Alþýðublaðið - 04.07.1989, Síða 4

Alþýðublaðið - 04.07.1989, Síða 4
SAMEINAÐA SIA 4 NEYTENDAHIAL Þriöjudagur 4. júlí 1989 Þetta eru tölurnar sem upp komu 1. júlí Heildarupphæð vinninga kr. 3.945.753,- 2 höfðu 5 rétta, og fær hver kr. 908.258,-. Bónusvinninginn fengu 4 og fær hver kr. 78.869,-. Fyrir 4 tölur réttar fær hver kr. 4.319,- og fyrir 3 réttar tölur fær hver um sig kr. 351,-. Sölustaðir loka 15 mfnútum fyrír útdrátt í Sjónvarpinu. Sími685111. Upplýsingasímsvari 681511. Lukkulína 99 1002 ALDRAÐIR þurla að ferðast eins og aðrir. Sýnum þeim tillitssemi Innkauyakarfa helgarinnar: Allt að 42% verðmunur inncm sömu verslunar samkvœmt könnun Verðlagsstofnunar Verðlagsstofnun hefur sett sam- an innkaupakörfu, sem ætlað er að sýna neyslu fjögurra manna fjöl- skyldu í þrjá daga á matvörum og nokkrum snyrti- og hreinlætisvör- um. í Ijós kom allt að 42% verð- munur á dýrustu og ódýrustu körf- unni innan sömu verslunar. í matarkörfunni, sem er eins konar helgarkarfa, eru 45 algengar vörur og er magn hverrar vöruteg- undar miðað við þriggja daga neyslu. Verðlagsstofnun kannaði verð á vörunum í körfunni síðustu dagana í maí í 44 matvöruverslunum á höf- uðborgarsvæðinu. Niðurstöðurnar eru birtar í 10. tbl. Verðkönnunar Verðlagsstofnunar á þessu ári. Tilgangurinn var að kanna verð innan sömu verslunar þar sem ann- ars vegar væri tekið lægsta verð á vörunum i körfunni og hins vegar hæsta verðið. í könnuninni var litið fram hjá hugsanlegum gæðamun. Könnunin leiðir i ljós, að mikill verðmunur er á matarkörfunni eftir þvi hvort keyptar eru ódýrustu teg- undir af hverri vöru í ákveðinni verslun eða dýrustu tegundir af sömu vöru í sömu verslun. — Mestur munur á innkaupakörf- unni í sömu verslun var 42%. Karfan með ódýrustu vöruteg- undunum kostaði 5.393 kr., en karfan með dýrustu tegundun- um kostaði 7.681 kr. Verðmun- urinn var 2.288 kr. — Verðið á dýrustu matarkörfunni i þessum 44 verslunum var 18—42% hærra en verðið á ódýr- ustu körfunni í sömu verslun. — Ef miðað er við ítrasta verðmun innan verslunar á helgarkörfunni Ódýrasta Dýrasta Verðmunur innkaupakarfan innkaupakarfan Kr. % Stórm. í austurbæ Reykjav. 5.393 7.681 2.288 42% Stórmarkaður í Hafnarfirði 5.432 7.515 2.083 38% Hverfisverslun í Breiðholti 5.801 8.017 2.216 38% Hverfisverslun í Kópavogi 5.723 7.622 1.899 33% Hverfisv. í vesturbæ Reykjavikur 6.271 7.950 1.679 27% Hverfisverslun í Breiðholti 6.530 8.113 1.583 24% Hverfisverslun á Seltjarnarnesi 6.504 7.665 1.161 18% Ef miðað er við ítrasta verðmun innan verslunar á helgarkörfunni og reiknað með helgarneyslu eins árs (þ.e. 50 helgarkörfur) er munurinn á dýrustu og ódýrustu körfunni 58-114 þúsund krónur. Eftirtaldar 45 vörur eru í helgarkörfunni: MATARKARFA ýsuflök vínarpylsur spægipylsa yógurt fastur ostur, 26% grænmetissalat matlaukur kartöflur epli heilhveitibr., sneitt kornflögur kókómalt Gert er ráð fyrir mismiklu magni af hverri vöru og miðað við líklega neyslu fjögurra manna fjölskyldu daga. Sem dæmi um neyslu má nefna að reiknað er með 1,2 kg af ýsuflökum, 2,0 kg af lambalæri g af svínaskinku, 300 g af tómötum, 6 lítrum af mjólk, 375 g af kornflögum, 250 g af kaffi, 100 g af þvotta efni o.s.frv. kakó sardínur rósakál hveiti tómatsósa kaffi majones cola drykkur jarðaberjagrautur þvottaefni klósettpappír sjampo lambalæri svinaskinka mjólk smjörlíki á brauð súkkulaðiís tómatar kinakál franskar kartöflur kiví þriggjakornabr., sneitt maísbaunir grænar baunir rauðkál bl. ávextir, niðurs. pakkasúpa, sveppasúpa tekex átsúkkulaði, hreint pilsner hreinn appelsínusafi uppþvottaefni tannkrem þrjá 200 og reiknað með helgarneyslu eins árs (þ.e. 50 helgarkörfur) er munur- inn á dýrustu og ódýrustu körfunni 58—114 þúsund krónur. Niðurstaða könnunarinnar er sú að það er ekki síður mikilvægt að gera verðsamanburð innan sömu verslunar heldur en á milli verslana, segir í fréttatilkynningu frá verða- lagsstofnun. afttoow/j /D f I t t Benedikt Bogason er látinn Látinn er Benedikt Boga- son, alþingismaöur og verkfræðingur, 55 ára að aldri. Benedikt fæddist 17. september 1933 í Laugardælum, Árnessýslu, sonur hjónanna Boga Eggerts- sonar bílstjóra og Hólmfríðar Guðmundsdóttur. Hann varð stúdent frá M.R. 1953 og lauk prófi frá Tekniska Högskolan í Helsingfors 1961. Hann var fram- kvæmdastjóri Flóaáveitunnar og Ræktunarsambands Flóa og Skeiða um 1961—1964 og verk- fræðingur hjá Borgarverkfræð- ingi til 1971. Hann rak eigin verk- fræðistofu til 1980, er hann varð verkfræðilegur ráðunautur Fram- kvæmdastofnunar ríkisins og síð- ar fulltrúi forstjóra Byggðastofn- unar. Benedikt átti sæti í hrepps- nefnd Selfosshrepps fyrir Sjálf- stæðisflokkinn 1962—1964. Hann varð varaþingmaður fyrir Borgaraflokkinn 1987, en tók fast sæti í vor sem eftirmaðui Alberts Guðmundssonar. Við sæti Benedikts á Alþingi tekur Ásgeir Hannes Eiríksson verslunarmað- ur. Benedikt lætur eftir sig eigin- konu, Unni Magnúsdóttur og tvö uppkomin börn. neip -rHe cAít-dReH sm/Le. Hjálpum börnunum að brosa! ALÞJÓÐLEG TEIKNIMYNDASAMKEPPNI Bresk hönnunarfyrirtæki í samvinnu viö Svissneska Rauöa Krossinn hefur beytt sér fyrir alþjóðlegri teikni- myndasamkeppni meðal 7-14 ára barna um allan heim. Tilgangurinn er að safna fé til hjálpar börnum í Súdan. Leitað er eftir góðum hugmyndum um fyndnar persónur eða dýr eins og í teiknimyndasögunum. Hér er því um að ræða teikningar sem fá fólk til aö brosa. „Hjálpum börnunum að brosa“ (fáum börnin til að brosa) eru slagorð sem nefnd hafa verið fyrir keppnina. Bestu teikningunum verður safnað saman í bók og hún seld til ágóða fyrir hjálparstarfið í Súdan sem framkvæmt er af Alþjóöa Rauða Krossinum. Teikningarnar eiga að vera í stærðinni A4, á hvítum pappír annað hvort í lit eða svart/hvítar. Texti má fylgja teikningunum en best er teikningar sjálfar tala sínu máli. Teikningunum skal skilað fyrir 1. ágúst 1989 til: Rauði Kross íslands, Alþjóða teiknimyndasamkeppnin Rauðarárstíg 18, 105 Reykjavík. Nánari upplýsingar veitir Ólafur Oddsson á skrifstofu RKÍ í síma 26722 frá kl. 8.00-16.00 virka daga.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.