Alþýðublaðið - 22.02.1989, Qupperneq 3
Miðvikudagur 22. febrúar 1989
3
FRÉTTASKÝRING
Öngþveitið á húsnœðislánamarkaðinum
VAXANDI FYLGI VID
HÚSBRÉFAKERFIÐ
fasteignaveðbréfsins.
í frumvarpsdrögunum
er einnig gert ráð fyrir
breytingum á vaxtaniður-
greiðslum. Lagt er til að
vextir á útlánum BR verði
færðir að markaðsvöxtum,
með upptöku vaxtabóta,
Samkvæmt heimildum Alþýðublaðsins fer fylgi
við þær breytingar sem félagsmálaráðherra
vill gera á húsnæðislögunum vaxandi í öllum
stjórnmálaflokkunum og andstaðan ionan
verkalýðshreyfingarinnar dvínandi. Enda er
lánveitingaþörf Húsnæðisstofnunar á næstu
tveimur árum um 70 milljarðar að óbreyttu!
Höfuðborgarbúar eru öllu duglegri en landsbyggðarbúar við að sækja um húsnæðislán.
Margir í báðum hópum búa fyrir í rúmgóðum eigin íbúðum. Hentar húsbréfakerfið mörg-
um betur?
Jóhanna Sigurðardóttir
félagsmálaráðherra vinnur
nú á fullri ferð við að
kynna frumvarpsdrög að
breytingum á húsnæðis-
lögum, þar sem stærsta
breytingin yrði upptaka
hins svokallaða húsbréfa-
kerfis. Jóhanna vonast til
þess að geta lagt frumvarp-
ið fram á allra næstu dög-
um, enda mikilvægt að
bregðast sem fyrst við því
öngþveiti sem nú rikir.
Samkvæmt heimildum
Alþýðublaðsins fer fylgi
við breytingarnar vaxandi
meðal allra stjórnmála-
flokka, líkurnar á breiðri
þverpólitískri samstöðu
verða æ meiri. Heimildir
okkar greina einnig frá því
að sú andstaða sem frá
byrjun kom fram hjá
verkalýðshreyfingunni, en
þó einkum hjá Ásmundi
Stefánssyni forseta ASÍ,
fari dvínandi og er af sum-
um verkalýðsforingjum af-
greidd sem fljótfærni eða
misskilningur.
Má stytta biðröðina
um helming
Frá því að núverandi
kerfi var tekið upp í sept-
ember 1986 hafa alls 17-18
þúsund umsóknir borist
Húsnæðisstofnun. Af-
greiddar hafa verið um 8
þúsund umsóknir og enn
eru þvi um 10 þúsund um-
sækjendur á biðlista. Bú-
ast má við 13-14 þúsund
umsóknum til viðbótar á
næstu tveimur árum. Hinir
10 þúsund sem eru á biðl-
ista þurfa 23 milljarða og
gera má ráð fyrir því að
lánveitingar vegna þeirra
sem eru á biðlista og þeirra
sem sækja um á næstu
tveimur árum verði að
óbreyttu alls um 70 millj-
arðar króna.
Markmið þeirra breyt-
inga sem félagsmálaráð-
herra reynir nú að knýja
fram eru að draga úr lán-
veitingaþörf húsnæðis-
kerfisins og stytta biðrað-
irnar með upptöku hús-
bréfakerfis, þar sem inn-
byrðis lán aukast og gætu
numið 20-25% af viðskipt-
unum.
Könnun Félagsvísinda-
stofnunar sýndi svo um
munaði að ekki eru allir í
biðröðinni í kröppum
dans. 57% búa í eigin hús-
næði. Af þeim sem töldu
sig sækja um á næstu
tveimur árum áttu 33%
eigið húsnæði. Af biðraða-
fólkinu sem á húsnæði fyr-
ir töldu 68% sig búa í góðu
húsnæði og 56% töldu sig
búa í mátulegu eða of
rúmu húsnæði. Af hinum
væntanlegu sem eiga hús-
næði töldu 70% sig búa í
góðu húsnæði. í raun má
segja að af þeim nálægt 23
þúsund sem eru á biðlista
eða ætla að sækja um á
næstunni sé vel innan við
helmingur sem býr í lélegu
húsnæði eða í húsnæði
annarra. Skiljanlega vill
ráðherra koma upp kerfi
þar sem fyrst og fremst er
gengið út frá þörfum hinna
tekjulægri, eignaminni og
þeirra sem búa í Ieiguhús-
næði eða í foreldrahúsum
eða þá í lélegu eigin hús-
næði.
Hverju vill félags-
málaráðherra breyta?
Húsbréfakerfið felst í
því, að i stað beinna lána
frá Byggingasjóði ríkisins
(BR) bjóðist húsbréfadeild
við Húsnæðisstofnun til
þess að kaupa fasteigna-
veðbréf sem gefin eru út
við fasteignaviðskipti með
veði í viðkonrandi eign.
Sjóðurinn greiðir fast-
eignaveðbréfin með svo
kölluðum húsbréfum. Þau
verða markaðshæf, gefin
út í sérstökum flokkum, og
BR og Seðlabankinn verða
„viðskiptavakar" fyrir hús-
bréfin ef nteð þarf. Gert er
ráð fyrir því að húsbréfa-
deildin leiti eftir samning-
unt við banka og aðrar
lánastofnanir um að hafa
með höndum samskipti
skuldara fasteignabréfa við
deildina. Bréfin eru gefin
út með ábyrgð BR. Hús-
bréfadeildin kaupir hús-
bréf að hámarki 65% af
mati viðkomandi eignar og
tekur auk þess tillit til
greiðslugetu útgefenda
sem tengjast vaxtabyrðinni
og skerðast með hækkandi
tekjum og eignum umfram
ákveðin mörk. Miðað er
við að ráðstafa svipaðri
upphæð í þetta og runnið
hefur til greiðslu vaxtaaf-
sláttar og húsnæðisbóta,
auk niðurgreiðslu vaxta hjá
BR.
Fyrirvarar en
dvinandi andstæða
Loks eru gerðar tillögur
um breytingar á útlánaregl-
um BR. Breytingarnar eru
þrjár: Að lán til einhleypra
verði 67% af láni til hjóna,
en þó verði lán til ein-
stæðra foreldra jafnt láni
til hjóna. Að lán til þeirra
sem eiga ibúð fyrir verði
49% af hámarksláni óháð
því hvort um kaup á not-
aðri íbúð eða nýbyggingu
er að ræða. Þetta samsvar-
ar 30% skerðingu til þess-
ara hópa. Og að heimilt
verði að skerða lán eða
breyta lánskjörum þeirra
sem eiga eignir sem sam-
svara fullnægjandi íbúðar-
húsnæði.
Það voru fulltrúar allra
flokka nema Framsóknar-
flokksins og fulltrúi vinnu-
veitenda sem skrifuðu und-
ir hinar almennu niður-
stöður ntilliþinganefndar-
innar, þó með fyrirvara um
einstök atriði. Ásmundur
Stefánsson forseti ASÍ og
Guðmundur G. Guð-
mundsson Framsóknar-
flokki skrifuðu ekki undir
álitið. Þeir höfðu mikinn
fyrirvara á skuldabréfasölu
einstaklinga á fjármagns-
markaði, vilja að Húsnæð-
isstofnun fái heimild til að
bjóða út skuldabréfin, sem
væri eðlilegri leið en „að
hver og einn væri stautandi
með húsbréfin sín hjá fjár-
magnsfyrirtækjunum".
Þeir töldu líklegt að hús-
bréfakerfið hefði skaðleg
áhrif á fasteignamarkað-
inn í því ástandi sem nú rík-
ir. Guðmundur tekur undir
breytingarnar hvað vextina
varðar, en Ásmundur telur
réttara að viðhalda núver-
andi fyrirkomulagi lágra
vaxta og húsnæðisbóta. En
sem fyrr segir eru taldar all
góðar líkur á því að góð
pólitísk samstaða náist um
aðalatriði frumvarpsins og
að andstaða verkalýðs-
hreyfingarinnar dvíni.
FRETTASKYRING
Breyttar reglur um lausafjárhlutfall bankanna
ÍÞYNGJANDI FYRIR UTVEGSBANKA
EN TIL BÓTA FYRIR LANDSBANKA
Frumvarp um breyt
ingar á lögum um
Seðlabanka íslands
sem felur i sér heim-
ild til handa Seðla-
banka um breytingu
á lausafjárhlutfalli
bankanna maelist mjög
misvel fyrir hjá for-
svarsmönnum bank-
anna. Breytingin virð-
ist íþyngjandi fyrir Út-
vegsbanka, en til bóta
fyrir Landsbankann,
Guðmundur Hauksson
bankastjóri Útvegsbank-
ans segir lausafjárhlutfall
bankans versna um 400
milljónir ef Seðlabanki
nýti heimildir samkvæmt
frumvarpinu. Að óbreyttu
þýðir þetta að Útvegsbank-
inn verði að draga saman
útlán til að geta staðið við
lögbundið lausafjárhlut-
fall. Fyrir Landsbankann
er þetta hins vegar til bóta,
að sögn Sverris Hermanns-
sonar bankastjóra.
Þrjár breytingar_________
á siðasta ári
Þrisvar á síðasta ári
breytti Seðlabanki grunni
sem ákvarðar lausafjár-
hlutfall bankanna. Síðast
var ákvæðum breytt rétt
fyrir áramót. Breytingin
sem felst í frumvarpi sem
nú liggur fyrir á Alþingi er
sett ineð það að markmiði
að létta á þeim bönkum
sem fyrst og fremst lána til
útflutningsatvinnugreina.
Hvað varðar Útvegsbank-
ann virðist þessu öfugt far-
ið.
í greinargerð með frum-
varpinu sem til umfjöllun-
ar er í þingflokkunum seg-
ir, að reglur sem nú eru í
gildi veiti mörgum innláns-
stofnunum svigrúm til að
bæta „lausafé" sitt með því
að taka erlend lán og end-
urlána í stað þess fjár af
inniendum gjaldeyrisreikn-
ingum (1G), sem áður
hafði verið varið til útlána.
Þannig losa bankarnir 1G
fé og leggja það inn á
reikninga sem teljast með
lausu fé.
Þetta er talin óæskileg
þróun m.a. frá peningapól-
itísku sjónarmiði. Seðla-
bankinn reyndi að afstýra
þessum reglum sem hann
setti sl. vor, en féll síðan frá
í lok ársins, þar sem nánari
athugun þótti sýna að þær
voru ekki að öllu leyti inn-
an ramma 8. greinar Seðla-
bankalaganna.
Aftur breytt til
skynsamlegri vegar
Reglurnar sem giltu síð-
ari hluta síðasta árs og
taldar voru stangast á við
ákvæði laganna voru
þannig, að með lausu fé
töldust hvorki erlendir
peningar né nettó gjaldeyr-
isinnlán í öðrum innláns-
stofnum að fullu, þar eð
Seðlabankinn taldi að þau
gætu verið „bundin“ við
það að mæta ýmsum gjald-
eyrisskuldum. Með lausu
fé taldist því aðeins svo-
nefndur heildargjaldeyris-
jöfnuður, þ.e. allar gengis-
bundnar eignir að frá-
dregnum gengisbundnum
skuldum.
Með breytingum nú er
ætlun viðskiptaráðherra
og ríkisstjórnar að færa
málin til skynsamlegri veg-
ar og bæta stöðu banka
sem þjóna útflutnings-
starfsemi.
Breytingin gerir ráð fyrir
að nettótalan af skuldum
og eignum gagnvart er-
lendri mynt verði talin
fram sem laust fé, en í dag
mega sem sagt bankarnir
taka erlend lán og nota það
í raun og veru sem laust fé.
Sjálfskaparviti?_________
Hver er ástæðan fyrir
þvi, að breytingin er til
baga fyrir Útvegsbanka en
til góða fyrir Landsbanka?
Skýringin virðist sú, að
Landsbankinn hefur þegar
Iánað út hluta af 1G reikn-
ingunum. Bankinn hefur
sem sagt fjármagnað er-
lend lán með þessum hætti,
en Útvegsbankinn ekki.
Eða með öðrum orðum
hefur Útvegsbankinn nýtt
sér möguleika til þess að
útvega sér laust fé með þvi
að taka erlend lán, en
Landsbankinn hefur ekki
gert það i sama mæli. Nái
breytingin fram að ganga,
verður Útvegsbankinn að
Iáta af þessari iðju og þreng-
ist því um laust fé hans, en
síður um laust fé Lands-
bankans því hann hefur
ekki gengið eins langt í að
notfæra sér möguleikana í
núverandi fyurirkomulagi.
Útvegsbanki þarf
lengri adlögun
Ef frumvarpið nær fram
að ganga þýðir það, að Út-
vegsbankinn verður að
draga úr útlánum til að
geta staðið við Iágmarks
lausafjárhlutfall. Bankinn
mun þó líklega leita eftir
því við Seðlabanka að fá
lengri tíma til aðlögunar.
Samkvæmt gildandi regl-
um þarf lausafjárhlutfall
að vera 10%, en gert er ráð
fyrir að koma því niður í
9%, sem þó þýðir ekki
auknar þrengingar því
lausafjárstofninn verður
breikkaður.
Guðmundur Hauksson
bendir á að reglum hafi
verið breytt þrisvar á síð-
asta ári. Hann segir baga-
legt að vera með miklar
sviptingar í þessum efnum,
því bankar þurfi tíma til að
laga starfsemi að breyttum
reglum. Sverrir Hermanns-
son segir hins vegar, að
þegar Seðlabankinn breytti
reglum fyrir áramót, hafi
það verið íþyngjandi fyrir
Landsbankann sér í lagi, en
breytingin nú verði hins
vegar til bata fyrir bank-
ann. Sverrir segir lausafár-
skylduna hafa þyngst um
600 milljónir vegna fyrri
breytinga.
/