Tíminn - 28.02.1968, Qupperneq 8

Tíminn - 28.02.1968, Qupperneq 8
MIÐVIKUDAGUR 28. febrúar 1968. Júlíus og Gísli Túmassynir f dag fer fram frá Fríkirkj-i unni í Reykjavík útför bræðranna Júlíusar og Gísla Tómassona, sem fórust í flugslysi á Reykjavíkur- flugvelli mánudaginn 19. febrúar s.I. Júlíus var 32 ára að aldri, flugstjóri hjá Loftleiðum. Gísli var 22 ára að aldri og hafði lokið einkaflugmannsprófi, en hafði í hyggju að halda áfram námi og gerast atvinnuflug- maður. JÚLÍUS TÓMASSON, flugstjóri fæddur 9.9. 1936, dáinn 19,2. ’68. Mánudagskvöldið 19. fe'brúar er ein af áhöfnum Loftleiða var ný- komin til Luxemtoorgar og önnur var að búa sig undir flugið út til íslands, barst sú voðafregn, ið Júlíus Tómasson flugstjóri hefði farizt í flugslysi í Reykja- vík. ásamt bróður sínum Gísla, þá fyrr um daginn. Menn setti hljóða og vildu ekki trúa. Þegar ungir og efnilegir menn falla svo skyndilega frá er erfitt að tengja helfregn sem þessa verul'eikanum. Flugliðarnir sem sátu hljóðir þessa kvöldstund úti í Luxemborg áttu margar og góðar minningar um fallinn fé- laga og vin. Þegar hugsað er til liðinna ára líða margar myndir fram í hugann. Ein er mér eink um minnisstæð, hún er úr stjórn- klefa flugvélar, sem er á flugi á vetrarnóttu milli Grænlands og Labrador. Skyndilega verður bil- un í einum hreyflinum og nú ríður á, að fljótt og rétt sé unnið, ef frekari erfiðleikar eiga ekki að skapast. Með hröðum handtökum og samvinnu áhafnarinnar var komið í veg fyrir að svo yrði. Júlíus Tómasson var aðstoðarflug maður minn i þessari ferð og sýndi þá sem endranær, að hann var snarráður. auk þess sem hann var gætinn og fær flugmaður. Júlíus gat sér góðan orðstír í starfi og ávann sér traust og vin- sældir félaga sinna, hann átti lengi sæti í starfsráði og trúnaðarmanna ráði Félags íslenzkra atvinnuflug- manna, og var á síðasta aðalfundi kosinn í stjórn félagsins. Júlíus var fæddur 9. september 1936 í Reykjavík, sonur hjónanna Karenar Jillíu Júlíusdóttur, sem Játin er fyrir nokkrum árurn, og Tómasar Jónssonar bátsmanns. Júlíus lauk námi við Gagnfræða- skóla Austurbæjar árið 1953. Árin 1954—57 vann hann við afgreiðslu störf hjá Loftleiðum og stundaði jafnfrámt flugnám við flugskólann Þyt. Hann hóf störf sem flug- maður hjá Loftleiðum árið '959, öðlaðist réttindi flugstjóra vorið 1965 og gegndi því starfi til dauða dags. Árið 1960 kvæntist Júlíus eftir- lifandi konu sinni Þórunni Jóns- dóttur, börn þeirra eru: Karen Júlía^ 7 ára, Þórunn Brynja 5 ára og Ásta Ragnheiður 4 ára. Son, Runólf Hilmar, átti Júlíus áður en hann kvæntist. Mikill harmur er kveðinn að ungri eiginkonu og börnum, syst- ur og föður. sem misst hefur báða syni sína. Fyrir hönd Félags íslenzkra at- vinnuflugmanna flyt ég þeim öll um og öðrum ættingjum og vanda Um hesta- hvörfin Undanfarið hefur mikið ver- ið rætt um óakilahross, bæði manna á meðal og í blöðuinum. Tilefni þess eru óvanaleg van- höld á hestum, sem hafðir voru í hagagöngu víðs veg-ar í ná- grenni Reykjavíkur og lengra í burtu. Einnig höfðu sumir bændur ekki aliheimt hross sín og höfðu sum þeirra tapazt úr heimahögum, þar sem þau voru fæd'd og uppalin. — Mikil leit var gerð að sumum þessara hrossa, m. a. með flugvélum, og auglýst eftir þeim í blöðurn og útvarpi. Þegar ekkert af þessu bar neinn árangur, geng- ust þeir, sem mest höfðu leitað að hestum sínum, fyrir fundar- haldi til að ræða um tovað hægt væri að gera til að upplýs'a þetta óvanalega hestahvarf. Á þessum fundi mættu flestir þeirra, sem tapað höfðu hestum sínum og einnig voru þar blaða menn, sem gerðu sér góðan mat úr þeim efniviði, sem þarna var að fá. Til dæmis eiin fyrir- sögnin þannig: „14 gæðingum stolið á síðasta ári?“ og síðan taldir upp 10 þessara „gœð- inga“ og getið um eigendur þeirra. Reyndar voru sumir gæðingarnir litt tamdir og þar á meðal veturgömul hryssa og önnur tvævetur og því ekki fullséð um gæðmgshæfini þeirra! Sögusagnir höfðu gengið um það, að alls vantaði 20 til 30 hesta á fullar heimtir hér suð- vestanlands og að sjálfsögðu ýmsum getum að því leitt, hvað valda myndi. T. d. gekk sú saga nokkuð víða, að einn mað: ur hefði lagt inn í sláturhús síðastl. haust um 20 hross, en ekiki hefði verið vitað, að hanm hefði átt nema 2 eða 3 og hann myndi eiga þau enn! Sagt var, að hann hefði aldrei komið Tíð hvörf hrossa undanfarið hafa vakið athygli. með nema eirun hest í einu, svo að þetta liti sakleysislegar út. Enginm vissi þó hver mað- urinn var og var þess varla von, því að við eftirgrennslan kom í ljós, að þessi saga var með öllu tilhæfulaus og engin lfkindi til að um meitt misferli gæti verið að rœða við inniegg sláturhrossa á síðastliðnu hausti. — Fleiri sögur af svip- uðu tagi murnu hafa komizt á kreik en engin þeirra þess verð að getið sé, því þögnin og gleymskan geyma þær bezt. Síðan farið var að ræða um einihverjar sameiginlegar að- gerðir til að reyinu að upplýsa þessi „dularfullu“ he&tainvörf haf'a nokkrir hestanna komið fram og meðal þeirra þeir þrír, sem mest leit -hafði verið gerð að. — Og líkindi eru til að fleiri muini koma í leitirnar nú á nœstunni. — Varla er þó við því að búast að allir þessir 14 hestar komi fram. Ýmislegt get ur orðið hestum að aldurtila og eru Skurðirnir þar hættuleg- astir. Þegar hestar hverfa af skurðuðu landi er þó vanalega gengið úr skugga um að þeir hafi ekki farið í skurði á því svœði, sem þeir hafa haldið sig, em slíkar hættur eru víðar og bættulegastar á ókunnum slóðum. — En yfirleitt hefur of mikið verið gert úr þessum hrossahvörfum, því að í flest- um tilfellum mu,n vera um misgrip að ræða vegna athug- unarleysis og stuindum um sam verkandi mistök á hinn furðu- legasta hátt. Hestamir og „hægri“-umferðin. Áður hefur verið að því vik- ið í þessum pistlum, hver hlut- ur hestamainna yrði í þeirri gerbyltingu á umferðarvenjum sem innleidd verður á kom- andi vpri. — Vissulega verða hestarnir þar nokkurt vanda- mál og ekiki hjá því komizt að takia það til nokkurrar gaum- gœfni. — Forsvarsmönnum um- Framihald á bls. 13 HESTAR OG MÉNN mönnum innilegustu samúðar- kveðjur. Júdíus féll ungur í valinn og við hugsum til hans með söknuði, er hann hefur lagt upp í sína hinztu ferð, en minningin um góð- an dreng lifir. Að leiðarlokum þakka ég þér Júlíus fyrir samfylgdina. Skúli Br. Steinþórsson. f Kveðja til vinar .... Á stundu sem þessari er svo margs að minnast, en manni verð ur orða fátt. Okkur langar til að þakka þér Gísli Tómasson vináttu þína og þær mörgu bjðrtn stundir, sem þú hefur gefið oks- ur. Minningin * um góðan dreng verður okkur alltaf björt og fögur, því að þú varst ævinlega glaður og léttur í lund og í þínum félagsskap var alltaf gott að vera. Nú er stórt skarð höggvið í hóp náinna vina, — skarð, sem aldrei verður fyllt. Lífsgleði þín, trygg- lyndi þitt og traustleiki vekja okkur þær endurminningar, sem geymast munu ævilangt. Með þessum fátæklegu orðum kveðjum við þig, kæri vinur og þökkum þér samfylgdina. Guðs blessun fylgi þér og minningu þinni. Óskar og Fróði. ★ Magnús H. Gíslason flutti í efri deild í gær jómfrúræðu sína á Alþingi. Mælti hann I efri deild fyrir frumvarpi er hann flytur tnn heykögglavinnslu- og fóðurbirgðastöðvar. Verður meginefni ræðn Magnúsar birt í Þingsjá blaðsins á sunnudag. ★ Minkurinn var tekin til 2. umræðu í neðri deild í gær. Lanð- búnaðarnefnd deildarinnar hafði klofnað um máiið eins og vænta mátti. Lagði nú meirihlutinn til að málinu yrði vísað til ríkisstjómar innar, en minnihlutinn vill samþykkja frumvarpið um að leyft verði minnkaeldi hér á landi að nýju. j ★ Benedikt Gröndal mælti fyrir áliti meirihlutans en Jónas | Pétursson fyrir áliti minnililutans. Mesta athygli vakti ræða Áshergs ; Sigurðssonar, sem nú á sæti á Alþingj í stað Sigurðar Bjamasonar. i Var þetta jómfrúræða hans og full af upplýsingum um þróun minka- | eldis í heiminum undanfarna áratugi. Mælti Ásberg eindregið með því að minkaeldi yrði leyft að nýju hér á landi og taldi að það mundi verða til mikils stuðnings fyrir hinar dreifðu hyggðir, frysti iðnaðinn og landbúnaðinn og færði fyrir því sterk rök. ★ Umræðunni um minkafrumvarpið var lokið en atkvæðagreiðslu um málið frestað. ★ Einar Ágústsson hefur borið fram fyrirspurn til menntamála- ráðherra um starfsaðstöðu tannlæknadeildar háskólans. Er fyrir- Framhald á bls. 15. Auglýsing til símnotenda í Kópavogi Frá 1. marz 1968 verður innheimta símareikn- inga fyrir símnotendur í Kópavogi til afgreiðslu í Póstafgreiðsulnni að Digranesvegi 9, Kópavogí. Afgreiðsia daglega kl. 9—18, nema laugardaga kl. 9—12. Þó geta þeir símnotendur, sem þess óska, greitt símareikninga sína í Innheimtu lands símans 1 Reykjavík, gegn sérstakri kvittun og verða fylgiskjölin síðan póstlögð til viðkomandi símnotenda. BÆJARSÍMI REYKJAVÍKIIR

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.