Alþýðublaðið - 11.07.1989, Blaðsíða 7
Þriðjudagur 11. júlí 1989
7
UTLOND
Hin óþekkta Asía
Oröið Mongólia þýðir ,,land hinna hugrökku og stoltu
manna“ og herforinginn Dsjengis Kahn ætlaði sér að gera
Mongólíu að herveldi, sem ógnaði öðrum þjóðum og legði
undir sig lönd i Evrópu í kringum árið 1200. Svo fór, að 200
árum seinna náði Kina yfirráðum i Mongólíu og hefur haft
þau allar götur síðan. Innri-Mongólia er þó ennþá svokall-
að „autonomt" (sjálfstýrt) riki í Kína.
Mongólska alþýðulýðveldið
(Ytri-Mongólía) er staðsett eins og
höggpúði milli sovéska ríkisins
Síberíu og Kína. Mongólía er þess
vegna undir miklum áhrifum frá
stórveldunum tveimur sitt livor-
um megin við hana.
Mongólía er trú-
lega þaö land sem
Evrópubúar vita
hvað minnst um.
Það eru helst
frímerkjasafnarar
og fornleifafrœð-
ingar sem hafa
kynnt sér landið.
Trommur eru hljóðfæri sem
gegnt hefur veigamiklu hlutverki
hjá Mongólum. Þar sem fólkið
kemur saman liafa trommur verið
barðar á sérstakan hátt, hvort sem
tilefnið er gleðilegt eða sorglegt.
Eftir uppreisnina í Mongólíu
1921—1924 var „sjaman-isminn“
bannaður. Það er hin eldgamla al-
þýðutrú Mongóla, sem hefur ver-
ið dýrkuð fram að síðustu árum,
oftast í leyni. Nú hallast menn að
þvi að hún sé að verða útdauð.
Þetta er trú, senr átti ýmislegt
sameiginlegt með trúarbrögðum
Sama, en í þeirri trú eru guðirnir
í björgum, fjöllum, vatni og í
moldinni. Einsog í trúarbrögðum
Sama voru vissir útvaldir menn i
sambandi við andaheiminn. Þeir
Dalai Lama er trúarleiðtogi um
100.000 þúsund tibetskra flótta-
manna sem aðhyllast lamai-trúar-
kenninguna en hún er gamall
tibetskur angi af búddatrú.
nefndust sjamanar og gátu lækn-
að og spáð í framtíðina.
Lamaitrúin____________________
Sú tegund búddatrúar sem kall-
ast lamai-trú er ríkjandi i
Mongólíu. Hún er þekkt frá
Tíbet, en eins og vitað er varð
Dalai Lama, andlegur og verald-
legur leiðtogi Tíbet, að flýja land
árið 1959 og Kína lýsti Tíbet sjálf-
stjórnarríki innan Kína. Þetta
vilja Tibetar ekki viðurkenna og
reyna að veita viðnám eftir l'öng-
um. Allt fram að árinu 1930 voru
700 búddaklaustur í Mongólíu, en
það ár var farin grimmileg áróð-
ursherferð gegn trúarbrögðum og
nú er aðeins eitt klaustur eftir.
Það er Gandan-klaustrið í Ulan
Bator, sem er höfuðborgin.
Hvort „perestrojka" kemur því
til einn leiðar í þessum hluta Asíu
að mönnum verði frjálst að velja
sér trúarbrögð og að Dalai Lama
fái að fara aftur inn i Tíbet mun
tíminn leiða í ljós.
(Arbeiderbladet)
SJÓNVARP
Sjónvarp kl. 21.25
BYLTINGIN í FRAKK-
LANDI - 2. ÞÁTTUR
Breskur heimildamyndaflokkur í
fjórum þáttum um frönsku stjórn-
arbyltinguna 1789 óg áhrif hennar.
Þessir þættir eru að sjálfsögðu
gerðir í tilefni af 200 ára afmæli
byltingarinnar en sem kunnugt er
hafa frakkar haldið upp á það með
miklum glans í ár. Reyndar brá svo
við að um 100.000 manns komu á
rokktónleika sem haldnir voru til
að mótmæla því hvernig haldið er
upp á afmæli þetta. Mótmælend-
urnir vildu meina að það væri ekki
siðferðilega rétt að bjóða til fundar
leiðtogum sjö helstu iðnríkja heims
á afmælisári byltingarinnar, þar
sem enn væri stór hluti mannkyns í
svelti í þriðja heiminum og víðar.
Það kemur samt kannski ekki beint
þessum þætti við.
Stöö 2 kl. 23.30
í HEFNDARHUG
(Positive I.D.)
Bandarísk bíóniynd, gerð 1986,
leiksljóri Andy Anderson, aðal-
hlutverk Stephanie Rascoe, John
Davies, Steve Froinlioltz, Laura
Lane.
Eiginkona og tveggja barna móðir
verður fyrir grimmilegri líkams-
árás. Atvikið situr sem límt við
heila konunnar og hún getur á eng-
an hátt gleymt því. Smámsaman
fyllist hún hefndarhug sem verður
æ sterkari. Hún tekur upp annað
nafn til að verða sterkari i barátt-
unni. Myndin þykir vel gerð og
heldur spennunni ágætlega, þetta
er sálfræðilegur þriller í anda
Hitchcock, segir kvikmyndahand-
bókin, en að vísu eru nokkrir lausir
endar þegar yfir lýkur og slíkt kann
ekki góðri lukku að stýra. Yfir
meðallagi er einkunin.
Sjónvarp kl. 22.15
STEINSTEYPU-
VIDGERÐIR OG VARNIR
Fyrsti þáttur af sjö um steypu-
skemmdir en þessir þættir eru unnir
af Byggingarþjónustunni. Umsjón
hefur Sigurður H. Richter. Þarnaer
tekið á máli sem varðar margan
manninn og er um leið gríðarlega
mikilvægt, hefur enda mikil áhrif á
pyngju skattborgarans ef hann
neyðist til að standa í umfangsmikl-
um viðgerðum á húsi sínu. Strax á
eftir þessum stutta þætti, en hann
tekur aðeins fimm mínútur, stjórn-
ar Kristín Björg Þorsteinsdóttir
fréttamaður umræðuþætti um
steypuskemmdir og húsaviðgerðir.
Stöö 2 kl. 21.55
FROSTRÓSIR
(An Early Frost)
Bandarísk sjónvarpstnynd, gerð
1985, leikstjóri John Ertnan, aðal-
hlutverk Gena Rowlands, Aidan
Quinn, Ben Gazzara, Silvia Sydney.
Akaflega átakanleg mynd sem segir
af viðbrögðum fjölskyldu sem ekki
einasta kemst að því að sonurinn á
heimilinu er hommi, heldur upplýs-
ir hann aukinheldur að hann sé
smitaður af eyðni. Leikararnir
þykja standa sig afar vel i þessu
verki enda eiga þeir i gott hús að
venda þar sem er handrit myndar-
innar sem hlaut Emmy verðlaunin á
sínum tíma.
0 STÖD 2
1800 17.50 Freddi og félagar. 18.15 Ævintýri Nikka. 18.45 Táknmáls- Iréttir. 18.55 Fagri-Blakkur. 16.45 Santa Barbara. 17.30 Bylmingur. 18.00 Elsku Hobo. 18.25 íslandsmótið í knattspyrnu.
1900 19.20 Leðurblöku- maöurinn (Batman). 19.50 Tommi og Jenni. 20.00 Fréttir og veður. 20.30 Blátt blóð. Spennumyndaflokk- ur 21.25 Byltingin i Frakklandi (The French Revolution). 2. þáttur. 22.15 Steinsteypu- viðgerðir og varnir. Ryðskemmdir á steinsteypu og við- geróir á þeim. Fyrsti þáttur af sjö 22.20 Steypu- skemmdir og húsa- viðgerðir. Umraeöu- þáttur í umsjón Kristinar Þorsteins- dóttur. 19.19 19.19. 20.00 Alf á Melmac. 20.30 Stöðin á staönum. Viðkomu- staður i kvöld er Reyðarfjörður. 20.45 Visa-sport. 21.40 Óvaent enda- fok. 22.10 Frostrósir. Biómynd. Strang- lega bónnuð börn- um.
2300 23.00 Ellefufréttir og dagskráriok. 23.45 í hefndarhug. Bandarisk biómynd. 01.15 Dagskrárlok.