urríkis, sem jafnframt er vara- kanslari og leiðtogi hins borgaralega Þjóðarflokks, sem er litli flokkurinn i sam- steypustjórn landsins, vill hins vegar að umsóknin verði send þegar í næsta mánuði. Ágreiningur um___________ Tímasetningu_____________ Ágreiningur um timasetn- ingu umsóknarinnar virðist hreint aukaatriði, ekki síst með tilliti til þess að slíkri umsókn verður varla svaraö fyrr en að fimm til sex árum liðnum. En hún skipti máli í Austurríki. Þar fara fram sveitarstjórnarkosningar nú i mars. Þjóðarflokksmenn margir hverjir vilja að leiðtogi þeirra, Mock utanrikisráð- herra, taki af skarið og gefi i skyn á ákveðinn hátt að hann sé sá stjórnmálamaður sem eigi frumkvæði að þessari umsókn. Þeir vilja að með því móti fái kjósendur (Dað á til- finninguna að Vranitzky kanslari sé hálfvolgur í af- stöðu sinni til EB. Með því að beina umræðunni að efna- hags- og atvinnulegum ávinn- ingi aðildar að bandalaginu reynir utanrfkisráðherrann jafnframt að forðast hina við- kvæmu hlið málsins; áhrif slíkrar aðildar á hlutleysis- stefnu Austurríkis. Frans Vranitsky kanslarl leggur líklega fram formlega ósk um inn- göngu í EB i aprílmánuði. Hlutleysið þungamiðja Sá þáttur málsins verður þó aldrei umflúinn. Og það var báðum leiðtogum austur- rísku stjórnarinnar gert Ijóst þegar þeir heimsóttu Moskvu fyrir skömmu. Sovésk stjórn- völd telja að utan-rfkispólit- ískt hlutleysi landsins sé í hættu gangi Austurríki í EB, sérstaklega ef bandalagið fer að þróast í átt að pólitískri einingu. Samt hafa ráðamenn í Kreml ekki viljað leggjast gegn umsókn um aöild, en viöhorf þeirra vega óneitan- lega þungt þegar ráðamenn i Vlnarborg skoða málið. Því veldur aldarþriðjungs saga Austurrikis sem sjálfstæðs ríkis. Það var í maí 1955 sem Sovétmenn, Bandaríkjamenn, Bretar og Frakkar undirrituðu sáttmála um sjálfstæði Aust- urríkis. Mánuði áður höfðu austurrísk stjórnvöld ásamt Sovétmönnum undirritað plagg, eins konar viljayfirlýs- ingu, þar sem þvi er nánast heitið að Austurriki muni ekki gerast aóili að hernaðar- bandalagi, ekki leyfa her- stöðvar á austurrískri grund og fylgja hlutleysisstefnu í utanrikismálum. Ótti via hlutleysisbrot Nú tölja menn, að aðild Austurrt'kis að EB myndi ekki í sjálfu sér teljast hlutleysis- brot. Evrópubandalagið er ekki hernaðar- eða varnar- bandalag, þótt flest ríki bandalagsins séu aðilar að NATO. En á hinn bóginn kunni ákvarðanir, sem teknar verði í einstaka málum, að geta neytt Austurríkismenn til afstöðu, sem teldist brot á hlutleysisstefnu landsins. Til dæmis með því að beita ein- hver ríki eða ríkjabandalög viðskiptaþvingunum. Austurrískur ráðherra sagöi nýverið í viðtali við breska blaðið Financial Tim- es, að þarlendum ráðamönn- um þætti það of hægfara leið til að nálgast EB að vera í samfloti með öðrum EFTA- rfkjum. Austurríkismenn vilji fá að hafa áhrif í Evrópu, og með því að gera EB-rikjum það Ijóst strax að landið óski aðildar sé slíkra áhrifa að vænta fyrr. Á þann hátt verði þess helst að vænta að tekið yrði tillit til sérþarfa Austur- rikismanna ( utan-rikismál- um, kæmi til slíks að banda- lagið tæki í framtíðinni af- stöðu sem hróflaöi viö hlut- leysinu. Með öðrum orðum; stjórnvöld ( Vlnarborg vilja fá aðild með fyrirvara um sér- þarfir. En samtimis gera menn sér þó vonir um að á (Deim tíma sem um umsóknina verður fjallað muni sambúð austurs og vesturs þróast í þá átt, að stjórnvöld í Moskvu telji sér óhætt að slaka á kröfum sínum um utanríkispólitiskt hlutleysi Austurríkis. 5 ÞflNKAR Á ÞRIÐJUDEGI BARÁTTAN UM HUGSKOTIÐ OG SEIGBRJÁLÆÐI Our concept for survival: i-violent action all over the world to achieve the following goals: nding all nuclear testing opping the dumping of chemical and nuclear wastes at sea iving the seals, whales and dolphins • Stopping acid rain and the further poisoning of our environmen with pollutants and atmospheric discharge • Saving Antarctica. _____________________________ I want to know the Greenpeace concept for the survivt ‘ I of our environment. Send me extensive informational 1 material. I Surnamc/Givcn namc GREENPEACE | Send this coupon to: I Greenpeace Intemational 1 9/11 Kensington High Street Það er af hinu góða að vera skynsemistrúar, en trú- arbrögð eru það engu að sið- ur. Afstaða stjórnvalda í hvalamálinu er gott dæmi um misheppnaða skynsemistrú. Það hefur verið sagt um Svía að þeir séu seigbrjálaóir og þótt ég sé almennt á móti alhæfingum um jafn stórar og samsettar heildir og þjóð- félög eru þá hættir mér til að taka undir fordómana. Svíar trúa því í raun og veru, ef marka má opinbera umræðu þar í landi, að hægt sé að komast til botns í öllum mál- um ef þau eru rökrædd af skynsemi og yfirvegun. Slík afstaða hlaut vissulega hljómgrunn á timum Viet- namstríðsins og staðfesti þar með tiltrú þeirra á ágæti eig- in afstöðu. Þetta hefur verið nefnt seigbrjálæði, eða oft trú á skynsemina. Málið er nefnilega það að það var ekki verið að hlusta á Svia í Víet- nammálinu, heldur átti af- staða þeirra mikinn hljóm- grunn á heimsvísu þannig að hægt var að taka undir skel- egga gagnrýni þeirra á aö- gerðir Bandaríkjamanna. Stjórnvöld hér eru nú oröin fórnarlömb sama seigbrjálæð- isins eða oftrúarinnar á skyn- semina. Það er misskilningur að trúa því að við Islendingar höfum náð því að færa land- helgina út i 200 milur. Við vorum fyrst til að ná 200 mílna landhelgi sem er allt annað mál. 200 mílurnar fengum við vegna þess að verndarsjónarmið voru á upp- leið í heiminum, vegna þess að afleiðingar ofveiðinnar blöstu alls staðar við og ekki síst i N-Atlantshafinu og nægir að nefna ýsuna og síldina sem dæmi. Þeir sem studdu okkur ( baráttunni við ofurefli Breta, Þjóðverja og Unilever eru helstu andstæð- ingar okkar i hvalamálinu. Skynsemin segir okkur að náttúruverndarsinnar séu þarna að hengja bakarar fyrir smið. Það er að vissu marki mín afstaða, en ef við litum yfir meðfylgjandi auglýsingu frá þeim sem birtist í Fortune þá held ég að flestir íslend- ingar geti merkt jákvætt við allmörg atriói og þá helst þau sem eru fjarlægust okk- ur, en þó nálæg, eins og súra regnið. Að mínu mati er það full- komlega skynsamleg afstaða að krefjast sjálfsákvörðunar- réttar okkar á hvernig við eig um að nýta náttúruauðlindir okkar. En sú afstaða verður óskynsamleg í hvalamálinu þegar heildin er skoðuð. Hún byggir nefnilega á brengluöu auðlindamati. Með fjölmiðlabyltingunni og tilkomu eiginlegs þeims- markaðar er ímyndin að verða ein dýrmætasta eign stórfyrirtækja og á það jafn- vel við um þjóðir líka. Þetta er vissulega kaldhæðnislegt því hvað getur verið loft- kenndara en mynd einhvers fyrirtækis eða lands í hugum fólks. Þetta hefurverið nefnd baráttan um hugskotið. Fyrir- tæki sem velta stjarnfræði- legum dollarafúlgum, eins og þeir bræður Pepsí og Kók verða að nota stóran hluta tekna sinna til að halda ímyndinni í góðu lagi. Önnur fyrirtæki eins og United Fruit Company hefur þurft aö skipta um nafn vegna afreka sinna ( Mið-Ameríku og Dow Cemicals hélt lengi vel lág- um prófíl vegna napalfram- leiðslu sinnar í Víetnamstrið- inu. Reynolds hefur samein- ast matvælafyrirtækinu Nabisco sem hefur mun lægra hagnaðarhlutfall m.a. til að hvítþvo nikótínhagnað- inn. Við, eða í öllu falli þeir sem sjá um landkynningu, hafa til skamms tima lagt megináherslu á að kynna ís- land sem hreint, ómengað land þar sem búi greind bókaþjóð. Það á að vera ímynd okkar. Ef svo er, og það vona ég sannarlega, þá á ímynd okkar sem umhverfis- sinnuð þjóð að verða ein mikilsverðasta auðlind okkar á eftir miðunum og mögu- leika i fallvötnunum. ímynd er samsett og i bar- áttunni um hugskotið þá er fátt sem situr eftir hjá vel- flestum. Mér hefur verið sagt að innan við 6% af „uppurn" á Maiamjsvæðinu í Flórída hafi kannast við „lceland" og helmingur þeirra hélt það vera nafn á flugfélagi. Áður en við gefum okkur að Ameríkanar séu svo vit- lausir þá langar mig til að spyrja sjálfan mig og aðra hvaö viö vitum um Madeira. Er það ekki eyja sem lifir á túrisma og framleiðir desert- vín? Alvarlegast er þó að niður- lagningin er nánast orðin uppistaða í útflutningi á full- unnum iönaðarvörum eftir að það fór að þrengja að ullar- iðnaðinum. Þegar best lét stóð ullin fyrir 4% af útflutn- ingi okkarog lagmetið fyrir öðru eins. Ætli ullin sé ekki að nálgast 1% og hver staða lagmetisins verður er óráðiö. Ef svo fer að hvorutveggja hrynur sem er ekki óhugs- andi við núverándi aðstæður hefur okkur tekist að sanna það fyrir alheimi að við erum stoltasta þjóð í heimi. Við erum tilbúin að skjóta okkur aftur á það stig að vera hrein- ir hráefnisútflytjendur til að halda reisn okkar. Og skyn- semi. ,, ...skynsemin segir okkur að nátt- úruverndarsinnar séu þarna að hengja bakara fyrir smið. Það er að vissu marki mln afstaða, en ef við iítum yfir meðfylgjandi auglýsingu frá þeim sem birtist i Fortune þá held ég að flestir íslendingar geti merkt jákvætt við allmörg atriði og þá helst þau sem eru fjarlægust okkur, en þó nálæg, eins og súra regnid,“ segir Örn D. Jónsson í greininni. • • JAFNAR TOLUR • ODDATOLUR • HAPPATOLUR Heildarvinningsupphæö var kr. 5.723.628,- 1. vinningur var kr. 2.638.300,- og 7 voru með flmm tölur réttar og þvl fær hver kr. 376.900,-. Bónusvinningur (fjórar tölur + bónustala) var kr. 457.688,- skiptist á 4 vinningshafa og fær hver þeirra kr. 114.422,- Fjórar tölur réttar, kr. 789.336,-, skiptast á 228 vinningshafa, kr. 3.462,- á mann. Þrjár tölur róttar kr. 1.838.304,- skiptast á 6.383 vinningshafa, kr. 288,- á mann. Sölustaðirnlr eru opnir frá mánudegi til laugardags og loka ekki fyrr en 15 minútum fyrir útdrátt. Sími 685111. Upplýsingasímsvari 681511.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.