Alþýðublaðið - 22.02.1989, Blaðsíða 6
6
Miðvikudagur 22. febrúar 1989
SMÁFRÉTTIR
Spekingahátíð
í Garðsbúð
Samfélagið, félag Þjóðfé-
lagsfræðinga við Háskóla ís-
lands boðar til sinnar árlegu
spekingahátíðar föstudaginn
24. febrúar. Hátíðin er í ár
helguð Jóni forseta Sigurðs-
syni og hefur Samfélagið
fengið nokkra sporgöngu-
menn Jóns til að hafa þar
framsögu. Þeir eru: Einar
Laxness sagnfræðingur, Guð-
mundur Magnússon sagn-
fræðingur, Matthías Jóhann-
essen skáld og ritstjóri og
Ólafur Ragnar Grímsson fjár-
málaráðherra. Að framsöguer-
indunum loknum verða leyfð-
ar fyrirspurnir úr sal og von-
andi skapast líflegar umræð-
ur.
Hátíðin hefst klukkan 20.00
og fer fram í Garðsbúð
Gamla garði við Hringbraut
og eru allir þeir, sem áhuga
kunna að hafa á því að kynn-
ast Jóni Sigurðssyni betur,
boónir velkomnir.
15 ára
afmælis-
tónleikar
Kammersveitar
Reykjavíkur
Siöustu tónleikar „Myrkra
músíkdaga" eru afmælistón-
leikar Kammersveitar Reykja-
víkur sem fagnar sínu fimmt-
anda starfsári. Á þessum
tímamótum þykir við hæfi að
heiðra franska tónskáldið Oli-
vier Messiaen, sem varð átt-
ræður á síðasta ári, með
frumflutningi hér á landi á
einu af hans mestu verkum:
Des Canyons aux Etoiles
(„Frá gljúfrunum til stjarn-
anna“) fyrir píanó og hljóm-
sveit. Einleikarar á tónleikun-
um eru þau Anna Guðný
Guömundsdóttir píanóleikari,
Joseph Ognibene hornleikari,
Eggert Pálsson sem leikurá
klukkuspil og Maarten van
der Valk sem leikur á xylor-
imbu. Stjórnandi á tónleikun-
um er Paul Zukofsky.
Tónleikarnir eru í Lang-
holtskirkju, fimmtudaginn 23.
febrúar og hefjast kl. 20.30.
Nefnd fjallar
um Arnarflugs-
málið
Samgönguráðherra hefur
skipað nefnd vegna viðræðna
við Flugleiðir h.f. og Arnar-
flug h.f. vegna fjárhagsvanda
síðartalda félagsins.
í viðræðnefndinni eiga
sæti HalldórS. Kristjánsson,
skrifstofustjóri, frá sam-
gönguráðuneyti, Þorsteinn
Olafsson, ráðgjafi forsætis-
ráðherra í efnahags- og at-
vinnumálum, frá forsætis-
ráðuneyti, Þórhallur Arason,
skrifstofustjóri, frá fjármála-
ráðuneyti og Stefán Reynir
Kristinsson, viðskiptafræð-
ingur, sem er fulltrúi við-
skiptaráðherra.
Þá hafa verið skipaðir sér-
stakir trúnaðarmenn sam-
gönguráðherra, þeir Hjörtur
Torfason, hæstaréttarlögmað-
urog Ragnar Aðalsteinsson,
hæstaréttarlögmaður, sem
starfa munu með viðræðu -
nefndinni.
Eining tekur
undir ályktun
VMSÍ
Fundur trúnaðarmanna-
ráðs Vlf. Einingar, haldinn á
Akureyri 17. febrúar 1989, tek-
ur mjög eindregið undir þá
skoðun sem fram kemur f
ályktun VMSÍ frá 31. janúar,
og að í komandi kjarasamn-
ingum skuli megináhersla
lögð á eftirtalin þrjú atriði:
1. Trygging fullrar atvinnu.
2. Lífskjarajöfnun.
3. Verðbólgu veröi haldið í
skefjum
Jafnframt er fundinum
Ijóst, að því aðeins er von um
að ná einhverjum verulegum
árangri varðandi þessi atriði,
að verkalýðshreyfingin komi
fram sem ein samstæð heild
I komandi samningum og
styður eindregið hugmyndir
VMSÍ og ASÍ um að svo verði.
Fundurinn skorar því á öll
verkalýðsfélög að vinna ötul-
lega að sem vi'ðtækastri sam-
stööu.
Þá bendir fundurinn á, aö
óðum styttist tíminn þar til
núgildandi samningar renna
út og þvf orðið tímabært að
Ijúka innbyrðis undirbúningi
samningagerðar og hefja al-
vöru viðræður við viðsemj-
_Jil viÖskiptamanna_
banka og sparisjóða
Tilkynning
vegna breyttrar
lánskjaravísitölu
Aö gefnu tilefni tilkynnist hér með,
aö bankar og sparisjóöir munu í
starfsemi sinni, bæöi hvaö varöar
lánskjaravísitölubundin innlán og
útlán, fylgja þeim breytingum sem
ákvarðaðar voru á lánskjaravísitöl-
unni með auglýsingu
Seðlabankans frá 23. janúar 1.989,
enda er það eina lánskjaravísitalan
sem í gildi er.
Af þeirra hálfu veröur því ekki
gerðurfyrirvari við greiöslu um
framhaldsinnheimtu síðar.
Eigendum innheimtuskuldabréfa,
sem verðtryggð eru skv.
lánskjaravísitölu, er sérstaklega
bent á það, að fylgt verður sömu
reglu um bréf þeirra.
Reykjavík, 16. febrúar 1989
Samvinnunefnd banka og sparisjóóa
n 1 2 3 4
5
□ 7
§ 9
10 □ 11
□ 12
13 □ ■
Lárétt: 1 blása, 5 afl, 6 borða, 7
eins, 8 karlmannsnaf n, 10 sam-
stæðir, 11 stjaka, 12 trylltar, 13
krossinn.
Lóörétt: 1 brautum, 2 inn, 3
samstæðir, 4 hrellir, 5 getur, 7
vegurinn, 9 líffæri, 12 pípa.
Lausn á síðustu krossgátu.
Lárétt: 1 læsum, 5 vola, 6 efi, 7
kg, 8 nartar, 10 dð, 11 áru, 12
dimm, 13 mjóna.
Lóðrétt: 1 lofað, 2 ælir, 3 sa, 4
mögrum, 5 vendum, 7 karma, 9
táin, 12 dó.
• Gengið
Gengisskráning nr. 36 — 21. feb. 1(
Kaup Sala
Bandarikjadollar 51.190 51,330
Sterlingspund 89.810 90,056
Kanadadollar 43,080 43,198
Dönsk króna 7,0999 7,1193
Norsk króna 7.6215 7,6424
Sænsk króna 8,0907 8,1129
Finnskt mark 11,9074 11,9400
Franskur franki 8,1106 8,1328
Belgiskur franki 1,3171 1,3207
Svissn. franki 32,4604 32,5491
Holl. gyllini 24,4665 24,5334
Vesturþýskf mark 27,6180 27,6936
itölsk líra 0,03772 0,03782
Austurr. sch. 3,9271 3,9379
Portúg. escudo 0,3368 0,3377
Spánskur peseti 0,4431 0,4443
Japanskt yen 0,40192 0,40302
írskt pund 73,639 73,841
SDR 67,4096 67,5939
Evrópumynt 57,5657 57,7232
endur, bæði vinnuveitendur
og fulltrúa rikisvaldsins. Af-
leggja verður þann ósið, að
nýir samningar séu ekki gerð-
ir fyrr en löngu eftir að eldri
samningar eru fallnir úr gildi.
RAÐAUGLÝSINGAR
ÚTBOÐ
S.V.R. OG PÓSTUR OG SÍMI
Póst- og símamálastofnunin og Borgarsjóður
vegna Strætisvagna Reykjavíkur, óska eftir til-
jboðum í frágang á skiptistöð og pósthúsi að
iÞönglabakka 4, í Reykjavík.
1— Stærð hússins:
— Byggingarstig nú:
— Skilafrestur verks:
7.540 m3.
Húsið er tilbúið undir
tréverk og frágengið að
utan.
30. júní og 20. ágúst
1989.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu okkar
gegn 10.000,- kr. skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á Verkfræðistof u Stefáns Ól-
afssonar hf., Borgartúni 20, Reykjavík, fimmtu-
daginn 9. mars 1989 kl. 11.00.
VERKFRÆÐISTOFA
STEFÁNS ÓIAFSSONAR HF.
FHV
BORGARTUNI 20 105 REYKJAVlK SlMI 29940 & 29941
STEFNULJÓS skal jafna gefa
í tæka tíð.
Útboð - gatnagerð
Hafnarfjarðarbær leitar tilboða í gerð gatna
og lagna f Setbergi. Helstu magntölur eru:
Uppúrtekt 4000 rm, fylling 7800 rm, holræsa-
lögn D=200 mm 680 Im, holræsalögn D=300
mm 425 Im.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu bæjar-
verkfræðings, Strandgötu 6, gegn 10.000
kr. skilatryggingu. Tilboð verða opnuð á
sama stað fimmtudaginn 23. febrúar kl.
11.00.
Bæjarverkfræðingur.
Alþýðuflokksfélag
Akureyrar
Heldur aðalfund sinn fimmtudaginn 2. mars að
Strandgötu 9 kl. 20.20.
Fundarefni.
1. Inntaka nýrra félaga.
2. Venjuleg aðalfundarstörf.
3. Önnur mál.
Stjórnin.
§Alþýðuflokkurinn
í Vestmannaeyjum
Fundur verður haldinn iaugardaginn 25. febrúar
kl. 12.00 að hádegi í Skútanum, uppi.
Fundarefni:
1. Bæjarmálefni
2. Fjárhagsáætlun
3. Önnur mál
Fjölmennum.
Stjórnin
Kratakaffi
Munið kratakaffið miðviku-
daginn 22. feb. kl. 20. 30 í fé-
lagsmiðstöð jafnaðarmanna
að Hverfisgötu 8-10.
Gestur fundarins verður
Bjarni P. Magnússon borgar-
fulltrúi Alþýðuflokksins.