Alþýðublaðið - 31.03.1989, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 31.03.1989, Blaðsíða 1
Opinberum starfsmönnum neitað um laun LÖGLEYSA SEGIR STJÓRN RHMR Samtökin krefjast venjulegrar /aunagreiðslu. Hóta málarekstri að öðrum kosti. BHMR telur þá ákvörð- |un fjárniálaráðherra að greiða opinberum starfs- mönnum sem hafa boðað verkfall ekki umsamin laun fyrir apríl, vera lög- brot. Stjórn félagsins krefst þess að allir félags- menn sem ætla í verkfall fái greidd full laun um mánaðamót. Að öðrum kosti muni félagið sækja rétt sinn fyrir dómstólum. Laganefnd BHMR komst að þeirri niðurstöðu að fjármálaráðherra væri ekki stætt á öðru en að greiða full laun. Árið 1984 var launa- svipting opinberra starfs- manna dæmd lögmæt sem frávik frá þeirri megin- skyldu ríkisins að greiða full mánaðarlaun fyrir- fram. Að mati BHMR stenst slíkt ekki lengur þar sem lögum hefur verið breytt þannig að launa- sviptingin er ólögmæt. Greinin sem dómurinn byggðist á 1984 er 14. gr. laga nr. 29/1976 um kjara- samninga BSRB en hún segir: „Nú rennur kjara- samningur út vegna upp- sagnar og skal þó eftir hon- um farið uns nýr kjarasm- aningur hefur verið gerður eða vinnustöðvun hefst.“ Dómurinn byggði síðan á því að „yfirgnæfandi lík- ur“ væru á því að vinnu- stöðvun myndi hefjast og því næði greiðsluskylda ríkisins ekki lengur en að vinnustöðvun. Árið 1986 var hinsvegar þessum lögum breytt og tóku þá gildi ný lög unt kjarasamninga opinberra starfsmanna, lög nr. 94/1986 og 12. grein þeirra segir: „Nú rennur kjara- samningur út vegna upp- sagnar og skal þó eftir hon- um farið uns nýr kjara- samningur hefur verið gerður.,, Felld hefur verið burtu hlutinn þar sem seg- ir: ...eða vinnustöðvun hefst.“ Það er vegna þessa brottfalls sem laganefnd BHMR telur að fjármála- ráðherra sé ekki stætt á öðru en að greiða laun samkvæmt venju við þessi mánaðamót, en hann ætlar sér einungis að greiða tii 6. april, þ.e. þangað til vinnu- stöðvun hefst. Rök ráð- herra fyrir þessari ákvörð- un eru m.a. þau að vitna til dómsins frá 1984, að venja sé á almennum vinnu- markaði að greiða ekki laun fyrirfram þegar verk- fall er yfirvofandi og að fulltrúar BHMR hafi ekki hreyft mótmælum þegar hann bar þessa hugmynd fram. Þessu mótmælti stjórn BHMR, og taldi þessa hugmynd ráðherra hafa verið setta frant sem hótun á þeim fundi sem hún kom fram. Að auki benti stjórn BHMR á að ekki væri venja á hinum al- menna vinnumarkaði að greiða laun fyrirfram og vitnaði tilskyldu ríkisins i þeim elnum. BHMRtel- ur ekki að það séu „yfir- gnæfandi !íkur“ á að til vinnustöðvunar komi og bentu á það á blaðamanna- fundi í gær að slíkt túlkun gæti ekki skilist öðruvísi en sem vantraust fjármála- ráðherra á að samningar næðust fyrir 6. apríl. 40 ár í NATO: Nafnakallið 1949 rifjað upp Deila BHMR og ríkisins Slitnað upp úr samningaviöræöum? Hyldýpi aðskilur viðrœðuaðila Samtök herstöðvaand- stæðinga stóðu í gær fyrir sviðsetningu að Austurvelli þegar þess var minnst, að 40 ár voru liðin frá því að Al- þingi samþykkti inngöngu Islands í Atlantshafsbanda- lagið. Nánar tiltekið fólst sviðssetningin í því að lcikar- ar rifjuðu upp gang mála við atkvæðagreiðsluna þar sem nafnakall fór fram. Það kom í hlut Erlings Gíslasonar að fara með hlut- verk Jóns Pálmasonar frá Akri, sem þennan viðburðar- ríka dag var forseti Samein- aðs Alþingis. Aðrir leikarar í gær voru Sigurður Karlsson, Séra Olafur Skúlason hlaut 56% greiddra atkvæða í biskupskjöri, en talning fór fram í gærmorgun. Hann er því rétt kjörinn biskup og tekur við embættinu á Prestastefnu í júní þegar herra Pétur Sigurgeirsson lætur af embætti. Baldvin Halldórsson og Kjartan Bjargmundsson. Nafnakallinu lauk þannig að 37 þingmenn sögðu já, 13 sögðu nei en 2 sátu hjá og þar með var inngangan í Atlants- hafsbandalagið samþykkt. Mikill mannfjöldi safnaðist fyrir utan þinghúsið fyrir 40 árum og urðu róstur allmikl- ar Jón Pálmason sá sig til- neyddan að banna þing- mönnum að fara út fyrr en lögreglustjóri leyfði, enda var farið að brjóta rúður þinghússins og beita kylfum og táragasi. Öllu friðsamara var við sviðsetninguna í gær. A-mynd/E.Ól. AIls voru 161 á kjörskrá. Atkvæði greiddu 159, en þrír seðlar voru auðir. Fjórir höfðu lýst yfir að þeir gæfu kost á sér. Séra Ólafur hlaut 89 atkvæði, séra Heimir Steinsson hlaut 31, séra Sig- urður Sigurðarson hlaut 20 og séra Jón Bjarman hlaut 11 Fyrirhugaður samninga- fundur BHMR og rikisins i gær var afboðaður. Að sögn forsvarsmanna BHMR, sáu þeir engan tilgang í að mæta á fundinn eftir að hafa fyrr um morguninn átt samtal við samninganefnd ríkisins, þar sem hún gerði þeim grein fyr- ir því viðhorfi sínu að fund- urinn væri tilgangslaus, ef BHMR féllist ekki á að ræða það tilboð sem ríkið hcfur sett fram, skammtímasamn- ing með 1-2.000 kr. launa- hækkun. „Við höfum ekkert að ræða á þeim nótum“, sagði Páll Halldórsson, for- maður BHMR, á blaða- mannafundi sem félagið boðaði til í gær. Hvorki hefur gengið né rekið i samningaviðræðum milli BHMR og ríkisins til þessa. Gríðarleg gjá er á milli samningsaðila, ríkið vill greiða 1- 2.000 kr. strax og atkvæði. Fjórir aðrir fengu atkvæði í kosningunni. Séra Árni Bergur Sigurbjörnsson fékk 2 atkvæði, og eitt atkvæði fengu séra Sigurður Guð- mundsson, séra Þórhallur Höskuldsson og séra Einar Sigurbjörnsson. miða við samningstíma, BHMR hinsvegar, vill að samningstíminn miðist við innihald þess samnings sem næst, að samningstiminn verði niðurstaða en ekki gef- in í upphafi. Að auki eru kröfur BHMR miklar og „Kröfur BHMR eru fyrst og fremst svo óskýrar að ekk- ert hefur verið hægt að fóta sig á þeim, þess vegna hafa viðræðurnar verið ákaflega ómarkvissar það sem af er“, sagði Indriði H. Þorláksson, formaður samninganefndar ríkisins í samtali við Alþýðu- blaðið í gær. „Jafnvel þó við hefðum bara sagt já við þeim öllum vissum hvorki þeir né við um hvað væri að ræða.“ Indriði sagðist ekki skilja þá túlkun BHMR að þeim hefðu verið sett skilyrði fyrir fundinn sem afboðaður var í gær. Samninganefnd ríkisins liti svo á að BHMR hefði með afboðun neitað að ræða tilboð fjármálaráðherra. Samninganefnd ríkisins hefði ekki umboð til að ræða málin á öðrum grundvelli. Hann sagði jafnframt að BHMR hefði ekki hlustað á orð af því sem við samtökin Ijóst að ríkið mun alls ekki ganga að þeim. BHMR lítur ekki svo á að samningaviðræðum hafi ver- ið slitið formlega og félagið hefur ekki óskað eftir því við Sáttasemjara ríkisins að hann grípi inn í deiluna. Að hefði verið sagt. Þegar rætt væri um þjóðarframleiðslu og hvað væri til skiptanna segði samninganefnd félags- ins einfaldlega að það kæmi þeim ekki við, þeir væru hér til að semja um launahækk- un. Indriði sagði ennfremur að varla væri hægt að tala um að slitnað hefði upp úr viðræðunum þar sem þær Ríkisstjórnin hefur ákveð- ið að koma í veg fyrir 5-15% hækkun landbúnaðarvöru um þessi mánaðamót með því að framlengja um 1-2 rnánuði sérstakar niður- greiðslur á þessum vörum. Akvörðun þessi er tekin í beinum tengsium við kjara- viðræðurnar. öllu óbreyttu virðist það samt vera næsta skref því fyr- irsjáanlegt virðist að samn- ingaaðilar ná ekki saman. Verkfall 12 aðildarfélaga BHMR á að hefjast þann 6. apríl og fátt virðist geta kom- ið í veg fyrir að það taki gildi. hefðu varla verið komnar í gang, þrátt fyrir marga fundi. Engin viðræðugrund- völlur hefði fundist. Hann sagði að ekki enn hefði verið rætt af hálfu ríkisins að vísa málinu til sáttasemjara. Að- spurður um framhaldið og það hvort kæmi til verkfalla sagði Indriði: „Ég held að það sé orðið algerlega óum- flýjanlegt.“ Áætlað er að þessi ákvörð- un leiði til 70-80 milljóna króna útgjaldaauka tíkis- sjóðs á mánuði. Verður þetta fé tekið af niðurgreiðslufé ársins og því kann síðar að koma til þess að Alþingi verði að santþykkja sérstak- lega auknar fjárveitingar til niðurgreiðslna. Biskupskosningar W Sr. Olafur kosinn í fyrstu umferð Indriði H. Þorláksson Óskýrar kröfur hamla viðræðum Búvörur hækka ekki

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.