Alþýðublaðið - 09.08.1989, Síða 8

Alþýðublaðið - 09.08.1989, Síða 8
MPYBIIBLÉBIB Miðvikudagur 9. ágúst 1989 * Kalevi Sorsa á íslandi: veszna Norrœns bœndaþinss: EKKIHÆGT AÐ BORGA FYRIR ENDALAUSA OFFRAMLEIÐSLU Markaöur veröur aö vera til stadar í Finnlandi er bændum ekki borgað fyrir allt sem þeir framleida, líkt og tíðk- ast hér á landi, heldur fær hvert býli ákveðna fjár- upphæð í styrk frá ríkinu. Þetta hefur reynst áhrifa- ríkt í baráttunni gegn of- framleiðslu landbúnaðar- vara þar i landi. Þetta kom fram á blaða- mannafundi með Kalevi Sorsa, forseta finnska þjóð- þingsins í gær, en hann er staddur hér á landi vegna norrænnar bændaráðstefnu sem hér fer fram. „Það er ekki hægt að greiða fyrir alla framleiðslu, því þá er ekki hægt að markaðssetja fram- leiðsluna”, sagði Sorsa. ‘Þetta kerfi hefur vakið deilur í Finnlandi því bænd- um finnst þeir á vissan hátt vera að þiggja einhverskonar ölmusu, en það stenst engan veginn því öðruvísi er ekki hægt að gera þessa hiuti", sagði Sorsa ennfremur. Aðspurður að því hvort að nánari samskipti Norður- landa sem ekki tilheyra Evr- ópubandalaginu (sem eru öll nema Danmörk) leiði ekki til þess að innflutningshöft þau sem eru á matvælum á Norð- urlöndum falli um sjálf sig segir Sorsa að meira frjáls- ræði muni leiða af GATT- samningunum heldur en við- ræðunum við EB, en ef Norð- urlöndin geti staðið saman sem ein blokk og markað þannig sérstöðu sína gagn- vart umheiminum, verði hægt að koma í veg fyrir hömlulausan innflutning, en það sé hinsvegar alveg Ijóst að í löndum þar sem lífs- standard er eins hár og hér, þá eru alltaf gerðar vissar gæðakröfur, og okkar fram- leiðsla sé frekar hrein miðað við umheiminn. Einnig sé alltaf þörf á ferskri fram- ieiðslu og hana sé helst að finna í því landi sem neyslan fer fram. Kalevi Sorsa í ræðustól á aðalfundi Norrænu Bændasamtak- anna. Framkvæmdastjórar norrænna jafn- aðarmannaflokka funda ó íslandi Christer Ahlén, framkvæmdastjóri SAMAK. Framkvæmdastjórar norrænu jafnaðarmanna- flokkanna funduðu á frl- degi verslunarmanna, mánudeginum 7. ágúst, í Reykjavík. Þeir komu til landsins síðdegis á sunnu- dag og snæddu kvöldverð með félögum úr Alþýðu- flokksfélagi Reykjavíkur. Á mánudaginn funduðu þeir á Hótel Sögu en um kvöldið hittu þeir formann Alþýðuflokksins, Jón Baldvin Hannibalsson og fleiri flokksfélaga. í gær skoðuðu þeir Reykjanes- skagann en héldu síðan brott síðdegis. Framkvæmdastjóri norskra jafnaðarmanna, Thorbjörn Jagland, forfallað- ist á síðustu stundu vegna óvænts flokkstjórnarfundar norska Verkamannaflokks- ins. Guðmundur Einarsson, VEÐRIÐ í DAG Eftir stinningskalda eða allhvassa suð- og suðaust- læga átt og rigningu á að hafa stytt upp og lægt í nótt þannig að ríkjandi verður suðvestan gola og 12-14 stiga hiti um miðjan dag. fyrrverandi framkvæmda- stjóri Alþýðuflokksins sá um framkvæmd fundarins og stýrði honum. Svíinn, Christ- er Ahlén, er formaður sam- starfsnefndar jafnaðarmanna á Norðurlöndum, SAMAK og ræddi Alþýðublaðið við hann að fundinum loknum. Við byrjuðum á að spyrja Christer hvort framkvæmda- stjórar Jafnaðarmannaflokk- anna á Norðurlöndum hittust oft. „Já, við hittumst reglulega þrisvar til fjórum sinnum á ári og nú var komið að íslandi að halda fundinn.” — Hvaö var þad helsta sem þiö rœdduö um á þessum fundi hér í Reykjavík? „Það voru ýmis mál. Eitt af því mikilvægast sem við ræð- um á þessum fundum okkar er pólitískt ástand í hverju landi fyrir sig. Það er afar mikilvægt að skiptast á upp- lýsingum. Auk þess ræddum við undirbúning þings nor- rænna jafnaðarmanna sem verður haldið i april á næsta ári í Helsinki”. — Þú ert framkvœmdastjóri SAMAK. Fyrir hvaö stendur SAMAK? „SAMAK er samstarfs- nefnd norrænna jafnaðar- manna. Þar taka þátt nor- rænu jafnaðarmannaflokk- arnir, þ.e. frá Islandi, Dan- mörku, Noregi, Svíþjóð og Finnlandi auk flokkanna á Grænlandi, Færeyjum og Álandi. Þetta eru flokkarnir en síðan taka verkalýðshreyf- ingar á Norðurlöndum einnig þátt í samstarfinu”. — Gefst einhver tími til aö sinna ööru en fundinum? „Við komum á sunnudaginn og þá gafst okkur tækifæri á að hitta félaga okkar hér í Reykjavík. Á mánudags- kvöldið hittum við formann Alþýðuflokksins, Jón Baldvin Hannibalsson og ýmsá aðra úr röðum flokksins". —■ Hverja telur þú þýöingu samstarfs jafnaöarmanna- flokka og verkalýöshreyfinga á Noröurlöndum? „Það hefur sýnt sig að hafa óhemju mikla þýðingu á tveimur sviðum. I fyrsta er það sem snýr að Norðurlönd- unum innbyrðis þ.e.a.s. okkar eigin löndum og samstarfi Norðurlanda. Þar hafa jafn- aðarmenn verið, eru og munu verða hið leiðandi pólitíska afl. Og það eru okk- ar hugmyndir sem koma til með að setja mark sitt á þró- un samfélaga Norðurlanda- þjóðanna. í öðru lagi hefur það sýnt sig að hugmyndir okkar nor- rænna jafnaðarmanna og reynsluheimur hefur miklu hlutverki að gegna í þeim samvinnu- og sameiningar- hugmyndum sem uppi eru í Vesturevrópu. Þar er brýnt að félagslega víddin beri ekki skarðan hlut frá borði og að samvinna EFTA og EBE og innri markaður Efnahags- bandalagsins taki ekki ein- vörðungu mið af þörfum fjár- magnsins og lögmálum þess. Því höfum við lagt áherslu á að samstarfið nái einnig til fólksins og um gagnkvæm réttindi þess og skyldurinnan vébanda Vesturevrópu". —- Og aö lokum. Nœr sam- starf SAMAK til fleiri sviöa? „Já, þar má nefna tvö önn- ur viðfangsefni sem er vert að geta um. Það er hvernig við getum staðið betur að ýmsum félagslegum málum eins og barnauppeldi, fræðslu- og heilbrigðismálum og öldrunarmálum. Hinn hluturinn er hvernig við get- um starfað betur saman að umhverfismálum á Norður- löndum. Þar hefur SAMAK unnið að því að samhæfa vinnu norrænna jafnaðar- manna á því sviði".

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.