Alþýðublaðið - 07.02.1989, Síða 8

Alþýðublaðið - 07.02.1989, Síða 8
Þriðjudagur 7. febrúar 1989 4 FRÉTTASKÝRING Verðlags-, vaxta- og peningamálin eftir verðstöðvun: UMÞÓ TTUNAIITÍMIMED HURÐU EFTIRLITIOG ÍHLUTUN STJÓRNVALDA Steingrímur Hermannsson forsætisráöherra kynnti stefnu rikisstjórnarinnar þegar Alþingi kom saman i gær að loknu fríi. Það var ekki fyrr en í gærmorgun sem stjórnarflokkamir komu sér saman um boðskapinn. A-mynd/E.ÓI. Umræður að undanförnu um væntanlegar efnahagsað- gerðir hafa að mestu staðið um vaxtamálin og aðgerðir sem tækju við er verðstöðv- un lýkur þann 28. þessa mán- aðar. I gær lá niðurstaðan á borðinu, sem felur í sér all- sérkennilega málamiðlun, milli þeirra sem fylgjandi eru frjálsræði í vaxta- og verö- lagsmálum og þeirra sem vilja afturhvarf til fyrri tíma miðstýrðra ákvarðana og valdboða stjórnvalda. Samþykkt ríkisstjórnarinn- ar felur í sér, aö þegar verö- stöövun lýkur í lok mánaðar- ins taki viö sex mánaöa um- þóttunartímabil i verðlags- málum meö sérstöku aðhaldi að verðhækkunum. UMÞÓTTUNARTÍMI j EFTIR VERÐSTÖÐVUN Verðlagasráö og Verölags- stofnun hafa framkvæmdina meö höndum. Fylgst veröur náiö með verölagsþróun i einstökum greinum. Fyrir- tækjum veröur m.a. gert skylt að tilkynna hækkanir og ástæöur fyrir þeim til verð- lagsyfirvalda þegar eftir er leitað. Ef fyrirtækið verður uppvíst að hækkunum „um- fram brýn kostnaðartilefni og afkoma fyrirtækjanna gefa til- efni til“, eins og það er orðað I samþykkt rikisstjórnarinnar, skulu verðlagsyfirvöld beita timabundið ítrustu ákvæðum verðlagslaga, eftir þvi sem efni standa til. Til að tryggja örugg skil á upplýsingum til Verðlags- stofnunar mun rlkisstjórnin leggja fram á Alþingi frum- varp um breytingar á verð- lagslögum, sem feli I sér viðurlög við vanrækslu á til- kynningaskyldu. FÁ KEPPNISFYRIRTÆKI SKOÐUÐ SÉRSTAKLEGA Formönnum Alþýðubanda- lags og Alþýðuflokks hefur síðustu vikur verið tlðrætt um „fákeppni" á íslenskum markaði. Gott ef Steingrímur er ekki farinn að nota þetta lika. Hugtakið hljómar ókunn- uglega I eyrum margra, en ku notað I daglegu máli stjórn- málafræðinga. Hugtakið felur I sér afneitun á markaðslög- málum í fámenni eins og á íslandi. Þessara sjónarmiða gætir vlða í efnahagspakka rfkisstjórnarinnar. Stundum viröist þó, sem fákeppni og einokun sé svolítið ruglað saman. Verðlagsstofnun verður fal- ið sérstaklega, að fylgjast með verðákvörðunum einok- unar- og markaösráðandi fyr- irtækja, hvort sem um er að ræða einka- eða opinber fyr- irtæki. Einnig á þetta við um verðákvarðanir sem teknar eru af samtökum starfs- greina, en þau hafa að öðru jöfnu meiri möguleika en fyr- irtæki i samkeppnisqreinum til að snögghækka verð í kjölfar verðstöðvunar, segir i samþykkt rikisstjórnarinnar. Þá hefur rikisstjórnin ákveðið að leggja til tima- bundna breytingu á verðlags- lögum þannig að á umþótt- unartimanum veröi hækkun á orkuverði háð samþykki verð- lagsyfirvalda. Sérstök áhersla er lögð á kynningu verðkann- ana, svo og verðsamanburð við nágrannalöndin. Ennfrem- ur er lagt fyrir Verðlagsstofn- un að taka upp samstarf við verkalýðs- og neytendafélög. SEÐLABANKINN TIL VEGS 06 VIRÐINGAR Meginmarkmið rikisstjórn- arinnar í vaxta- og peninga- málum er að koma á lægri raunvöxtum, en stuðla jafn- framt að betra jafnvægi á lánamarkaði með ýmsum umbótum. Helstu markmiðin eru: Samræmt átak til að lækka raunvexti þannig að vextir á verðtryggðum ríkisskulda- bréfum verði ekki hærri en 5% og raunvextir af öðrum fjárskuldbindingum lagi sig að því. Vaxtamunur minnki frá því sem nú er. Starfsskil- yrði fjármálastofnana verði samræmd meö breytingum á reglum um bindi- og lausa- fjárskyldu og hvað varðar heimildir til timabundinnar íhlutunar um ávöxtunarkjör. Skipulag bankakerfisins veröi bætt og samkeppnin aukin á lánamarkaði. Til að stuðla að þessum markmiðum felur ríkisstjórn- in Seölabanka að vextir á lánamarkaðnum lagi sig að vöxtum á rfkisskuldabréfum. Nú ætlar sem sagt rikið að fara á undan með góöu for- dæmi, en beita jafnframt íhlutun Seðlabanka fylgi aðrir ekki eftir. Varöandi nafnvext- ina verður einnig beitt sér- stöku aöhaldi á umþóttunartlmanum og Seðlabanka falið að beita sér fyrir endurskoðun á ávöxtun- arkjörum, viðskiptaskulda- bréfa, vfxla og skiptikjarareikninga. Lána- stofnunum verður m.a. gert að leggja fram áætlanir um þróun vaxtamunar samhliöa tilkynningum um vaxta- ákvarðanir. Til að ná þessum breyting- um fram hefur ríkisstjórnin undirbúið ýmis frumvörp til breytinga á lögum, ekki sist lögum um Seðlabankann. Samkvæmt stefnu ríkis- stjórnarinnar fær Seðlabank- inn einmitt aukin völd og viðara hiutverk i vaxta- og peningamálunum. Þetta þykir nokkuð á skjön við yfirlýsing- ar formanna flokkanna að undanförnu, sem af ýmsum hafa verið túlkaðar sem van- traust á þá sem þeirri stofn- un stýra. VERÐBRÉFAFYRIRTÆKI INNIÍ MYNDINNI Rikisstjómin mun beita sér fyrir þvi, að í frumvörpum um verðbréfafyrirtæki og eignar- leigur verði hliöstæð ákvæði sett og hjá bönkunum um heimild Seðlabanka til íhlut- unar varðandi vaxtaákvarðan- ir. Þannig að allir sitji við sama borð. Laust fé innlánsstofnana verður skilgreint með þrengri hætti en áður og kveðið á um að stærstur hluti viður- laga sem Seðlabankinn inn- heimti renni beint í ríkissjóð. Jafnframt verður reglugerð um bindi- og lausafjárskyldu breytt þannig að miðað verði við ráðstöfunarfé innláns- stofnana en ekki innlán eins og nú er. Starfssvið bankaráða verð- ur skilgreint upp á nýtt, þannig að verksvið þeirra aukist. Þá mun ríkisstjórnin flytja frumvarp um breytingu á vaxtalögum, þannig að komið verði í veg fyrir mis- neytingu og ósanngjarna vaxtatöku. FRJÁLSRÆÐIINNAN UM AUKNA MIÐSTÝRINGU Ákveðnar tillögur um sam- runa lánastofnana eiga að liggja fyrir á næstunni og áætlun um aðlögun lána- markaðarins að breyttum að- stæðum í umheiminum. Þetta skýtur nokkuð skökku við miðað við fyrri hluta sam- þykktar rikisstjómarinnar sem boðar aukna íhlutun Seðlabanka og miðstýrðari ákvörðunartöku.í þessu felst m.a. að islensku atvinnulífi verði tryggð sambærileg að- staða á fjármagnsmarkaði og er i viöskiptalöndunum. Þá veröa heimildir innlendra fyr- irtækja til að taka erlend lán á eigin ábyrgð rýmkaðar. Á næstu misserum verða tillögur um fjármagnsvið- skipti milli íslands og ann- arra landa mótaðar á grundvelli tillagna ráðherra- nefndar Norðurlanda um Efnahagsáætlun Norðurlanda fram til 1992. Þessi kafli er talinn sérstakur sigur fyrir al- þýðuflokksmenn, ekki sfst klausa um að kannað verði hvort heimila megi viöur- kenndum erlendum bönkum starfsemi hér á landi. „Seðlabankinn gegnir lykil- hlutverki í framkvæmd stefnu ríkisstjórnarinnar I peninga- og vaxtamálum. Ríkisstjórnin felur honum að vinna að framgangi þeirrar stefnu sem mörkuö er með þessari sam- þykkt," segir í lokamálsgrein samþykktarinnar. Svo virðist sem formenn flokkanna hafi fengiö aukið álit á seðla- bankastjórunum. Nema þar séu fyrirhugaöar einhverjar breytingar? V

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.