Alþýðublaðið - 11.04.1989, Blaðsíða 7
Þriðjudagur 11. apríl 1989
7
ÚTLÖND
Hinn svarti sauður póffans
Rétttrúaðir kaþólikkar þurfa ekki einu sinni að vita
hverjar skoðanir Gaillots eru til að sjá hverslags voðamað-
ur hann er. Hann, sem hefur leyft tímaritinu ,,Lui“ að birta
viðtal við sig, en það er nokkurskonar franskt ,,Playboy“.
Ekki nóg með það: Hann hefur ritað grein i „Gai Pied“, sem
er vikublað gefið út af hommum.
Ekki er allt búið enn. Gaillot
hefur komið hinni umdeildu kvik-
mynd Martins Scorcese „Síðasta
freisting Krists“ til varnar.Hann
er talsmaður þess að kvæntir
menn geti gerst prestar. Hann er
stuðningsmaður getnaðarvarna,
hefur komið hommum til varnar
og gagnrýnt harðlega vopnasölu
Frakka til annarra landa.
Franskir sjónvarpsáhorfendur
fengu tækifæri til að berja þenn-
an „hættulega“ mann augum ný-
verið þegar hann tók þátt í um-
ræðuþætti í sjónvarpi. Hann er
smávaxinn, grannur maður, hálf-
sköllóttur og um fimmtugt. Hann
talar róiega en ákveðið með góð-
látlegi bros á vör.
Gailliot er ekki stórorður, en
segir, að menn vilji takmarka mál-
frelsi sitt... „helst loka á mér
munninum". Hann heldur áfram:
„ Á sama tíma og talað er fjálg-
lega um mannréttindi og frjálsa
fjölmiðlun skýtur skökku við að
innan kirkjunnar sé ekki frjálst
að tjá skoðanir sínar, ekki einu
sinni týrir biskupl1
Kaþólska kirkjan í Frakklandi
fordæmdi notkun smokka í þar-
áttunni gegn alnæmi. Þessu svar-
aði Gaillot á þennan veg: „í þessu
tilfelli eru getnaðarvarnir liður í
að bjarga mannslífum. Að for-
dæma notkun þeirra er það sama
og að koma ckki manneskju í lífs-
hættu til hjálpar."
Kvikmynd Scorcese „Síðasta
freisting Krists“ var bannfærð af
yfirstjórn kirkjunnar með þeim
afleiðingum að öfgatrúarmenn
kveiktu i kvikmyndahúsi i París,
sem leyfði sér að sýna myndina.
Um þetta segir Gaillot: „Hneyksl-
ið var ekki kvikmyndin, heldur
ofbeldið og þröngsýnin sem
komu í ljós þegar farið var að
sýna hana. Hvílíkt ofstæki, að
ætla að banna mönnum að fara í
kvikmyndahús!“
í grein sinni í vikublaðinu „Gai
Pied“ segist Gaillot leggja til að
hommar fái skilyrðislausa inn-
göngu í kaþólsku kirkjuna.
Yfirmaður Gaillots, Decour-
tray kardínáli, hefur bannfært
hina untdeildu bók Rushdies
„Söngva Satans" eins og hann
gerði i sambandi við kvikmynd-
ina. í báðum tilfellum sagði hann
það vera vegna bess að hinum trú-
uðu væri misboðið.
Gaillot segist ekki vera þessu
sammála. „Múhameð er eign
mannkynssögunnar ... hann er
ekki frekar eign múhameðstrúar-
ntanna en Kristur er eign krist-
inna“.
Eftir langar viðræður þeirra
Gaillots og Decourttays kardinála
nýverið hafa þeir skuldbundið sig
til að lægja öldurnar og reyna að
komast að samkomulagi, sem
báðir aðilar geti sætt sig við.
(Det fri Aktuelt. Stytt.)
Kaþólska kirkjan cet/ast til
þess að biskupar hennar
haldi sig utan við opin-
berar umræður, eða í
mesta lagi láti í Ijós hvers-
dagslegar, óumdeilanlegar
skoðanir. Jacques Gaillot,
biskup í Evreux í Nor-
mandí, hlýðir þessu ekki
og er talinn hinn svarti
sauður kaþólsku kirkj-
unnar.
INGIBJORG
ÁRNADÓTTIR
Gaillot biskup lætur sig ekki,
heldur segir skoðanir sinar um-
búðalaust.
Auglýsing
um uppgjör
eldri skattskulda
— umsóknarfrestur rennur út 15. apríl nk. —
Fjármálaráðuneytið vill minna á, að frestur til
að skila umsóknum um skuldbreytingu eldri
skattskulda einstaklinga, til innheimtumanna
ríkissjóðs eða gjaldheimtna, rennur út 15. apríl
nk. sbr. regluberð nr. 73/1989.
Um er að ræða skuldir vegna álagðs tekju- og
eignarskatts ársins 1987 og fyrri ára, hjá þeim
sem höfðu launatekjurfráöðrum, þ.e. ekki aðrar
tekjuren þærsem um ræðirí 1. mgr. 1. tl. A-liðs
7. gr., 2.-4. tl. A-liðs 7. gr. og C-liðs 7. gr. laga nr.
75/1981, um tekjuskatt og eignarskatt, með síð-
ari breytingum.
* Krossgátan
n 1 2 3 □ 4 '
5 □
6 □ 7
§ 9
10 □ 11
□ 12 V.
13 L □
Lárétt: 1 bál, 5 mjög, 6 skordýr,
7 áþján, 8 tálmi, 10 eins, 11 aft-
ur, 12 spýjan, 13 ástfólgnir.
Lódrétt: 1 styrkir, 2 fuglinn, 3
lærdómstitil, 4 vætan, 5 for-
smán, 7 hlýjar, 9 óþokki, 12
kind.
Lausn á síðustu krossgátu.
Lárétt: 1 stáls, 5 kæra, 6 æla, 7
ha, 8 nafniö, 10 SR, 11 æki, 12
ómar, 13 ansir.
Lóðrétt: 1 sælar, 2 traf, 3 áa, 4
skaðir, 5 kænska, 7 hikar, 9
næmi, 12 ós.
Þeirsem hinsvegarskuldaaf tekjum af atvinnu-
rekstri eða sjálfstæðri starfsemi eigaekki kost
á skuldbreytingu samkvæmt þessum reglum.
Gefinn er kostur á að greiða hina vangoldnu
skatta með verðtryggðu skuldabréfi til þriggja,
fjögurra eða fimm ára.
Nánari upplýsingar um lánskjör, gögn sem
leggja þarf fram með umsókn og umsóknar-
eyðublöð, fást hjá innheimtumönnum ríkis-
sjóös og gjaldheimtum.
Fjármálaráðuneytið 10. apríl 1989.
Gengisskráning nr. 67 — 10. apríl 1989
Bandarikjadollar
Sterlingspund
Kanadadollar
Dðnsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Finnskt mark
Franskur franki
Belgiskur franki
Svissn. franki
Holl. gyllini
Vesturþýskt mark
Itölsk líra
Austurr. sch.
Portúg. escudo
Spánskur peseti
Japanskt yen
írskt pund
SDR
Evrópumynt
Kaup Sala
52,930 53,070
89,690 89,927
44,395 44,512
7,2457 7,2649
7,7564 7,7770
8,2742 8,3720
12,5337 12,5669
8,3499 8,3720
1,3461 1,3497
31,9712 32,0558
24,9906 25,0567
28,1910 28,2656
0,03843 0,03853
4,0054 4,0160
0,3418 0,3427
0,4542 0,4554
0,39899 0,40005
75,216 75,415
68,6333 68,8148
58.6597 58,8148
ff STÖÐ2
15.45 Santa Bar- bara. 16.30 Stjórnmálalif (The Seduction of Joe Tynan).
1800 18.00 Veistu hver Amadou er? 3. þátt- ur. 18.20 Freddi og fé- lagar (6). Teikni- mynd. 18.50 Táknmáls- fréttir. 18.15 Feldur. Teikni- mynd með íslensku tali. 18.40 Elsku Hobo.
1900 i ^ 19.00 Poppkorn — endursýning. 19.25 Libba og Tibba. 19.54 Ævintýri Tinna. 20.009 Fréttir og veður. 20.35 Matarlist. 20.50 Ærslabelgir (The Comedy Cap- ers). Baróninn. Stutt mynd frá tímum þöglu myndanna. 21.05 Umræðuþátt- ur á vegum frétta- stofu sjónvarps. 22.05 Óvænt mála- lok (A Guilty Thing Surprised). 2. þáttur. Bresk sakamála- mynd i þremur þátt- um. 19.19 19:19 20.30 Leiðarinn. 20.45 íþróttir á þriðjudegi. 21.40 Hunter. 22.25 Pyntingar i Tyrklandi (Turkey — Trading With Tort- ure). Óhugnanlegar staðreyndir benda til að pyntingar séu enn stundaðar 1 tyrkneskum fangels- um og i höfuðstöðv- um tyrknesku lög- reglunnar. ( þættin- um veröur rætt við fyrrum fórnarlömb pyntinga og að- standendur þeirra.
2300 23.00 Seinni fréttir og dagskrárlok. 23.05 Draugahúsið (Legend of Hell House). 00.35 Dagskrárlok.