Tíminn - 28.02.1968, Blaðsíða 3

Tíminn - 28.02.1968, Blaðsíða 3
*i» F\- \». r, r -'\ , r ,7> MTOVIKUDAGUR 28. febróar 1968. TÍMtlfN Þannig er umhorfs vi3 fjölmarga sumarbústaSi ofan vi3 Reykjavík. Þeir eru umflotnir vatnl og á mörgum þelrra nær vatnsbor3i3 allt upp a3 gluggum. Ekki er heldur fáséö’ aS bílar eru umflotnir og margir á kafi í vatni. Þessi mynd er tekin í Selási viS ána BugSu. Tímam. GE. U'ninta að bjíörgun Sveins, mifela VEGIR OG BRÝR I KAFI Elliðaárbrúnum lokað Umferð ytfir Elliðaárbrýrnar lokaðist í kvöld um kl. 21 vegna flóðanna, sem sífellt hafa auk- izt í allan dag. Elliðaárnar eru eins og beljandi stórfljót og hafa flóðin valdið gífurlegum skemmdum á vegum og eignum manna. Vegurinn austur fyrir fjall lokaðist um hiádegisbilið í dag. Flæddi þá yfir á Sand- skeiði og Hólmsá flæddi yfir bakkana við brúna ofan við Geitiháls. Bærinn Gunnars'hólmi var umflotinn vatni og fjöldi sumarbústaða ofan við Elliða- vatn voru að meira og minna leyti undir vatni. Óttazt er að stiflurnar í Elliðaánum bresti þá og þegar og þá má búast við að Elliðaárbrúnum skoli burt, en ofan við stíflurnar er mikiU jakaburður. f dag var sprengd rauf í syðri enda neðri stíflunnar og var vonazt til að það mundi minnka vatnsálagið eitthvað. Stóri borinn í vatni Strax í morgun voru Elliða- árnar famar að renna yfir vegi sem liggja meðfram þeim, og einnig var vatnsflaumurinn far inn að grafa undan veginum við brýrnar. Þegar leið á dag- inn var vatnið sivo mikið að yfirfoorðið náði upp að brúar- gólfunum. Veiðimannasfeáli Raf veitunnar var umflotinn vatni og eins stóri foorinn, sem uun- ið var með þar rétt fyrir ofan, á eyrinni sem þar er millí ánna. Bílar í kafi Eltiðavatnið flæddi ómælt yfir efri stífluna og Vatnsenda vegur var á kafla alveg foorf- inn Hndir straummn. Gamla brúin, sem þarna er, var kom- in á fcaf í fevöld og vegurinn að henni sundurgrafinn. Sumar bústaðir á þessu svæði eru margir umflotnir vstni. Neðar með ánni var hún farin að grafa undan húsum, sem áður stóðu nokkurn spöl frá bakk- anum. Þar voru einnig nokkrir bílar hálfir á kafi. 100 hestar í vatni Rúmlega 100 hestar eru lok- aðir inni í húsum í svokölluð- um „Kardimommubæ", sem er við Elliðaámar rétt neðan við vatnið. Þama hafði fjöldi besta eigenda byggt yfir gripi sína og standa húsin nú umflotin vatni og beljar kolmórauð áin beggja vegna húsanna. Er stór hættulegt að reyna að komast að hestunum, og lá reyndar við slysi í dag er einn hestaeig- enda var gri-pinn af straumn- um er hann var á leið að vitja hesta sinna og var honum naum lega bjargað. Nokkrir þeirra manna, sem þarna eiga 'hesthús fóru þegar snemma í morgun til að bjarga hrossum sínum. f hádegisút- varpi voru þeir, sem þarna eiga hesta Iátnir vita að hesthúsin væru umflotin vatni og ættu þeir ekki að draga að koma þeim á þtirrt land. Þá mættu nokkrir hestaeigendur til við- bótar og tókst að koma nokkr- um hestanna í land. Gekk þó erfiðlega því þeir voru hrædd ir í straumnum, enda ekki van ir stórflóðum. Dýpið var víða sivo mikið að sundriða varð hestunum yfir. Enn eru yfir 100 hestar úti á flóðasvæðinu og verður gerð tilraun til að ná þeirn snemma í fyrrajsaáiið. Mun-u þá meðlimir úr slysavarn ardeildinni Ingólfux aðstoða við fojörgunina .Ekki mun vera mikið vatn inni í sjálfum hest- húsunuro og hestunum ekki hætta búin, nema að enn foækki mikið i ánum. En foeir eru hræddir og líður skepn-unum illa að standa í vatni, og heyra vatnsbeljandann lemjast á hús unum. . Á leið til að kenna björgun Hestaeigendurnir, sem kom- ust til hesta sinna síðari hluta dags fór-u vifir á stórum og háhjóluðum bíl. Gáfu þeir hestunum. en treystust ekki til að koma þeim yfir strauminn til baka. í einni ferðiuni fest- ist bíliinn og flæddi vatnið upp i bílinn miðja-n. Hœgt var að ná honum á land með aðstoð bíls sem er í eigu Slysavarnar- íélagsins. í þeim bíl voru þeir Hannes Hafstein fulltrúi og Jón Alfreðsson, Voru þeir á ferð austur fyrir fjall í erind-um Slysavarnarf él a gsins. Ætluðu þeir að sýna þar notkun björg- unartækja og kenna björgun úr dauðadái. Við Hólmsá urðu þeir að snúa aftur, þar sem vegurinn þar er ófær. Fóru þeir á þann stað sem hestamenn voru að reyna komast til hesta sinna. Var þá bdllinn fastur úti í straumnum og voru menn irnir sem í honum voru dregnir á línu í land. Lífgaður við Um klukfcan 16 var einn hesteigienda, Siveinn Kristjáns- son, bíllstjóri, vaðandi 4 leið til landis, foegar straumurina hreif hann og færði á kaf. Biarst Sveinn á annað hundrað metra áður en tókst að ná honum. Voru þá um 40 manns á bakk- anum, og óð einn maninianna í átt tól Sveins og tókst eftir að hafa synt ocg vaðið á eftír hon- um nofekurn sþöl, a@ ná taki á foomuim og halda honum upp úr. Annar maður reið á móti þeim og tókst að koma Sveini á land. Var haam þá rænulaus og mjög þrekaður. Strax og hann kom á land hóf Hannes Hafstiein liífgunartilrauntir með blástursaðferð. Var Sveinn þá orðinn kaldur og stifur. Bráð- lega fœrðist líf i manninn og var hann fluttur á Slysaivarð- stofuna og þaðan á Lamdafcots- spítala. Sýndu aldiir þeir, sem dinflsku og snarræði. MeSal þeirra, sem horfðu á, þegac hann hvarf í strauminn, var eigiinkona hans, sem ætlaði að aðstoða h-ann við að ná í heet- ama. Framhald á bls. 4. VEÐRIÐ Veðurstofan spáir áfram- haldandi úrkomu og hvass- viðri svo að enn má búast við að flóðin á Suður- og Vesttirlandi aukist, og er þó ástandið víðast hvar slæmt fyrir. Páll Bergþórsson, vcður- fræðingur, sagði Tímanum svo frá í kvöld, að alla síðast liðna nótt hafi vindur og úr- koma farið vaxandi allt fram á morgun. Voru þá um 9 vindstig víðast livar á land- inu og einstöku vindstraum- ar voru enn harðari. Var rokið 12 vindstig á Hvallátr- um, Hornbjargsvita og á Tjörnesi í morgun. Sunnan- átt ríkti um allt land og voru hlýindin mikil miðað við ái-stíma. Mestur var hit- inn á Siglunesi, 12 stig. í Grímsey, á Raufarhöfn og Galtarvita var 10 stiga hiti í dag. í Reykjavik var 8' stiga liiti og 6 stig á Kirkju- bæjarklaustri. Úrkoman síðasta sólar- hring var mjög mikil á Suð- ur- og Vesturlandi. Mest mældist úrkoman á Þing- völlum eða 87 millimetrar. Á Hveravöllum 70 mm. Höfn í Hornafirði 61 mm. Á Hæli í Hrcppum var úr- koman 57 mm. í Reykjavík var 43 mm. úrkoma. Á svæð- inu frá Akureyri austur um til Dalatanga kom ekki dropi úr lofti síðasta sólarhring. A mesta úrkomusvæðinu var jörð gaddfreðin og vegna hitans varð mikil hláka. Þar sem úrkoman og hlákan fóru saman, höfðu árnar ekki við að skila vatns magninu fram og því víða mikil flóð. í nótt og á morg- un er spáð enn meiri úr- komu og aukast flóðin að sama skapi. Á morgun má búast við að veður fari kóln andi og má þá vera að dragi úr flóðunum. Myndin er af brúnni yfir ElliSaárnar skammf neSan viS efstu stýflu. FlaeSir áin yfir brúna og veginn beggja vegna hennar. MeSfram þessari brú liggja rör Vatnsveitunnar. Ef brúna tekur af er hætta á a3 vatnsrörin brotni. Tímamynd GE.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.