Alþýðublaðið - 31.03.1989, Síða 8
Föstudagur 31. mars 1989
Keflavík
40 ára L apríl
Ráðherrar
fara fyrir
hópferð
Keflavík á 40 ára afmæli
þann 1. apríl, en þann daj>
eru lidin 40 ár frá því ad hær-
inn öðlaðist kaupstaöarrétt-
indi. Af þessu tilefni verda
hátiöarhöld i bænum á laug-
ardaj>. Alþýöufl(ikksfélaj>ið i
Re.vkjavík efnir til hópferðar
til Keflavikur til að samgleðj-
ast Alþýðuflokksmönnum
syðra, cn Keflavík er eini
bærinn á landinu þarsem Al-
þýðuflokkurinn liefur lirein-
an meirihluta.
Það verða ráðherrarnir
Jón Sigurðsson og Jón Bald-
vin Hannibalsson sem munu
leiða hóp Alþýðuflokks-
manna frá Reykjavík og ná-
grannabyggðum til Keflavík-
ur. Farið verður frá Kjarvals-
stöðum kl. 12.00 á hádegi og
höfð viðkoma á Kópavogs-
hálsi, við biðskýlið í Garða-
bæ og Alþýðuhúsið í Hafn-
arfirði, áður en tekið verður
strikið til Keflavíkur.
Á afmælishátíðinni sjálfri
verður margt til hátíðar-
brigða. Heiðursgestur verður
frú Vigdís Finnbogadóttir,
forseti Islands. Hún mun og
flytja ávarp en það gerir
einnig félagsmálaráðherra,
Jóhanna Sigurðardóttir. Af-
hjúpuð verður stytta af
Stjána Bláa við Hafnargötu
og margt fleira verður til
skemmtunar fyrir Keflvík-
inga og gesti þeirra.
Alþýðuflokksfélagið í
Reykjavík vill hvetja alla fé-
lagsmenn sína til að fjöl-
menna í ferð þessa og gleðj-
ast í hópi samflokksmanna í
Keflavík.
Stöðvarfjörður;
FÓLK FARIÐ AD FLÝJA BÆINN
Nœr he/mingur vinnufærra atvinnulausir.
Sjómenn á Kambaröst hafa ekki fengið laun sín.
Þessi tvö fyrirtæki voru
með í vinnu hjá sér 80-90%
alls mannafla bæjarins.
Sjómönnum á togaran-
um Kambaröst var gefinn
kostur á að veiða áfram og
vinna hefur fengist í HS
einn og einn dag. Mesta
áfall HS varsíðan erÁlfta-
fellið strandaði 28. febrú-
ar.
Urgur er hins vegar í sjó-
mönnunum á Kambaröst
vegna þess að þeir hafa
ekki fengið uppgerða tvo
túra að undanförnu og
ákváðu þeir að halda ekki
til veiða fyrr en séð yrði
hvað kæmi út úr aðal f undi
HS, sem haldinn var í gær-
kvöldi. Alþýðublaðið
hafði samband við Guðjón
Smára Agnarsson fram-
kvæmdastjóra HS fyrir að-
alfundinn, en hann vildi
ekkert tjá sig um málið. Á
Kambaröst eru 15-16 sjó-
menn og nema skuldirnar
við þá að öllum líkindum
um 1,5 milljónum krónaog
stutt í að gera eigi upp enn
einn túrinn, sem var lönd-
un í Englandi 20. mars.
„Sjómennirnir eru að
vonum óhressir, það er
ekki einu sinni talað við
þá“ sagði Anna ívarsdóttir
um mál þetta. Hún sagði
að ekki skipti öllu máli að
þeir hefðu ákveðið að fara
ekki út fyrir aðalfundinn,
þar sem togarinn er með
sóknarkvóta og þarf hvort
eð er að stoppa ákveðna
marga daga. „Nú er beðið
eftir niðurstöðum aðal-
fundarins, því vitaskuld
vilja þeir fá tryggingu fyrir
því að fá laun sín greidd.“
Anna sagði að ástandið í
atvinnumálum bæjarins
væri að vonum slæmt og
fólk farið að leita í vinnu
annars staðar. „Ég veit um
3-4 fjölskyldur sem fluttar
eru úr bænum og margir
einstaklingar hafa farið í
atvinnuleit annars staðar“.
Hafþór Guðmundsson
staðfesti að 3 fjölskyldur
hefðu flutt búslóðir sínar,
en þó ekki selt hús sín
þannig að ekki væri öll von
úti um að fólkið flytti til
baka. „Margir aðrir hafa
leitað annað í vinnu til að
skrimta, að minnsta kosti
10 fyriívinnur. Það sem
mest fer í taugarnar á fólki
hér er hin óþolandi bið eft-
ir því að vita hvað tekur
við. Fólk getur sætt sig við
tímabundið atvinnuleysi
en ekki viðvarandi. Þegar
verst lét má segja að 50%
vinnufærra hafi verið at-
vinnulausir, en það hlutfall
hefur eitthvað lækkað nú
eftir að trillurnar fóru að
fá einhvern afla. Og i raun
er aðeins um eina leið héð-
an af, það er leiðin upp á
við“ sagði Hafþór.
Fiskiðjuver hraðfrystihússins á Stöðvarfirði: 60-70 manns eru á atvinnuleysisskrá og sjómenn hafa ekki fengið laun sin •
gerð upp.
Hið alvarlcga atvinnu-
ástand á Stöðvarfirði í
kjölfar rekstrarstöðvunar
hraðfrystihússins hefur
leitt til þess aö 3-4 fjöl-
skyldur hafa flust úr bæn-
um og á annan tug ein-
staklinga leitað annað í
vinnu um lengri eða
skeinmri tíma. Alls eru ná-
lægt 70 manns á atvinnu-
leysisskrá hjá Verkalýðs-
og sjómannafélaginu að
sögn formannsins, Onnu
ívarsdóttur.
Sem kunnugt er l'ékk
Hraðfrystihús Stöðvar-
fjarðar (HS) greiðslustöðv-
un 22. nóvember síðastlið-
inn og var fastráðnu starfs-
fólki þá sagt upp og tóku
uppsagnirnar gildi í febrú-
ar. Þá hafði einnig stöðvast
rekstur saltfiskverkunar-
innar Færabaks, þar sem
störfuðu nálægt 20manns.
Akranes:
Vinna hafin í Haferninum
Höfðavík landaði yfir 150 tonnum
Vinna hófst að nýju hjá
Haferninum á Akranesi í
gær eftir að togari fyrirtæk-
isins Höfðavík landaði þar
150-160 tonnum af þorski,
karfa og ýsu. Þessi afli skap-
ar vinnu fyrir liðlega 40
manns í 5-6 daga, en þegar
best lét störfuðu um 80
VEÐRIÐ
ÍDAG
í dag litur út fyrir
all hvassa sunnan-
átt með rigningu um
allt austanvert land-
ið, en vestan til verð-
ur vindurinn hægari
að suðvestan og
skúrir, siðar slyddu-
él. Hlýnandi veður
frameftir degi en fer
að kólna vestan til
siðdegis. Hiti allt að
10 stigum þar sem
hlýjast verður.
manns hjá Haferninum.
Haförninn hætti vinnslu
um áramótin vegna rekstrar-
örðugleika, en nýlega var
gengið frá 100 milljón króna
hlutafjáraukningu frá meðal
annarra Atvinnuþróunar-
sjóði Akraness og Kirkju-
sandi. Einnig hefur verið sam-
ið um fjárhagsskuldbinding-
ar og von er á Iáni úr At-
vinnutryggingasjóði. „Við
förum rólega af stað og þetta
hefur gengið eðlilega fyrir
sig. Ég get engu lofað um það
hvort eða hvenær við verðum
komnir í fyrra horf með
vinnu, það fer auðvitað eftir
afla og öðru. En við erum
bjartsýnir, það þýðir ekkert
annað“ sagði Guðmundur
Pálmason forstjóri Hafarn-
arins í samtali við Alþýðu-
blaðið í gær. Höfðavík fer í
annan túr í kvöld.
ísafiörður:
Vestfirðingar á
móti bílbeltunum?
Vestfirðingar viröast vera
landsmanna tregastir til að
framfylgja lögum um notk-
un bílbelta í umferðinni. í
sérstakri könnun Umferða-
ráðs á beltanotkun nýverið i
nokkrum kaupstöðum
landsins kom í Ijós að beltin
voru hlutfallslega síst notuð
á ísafiröi, bæði hvað varðar
hitastig
' i borgum
Evrópu
kl. 12
í gær
að islenskum
tima.
ISLAND
Hitastig i nokkrum iandshlutum kl. 12 i dag
ökumenn og farþega í fram-
sæti.
Á landinu öllu virðist
beltanotkun hafa minnkað á
eins árs tímabili úr yfir 90%
í 74-75%. Könnun Umferð-
arráðs náði til 2.725 öku-
mannaog79l farþegaí fram-
sæti. í 92% tilvika voru Ijósin
tendruð í akstrinum. Best var
notkunin mæld hjá vegalög-
reglunni, hjá ökumönnum á
þjóðvegunum eða 97%.
Tregastir til að tendra Ijósin
voru Sauðkræklingar með
87%.
Hjá ökumönnum var
beltanotkunin 74% að með-
altali, þar af 86% hjá Sauð-
kræklingum, en aðeins 62%
hjá ísfirðingum og 66% hjá
Selfyssingum. 75% farþega í
framsæti voru með beltin
spennt, þar af 93% farþega
sem vegalögreglan kannaði
og 86% Keflvíkinga, en hlut-
fallið fór alla leið niður í
42% hjá ísfirðingum, sem
voru áberandi neðstir að
þessu leyti.