Alþýðublaðið - 04.08.1989, Side 5

Alþýðublaðið - 04.08.1989, Side 5
Föstudagur 4. ágúst 1989 5 FÖSTUDAGSSPJALL Var einhverjum rétt eitthvað á silfurfati? Var Útvegsbankinn miklu meira virði en bankarnir þríeinu borguðu fyrir hann. Þótt Framsóknarflokkurinn hafi lagt sig í líma við að koma því inn hjá þjóðinni að svörin við þessum spurningum séu já, verður ekki séð að þeir hafi haft erindi sem erf- iði. Það var í of mörg ár búið að framvísa til þjóðarinnar reikning- um á silfurfati frá þessum banka, til að fólk taki silfurfatskenningu ' Framsóknarflokksins trúanlega. Reynslan hefur sýnt að ríkið hef- ur ekki riðið feitum hesti frá bankarekstri sínum. Tvennt í bankabyitingunni er mikils virði fyrir skattborgara. í fyrsta lagi er það mikilla peninga virði að dreifa áhættu af banka- rekstri frá ríkissjóði. í öðru lagi er það örugglega mikilla peninga virði að hefja með þessum hætti löngu tímabæra uppstokkun íslenska bankakerfis- ins. Þetta skref mun reynast dýr- mætt vegna minnkaðs tilkostnað- „Bankabyltingin tókst með aðgerðum á einum afmörkuðum hluta bankakerfisins. Ríkisstjórnin á að gera hlið- stæðan hlut í landbúnaði" segir Guðmundur Einarsson m.a. í föstudagsspjalli sínu um sameiningu bankanna. meir að lifa sem frjátsir menn af landi og dugnaði. Þeir eiga orðið allt undir björgunaraðgerðum rík- issjóðs. íslandsbú Bankabyltingin tókst með að- gerðum á einum afmörkuðum hluta bankakerfisins. Ríkisstjórnin á að gera hliðstæðan hlut í land- búnaði. Með jarðeignum sínum, sjóðum og tökum í landbúnaðargeiranum á hún að hefja byltinguna í einum landshluta, þar sem aðstæður til slíks eru góðar. Hún á að hvetja til samruna búa og aukinnar hagræðingar. Með eignum sínum og aurum getur hún laðað bændur til samstarfs eða losað þá sjálfviljuga af jörðum sínum. Þannig getur fengist sú fækkun og stækkun búa, sem ein getur gert íslenska bændur raun- verulega bjargálna. Þannig næst líka fram raunverulegur niður- skurður á ríkisframlögum til fram- búðar. Ríkið gat notað eignarhald sitt á ákveðnum skika bankakerfisins til ISLANDSBANKI ar og aukinnar samkeppni sem á að leiða til minni vaxtamunar. Þetta á líka að reynast dýrmætt vegna bættrar þjónustu við stór fyrirtæki, sem voru farin að finna til þrengsla í bankakerfinu. Greinargerð viðskiptaráðuneyt- isins sýndi ljóslega fyrir nokkrum vikum að á hreinum viðskiptaleg- um grundvelli fékk ríkið gott verð fyrir sinn hlut í bankanum. Þegar svo við bætast þau atriði sem hér hafa verið rakin er augljóst að áhyggjur Framsóknarflokksins eru ekki sprottnar af umhyggju fyrir þjóðarvelferðinni. íslandsmet____________________ Þegar Alþýðuflokksmenn töldu á fingrum sér fyrir kosningar þau meginsvið, sem bylta þyrfti í land- inu voru þau, í fyrsta lagi skatt- kerfið, í öðru lagi húsnæðiskerfið, í þriðja lagi bankakerfið, í fjórða lagi landbúnaðarkerfið og í fimmta lagi sjávarútvegur. Af þess- ari upptalningu sést að þeir mega bærilega við sinn hlut una frá kosningum, ef litið er á málið frá sjónarhóli skriffinnans. Pólitískt er hlutur þessarar stjórnar og Alþýðuflokksins hins vegar ekki viðunandi. Fólk hefur ekki á tilfinningunni að unnin hafi verið nægileg þjóðþrifaverk. A.m.k. hefur stjórnin ekki til hnífs eða skeiðar í skoðanakönnunum. Þar á hún íslandsmet. Flokkarnir þrír verða að ákveða sig snarlega hvort þeir vilja auka tiltrú stjórnar sinnar og hljóta heiður af verkum sínum, eða dragnast stjórnartímann á enda i metóvinsældum. Tækifærið til framhaldslífs felst i því að taka á fjórða liðnum í upp- talningunni hér á undan, þ.e. land- búnaðarkerfinu. Ríkisfjármál þessa árs og næsta eru auðvitað með þeim ósköpum að allir sæmilega vitibornir menn flytjast til Svíþjóðar. Það þarf að taka á niðurskurðarmálum út um alit. Annars verður slegið íslands- met í ríkissjóðshalla. En af einstökum póstum, er landbúnaðarpósturinn mikilvæg- astur og hrópar á byltingu. Núverandi fyrirkomulag fram- leiðir alltof mikið kjöt á alltof háu verði með alltof miklum byrðum á íbúana. Það er ekki bændum til bjargar því þeir fjarlægjast það meir og að hefja byltinguna þar. Sama á að gera í landbúnaði. GUOMUNDUR 5.V' EINARSSON SMÁFRÉTTIR Skaftárhlaup Nú er nýlokið hlaupi í Skaftá. Hlaup þessi vekja yfirleitt mikla athygli og er það engin furða, því flóð þessi eru mjög frá- brugðin venjulegum vatnavöxt- um. Auk þess fylgir þeim megn jöklafýla, sem fundist getur hvar sem er á landinu, allt eftir veðri. Vatnshæðarmælingar í Skaftá við Skaftárdal hófust ár- ið 1951 á vegum Vatnamæl- inga Raforkumálastjóra. Megin tilgangur mælinganna þar sem annars staðar var að afla al- mennra upplýsinga um vatna- far svæðisins vegna virkjana- rannsókna. Árið 1967 var byggður sírit- andi vatnshæðarmælir við Skaftárdal og fimm árum síðar var reistur vatnshæðarmælir hjá Skaftá við Sveinstind, að- eins um 20 km neðan útfalls hennar í Skaftárjökli. Þar var einnig reistur mannbær kláfur til rennslismælinga. Rekstur þessarar stöðvar varð ekki samfelldur fyrr en ár- ið 1986, en síðan þá hafa feng- ist vatnshæðarlínurit yfir þrjú Skaftárhlaup, árin 1986, 1988 og 1989. Einnig tókst að mæla rennsli árinnar í hlaupinu 1988, svo og í nýafstöðnu hlaupi, en áður hafði ekki verið mælt meira en venjulegt sumar- rennsli. Hér skal nefnt til skýringar, að af vatnshæðarlínuriti má ætla hvað rennslið hafi verið á hverju augnabliki þess tímabils, sem það nær yfir. Þetta gildir þó aðeins að því tilskildu að búið sé að mæla rennsli beint við það margar mismunandi vatnshæðir, að samband þess við vatnshæðina sé þekkt. Skaftárhlaup, eins og nú þekkjast, hófust árið 1955, en heimildir eru af hlaupum í Skaftá fyrr á öldinni. Fljótlega kom í Ijós að tvennskonar hlaup komu í Skaftá og voru þau frábrugðin hvort öðru bæði hvað varðaði hámarks- rennsli og heildarvatnsmagn. Orsök hlaupanna varð einnig fljótlega Ijós, því ketilsig mynd- uðust í Vatnajökli norðvestan Grímsvatna eftir hlaupin. Katlar þessir eru misstórir og er sá vestri mun minni. Jarðhiti þar undir bræðir jökulinn og vatn safnast saman þar til farg jök- ulsins megnar ekki lengur að halda aftur af því. Vatnið hleyp- ur síðan þangað sem fyrirstaða er minnst og er það til Skaftár, þó að katlarnir séu á ísasvæði Tungnaár og Sylgju. Nýafstaðið hlaup var mjög svipað hlaupinu 1986. Hámark rennslis var ívið minna, en heildarvatnsmagn ívið meira og er skýringar líklega að leita í því, að nú hlaypur eftir að leys- ing er hafin á jökli, en hlaupið 1986 var í nóvember og því að sumarleysingu lokinni. Stærsta hlaup í Skaftá eftir að mæling- ar hófust var sumarið 1984, þegar jöklaleysing hafði verið óvenjumikil. Hámarksrennsli þá virðist hafa verið nokkru meira en nú, en þá stóð hlaupið um tveim sólarhringum lengur og heildarvatnsmagn því talsvert meira. Tímabil milli hlaupa er svipað fyrir báða katla, oft tæplega tvö og hálft ár. Hlaupin verða því á ýmsum tímum árs, þó hefur ekki hlaupið á tímabilinu apríl-júní. Ekki hefur það gerst enn, að hlaup hafi orðið úr báðum kötl- um samtímis, en ekkert virðist því til fyrirstöðu að svo geti farið. Ef það gerist, mætti bú- ast við allmiklu meira rennsli en í liðnum hlaupum og er því rétt að fylgjast vel með Skaftá í framtíðinni. Nefnd um uppbyggingu kennslu- gagna- miðstöðva Nefnd sem skipuð var af menntamálaráðherra til að gera tillögur um uppbyggingu kennslugagnamiðstöðva við fræðsluskrifstofur hefur skilað áliti sínu. Tillögur nefndarinnar eru þessar: 1. Kennslugagna- miðstöðvum verði komið upp á fræðsluskrifstofum utan Reykjavíkur eða í tengslum við þær. 2. Kennslumiðstöð Náms- gagnastofnunar þjóni skólum Reykjavíkur og verði jafnframt bakhjarl og þjónustuaðili fyrir kennslugagnamiðstöðvar fræðsluumdæmanna. 3. Kjarni starfseminnar verði fræðslu- og upplýsingastarfsemi, útlán gagna og þjónusta í formi að- stöðu og aðstoðar. Starfsemi hverrar kennslugagnamið- stöðvar verði löguð sem best að þeim aðstæðum sem ríkja í hverju umdæmi. 4. Gert verði ráð fyrir einu stöðugildi hið minnsta við hverja kennslu- gagnamiðstöð. Nefndin leggur til að þessu verði náð í tveimur áföngum þannig að veitt verði fé á fjárlögum 1990 sem nem- ur a.m.k. hálfu stöðugildi við hverja kennslugagnamiðstöð og hálfu til viðbótar á fjárlög- um 1991. Auk þess verði veitt fé til rekstrar og kaupa á bún- aði og gögnum. Ráðuneytið hefur sent ýms- um aðilum, m.a. Bandalagi kennarafélaga, Kennaraháskól- anum, Námsgagnastofnun, fræðslustjórum og alþingis- mönnum skýrslu nefndarinnar og tillögur til umsagnar. Nefnd um fjárhagserfið- leika sveitarfélaga Undanfarin ár hefur fjárhagur margra sveitarfélaga farið mjög versnandi. Til þess liggja ýms- ar orsakir m.a. miklir rekstrar- erfiðleikar atvinnufyrirtækja og stóraukin þjónusta sveitarfélag- anna án þess að tilsvarandi tekjuauki komi á móti. Félagsmálaráðherra hefur nú skipað nefnd til að kanna fjár- hagsstöðu verst stöddu sveit- arfélaganna og gera tillögur til úrbóta. Nefndinni er jafnframt falið að kanna orsakir versn- andi fjárhagsstöðu sveitarfélag- anna almennt og gera tillögur um ráðstafanir til lengri tíma. í nefndinni eru: Páll Guðjóns- son, bæjarstjóri og Þórður Skúlason, sveitarstjóri, tilnefnd- ir af Sambandi íslenskra sveit- arfélaga, Sveinbjörn Óskarsson, deildarstjóri, tilnefndur af fjár- málaráðherra, Kristófer Olivers- son, skipulagsfræðingur, til- nefndur af Byggðastofnun og Húnbogi Þorsteinsson, skrif- stofustjóri, sem skipaður er formaður nefndarinnar. Félagsmálaráðherra hefur einnig falið starfsmönnum ráðuneytisins að gera úttekt á ýmsum þáttum sveitarstjórnar- mála á hinum Norðurlöndun- um og taka saman greinargerð þar um þar sem m.a. kemur fram hver reynslan er þar af fylkjafyrirkomulaginu, en þess- ari athugun er ætlað að leiða í Ijós hvort ætla megi að það henti aðstæðum hér á landi. í framhaldi af þessari vinnu og niðurstöðum nefndar þeirrar sem vinnur aö athugun á fjár- hagsstöðu sveitarfélaganna mun félagsmálaráðherra beita sér fyrir mótun tillagna um efl- ingu sveitarstjórnarstigsins í samráði við Samband íslenskra sveitarfélaga og Byggðastofn- un.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.