Alþýðublaðið - 11.07.1989, Blaðsíða 6
6
Þriöjudagur 11. júlí 1989
SMÁFRÉTTIR
Sumardjass í
Djúpinu
Dagana 10. til 14. júlí og 17.
til 21. júlí veröur leikinn djass
á hverju kvöldi í Djúpinu viö
Hafnarstræti (kjallara Horns-
ins). Fyrir þessari tveggja
vi kna hátiö standa þrír tónlist-
armenn; Siguröur Flosason
(alt- og barítónsaxófónn), en
hann er nýkominn heim eftir
langt nám í Bandaríkjunum;
Hilmar Jensson (gítar), hann
hefur leikiö með ýmsum
hljómsveitum hérlendis og
var sl. vetur við nám i Berklee
College of Music í Boston,
og Tómas R. Einarsson (kon-
trabassi), en hann hefur veriö
virkur í íslensku djasslífi um
árabil. Þeir félagarnir munu
fá trommuleikara í heimsókn
á fimmtudögum og föstudög-
um, en ekki er loku fyrir skotiö
að aörir hljóðfæraleikarar
líti inn með tól sín og tæki.
Tónleikarnir standa frá 21.30
til 24.00.
Taprekstur hjá
Samvinnu-
tryggingum
Aöalfundur Samvinnutrygg-
inga og Líftryggingafélagsins
Andvöku var haldinn 30. júní
sl.
Rekstur Liftryggingafélags-
ins Andvöku gekk mjög vel á
árinu og varó hagnaður af
rekstri félagsins 9,6 milljónir
króna.
Rekstur Samvinnutrygg-
inga var hins vegar stórum
erfiöari. Félagiö varó fyrir
tveim megináföllum á árinu.
Annars vegar gjaldþrot og
greiósluþrot nokkurra stórra
viöskiptavina félagsins, eink-
um innan samvinnuhreyfing-
arinnar, sem ullu því að af-
skrifa varð útistandandi
skuldir um 62 milljónir króna.
Hins vegar varö vergt tap á al-
mennum slysatryggingum að
upphæö 31,9 milljónir og á
endurtryggingum 23 milljónir.
Rekstrarreikningur Samvinnu-
trygginga varö því meö tapi að
upphæö 85,4 milljónir króna.
Iðgjöld ársins námu 1.402,4
milljónum og hækkuöu um
44% á milli ára. Tjón ársins
námu 1.166,4 milljónum og juk-
ust um 41% milli ára.
Nettó umboóslaunakostnaður
nam 76,3 milljónum og hækk-
aði um 50% frá fyrra ári.
Skrifstofu- og stjórnunar-
kostnaöur nam samtals 280,5
milljónum og hækkaði um
28% milli ára. Þar af voru laun
og launatengd gjöld
119,1 milljón og höföu hækkaö
um 20% miðað við fyrra ár.
Annar kostnaöur nam
161,4 milljónum og hækkaöi
um 34% milli ára.
Eins og áöur greinir voru end-
urtryggingarog slysatrygging-
ar reknar með verulegum verg-
um halla. Svo var einnig um
ökutækjatryggingar. Hins veg-
ar skiluðu eignatryggingar,
frjálsar ábyrgöartryggingar
svo og sjótryggingar vergum
hagnaói.
í heild varö vergurhagnaöuraö
upphæö 31,5 milljónir króna á
móti 62,5 milljónum áriö áður.
Bókfært eigiö fé félagsins í
árslok 1988 er 120,1 milljón.
Á aöalfundinum voru lagðar
fram og samþykktar breyting-
ar á samþykktum Samvinnu-
trygginga i framhaldi af sam-
komulagi því er gert var milli
Samvinnutrygginga og Bruna-
bótafélags Islands í janúar sl.
um stofnun hlutafélags um vá-
tryggingarekstur sem leiddi af
sér stofnun Vátryggingafélags
íslands hf. þann 5. febrúar sl.
Viö stjórnarkjör nú var Guö-
jón B. Olafsson kjörinn for-
maður til tveggja ára og nýr
maður I stjórn var kjörinn
Magnús Gauti Gautason til
tveggja ára. Úr stjórn átti aö
ganga Karvel Ögmundsson og
var hann endurkjörinn til
tveggja ára.
Þann 1. janúar sl. tók Axel
Gíslason við starfi fram-
kvæmdastjóra Samvinnu-
trygginga en Hallgrímur Sig-
urósson og framkvæmdastjóri
starfar áfram hjá félaginu til
ársloka 1989 auk þess sem
hann gegnir starfi fram-
kvæmdastjóra Líftrygginga-
félagsins Andvöku til sama
tíma.
Halldór
Ásgeirsson
sýnir í
Slunkaríki
Halldór Ásgeirsson opnar
myndlistarsýnigu í Slunkaríki
á Isafiröi nk. laugardag,
8. júlí. Halldór er fæddur
1956 og nam myndlist í París
á árunum 1977—80 og
1983—86.
Frá því hann tók til við
myndlistina hefur hann gert
víöreist um heiminn, haldið
fjölda sýninga, framið gjörn-
inga og málað veggmyndir.
Sýningin I Slunkarfki er
opin fimmtudaga til sunnu-
daga kl. 16—18 fram til ‘
20. júll.
Iðnaðarbankinn
HLUTHAFA
FUNDUR
Hluthafafundur í Iðnaðarbanka íslands hf. verður
haldinn í Súlnasal Hótel Sögu miðvíkudaginn 26. julí
1989 oghefstkL 17:00.
DAGSKRÁ:
1. Tillaga bankaráðs um staðfestingu hluthafa-
fundar á samningi fonnanns bankaráðs við við-
skiptaráðherra um kaup bankans á 1/3 hluta
hlutabréfa rikissjóðs í Útvegsbanka íslands hf.
og að rekstur Iðnaðarbanka, Verslunarbanka og
Alþýðubanka verði sameinaður í einn banka
ásamt Útvegsbankanum fyrir julí 1990.
Jafnframt verði bankaráði veitt heimild til að
vinna að öllum þáttum er varða framkvæmd
samningsins.
2. Ónnur mál, löglega upp borin.
Aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir hlut-
höfum eða umboðsmönnum þeirra í Iðnaðarbank-
anum, Lækjargötu 12,2. hæð frá 19. júlí nk.
Samningurinn, ásamt tillögum þeim
er fyrir fundinum liggja, verður hluthöfum
til sýnis á sama stað.
Reykjavík 5. júlí 1989
Bankaráð Iðnaðarbanka íslands hf.
RAÐAUGLÝSINGAR
Sjálfsbjörg
— landssamband fatlaðra
Hátúni 12 - Sími 29133 - Pósthólf 5147
- 125 Reykjavík - ísland
Vinningar í
Byggingarhappdrætti
Sjálfsbjargar
5« júli 1989
Bifreið Subaru Station 1800CC GL
147 21418 67716 69741 72308
Sólarlandaferð á kr. 100.000
452 30637 58697 85939 94917
3524 37088 59227 87678 97920
4074 38255 64393 87824 102590
6774 38670 69169 88377 105538
8088 42609 70118 88885 108943
17305 43728 75587 89798 112317
17508 45450 77919 89904 114957
17820 46255 80928 90871 115247
27107 55673 85076 94441 117008
Lausar stöður
við framhaldsskóla
Framlengdur umsóknarfrestur:
Að Fjölbrautaskóla Vesturlands vantar
kennara í náttúrufræðigreinum og efnafræöi og rafeinda-
virkjun.
Við Fjölbrautaskóla Suðurnesja er iaus
kennarastaöa í Islensku.
Við Menntaskólann við Sund er laus til
umsóknar stundakennarastaöa i islensku. Nánari upplýs-
ingar veitir deildarstjóri I íslensku í sima: 71354.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf
sendist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 150
Reykjavfk fyrir 14. júlí nk.
Menntamálaráðuneytið.
Lokað vegna jarðarfarar
Skrifstofur Byggðastofnunar og Framkvæmda-
sjóös íslands veröa lokaðar ( dag þriðjudag
11. júlí frá kl. 10—13 vegnajarðarfarar Benedikts
Bogasonar alþingismanns.
Byggðastofnun
Framkvæmdasjóður íslands
Verkefnisstjóri
Verkefnisstjórn um eflingu skógræktar á Fljóts-
dalshéraði óskar eftir að ráða verkefnisstjóra.
Nú stenduryfirundirbúningurað umfangsmiklu
skógræktarátaki á Fljótsdalshéraöi og leitað er
eftirverkefnisstjóratil að undirbúa framkvæmd
verkefnisins.
Ekki eru gerðar ákveðnar menntunarkröfur en
um er að ræða sjálfstætt starf sem krefst góöra
skipulagshæfileikaog sjálstæðis. Umsækjandi
þarf aö geta hafið störf sem fyrst og ráðning er
til áramóta í fyrstu.
Uþplýsingar um starfið veitir formaöur verk-
efnisstjórnar Edda Björnsdóttir, Miðhúsum, 700
Egilsstöðum í s. 97-11365. Umsókn ásamt upp-
lýsingum um menntun og starfsreynslu sendist
fyrir 1. ágúst nk.
/S>
Þú vilt ekM missa
þaim stóra -
ekki ökuskípteinið heldur!
Hvert sumar er
margt fólk í sumarleyfr"^^
tekið ölvað við stýrið.
yUMFERÐAR
RÁÐ