Alþýðublaðið - 11.04.1989, Qupperneq 1

Alþýðublaðið - 11.04.1989, Qupperneq 1
AIMMMIB ..-.. : STOFNAÐ 1919 Þriðjudagur 11. apríl 1989 1 1 53. tbl. 70. arg. Jón Sigurðsson viðskiptaráðherra: NÆSTA SKRIjF VAXTA- LÆKKUN HJA RIKINU Bankarnir urðu við tilmœlum um 0,5 % lækkun vaxta á verðtryggðum lánum. Innlánsstofnanir urðu við tilmælum Seðlabanka í gær og tilkynntu 0,5% vaxtalækkun á verðtryggð- um útlánum. Verslunar- bankinn lækkar ve.v i í dag, en aðrir bankar þann 21. apríl. „Að mínu áliti er þetta verulegt skref, ekki síst af því að þessir sömu vextir hafa lækkað um 1,5-2% frá því sem þeir fóru hæst um mitt ár í fyrra, „ sagði Jón Sigurðs- son viðskiptaráðherra við Alþýðublaðið í gær. Hann segir að næsta skref hljóti að verða lækkun vaxta á ríkisskuldabréfum. Fyrir helgi átti banka- málaráðherra fund með stjórn Seðlabankans. Eftir þann fund beindi Seðla- bankinn þeim eindregnu tilmælum til innlánsstofn- ana að þær yrðu við til- mælum um 0,5% lækkun vaxta á verðtryggðum út- lánum. „Fjármálaráðherrann talaði mikið um vaxta- lækkunarlestina, um það leyti sem þessi stjórn var að móta sína vaxtastefnu. Inn í þessu eru ekki síst vextirn- ir hjá ríkinu. Ég held að næsta skref hljóti að vera að ná þeim niður.“ Við- skiptaráðherra sagði þetta byggjast á því að rekstrar- afkoma ríkissjóðs verði viðunandi og samkomulag náist við lífeyrissjóðina. „Ég veit að fjármálaráð- herra er að vinna að því,“ sagði Jón Sigurðsson. Það var þröng á þingi í samkomusal BHMR félaga i Skipholtinu i gær. Menn gerðu sér eitt og annað til dundurs og þreyðu þorrann með þvi að hlusta á sögn og gitarspil milli þess sem samningar og samningamál voru rædd. Deila BHMR og ríkisins MIÐAR HÆGT Deila Flug/eiða og verkalýðsfélaganna Sérstaða milli- landaflugsins viðurkennd Fallið frá málshöfðun vegna verkfallsaðgerðanna í fyrra. Dýralœknar í verkfall Ingvar Carlsson í opinbera heimsókn í maí Ingvar Carlsson forsætis- ráðherra Svíþjóðar og kona hans hafa þegið boð Stein- gríms Hermannssonar for- sætisráðherra um að koma í opinbera heimsókn til ís- lands 16.-18. maí næstkom- andi. Már Guðmundsson Lánskjara- vísitalan er ekki samningsatriði „Nýja vísitalan er ails ekki samningsatriði í samningum ríkisins og lífeyrissjóðanna um vexti á þeim skuldabréf- um sem sjóðirnir kaupa af húsnæðisstofnun", segir Már Guðmundsson, efnahags- ráðunautur fjármálaráð- herra. Þetta kom fram í spjalli sem Alþýðublaðið átti við Má í gær. Alþýðublaðið birti frétt þess efnis á laugardaginn að ríkið leitaði sátta við lífeyris- sjóðina með því að gengis- tryggja hluta þeirra skulda- bréfa sem sjóðirnir keyptu og þar með myndi ríkið bakka með nýju lánskjaravísitöl- una. Már Guðmundsson sagði að á engan hátt væri hægt að túlka þetta svo. Nýja lánskjaravísitalan væri alls ekki samningsatriði- enda væri það ekki í verkahring þeirra sem semja við lifeyris- sjóðina að möndla með vísi- tölur. Þær byggðu tilvist sína á allt öðrum grunni. Sem kunnugt er brugðust lífeyrissjóðirnir ókvæða við þegar ríkisstjórnin ákvað breytingar á lánskjaravísitöl- unni. Síðan hafa samningar um vexti af þeim skuldabréf- um sem lífeyrissjóðirnir kaupa af Húsnæðisstofnun, gengið treglega. Ríkið bauð lífeyrissjóðunum að gengis- tryggja hluta lánanna. BHMR og samninganefnd rikisins mættust á fundi hjá sáttasemjara í gær kl. 16.00. Eftir tvo tíma var fundi slitið og ákveðið í framhaldi að vinnufundur samninga- nefnda yrði haldinn í gær- kvöldi. Þar átti að ræða óformlega það sem fram hef- ur komið á undanförnum dögum'en um helgina rædd- ust deiluaðilar við án skuld- bindinga. Meðal annars var rætt í gær kvöld ýmis atriði samn- ings til langs tíma en þó ekki laun til langs tíma. Ljóst er að ríkið sættir sig ekki við launatölur þær sem BHMR hefur sett fram í sínum hug- myndum. Á miðnætti í gær bættist enn eitt félag innan BHMR í hóp þeirra sem eru í verkfalli. Það er félag dýralækna í rík- isþjónustu. Verkfall þeirra hefur m.a. þau áhrif að öll sláturhús stöðvast þar sem þau eru undir eftirliti héraðs- dýralækna. Það eru því tólf félög innan BHMR sem nú „Það er hvorki rétt né tímabært að tala um breyt- ingar á gengisstefnunni í þessari stöðu,“ sagði Jón Sig- urðsson viðskipta og iðnað- arráðherra við Alþýðublaðið eru í verkfalli og yfir stendur atkvæðagreiðsla í því þrett- ánda, Félagi háskólakenn- ara. í gær. Á Ajþingi í gær lýsti Hall- dór Ásgrímsson sjávarút- vegsráðherra hins vegar yfir að gengissig væri óhjá- kvæmilegt á þessu ári. Samkomulag iiefur tekist milli ASÍ og fimm aðildarfé- laga þess annars vegar og VSI og Flugleiða liins vegar um að vinnustöðvanir sem koma niður á millilandaflugi Flug- leiða komi ekki til fram- kvæinda fyrr en í fyrsta lagi fjórum sólarhringum eftir að almennt verkfall viðkom- andi stéttarfélaga hefst. Á móti falla Flugleiöir frá málshöfðun gegn Verslunar- mannafélagi Suðurnesja vegna framkvæmdar verk- falls félagsins í Leifsstöð i fyrra. „Það finnst mér fráleit túlkun. Það hefur verið gert samkomulag og slíkt getur aldrei þýtt fullnaðarsigur fyrir neinn málsaðila," sagði Ásmundur Stefánsson for- seti ASÍ í gær, þegar Alþýðu- blaðið spurði hann hvort ekki mætti túlka þessa niður- stöðu sem fullkominn sigur fyrir vinnuveitendur. Ás- mundur sagði að það hefði alla tíð verið sjónarmið verkalýðsfélaganna að semja um framkvæmd verkfalls við þessar viðkvæmu aðstæður. í sameiginlegri yfirlýsingu frá ASÍ og VSl segir að sam- komulagið sé gert i ljósi þeirrar almennu afstöðu að- ila þess að leysa beri ágrein- ingsmál með samingum. Jafnframt undirstriki það sérstöðu millilandaflugs og þeirra einstaklinga sem verði fyrir barðinu á truflunum í millilandaflugi. Samkomulagið þýðir að ýtt er til hliðar ágreiningi sem verið hefur í sambúð Flug- leið og viðkomandi verka- lýðsfélaga, sent brugðust m.a. þannig við að hafna samnigum við fyrirtækið um orlofsferðir. Verkalýðsfélögin sem standa að samningnum eru Verslunarmannafélag Suð- urnesja, Verslunarmannafé- lag Reykjavíkur, Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavíkur og nágrennis, Verkamanna- félagið Hlíf og Dagsbrún. Ólafur Ragnar gestur Frjáls- lyndra jafnaðar- manna Ólafur Ragnar Grímsson fjármálaráðherra verður gestur á mánaðarlegum fundi Félags frjálslyndra jafnaðarmanna í kvöld. Fundurinn verður í Simonar- sal, Naustinu, og hefst kl. 20.30. Fundir Félags frjálslyndra jafnaðarmanna eru öllum opnir og fara þar venjulega fram hispurslausar umræður um þjóðmálin og stjórn- málaástandið. Jón Sigurðsson viðskiptaráðherra: Ótímabært tal um gengisfellingu

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.