Alþýðublaðið - 11.07.1989, Blaðsíða 5
Þriðjudagur 11. júlí 1989
5
Heildarupphæð vinn-
inga 08.07 var
3.978.222,-.
Enginn hafði 5 rétta
sem var kr. 1.831 .'516,-.
Bónusvinninginn fengu
3 og fær hver kr.
106.161,-.
Fyrir 4 tölur réttar fær
hver 6.619,- kr. og fyrir
3 réttar tölur fær hver
um sig 414,- kr.
Sölustaðir loka 15 mínútum fyrir útdrátt í
Sjónvarpinu.
ÞflNKAR fl ÞBIÐJUDEGI
Höfudstöðvarnar í Perú. „Utan við ,,virkismúra“ bankans eru húsaraðir hinna efnaminni og jafnvel gosbrunnurinn minnir illþyrmilega á þann vatns-
skort sem Líma er fræg fyrir, enda rignir sjaldan í þeirri borg.
Bankabygging
Arquitectonica i Lima
Bankar eru merkileg fyrirbæri.
Þeir ávaxta peninga en sem fjár-
málastofnanir leika þeir lykilhlut-
verk í efnahagslífinu og eru valda-
kjarnar. Auk kirkna og nokkurra
útvaldra stofnana hafa bankar
verið kjörverkefni arkitekta.
Bankaartitektúr er venjulega til-
brigði við tvö stef, traust og vald.
Arkitektarnir hafa sjálfsagt
frjálsari hendur við kirkjusmíð-
arnar en við bankahönnun þarf
að tryggja tiltrú neytenda sam-
tímis og öryggiskröfur eru strang-
ar.
Seðlabankar Norðurlanda eru
undantekningalausir. Þeir eru
flestir teiknaðir í fúnksjónalísk-
um stíl, formfastar kassalaga
byggingar. Arne Jacobsen sá um
danska seðlabankann. Sjálfspegl-
andi gluggarnir útiloka að óvið-
komandi sjái hvað fram fer inni
fyrir. Kvikmyndatökumenn sjón-
varpsins hafa eygt dulúð fjár-
málavaldsins ef dæma má algeng-
ustu fréttamyndina af bygging-
unni. Hún er tekin að kvöldlagi og
upplýstir en mannlausir glugg-
arnir gefa áhorfandanum til
kynna að þarna eigi sér merkilegir
hlutir stað. Spurningin er hvort
bankar endurspegli að einhverju
leyti ástandið í efnahagsmálum
heimalandsins.
Af skandinavísku bönkunum
þykir mér sænski seðlabankinn
merkilegastur. Hann stendur við
Malmskillingsgötuna og lætur í
raun fara lítið fyrir sér. Hann er
grafinn jafn margar hæðir niður í
jörðina og þær sem sjáanlegar
eru. Hann er úr völdu grjóti eins
og hinir bankarnir og handverkið
er einstaklega gott. Það sem gerir
hann þó merkilegan er staðsetn-
ing hans við hliðina á Kúltúrhús-
inu. Húsin voru byggð samtimis
en samt sem áður er rúmur metri
á milli þeirra. Tveir gluggalausir
veggir gegnt hvor öðrum og af-
girtur göngustígur á milli. Eina
ástæðan fyrir tilvist hans er óhug-
ur bankamanna yfir mögulegri
tengingu við ntenninguna. í Svi-
þjóð eru peningar eitt, kúltúr
annað.
Aðalsmerki skandinavísku
bankanna er þungur og traust-
vekjandi einfaldleiki. Nýverið tók
Banco de Credito i notkun nýja
byggingu undir höfuðstöðvar
sínar í Lima, höfuðborg Perú.
Bygging bankans hófst 1984 rétt
eftir að Alan García tók við völd-
um. Þá var bjart yfir Perú. Nú,
fimm árum síðar, þegar bankinn
er fullgerður hefur verðbólgan
náð 2000 prósentum. Jafnvel við
íslendingar getum slegið okkur á
lær.
Bankinn er hannaður af einni
athyglisverðustu arkítektaskrif-
stofu samtímans, Arquitectonica,
frá kókaínlandinu Miami og listi-
lega útfærð. Sé byggingin sem slík
metin þá er hún fagurfræðilegt
meistaraverk. Hún einkennist af
hugmyndaríkri efnisnotkun,
formfegurð og djörfum samsetn-
ingum. Utan við bygginguna er
gosbrunnur sem breytist í marg-
litað vatnsfall og vísar í áveitu-
snilld Inkanna.
Andstætt skandinavísku bönk-
unum þá endurspegla höfuð-
stöðvar Banco de Credito fremur
(fallvalta) auðlegð en traust. Það
væri fjarri mér að taka undir þann
kór sem vill breyta kostnaði við
stórhuga mannvirki í hundrað
króna uppbót á sérhvern ellilifeyr-
isþega. Þjóðir, fyrirtæki og stofn-
anir eiga rétt á að byggja vel svo
framarlega sem það er ekki bein-
línis siðlaust. Banki Arquitecton-
ica er mögnuð bygging en gjör-
samlega úr fókus við umhverfi
sitt. Utan við „virkismúra" bank-
ans eru húsaraðir hinna efna-
minni og jafnvel gosbrunnurinn
minnir illþyrmilega á þann vatns-
skort sem Lima er fræg fyrir, enda
rignir sjaldan í þeirri borg.
Kaldhæðnislegast er anddyrið,
fallega byggð glersúla sem nær
alla leið upp úr þakinu er skipt í
sundur i miðjunni. Ekki er hægt
að sjá festingar hennar og er engu
líkara en að hún sé í lausu lofti.
Fljúgandi glersúla er líklega gott
tákn fyrir banka sem staðsettur er
á mikilvirku jarðskjálftasvæði í
landi með 2000% verðbólgu.