Alþýðublaðið - 04.07.1989, Side 6
6
Þriðjudagur 4. júli 1989
Sigríður Elfa
sýnir í Heima-
hvammi í Ellið-
árdal
Laugardaginn 1. júlí n.k.
opnaði Sigríður Elfa Sigurð-
ardóttir sýningu á málverkum
í vinnstofu sinni í Heima-
hvammi i Elliðaárdal. A sýn-
ingunni eru verk unnin með
blandaðri tækni, öll frá þessu
ári. Sigríður Elfa nam mynd-
list (tvö ár í Barcelona og
önnur tvö í Cartagena í
Kolombíu og lauk þar prófi i
desember á síðasta ári. Hún
hefur tekið þátt í samsýning-
um í Barcelona, í Cartagena
og á islandi.
Sýninginn verður opin
virka daga kl. 20-22 og um
helgar kl. 14-20 fram til
sunnudags 9. júlí.
Spænsku kon-
ungshjónin í
heimsókn
Spænsku konungshjónin
hafa þegið boð forseta ís-
lands um að koma í opinbera
heimsókn til íslands dagana
5.-7. júlí n.k. Dagskrá heim-
sóknarinnar er sem hér segir:
Flugvél konungshjónanna
lendir á Keflavíkurflugvelli
kl. 11:00 að morgni miðviku-
dagsins 5. júlí. Þar verður há-
tíöleg móttökuathöfn, en að
henni lokinni ekið til Hótel
Sögu, þar sem gestirnir búa
á meðan á heimsókninni
stendur. Konungshjón snæða
síðan hádegisverð með for-
seta íslands á Bessastöðum.
Síðdegis verður fundur utan-
ríkisráðherra Spánar og ís-
lands i Ráðherrabústaðnum.
Um kvöldið verður boð for-
seta íslands til heiðurs kon-
ungshjónum í Súlnasal Hótel
Sögu.
A fimmtudagsmorgni,
6. júlí, verður flogið til Vest-
mannaeyja, þar sem farið
verður í Hraðfrystistöð Vest-
mannaeyja, fylgst meðfryst-
ingu, pökkun og söltun, og
farið þaðan niður á höfn. Þá
verður skoðunarferð um
Heimaey og haldið aftur til
Reykjavíkur um hádegi. Borg-
arstjórinn í Reykjavik og frú
halda síðan hádegisverðar-
boð á Kjarvalsstöðum til
heiðurs konungshjónum og
skoðuð verður sýning á verk-
um Jóhannesar Kjarvals sem
nú stendur þar yfir. Um miðj-
an dag heimsækja konungs-
hjón Stofnun Árna Magnús-
sonar og taka síðan á móti
spænskum þegnum á Hótel
Sögu. Um kvöldið halda kon-
ungshjón boð til heiðurs for-
seta íslands á Hótel Loft-
leiðum.
Að morgni föstudagsins
7. júlí verður ekið til Nesja-
valla, þar sem hitaveitumann-
virki verða skoðuð. Þaðan
verður haldið til Þingvalla,
þar sem þjóðgarðsvörður
segir frá sögu staðarins, og
gengið verður um Almanna-
gjá til Lögbergs ef veður leyf-
ir. Forsætisráðherrahjón
bjóða til hádegisverðar til
heiðurs konungshónum í
Hótel Valhöll. Frá Þingvöllum
verður ekið til Keflavíkurflug-
vallar og er brottför ráðgerð
kl. 16:00.
Með konungshjónum kem-
ur fjölmennt fylgdarlið og á
sjötta tug spænskra blaða-
manna.
Aðgerðir gegn
háu verði á
grænmeti
Neytendasamtökin hyggj-
ast grípa til allra tiltækra
ráða til að fá verð á græn-
meti lækkað, í stað þess að
umframbirgðum sé umsvifa-
laust hent, eins og verið hef-
ur ,að undanförnu.
í tilkynningu frásamtökun-
um segir að verði á fjölmörg-
um tegundum af innlendu
grænmeti hafi verið haldið
óeðlilega háu og hafi það
leitt til samdráttar í neyslu á
þessu hollmeti. „í stað þess
að lækka verðið og auka um
leið kynningu á vörunni grípa
framleiðendur til þess ráðs
að henda tómötum og fleiri
tegundum grænmetis á
haugana.
Neytendasamtökin for-
dæma þessa sóun verðmæta
og telja að með slíku athæfi
séu framleiöendur að storka
neytendum og varpa skugga
á eigin orðstír. Hafa ber i
huga að stjórnvöld vernda
innlenda framleiðslu frá sam-
keppni við innflutt grænmeti.
Auk þess ríkir ekki eðlileg
samkeppni í dreifingu á
þessum vörum vegna verð-
samráðs framleiðenda sem í
raun er brot á lögum. Þetta
ástand er því með öllu óvið-
unandi.
Ef ekki verður hér tafar-
laust ráðin bót á og verð á
grænmeti lækkað, munu
Neytendasamtökin grípa til
allra tiltækra ráða til að bæta
hag neytenda i þessu efni“,
segir ennfremur í tilkynningu
frá samtökunum.
Alþýðublaðið hafði sam-
band við Jóhannes Gunnars-
son, formann neytendasam-
takanna um hvers konar að-
gerðir það væru sem til
greina kæmu en hann vildi
ekki upplýsa það að svo
stöddu, en ýmislegt væri í
undirbúningi.
Nýr skrifstofu-
stjóri
Hinn 1. júlí skipaði forseti
íslands að tillögu heilbrigðis-
og tryggingamálaráðherra
Ingibjörgu R. Magnúsdóttur
skrifstofustjóra í heilbrigðis-
og tryggingamálaráðuneytinu.
Ingibjörg var hjúkrunarfor-
stjóri Fjórðungsjúkrahússins
á Akureyri frá 1961 til 1971.
Hún tók við starfi fulltrúa í
heilbrigðis- og trygginga-
málaráðuneytinu 1. júlí 1971
og við stöðu deildarstjóra
sjúkrahúsa- og heilsugæslu-
deildar 1. október sama ár.
Hún hefur setið í mörgum-
ráðum og nefndum á vegum
ráðuneytisins og gegnt þar
+
Alúðarþakkir
Færum öllum þeim er sýndu samúð og hlýhug við and-
lát og útför Jakobs Jónssonar, dr. THEOL og heiðruðu
minningu hans.
Þóra Einarsdóttir
Guðrún Sigríður Jakobsdóttir Hans W. Rothenborg
Svava Jakobsdóttir Jón Hnefill Aðalsteinsson
Þór Edward Jakobsson Jóhanna Jóhannsdóttir
Jón Einar Jakobsson Gudrun Jakobsson
barnabörn og barnabarnabörn
• Krossgátan
□ 1 7""*
'\
6 - □ 1 l
é 9 9
10 □ ■ G -
□ ■;
D
Lárétt: 1 hörgul, 5 fálka, 6 jaka,
7 kall, 8 gjafmilda, 10 eins, 11
lesandi, 12 sjúkleiki, 13 ófag-
urt.
Lóðrétt: 1 skarns, 2 dys, 3
áþján, 4 varla, 5 dettin, 7
gagnslaust, 9 meining, 12
gelti.
Lausn á siöustu krossgátu.
Lárétt: 1 bárum, 5 vola, 6 ilm, 7
au, 8 naumur, 10 dr, 11 óða, 12
skar, 13 ritan.
Lóðrétt: 1 bolar, 2 álmu, 3 Ra, 4
maurar, 5 vindur, 7 auðan, 9
móka, 12 st.
• 6engi8
Gengisskráning nr. 123 — 3. júlí 1989
Kaup Sala
Bandaríkjadollar 58,090 58,250
Sterlingspund 91,146 91,397
Kanadadollar 48,576 48,710
Dönsk króna 7,7324 7,7537
Norsk króna 8,2187 8,2414
Sænsk króna 8,8283 8,8526
Finnskt mark 13,3173 13,3540
Franskur franki 8,8582 8,8826
Belgiskur franki 1,4363 1,4402
Svissn. franki 34,1209 34,2177
Holl. gyllini 26,6878 26,7613
Vesturþýskt mark 30,0790 30,1618
ítölsk lira 0,04154 0,04166
Austurr. sch. 4,2745 4,2862
Portúg. escudo 0,3591 0,3601
Spánskur peseti 0,4732 0,4745
Japanskt yen 0,40864 0,40976
irskt pund 79,816 80,036
SDR 72,9314 73,1323
Evrópumynt 61,1563 62,3275
margs konar trúnaðarstörf-
um.
Ingibjörg hefur verið náms-
brautarstjóri námsbrautar í
hjúkrunarfræði í Háskóla ís-
lands frá tjanúar 1976.
í ráðuneytinu starfa því 4
skrifstofustjórar auk stað-
gengils ráðunetisstjóra Jóns
Ingimarssonar skrifstofu-
stjóra.
RAÐAUGLÝSINGAR
Menntaskólinn
við Hamrahlíð
Vinnuaðstaða kennara - lyfta
Tilboð óskast í breytingar á húsnæði
Menntaskólans við Hamrahlíð. Meðal annars
skal stækka glugga á útveggjum kjallara í
suðurálmu skólans, endurnýja lagnir og setja
upp lyftustokk.
Verkinu skal skila í nokkrum áföngum:
Skila skal fyrsta hluta þess 28. 8. 1989 en
verklok á verkinu í heild verða 22. 4. 1990.
Útboðsgögn verða afhent til föstudagsins
7. júlí gegn 10:000,- kr. skilatryggingu. Hús-
ið verður væntanlegum bjóðendum til sýnis
dagana 3., 4. og 7. júlí milli kl. 9 og 12.
Tilboð verða opnuð á skrifstofu vorri þriðju-
daginn 11. júlí 1989 kl. 14.00.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
Borqartuni 7, simi 26844.
Varnarliðið—sumarstörf
Varnarliöið óskar að ráða eftirtalda iðnaðar-
menn til sumarafleysinga: Trésmiði, bifvéla-
virkja, bifreiðasmiði, pípulagningamenn og raf-
virkja.
Um er að ræða mismunandi margar stöður í
hverri starfsgrein. Ráðning er [ flestum tilfellum
til seinni hluta septembermánaðar en nokkrir
möguleikar á áframhaldandi ráðningu.
Krafist er réttinda I viðkomandi starfsgrein,
en ráðning á aðstoðarmönnum með rétta starfs-
reynslu kemurtil greina.
Hafið samband strax við varnarmálaskrifstofu,
ráðningadeild, Brekkustíg 39, Njarðvík, sími
92-11973.
Rauður:
þríhymingur
= Viðvörun
Gera aukaverkanir lyfsins
sem þú tekur þig hættulegan
í umferöinni?
Vorhappdrætti krata
Dregið hefir verið I Vorhappdrætti krata. Upp
komu eftirtalin númer:
1. Vinningur.
Vinningar MITSUBISHI sjónvarpstæki og mynd-
band. Upp kom vinningur nr. 1745.
Vinningar nr. 2—10.
MITSUBISHI sjónvarpstæki 20“. Vinningar
komu á eftir talin númer: 14737, 95, 3424, 18123,
1842, 9185, 12552, 13977, 12845.
Vinningar nr. 11—20.
Vinningar MITSUBISHI myndbandstæki. Vinn-
ingar komu á eftirtalin númer: 559,18610,18413,
747, 7388, 19087, 4175, 1969, 5418, 8907.
Vinningar 21—30.
Bökunarmeistarinn. Vinningar komu á eftirtalin
númer:
1448, 14790, 4069, 16222, 6370, 9666, 11501,
14950, 3541, 19919.
Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Al-
þýðuflokksins í síma 91-29244.