Alþýðublaðið - 31.03.1989, Síða 7
Föstudagur 31. mars 1989
7
UTLOND
Ig er þó heiðarlegur
Alan Parker, sem er breskur, hefur gert myndir eins og
„Bugsy Malone“, Midnight Express“, „Fame“, ,,The Wall“,
,,Birdy“ og „Angel Heart“. Honum líkar vel að vera um-
deildur vegna verka sinna.
„Mér leiðist það, að hlutirnir
séu í of snyrtilegum umbúðum, ég
viðurkenni að stundum geng ég of
langt og ég veit að ég hefi orð fyrir
að vera erfiður og viðurkenni að
ég er það og þó... ég tel kvik-
myndaleikstjóra eiga að hafa fullt
frelsi til að vera skapandi.“
Parker segir blaðamanni Ar-
beiderbladet, að sér sé bölvanlega
við blaðamannafundi, segir þá til-
heyra pólitíkusum en ekki kvik-
myndagerðarmönnum.
Skáldskapur________________
Þessi nýja kvikmynd Parkers er
byggð á morðum þriggja ungra
manna í smábænum Philadelphia
í Mississippi í júní 1964, en þeir
voru báráttumenn fyrir mannrétt-
indum. Alan Parker segir söguna
frá sjónarhóli FBI-mannanna
tveggja, sem þeir leika Gene
Hackman og Willem Dafoe.
Myndin er umdeild vegna þess, að
menn segja að Parker geri FBI-
menn J. Edgar Hoover að hetjum,
en svertingjana að óttaslegnum
fórnarlömbum og menn segja
ennfremur að myndin sé söguföls-
un. .
,,Ég hefi margsagt að kvik-
myndin sé skáldskapur, kvik-
myndir eru alltaf blanda af stað-
reyndum og skáldskap og ég segi
söguna á minn hátt og svo geta
menn rifist eins og þeir vilja,“
segir Alan Parker. Parker býr nú í
„Við þá sem segja að
of mikið ofbeldi sé í
kvikmyndum minum
segi ég að ofbeldið i
þeim sé ekki ofbeldis-
ins vegna, heldur sé
það þverskurður af
heimi nútímans."
,
Los Angeles ásamt fjölskyldu
sinni.
Spurningunni um hvar hann
hafi verið sumarið 1964, þegar
Mississippi Iogaði, svarar hann á
þessa leið: „Eg var i London og
var i minni fyrstu atvinnu, sleikti
sem sé frímerki hjá auglýsinga-
stofu. Ég var pólitískt meðvitaður
eins og unga fólkið var á þeim
tíma, en ég var ekki á kafi í neinni
baráttu. Aður en ég hófst handa
við gerð myndarinnar varð ég að
lesa mig vandlega til um þennan-
atburð._________________________
Kvikmyndagerðar-
maðurinn Alan Par-
ker undrast að kvik-
mynd hans „Missis-
sippi Burning“ skuli
hafa verið útnefnd
til 7 Óskarsverðlauna,
segist hafa hald-
ið að efni hennar
vœri of umdeilt.
Reiður ungur maður____________
Kvikmyndaferill Parkers hófst
með gerð auglýsingamynda fyrir
sjónvarp, en hafði gert um 500
slíkar áður en hann gerði fyrstu
leiknu kvikmyndina. Hann er
ættaður úr verkamannahverfi í
nofðurhluta London og var reiður
ungur maður.
. „Ég hefi fengið mikla útrás fyr-
ir reiðina á hvíta tjaldinu, er satt
að segja stundum hissa þegar ég
tek eftir því sjálfur. Hitt er annað
mál, að langt er liðið síðan ég var
fátækur svo ég ætti kannski að
skammast mín og þegja eða hvað?
Það er ntiklu erfiðara að gera
alvarlegar kvikmyndir fyrir stór-
an áhorfendahóp en léttar per-
sónulegar kvikmyndir. Mér finnst
sjálfum persónulega kvikmyndin
eiga að ná til fjöldans,“ segir
Alan Parker að lokum. Hann seg-
ir næstu kvikmynd sína verða ást-
arsögu. Hann segir, að sér hafi
verið boðið að gera myndina
„Rain Man“, en hann hafi sagt nei
takk, „Dustin Hoffman var ekki
kominn inn í myndina þá, ef svo
hefði verið hefði ég sagt: Já
takk... takk takk...
(Arbeiderbladet)
INGIBJÖRG
ÁRNAÐÓTTIR
SJÓNVARP
Stöð 2 kl. 01.15
ANASTASIA****
Bandarísk kvikmynd, gerð 1956,
leikstjóri Anatole Litvak, aðalhlut-
verk Ingrid Bergman, Yul Brynner,
Helen Hayes, Akim Tamiroff.
Margtuggin saga af Anastasiu sem
á að vera dóttir síðasta rússakeis-
ara. Eftir byltinguna flúðu ætt-
menni keisarans frá Rússlandi.
Keisarinn skildi eftir sig gríðarleg
auðæfi og þau girntust allir innan
ættarinnar. Ekkert barna keisarans
átti að vera á lífi en skyndilega gaf
sig fram stúlka sem sagðist vera
Anastasia, dóttir hans. Þessi mynd
er hinsvegar stórbrotin, enda ein
stórbrotnasta leikkona tuttugustu
aldarinnar í aðalhlutverki, Ingrid
Bergman. Fólki er sérstaklega bent
á atriði þar sem Helen Hayes, sem
leikur hertogaynju, frænku keisar-
ans, stendur andspænis Bergman
og þarf að ákveða hvort stúlkan er
ættingi hennar eða ekki. Mögnuð
sena.
Ríkissjónvarpið kl. 22.30
TÝNDA FLUG-
VÉLIN****
Áströlsk kvikmynd frá 1987, leik-
stjóri Chris Noonan, aðalhlutverk
Jack Thompson, Helen O’Connor,
Norman Kaye, Richard Roxenburg.
Segir frá atburði sem átti sér stað
árið 1957 í Ástralíu. Flugvél ferst og
allir farþegarnir eru taldir af þegar
flugvélin loks finnst eftir langa leit.
Maður nokkur leggur þó ekki árar
í bát og heldur einn síns Iiðs út i
auðnina, sannfærður um að meira
sé að finna en fundist hefur. Mynd-
in þykir afar hrífandi, auðn Ástra-
líu leikur stórt hlutverk í kvik-
myndatökunni, sem og barátta
mannsins við höfuðskepnurnar.
Snjallir bíómenn Ástralar.
Stöð 2 kl. 21.50
ÚTLAGABLÚS **%
Bandarísk kvikmynd, gerð 1977,
leikstjóri Richard T. Heffron, aðal-
hlutverk Peter Fonda, Susan Saint
James, John Crawford, James
Callahan.
Segir frá tukthúslimi sem á þá ósk
heitasta að verða sveitasöngvari og
eyðir tíma sínum innan veggja
fangelsins í að æfa sig. Þekktur
sveitasöngvari heimsækir fangelsið
og hlustar á lag eftir tukthúsliminn
og kemur því á toppinn, en undir
eigin nafni. Eins og gefur að skilja
er tukthúslimurinn ekki ánægður
með þessa þróun mála og vill sitt
þegar hann kemur út úr fangelsinu.
Hann reynir að ná sínu fram með
aðstoð stúlku sem hann kynnist.
Þetta er mjög þokkaleg mynd, þyk-
ir bráðfyndin á köflum, en hleypur
stundum út undan sér og fer í vit-
leysu.
STÖD2
15.45 Santa Bar- bara. - 16.30 i bliðu og striðu (Made for Each Other).
1800 18.00 Gosi (14). Teiknimynd. 18.25 Kátir krakkar (6). Kanadískur myndaflokkur. 18.50 Táknmáls- fréttir. 18.55 Austurbæ- ingar. Breskur myndaflokkur i létt- um dúr. 18.25 Pepsipopp.
1900 19.25 Leöurblöku- maðurinn (Batman). 19.54 Ævintýri Tinna. 20.00 Fréttir og veður. 20.35 Barnamál. I þessum þætti verð- ur fjallað um ný- liðna barna- og unglingaviku. Um- sjón Sjón. 21.05 Þingsjá. 21.30 Derrick. 22.30 Týnda flugvél- in (The Riddle of the Stinson). Sjá næstu slðu. 19.19 19.19. 20.30 Klassapiur. Gamanmyndafiokk- ur. 21.05 Ohara. Spennumyndaflokk- ur- 21.50 Útlagablús (Outlaw Blues). Tugthúsllmurlnn Bobþy ver tlma sin- um innan fangelsis- múranna við að læra að spila á gitar og semja sveitatón- llst.
2300 00.20 Útvarpsfréttir ■ dagskrárlok. 23.30 Blóðug svið- setning (Theatre of Biood). Hrollvekja með gamansömum undirtón. 01.15 Anastasia. Rakin er saga Ana- stastu, sem talin var vera eftirlifandi dóttir Rússlands- keisara. .