Alþýðublaðið - 04.08.1989, Page 6
6
Miðvikudagur 2. ágúst 1989
SMÁFRÉTTIR
*
Avarp
Samstarfs-
hóps friðar-
hreyfinga
9. ágúst 1989
Friðarhreyfingar um allan
heim minnast þess nú að 44 ár
eru liðin frá því að Bandaríkja-
menn vörpuðu kjarnorku-
sprengjum á japönsku borgirn-
ar Hírósíma og Nagasakí. Tvö
hundruð þúsund manns létust
í árásunum og enn í dag þjáist
fólk og deyr vegna afleiðinga
sprengjanna. Á þessari stundu
er rétt að staldra við og spyrja
sig hvað mannkynið hefur lært
á þessum 44 árum frá harm-
leiknum í Japan. Eru íbúar
heimsins óhultari gegn ógn
sprengjunnar nú, þegar öllum
er orðið Ijóst hve óbætanleg-
um skaða hún getur valdið?
Svarið er því miður nei.
Stórveldin hafa framleitt tug-
þúsundir kjarnorkuvopna frá
stríðslokum. Þrátt fyrir þíðu
síðustu ára og mikilvæg skref í
friðarátt, er enn langt í land að
kjarnorkuógninni hafi verið
bægt frá. A sama tíma og sam-
ið er um fækkun vopna á
meginlandi Evrópu, heldur víg-
væðing hafanna óheft áfram.
Kafbátaslysin við strendur
Norður-Noregs á undanförnum
mánuðum minna okkur
óþyrmilega á, að jafnvel þótt
vopnin verði ekki notuð í kjarn-
orkustríði, þá ógna þau samt
lífi og tilveru íslendinga. Sam-
kvæmt nýrri skýrslu banda-
rískra friðarrannsóknamanna
liggja nú þegar 48 kjarnorku-
vopn og 9 kjarnakljúfar á hafs-
botni og um 1300 slys tengd
kjarnorkuvopnum hafa orðið
hjá sjóherjum stórveldanna síð-
an í stríðslok. Sú hætta vofir
því sífellt yfir að stórslys verði
og geislavirk efni eyðileggi
fiskimiðin umhverfis ísland.
Því er stundum haldið fram
að afvopnunarviðræður séu
einkamál fulltrúa stórveldanna
og komi öðrum ekki við. Þetta
er alrangt. Breytingar í friðarátt
verða fyrst og fremst vegna
þrýstings frá almenningi. Það
er á okkar ábyrgð, að veita ís-
lenskum stjórnmálamönnum
aðhald og brýna þá til að beita
sér á alþjóðavettvangi fyrir
friðlýsingu Norður-Atlantshafs.
Semja þarf nú þegar um að
fjarlægja þau kjarnorkuvopn
sem eru um borð í skipum og
kafbátum og að banna umferð
kjarnorkuknúinna farartækja
um Norður-Atlantshaf. Ef börn
okkar og barnabörn eiga að
geta búið hér á landi i framtíð-
inni verða þessar kröfur að ná
fram að ganga.
Við eigum okkur von. Vonina
um að kjarnorkuógninni verði
bægt frá, og komandi kynslóðir
geti lifað án þess ótta sem
fylgt hefur mannkyninu frá því
að sprengjunum var varpað á
Hírósíma og Nagasakí. Vonina
um að takast megi að tryggja
framtíð barna okkar og barna-
barna. Um leið og við minn-
umst fórnarlamba kjarnorku-
árásanna með kertafleytingu
hér á Tjörninni leggjum við
áherslu á þessa von.
Sjálfsbjörg
gerir styrktar-
samning
Föstudaginn 21. júlí sl. var
brotið blað í sögu Sjálfsbjargar,
landssambands fatlaðra. Þann
dag undirrituðu Sjálfsbjörg
landssamband fatlaðra og
Þýsk-íslenska ásamt dótturfyr-
irtæki þess sérstakan styrktar-
samning þar sem Þýsk-íslenska
og dótturfyrirtæki. þess
styrkja Sjálfsbjörg með milljón-
um króna. Styrktarsamningur
þessi gildir til ársloka 1994 og
kveður einnig á um sérstaka
aðstoð Þýsk-íslenska og dótt-
urfyrirtæki þess í baráttunni
fyrir framgangi málefna fatl-
aðra. í samningum er meðal
annars ákvæði um að Útsýn,
fyrst íslenskra ferðaskrifstofa,
muni skipuleggja að minnsta
kosti eina veglega sumarleyfis-
ferð á hverju ári er henti fötluð-
um. Sjálfsbjörg, landssam-
bands fatlaðra, telur að með
samningi þessum hafi verið
stigið nýtt skref í baráttunni
fyrir jafnrétti fatlaðra.
Undir samninginn skrifuðu
fyrir hönd Þýsk-íslenska Ómar
Kristjánsson en fyrir hönd
Sjálfsbjargar, landssamband
fatlaðra Jóhann Pétur Sveins-
son.
Viðstaddir undirskriftina voru
af hálfu Sjálfsbjargar, lands-
sambands fatlaðra Guðríður
Ólafsdóttir, Trausti Sigurlaugs-
son, Ólöf Ríkarðsdóttir, Elín Ól-
afsdóttir og Ólafur Garðarsson.
Af hálfu Þýsk-íslenska voru
viðstaddir auk Ómars, Ingi Karl
Ingason, aðstoðarfram-
kvæmdastjóri, Þýsk-íslenska,
Guðmundur Þorsteinsson, fjár-
málastjóri Útsýnar, Magnús
Jónatansson, markaðsstjóri Út-
sýnar.
Nefnd um
skákhreyf-
inguna
Menntamálaráðherra hefur
skipað nefnd sem hefur það
verkefni að fjalla um fjárhags-
lega stöðu skákhreyfingarinnar.
Ennfremur er nefndinni ætlað
að fjalla um réttindi og skyldur
stórmeistaranna, sem þiggja
laun hjá ríkinu og þátt þeirra í
fræðslustarfi og skákkennslu.
Nefndina skipa: Einar Sigur-
jónsson, deildarstjóri, tilnefnd-
ur af fjármálaráðuneytinu. Einar
S. Einarsson, formaður Skák-
sambands íslands, tilnefndur af
Skáksambandi íslands. Þráinn
Guðmundsson, fyrrverandi for-
maður SÍ, tilnefndur af Skák-
sambandi íslands. Friðrik Ólafs-
son, skrifstofustjóri, tilnefndur
af menntamálaráðuneytinu.
Kristín Árnadóttir, fulltrúi, til-
nefnd af menntamálaráðuneyt-
inu og er hún jafnframt for-
maður nefndarinnar.
Stefnt er að því að nefndin
Ijúki störfum í lok október.
Nýjar Louisu-
myndir í
Gallerí Borg
Listakonan Louisa Matthías-
dóttir er nú stödd hér á landi
en hún er eins og flestum er
kunnugt búsett í New York þar
sem hún er fyrir löngu búin að
vinna sér nafn og orðin þekkt
fyrir sterkar landslagsmyndir
sínar frá íslandi.
Nú hefur Galleri Borg fengið
til sölu 15 nýlegar olíumyndir
eftir Louisu, flestar af hestum
og kindum í landslagi en sú
stærsta er falleg götumynd úr
Reykjavík.
Myndirnar hafa verið hengd-
ar upp og verða til sýnis og
sölu í Gallerí Borg næstu daga.
Á Tólfæringi
Sumarsýning Hafnarborgar
Menningar- og listastofnunar
Hafnarfjarðar
Á sumarsýningu Hafnarborg-
ar, Á Tólfæringi sýna tólf lista-
menn. Þeir eru:
Björg Örvar, Borghildur
Óskarsdóttir, Jón Axel Björns-
son, Kristbergur Pétursson,
Magnús Kjartansson, Sigurður
Örlygsson, Sóley Eiríksdóttir,
Steinunn Þórarinsdóttir,
Steinþór Steingrímsson,
Sverrir Ólafsson, Margrét
Jónsdóttir, Valgerður Bergs-
dóttir.
Á sýningunni eru málverk,
teikningar, grafík og skúlptúrar.
Opnunartími frá kl:
14:00—19:00 alla daga. Ath.
opið er um
verslunarmannahelgina sem er
síðasta sýningarhelgin. Mikil
aðsókn hefur verið að
sýningunni en henni lýkur
mánudaginn 7. ágúst.
* Krossgátan
□ 1 . . v ‘ V' 2 < hfÍB rr. ■ 4
5líOi S 'c U: v f; v ■
6 n. n 7
ff 9 *
10 □ 11
□ 12 V .
13 □
Lárétt: 1 blæja, 5 hjálp, 6
dráttur, 7 keyrði, 8 önuga, 10
samstæðir, 11 svardaga, 12
hóti, 13 efla.
Lóðrétt: 1 hvassviðri, 2 bál, 3
pípa, 4 skálmaði, 5 mær, 7
reimina, 9 bein 12 kvæði.
Lausn á síðustu krossgátu.
Lárétt: 1 vogar, 5 rokk, 6 úti,
7 11, 8 strjál, 10 sa, 11 ata, 12
ýtin, 13 rýran.
Lpðrétt: 1 votta, 2 okir, 3 GK,
4 rollan, 5 Rússar, 7 látin, 9
jata, 12 ýr.
Fram nú
allir í röð ..
RAÐAUGLÝSINGAR
Skrifstofa
Alþýðuflokksins
sumarleyfi
Lokaö veröur frá 28. júlí — 12. ágúst.
Frá 14. ágúst — 22. ágúst verður opið frá
kl. 12:00—16:00.
Laus staða
heilsugæslulæknis
Laus er til umsóknar ein staða heilsugæslulæknis á
ísafirði frá og með 1. nóvember 1989.
Umsóknir ásamt ítarlegum upplýsingum um lækn-
ismenntun og læknisstörf sendist ráðuneytinu fyrir
1. september n k. á sérstökum eyðublöðum sem þar
fást og hjá landlækni. í umsókn skal koma fram hve-
nær umsækjandi getur hafið störf. Æskilegt er að
umsækjendur hafi sérfræðileyfi í heimilislækning-
um.
Nánari upplýsingar um stöðuna veita ráðuneytið og
landlæknir.
31. júlí 1989,
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið.
ekki ökuskírteinið heldur!
Hvert sumar er
margt fólk í sumarleyfi
tekið ölvað við stýrið.
yUMFERÐAR
RÁÐ