Alþýðublaðið - 04.08.1989, Blaðsíða 8
Föstudagur 4. ágúst 1989
20 milljónir
vegna loö-
dýraræktar
Stjórn Byggðastofnunar
hefur ákveðið að greiða
starfandi fóðurstöðvum í
loðdýrarækt 20 milljónir
króna í styrk vegna fóður-
framleiðslu nsestu þriggja
mánaða. Þó var ákveðið að
fela forstjóra að fylgjast
sérstaklega með þeim fóð-
urstððvum sem kunna að
lenda í sérstðkum rekstr-
arerfiðleikum á þessu ári.
Komi til gjaidþrota fóður-
stöðva er heimilt að lána nýj-
um rekstraraðilum allt að 5
milljónir króna í skammtíma-
lán til að tryggja afhendingu
fóðurs til bænda.
Þá var samþykkt að iána 29
smábátaeigendum 40,3 millj-
ónir króna og hafa þá 130 lof-
orð verið gefin út að upphæð
187,6 milljóna króna, en 80
umsóknir eru enn óafgreidd-
ar.
Bymðastofnun vill adstoða Patreksfiröinm en:
110 MILLJ0NA REIKNINGUR
VERÐISKIPIN SELD BURT
Gudmundur Malmquist: Lánueiting Byggdasjóös gœti breytt forsendunum hjá Hlutafjársjóbi
Stjórn Byggðastofnun-
ar hefur samþykkt að að-
stoða Patreksfirðinga
við að halda skipum
Hraðfrystihúss Patreks-
fjarðar, Sigurey og
Þrym, í byggðarlaginu.
Engin ákvðrðun hefur
hins vegar verið tekin
um fyrirkomulag þess-
arar aðstoðar og hefur
forstjóra Byggðastofn-
unar verið falið að krefj-
ast uppgreiðslu á 110
milljón króna skuldum
HP ef aðstoð bregst og
skipin verða seld út fyrir
bæinn.
Að sögn Guðmundar
Maimquist forstjóra
Byggðastofnunar á enn eft-
ir að ákvarða á hvern hátt
unnt verður að aðstoða Pat-
reksfirðinga, sem sjá fram á
að missa skipin úr byggðar-
laginu vegna gjaldþrots HP.
„Möguleiki er á að tii lán-
veitingar komi úr Byggða-
sjóði, þar sem slíkt dugar
til. Ef það gerist skal ég
ekki fortaka fyrir að þær
breyttu forsendur þýddu
aðild Hiutafjársjóðs þótt
kröfuhafar hafi neitað um
þátttöku. Annar möguleiki
er bein þátttaka Byggða-
stofnunar í hugsanlegu
nýju félagi á staðnum, en
það hefur ekki verið rætt í
stjórninni" sagði Guð-
mundur í samtali við Al-
þýðublaðið.
Byggðasjóður lánaði HP í
fyrra tæpar 36 milljónir
króna og sem fyrr segir hef-
ur stjórnin ákveðið að ef til
söiu skipanna kemur úr
bænum eða nauðungar-
uppboðs eigi forstjórinn að
krefjast uppgreiðslu á öll-
um lánum sjóðsins til HP,
110 milljónum króna.
*
Samband Isl. Samvinnufélaga:
Tapar 190 millj-
ónum fyrstu sex
mánuði ársins
Fjármagnskostnaöur erfibasti hjallinn
Fólk er óöum að undirbúa sig fyrir verslunarmannahelgina, hvort sem þaö hyggur á sumarbú-
staðaferð, ellegar ætlar sér að hafast við i tjaldi. Ljósmyndari Alþýðublaösins rakst á þetta unga
par þar sem það stóð fyrir utan tjald í nágrenni höfuðborginnar. Svo er bara að vona að viðri vel.
A-mynd/E.ÓI.
Sambandið tapaði 190
milljónum króna á fyrstu
sex mánuðm ársins, sem
er reyndar betri útkoma
en á sama tíma í fyrra. Þá
nam tapið 440 milljónum
króna. Þetta kom fram í
uppgjöri fyrir fyrri árs-
helming sem birt var á
stjórnarfundi Sambands-
ins á miðvikudag. Heildar-
tap Sambandsins á síðasta
ári nam á bilinu 1100 —
1200 milljónir.
Ólafur Sverrisson, stjórnar-
formaður, sagði við Alþýðu-
blaðið í gær að þrátt fyrir að
menn væru sæmilega
ánægðir með þennan bata
væri ljóst að staða fyrirtækis-
ins væri alls ekki nógu góð.
Það er einkum fjármagns-
kostnaður sem veldur þessu
að sögn Ólafs en hann hefur
enn hækkað síðan í fyrra.
Ólafur sagði að unnið væri
eftir rekstraráætlun sem
stefndi að því að lækka
rekstrarkostnað og hingað til
hefði það tekist nokkuð vel
og menn vonuðust til að enn
betur gengi það sem eftir
væri ársins. Auk þess stefnir
Sambandið enn að því að
selja eignir en Ólafur sagði að
ekkert nýtt væri í burðarliðn-
um í því efni. Enn væri verið
að vinna að sölu Samvinnu-
bankans og sölu á hlut Sam-
bandsins í Osta og Smjörsöl-
unni. Fyrrnefnda málið er á
umræðustigi og Guðjón B.
Ólafsson hitti bankastjóra
Landsbankans að máli í
morgun. Seinna málið er
komið fyrir gerðardóm, þar
sem ekki náðist samkomulag
um verð á eignarhluta SIS.
Að sögn Ólafs varð bestur
árangur á fyrri hluta ársins í
Sjávarafurðadeild en lakastur
í Verslunardeildinni. Þar er
þungt undir fæti sagði Ólafur.
Velta ávísana
hraðminnkandi
Hæg suðvestlæg átt
víðast hvar á landinu.
Skýjað en úrkomulítið um
sunnan og vestanvert
landiö, en léttir heldur til
norðaustan lands. Hiti;
10-16 stig.
hitastig
borgum
Svo er að sjá sem notkun
á ávísunum við stærri inn-
kaup fari hraðminnkandi
meðal landsmanna. Af yf-
irliti Hagtalna mánaðarins
frá Seðlabankanum að
dæma er notkunin nú nær
þriðjungi minni að raun-
virði í krónum talið en í
fyrra.
Fram kemur að í maí 1988
hafi heildarvelta tékka numið
um 136 milljörðum króna
framreiknað til núvirðis. í
maí síðastliðnum var heildar-
veltan hins vegar ekki nema
um 93 milljarðar eða um 32%
lægri. Fjöldi tékka í umferð
var svipaður, en meðalupp-
hæð þeirra þeim mun lægri.
Þetta gæti bent til þess að há-
ar greiðslur séu inntar af
hendi á annan hátt en áður,
t.d. með greiðslukortum.
Heildarveltan virðist hafa
staðið nánast í stað að raun-
gildi milli áranna 1987 og
1988, en minnkað æ meir eft-
ir því sem á þetta ár hefur lið-
ið.
Hitastig í nokkrum landshlutum kl. 12 i dag.
gær
tima.
Erill á skattstofum
Að sögn skattstjóra-
embættis Reykjaneskjör-
dæmis hefur ðrtröðin síð-
astliðna daga verið mun
meiri en venjulega eftir út-
sendingu skattframtala og
spilar þar staðgreiðslan
stóran þátt.
Sérstaklega er það að fólk
sem er gift eða býr saman
ruglast er það ætlar að not-
færa sér skattkort hvers ann-
ars, og kemur oft verr út en
ella. Hjá skattstjóranum í
Reykjavík sagði starfsfólkið
að álagið hefði kannski ekki
aukist svo mikið, það væri
helst að það væri á öðrum
þáttum en venjulega. Ævar
Isberg vararíkisskattstjóri
sagði að á heildina litið hefði
staðgreiðslan komið betur út
en bjartsýnustu menn hefðu
þorað að vona, en það tæki
alltaf tíma að koma á nýjum
siðum.
VEÐRIÐ
í DAG
ISLAND