Alþýðublaðið - 18.08.1989, Blaðsíða 6
6
Föstudagur 18. ágúst 1989
SMAFRÉTTIR
Eggert Péturs-
son sýnir í
Galleríi
Sævars Karls
í Galleríi Sævars Karls, Banka-
stræti 9, stendur yfir sýning Egg-
erts Péturssonar. Á sýningunni
eru 6 málverk unnin á þessu ári.
Eggert stundaði nám í Mynd-
lista- og handíðaskóla íslands frá
1976—79 og við Jan Van Eyck
listaháskólann í Maastricht frá
1979—81.
Hann hefur haldið fjölda einka-
sýninga heima og erlendis. Auk
þess hefur Eggert listilega
myndskreytt bækur um plöntur
og náttúrufræði. Sýningin
stendur til 8. september og er
opin á sama tíma og verslunin í
Bankastræti 9.
Sýning
Leombianchi
framlengd
Fimmtudaginn 20. júlí sl. var
opnuð sýning á teikningum og
grafík ítalska listamannsins Giov
anni Leombianchi í Gallerí Mad-
eira, sem staðsett er í húsakynn-
um Ferðaskrifstofunnar Evrópu-
ferða að Klapparstíg 25, 3. hæð.
Sýning Leombianchi hefur verið
framlengd til 25. ágúst.
Giovanni Leombianchi er
staddur hér á landi við laxveiðar,
en hann hefur komið hingað
tvisvar á sumri árlega frá árinu
1979 í þeim erindagjörðum.
Teikniblokkin er ávallt með í
för og eru á sýningunni myndir,
sem hann hefur teiknað við
Grímsá og Norðurá í Borgarfirði.
Á sýningunni er auk þess sería
af myndum, sem Giovanni teikn-
aði á Galapagos eyjum auk
nokkurra grafíkmynda unnar
með „Releifografíutækni."
Giovanni hefur áður sýnt á ís-
landi, í Listamiðstöðinni við
Lækjartorg árið 1984.
Skaftfellingur
kominn út
Ritið Skaftfellingur — þættir
úr Austur—Skaftafellssýslu, 6.
hefti, er nýlega komið út á
Höfn í Hornafirði. Skaftfellingur
er héraðssögurit sem komið
hefur út annað hvert ár síðan
1978 og er gefið út af Austur-
Skaftafellssýslu.
Meðal efnis í ritinu nú má
nefna þátt um raforkumál í
sýslunni eftir Pál Þorsteinsson
fv. alþingismann, þætti um
Skarphéðinn Gíslason á Vagns-
stöðum og Sigurð Jónsson á
Stafafelli og störf þeirra, um
leikstarfsemi á Mýrum, tvær
greinar um uppskipun á vörum
í Öræfum, um Eddustrandið
1934, um ferðir yfir Skeiðarár-
sand o.fl. Auk þess eru í Skaft-
fellingi annálar úr öllum 6
hreppum sýslunnar.
Skaftfellingur er að þessu
sinni óvenju ríkulega mynd-
skreyttur og hafa margar Ijós-
myndanna aldrei birst áður.
Ritnefnd Skaftfellings skipa
Sigurður Björnsson (ritstjórij,
Páll Björnsson, Guðbjartur Óss-
urarson og Zophonías Torfason
en dreifingu ritsins hefur Gísli
Sverrir Árnason Hrísbraut 10,
780 Höfn (s:97—81678) með
höndum en auk nýja heftisins
er hægt að fá flesta eldri ár-
ganga hjá honum. Nýja heftið
kostar 1200 krónur.
Tveir nýir
prófessorar
skipaðir
Forseti íslands hefur að til-
lögu menntamálaráðherra skip-
að Önnu Soffíu Hauksdóttur,
Ph.D., prófessor í rafmagns-
verkfræði á sviði tölvufræða
við verkfræðideild Háskóla ís-
lands frá 1. júlí 1989 að telja.
Ennfremur hefur forseti Is-
lands að tillögu menntamála-
ráðherra skipað dr. Ragnar
Árnason prófessor í fiskihag-
fræði við viðskipta- og hag-
fræðideild Háskóla íslands frá
1. ágúst 1989 að telja.
Brjóstmynd
afhjúpuð af
Gunnari
Gunnarssyni
Sunnudaginn 20. ágúst nk.
mun menntamálaráðherra Svav-
ar Gestsson afhjúpa brjóstmynd
af Gunnari Gunnarssyni og af-
henda listamanns- og fræði-
mannsíbúð í húsi Gunnars
Gunnarssonar að Skriðuklaustri.
Ráðherrann afhendir fulltrúa
Safnastofnunar Austurlands
íbúðina og fyrsti notandi hennar
verður Sveinn Skorri Höskulds-
son prófessor.
í ár eru liðin eitt hundrað ár frá
fæðingu skáldsins. Þess hefur
verið minnst á margvíslegan
hátt. 19. maí sl. á fæðingardegi
skáldsins, var á vegum mennta-
málaráðuneytisins hátíðardag-
skrá í Þjóðleikhúsinu. Á M-hátíð
á Austurlandi í sumar hefur verið
flutt efni úr verkum Gunnars
Gunnarssonar.
Kl. 16.00 á sunnudaginn verð-
ur gestum boðið að hlýða á dag-
skrá og þiggja veitingar í félags-
heimilinu Végarði í boði mennta-
málaráðuneytisins.
Dagskrá samkomunnar í Vé-
garði verður: Samkoman sett:
Theodór Blöndal, formaður und-
irbúninqsnefndar. Einleikur á
flautu. Ávarp menntamálaráð-
herra Svavars Gestssonar. Ávarp
fulltrúa fjölskyldu Gunnars
Gunnarssonar. Erindi: Sveinn
Skorri Höskuldsson. Upplestur
úr verkum Gunnars Gunnarsson-
ar. Erindi: Sigurður Blöndal,
skógræktarstjóri. Samlestur úr
verkum Gunnars Gunnarssonar.
Samleikur: Flauta og píanó. Þá
verður gestum boðið að skoða
Skriðuklaustur. Stjórnandi sam-
komunnar verður Helgi Seljan
fyrrverandi alþingismaður. Allir
eru velkomnir á dagskrána í Vé-
garði meðan húsrúm leyfir.
* Krossgátan
□ 1 ' *v 2 hílB cr. ■ 4 ■’•
5801 5 'c l : v
6 n, □ 7
5“ 9 *
10 □ 11
□ 12 V .
13 □ □
Lárétt: 1 eyjur, 5 sleipur, 6
hraði, 7 til, 8 kjarr, 10 lengdar-
mál, 11 kúga, 12 borðandi, 13
ákveðin.
Lóðrótt: 1 rámum, 2 reimin,
3 eins, 4 tómrar, 5 sorg, 7
stækkuð, 9 brúki, 12 pípa
Lausn á síðustu kross-
gátu.
Lárétt: 1 ganga, 5 Alla, 6 tel,
7 kg, 8 vistir, 10 ið, 12 æfur, 13
sárar.
Lóðrétt: 1 gleið, 2 alls, 3 átt,
4 angrar, 5 atviks, 7 kisur, 9
tófa, 12 ær
RAÐAUGLÝSINGAR
Fjórðungssjúkrahúsið
á Akureyri
FJÖRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ
Viljum ráöa fóstru í fullt starf á barnaheim-
ilið Stekk frá 1. september n.k.
Nánari upplýsingar veita Sigurjóna Jó-
hannesdóttir, forstöðukona og Sonja
Sveinsdóttir, hjúkrunarframkvæmdastjóri.
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri,
sími 96—22100.
okki oKusmneiniö neiaur!
Hvert sumar er
margt fólk í sumarleyfi
tekið ölvað við stýrið.
UMFERÐAR
RÁÐ
FRÁ MENNTASMKÓLANUM
VIÐ HAMRAHLÍÐ
Kennsla vegna loka vorannar 1989 hefst mánudag-
inn 28. ágúst í dagskóla og öldungadeild. Dagskóla-
nemendur koma í skólann kl. 8.00 og fá afhentar
stundatöflur; öldungadeildarkennsla hefst kl. 17.30
samkvæmt stundatöflu sem afhent var í vor og
liggurframmi á skrifstofu skólans. Próf verða haldin
í báðum deildum skólans 8.—14. september.
Deildarstjórar verða til viðtals fyrir nemendur'
fimmtudaginn 24. ágúst kl. 13—15. Nánar auglýst í
anddyri skólans.
Kennarafundur verður haldinn mánud. 21. ágúst kl.
13.00.
Haustönn hefst mánudaginn 18. september.
DAGSKÓLI:
Nýnemar koma í skólann þann dag kl. 8.00. Þá fá
þeir afhentar stundatöflur gegn greiðslu skóla-
gjalda.
Eldri nemendur dagskóla eru boðaðir í skólann
föstudaginn 15. sept. kl. 13.00. Mjög áríðandi er að
allir komi á þeim tíma.
ÖLDUNGADEILD:
Innritun og val nýrra og eldri nemenda fyrir haust-
önn 1989 ferfram í skólanum 5., 6. og 7. september
kl. 16—19. Þá verður nemendum leiðbeint við val
námsgreina og stundatöflur afhentar gegn greiðslu
skólagjalda.
Rektor
Þjóðarbókhlaðan
Tilboð óskast í tæki í loftræstirými og frágang
þeirra í húsi Þjóðarbókhlöðunnar við Birkimel.
Verkinu skal að fullu lokið fyrir 15. janúar 1990.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Borgar-
túni 7, Reykjavík, til og með 25. ágúst 1989 gegn
10.000.- kr. skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á sama stað fimmtudaginn 31.
ágúst 1989 kl. 11.00.
INNKAUPASTOFNUN RIKISINS
Borc;a::uni 7 slfT'i 268JJ
Rauður:
þríhymingur
= Viðvörun
Gera aukaverkanir lyfsins
sem þú tekur þig hættulegan
i umferðinni?
UXEnou'