Alþýðublaðið - 11.04.1989, Blaðsíða 8
MMBUBLOIfi
Þriöjudagur 11. april 1989
Reyklaus
dagur á
morgun
12. apríl
Húsnœðisstofnun ríkisins
825 UMSÓKNIR VEGNA
KAUPLEIGUÍBÚÐA ’89
Félagsmálaráðuneytið hefur gefið út reglugerð um tilhögun /ánveitinga.
Á morgun verður reyklaus
dagur, þriðja árið í röð. Að
þessu degi standa Vinnueft-
irlit ríkisins og Tóbaksvarn-
arnefnd. Aðstandendur
reyklausa dagsins vilja að
slíkur dagur verði haldinn ár-
lega í framtiðinni, eins og
gert er víða erlendis.
Samfara reyklausa degin-
um hafa aðstandendur hans
gefið út ýmislegt fræðslu- og
áróðursefni gegn reykingum,
má þar nefna bækling um
óbeinar reykingar og annan
sem inniheldur lög og reglur
um tóbaksvarnir sem í gildi
voru við síðastu áramót. Að
auki nokkrar fróðlegarábend-
ingar éins og t.d. þá'aö sá
sem reykir einn pakka á dag,
hann hefur breytt hálfum
kílómetra af sígarettum í
reyk og ösku, brennt upp
andvirði sólarlandaferðar og
minnkað lífslíkur sínar um 1-
2 mánuði.
Húsnæðisstofnun ríkiss-
ins liafa borist umsóknir
vegna 825 kaupleiguíbiiða
sem óskir eru um að byggja
eða kaupa á árinu 1989. Á
síðastliðnu ári var úthlutað
lánum vegna 250 kaupleigu-
íbúða sem byggðar verða í
sveitarfélögum utan höfuð-
borgarsvæðisins og einnig
voru veitt 46 lán vegna kaup-
leiguíbúða með búseturétti.
Húsnæðisstofnun hefur nú
gefið út reglugerð um kaup-
leiguíbúðirnar, sem geta ver-
ið með tvenns konar hætti:
Félagslegar kaupleigu-
íbúðir verða fjármagnaðar
með lánum úr Byggingar-
sjóði verkamanna og al-
mennar kaupleiguíbúðir
verða fjármagnaðar með
lánum úr Byggingarsjóði.
í reglugerðinni er kveðið á
um það hvaða aðilar geta
staðið að byggingu og rekstri
kaupleiguíbúða. Þeir sem
geta staðið að félagslegu
íbúðunum eru annars vegar
sveitarfélögin og hins vegar
félagasamtök, eða þessir að-
ilar í sameiningu. Þeir sem
geta staðið að almennu íbúð-
unum eru sveitarfélög, fé-
lagasamtök eða fyrirtæki
eða þessir aðilar í samein-
ingu.
Lán til almennra og félags-
legra kaupleiguíbúða nema
að hámrki 85% af þeim
kostnaðargrundvelli sem
húsnæðismálastjórn hefur
samþykkt og liggur til grund-
vallar lánveitingum úr Bygg-
ingarsjóði verkamanna.
Reglugerðin fjallar um
þau sérstöku skilyrði sem fé-
lög og fyritæki þurfa að upp-
fylla til að geta fengið lán
vegna kaupleiguíbúða. Eign-
ar- og afnotaréttur á almenn-
um og félagslegum kaup-
leiguíbúðum getur verið leiga
með kauprétti, leiga með
kaupum á eignarhluta í íbúð
eða kaup á íbúðinni.
Skilyrði fyrir lánveitingum
til fyrirtækja vegna al-
mennra kaupleiguíbúða er
að fyrirtæki sýni fram á að
brýn nauðsyn sé á því að
koma upp íbúðarhúsnæði
vegna starfsemi sinnar. Þá
þurfa fyrirtæki og félög að
sýna fram á að þau hafi fjár-
hagslegt bolmagn til að
greiða lögbundin 15% af
kostnaðarverði íbúða. í því
samoanai er peim gert aö
leggja fram ábyrgðir.
Þau félög eða stofnanir
sem hyggjast kaupa eða
byggja þurfa að fá staðfest-
ingu félagsmálaráðuneytis-
ins. Jafnframt er kveðið á
um leyfilegar hámarksstærð-
ir kaupleiguíbúða sem er 130
fermetrar og þær viðmiðanir
sem gilda um byggingar-
kostnað þeirra. Þá er einnig
fjallað í reglugerðinni um
ákvörðun húsaleigu og út-
hlutunarreglur kaupleigu-
íbúða, sem skylt er fram-
kvæmdaaðila að birta á op-
inberum vettvangi. Ennfrem-
ur má húsaleiga aldrei nema
hærri fjárhæð en svarar sam-
anlögðum tilteknum kostn-
aði af útgjöldum fram-
kvæmdaaðila við kaupleigu-
íbúð.
Menntamálaráðuneytið
M-hátíðir að
hætti Sverris
Svavar Gestsson mennta-
málaráðherra undirbýr
menningarhátíð á Austur-
landi í vor, svokallaða M-há-
tíð líkt og Sverrir Her-
mannsson stóð fyrir sem
menntamálaráðherra. Há-
tíðinni er ætlað að tengjast
því aö hundrað ár eru liðin
frá fæðingu rithöfundanna
Gunnars Gunnarssonar og
Þórbergs Þórðarsonar, sem
báðir voru úr fjórðungnum.
í samtali við Alþýðublaðið
sagði Svavar að M-hátíðirnar
væru ánægjulegur arfur frá
Sverri, en þær yrðu þó ekki
með nákvæmlega sama sniði
og hjá forveranum.
Þrjú ungmenni fengu verðlaun í ritgerðarsamkeppni sem Varðberg og Samtök um vestræna
samvinnu efndu til i tilefni fjörutiu ára afmælis NATO. Davið Björnsson, formaður Varðbergs,
afhenti verðlaunin á ráðstefnu um helgina. A-mynd/G.T.K.
FIH stórtcekt
Kaupir húseignir
Ingvars Helgasonar
Húsnœði bílasölunnar verður miðstöð félags- og tónlistarstarfs FIH.
Félag íslenskra Hljómlist-
armanna, FIH, hefur fest
kaup á eigntim Ingvars
Helgasonar hf., í Rauðageröi
þar sem Ingvar var áður með
bílaumboð og bílasölu. Ekki
hefur fengist upp gefið hvað
FÍH greiddi fyrir húsnæðið.
FÍH mun flytja alla sína
starfsemi í hið nýja húsnæði
félagsins, skrifstofur, tónlist-
arskóla en að auki er meingin
að félagið reki tónleikasal og
hljóðver. Þetta er stærsta
eign sem íslenskir tónlistar-
menn hafa eignast til þessa
og tímamót í sögu félagsins.
Formleg afhending verður á
laugardaginn.
Húsnœðisstofnun ríkisins
50% aukning á lánum
til félagslegra íbúða
Um 50% aukning varð á
lánum til félagslegra íbúða-
bygginga milli áranna 1987
og 1988. Þetta kemur fram í
fréttabréfi frá Húsnæðis-
stofnun ríkisins sem út kom í
mars. Þar kemur einnig fram
að útlán Húsnæðisstofnunar
voru meiri en nokkru sinni
fyrr á síðasta ári, um 10.2%
meiri að raunvirði en árið áð-
ur.
TÖLURNAR ÞÍNAR? ÞAR KOM AÐ ÞVÍ!
|5| (12) (21) (23) w (32)
X Æ ■
Heildarvinningsupphæö var kr. 9.409.150,- Petta eru tölurnar sem upp komu 8. apríl. 1. vinningur var kr. 5.580.626,- 2 voru með fimm tölur réttar og því fær hvor kr. ^ 5s. d 2.79°.313,- r~i r-, m^\\ Bónusvinninaurinn(fiórartölur+bónustalatvarkr.567.760.-skintistáRvinninnshafa ArYj* / / /7 __ _ S og fær hver þeirra kr. 70.970,- / íf' f t /f~ // < Fiórar tölur réttar. kr. 979.264-. skiotast á 208 vinninashafa. kr. 4.708.-á mann. 1HH / L f / A. //,® Þriártölur réttar kr. 2.281.500,-skÍDtast á 6.500 vinninashafa kr. 351.-á mann Ifi^H/ / SXJl/ //Jvi// 'WQjfímSr § Sölustaðirnir eru opnir frá mánudegi til laugardags og loka ekki fyrr en15 • r>r>r-i i i >. i-- - rr>ir-ii S mínutumfyrir útdrátt. SiiTii 685111. UpplýsingasiiTisvan 681511. s
Alls námu útlánin Hús-
næðisstofnunar rúmlega 7.7
milljörðum, þar af voru 5.8
milljarðar lánaðir úr Bygg-
ingarsjóði ríkisins og 1.8
milljarðar úr Byggingarsjóði
verkamanna.
Frá upphafi þessa áratugar
hafa heildarútlán Húsnæðis-
stofnunar næstum þrefaldast
að raunvirði, hafa farið úr
2.6 milljörðum árið 1980 í 7.7
milljarða á síðasta ári.
Annað árið í röð reyndist
stærsti lánaflokkur Bygging-
arsjóðs ríkisins vera lán til
kaupa á eldri íbúðum. Slík
lán námu næstum 50% af
heildarútlánum sjóðsins.
Miðað við fast verðlag er þet-
ta því sem næst sama upp-
hæð og 1987.