Alþýðublaðið - 18.08.1989, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 18.08.1989, Blaðsíða 3
Föstudagur 18. ágúst 1989 3 Alþýöubankinn eykur hlutafé veqna bátttöku í íslandsbanka: Almenningi gefst kostur á að kaupa nlutabréf Núverandi eigendur hafa forkaupsrétt til 30. september. Ásmundur Stefánsson, bankaráösformaöur, segir að mik- ill áhugi sé fyrir hendi. Ásmundur Stefánsson formaður bankaráðs Alþýöu- bankans og nýja íslandsbanka segist gera ráð fyrir því að verkalýðsfélögin gefi einstaklingum kost á aö taka þátt í hlutafjáraukningu vegna þátttökunnar í íslands- banka. Hlutur Alþýðubankans í jafnmikill og hinna bank- Islandsbanka á að verða anna tveggja eða 833 millj- ónir króna. Til að fullnægja þessu þarf Eignarhaldsfé- lag Alþýðubanka að auka hlutafé um 380 milljónir króna. Að sögn Ásmundar Stefánssonar formanns bankaráðs íslandsbanka og Alþýðubanka hefur hlut- höfum í Alþýðubanka verið skrifað bréf og eiga þeir for- kaupsrétt í hlutfalli við eign sína í bankanum í dag fram til 30. september. „Við höf- um líka skrifað verkalýðs- félögum sem ekki eiga hlutabréf í bankanum í dag og til lífeyrissjóða innan okkar vébanda og sagt þeim frá hlutafjárútboð- inu.“ Ásmundur sagði að gert væri ráð fyrir að hlutfjár- kaupin yrðu úr þremur átt- um. Ljóst væri að hlutabréf- in væru góð markaðsvara, þar sem traust tiltrú væri á nýja bankanum. „Ég geri ráð fyrir að ýmis félög muni gefa félagsmönnum kost á að kaupa hlut. Það munum við væntanlega gera líka, þ.e. Alþýðusam- bandið sjálft, að gefa félags- fólki sem einstaklingum kost á að kaupa hlut í bank- anum.“ Auk einstaklinga munu verkalýðsfélögin auka sinn hlut og einhver ný taka þátt í hlutafjáraukningunni. í þriðja lagi nefndi Ásmund- ur að búast mætti við áhuga lífeyrissjóðanna. FRÉTTASKÝRING Tilmœli Hafrannsóknarstofnunar hafa: ALVARLEG ÁHRIF Á ATVINNULÍFIÐ Það á ekki af okkur mörlöndum aö ganga. Ömurleg- ur vetur, andstyggilegt rigningasumar og nú sjáum við fram á alvarlegan aflabrest. Þ.e.a.s. ef þorskseiði nokk- ur, sem á unga aldri voru svo „lánsöm að reka burt úr vesöldinni við íslandsstrendur," gera okkur ekki þann greiða að snúa aftur til að láta okkur veiðasig og selja. Nú vantar ekkert nema suðurlandsskjálfta og svarta- dauða. En það má ekki grínast með þetta því þetta er í rauninni grafalvarlegt mál. Þorskurinn hefur lengi ver- ið okkar helsta tekjulind. Nú hefur Hafrannsóknar- stofnun komið fram með tölur sem sýna fram á að við höfum ekki gætt okkar nógu vel og nú verðum við að draga saman seglin ef ekki á illa að fara. Þorkstofninn er nú í dag mældur í tonnum eitthvað nálægt einni milljón. Ef haldið yrði áfram sama aflahámarki, sem undan- farið hefur verið eitthvað nálægt 350 þús. tonnum þá mun stofninn minnka niður í 840 þús. tonn á næstu þremur árum. Þarna er því farið að ganga verulega á höfuðstólinn, og það kann aldrei góðri lukku að stýra. Minnsti afli f sextán ár Því má ekki gleyma að þarna er ekki gert ráð fyrir því að Grænlandsgangan fræga skili sér á heimaslóð- ir. Þess vegna mælist Haf- rannsóknarstofnun til þess að aflahámark á þorski verði árin 1990 og 1991 hundraðþúsund tonnum lægra en nú, eða 250 þús tonn. Þorskveiðar íslend- inga hafa ekki farið niðrí 250 þús. tonn síðan 1974, og ef með eru taldar veiðar annarra þjóða þá hefur þorskafli á íslandsmiðum ekki farið niður fyrir 250 þús. tonnin síðan 1947. Hvað hefur þetta að segja fyrir okkur íslendinga. Fimm milljarða króna tap segir DV, tíu til tólf mill- jarða króna tap segir Morg- unblaðið. Alvarlegastar eru þó afleiðingarnar sem þetta kemur til með að hafa á atvinnu í sjávarplássum landsins. Álþýðublaðið hafði samband við Þóru Hjaltadóttur forseta Al- þýðusambands Norður- lands og spurði hana hvernig henni litist á ástandið ef nauðsynlegt reynist að grípa til þessa mikla samdráttar. Minnsti afli í sextán ár „Þetta er hrikalegt áfall miðað við hvað ástandið hefur verið bágborið að undanförnu," segir Þóra „en aftur á móti held ég að þeir hjá Hafrannsóknar- stofnun séu einmitt þeir að- ilar sem geta sagt til um hvað má veiða. Við verðum að átta okkur á því að hafið er auðlind sem ekki má taka of mikið úr til að hún geti endurnýjað sig eðli- lega. En auðvitað er þetta mjög erfitt á meðan á þessu stendur. Það er svo mikil fylgni milli sjávaraflans og atvinnunnar að þetta þýðir Ijóslega atvinnuleysi." Um áhrif þessa samdrátt- ar á byggð út á landi sagði Þóra að fólk gæti ekki búið út á landi nema að hafa at- vinnu. En inní það kemur að fólk er með allar sínar eigur á þessum stöðum. „Það er kannski hægt að fara með togarana í burtu en það er ekki hægt flð fara með húsin," sagði Þora að lokum. Fiskskortur nú þegar fyrir hendi_____________ Karl Steinar Guðnason alþingismaður og formað- ur verkalýðs og sjómanna- Hafrannsókn mælist til þess að aflahámark á þorski verði árin 1990 og 1991 hundrað þúsund tonnum lægri en nú, eða 250 þús- und tonn. Þorskveiðar íslendinga hafa ekki farið niðrí 250 þúsund tonn síðan 1974, og ef meö eru taldar veiðar annarra þjóða þá hefur þorskafli á íslandsmiðum ekki farið niður fyrir 250 þús. tonn síðan 1947. félags Keflavíkur sagði það að svona niðurskurður hlyti að hafa mjög alvarleg áhrif, en það væri spurning hvort að ekki hefði ennþá meiri áhrif á atvinnustigið þær endalausu siglingar skipa með óunninn fisk úr landi. Karj Steinar benti á skýrslu LÍÚ sem birt var um daginn og sýndi hvað þess- ar siglingar væru i raun miklar, á meðan fólk sæti verklaust, og t.d. í Keflavík væru það um hundrað manns sem hefðu verið at- vinnlausir í allt sumar. „Það skortir mjög fisk,“ sagði Karl Steinar ennfrem- ur. „Menn æpa á fisk til að vinna og gera úr meiri verðmæti. Samt viðgang- ast þessar siglingar með afl- ann óunninn. Á þennan hátt er útlendingum bein- línis hleypt inní landhelg- ina. Fyrst finnst mér að menn eigi að hafa áhyggjur af þessu og því atvinnu- lausa fólki sem er fyrir hendi og svo kemur að því að svara hinu. Það verður almennt verkafólk sem fyrst geldur fyrir svona aflasamdrátt, og ástandið verður alvarlegra ef þetta gerist sem verið er að spá. En fyrst finnst mér að við ættum að hreinsa til í tún- garðinum," sagði Karl Steinar Guðnason formað- ur verkalýðs og sjómanna- félags Keflavíkur. Undir Grænlands- göngu komið_____________ Tilmæli Hafrannsóknar- stofnunar verða endur- skoðuð í kringum næstu áramót. Þá verður hægt að gera sér einhverja grein fyrir því hvort þessi árgang- ur fisks, sem rak sem seiði yfir að Grænlandsströnd- um árið 1984, skili sér aftur til síns heima. Svipuð staða kom upp ár- ið 1973 en sá árgangur skil- aði sér aftur árin 1980 1981. Komi þessi ’84 árgangur til með að skila sér í jafnríkum mæli, þá er ekki þörf á neinum samdrætti. Þá mætti jafnvel að ósekju veiða meira en nú er gert. En í þessu sambandi verður að hafa í huga að uppistaðan í þorskstofnin- um við Grænland er þessi eini árgangur frá 1984. Miklar veiðar þar myndu stórlega draga úr líkum á sterkum Grænlandsgöng- um á íslandsmið árin 1991 og ’92. Grænlendingar hafa nú þegar veitt úr þessum stofni. Þangað til annað kemur í ljós verðum við hinsvegar að gæta okkar að ofveiða ekki þorskinn, þrátt fyrir tímabundin óþægindi sem af því leiðir. Aðrar tegundir komast ekki með tærnar þar sem hann hefur hælana í verðmæti fyrir okkur sem þjóð og ef að gengið væri aívarlega á hann á næstu árum, til að firra okkur tímabundið vandræðum, þá er það svoleiðis með allt í náttúrunni, sem og ann- arsstaðar, að það kemur alltaf að skuldadögunum. Magnús Árni Magnússon

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.