Tíminn - 03.03.1968, Page 1
r
24síður
Gerizt áskrifendur að
Tfmanum.
Hringið í síma 12323
ft9t
53. tbl. — Sunnudagur 3. marz 1968. — 52. árg.
Auglýsing í Tímanum
kemur daglega fyrir augu
80—100 þúsund lesenda.
Fuiltrúar stjórnar og byggingarnetndar Norræna hússins, TaliS f. v. Halldór Laxness, Ivar Eskeland, Ármann Snævarr, Ragnar Meinanser, Eigil
Thrane, Gunnar Hoppe og Sigurður Bjarnason.
Rekstrarkostnaður N-hússins áætlaður 4 millj. næsta ár
ÍSLAND GREIÐIR 1%
GÞE-Reykjavík, laugardag.
Stjórn og byggingarnefnd Nor
ræna hússins hafa haldið fundi
hér í Rcykjavík, að undanförnu,
og hefur verið rætt um áfram-
haldandi fran;kvæmdir við hús-
ið, kostnaðaráætlun og framtíðar
starfsemi. Það kom fram á blaða
mannafundinum, að vegna gengis
fellingarinnar í haust mun heild
arkostnaður við byggingu húss
ins verða allt að 3 milljón krón
um hærri en ráð var fyrir gert
í ágústmánuði eða 41 milljón.
Stefnt er að því að ljúka fram
kvæmdum við Norræna húsið fyr
ir 1. júní n. k. en oltið getur
á ýmsu, hvort það verður. Ekki
' hefur að heldur verið ákveðið
hvað verður gert til hátíðabrigða,
þegar húsið verður vígt.
Þá hefuT stjórn hússins gert
kostnaðará-ætlun fyrir þetta ár
og tvö næstu. Fyrir næsta ár er
gert ráð fyrir k. 4 milljónum
í reksturskostnað og skiptist hann
niður á þjóðirnar eftir höfðatölu
reglunni. Danmörk greiðir 23%,
Finnland 22% ísland 1%, Noregur
17% og Svlþjóð 37%.
í bygginganefnd Norræna húss
ins eru eftirtaldir menn. Eigil
Thrane, skrifstofustjóri frá
Noregi, en hann er formaður, frá
Finnlandi er Ragnar Meinander
skrifstofustjóri, frá Svíþjóð er
prófessor Gunnar Hoppe, frá
Noregi Oddvar Hedlund arkitekt
og fulltrúi íslands er prófessor
Þórir Kr. Þórðarson. Thrane
skýrði fréttamönnum frá því, að
húsið væri að mestu fullgert hið
ytra, en ýmislegt væri ógert inni,
og ef allt gengi samkvæmt áætlun
ætti byggingu að verða lokið
snemma í sumar.
í stjórn Norræna hússins eru
fulltrúar Danmerkur, Svíþjóðar og
Finnlands þeir sömu og í bygg
inganefnd, en fulltrúi Noregs er
Johan Cappelle, ambassador, og
fyrir íslands hönd eiga sæti í
stjórninni þeir Sigurður Bjarna
son ritstjóri, Halldór Laxness rit
höfundur, auk Ármanns Snævars
háskólarektors, sem er formaður
stjórnarinnar. Formaður Noræna
hússins er cand. philol Ivar Eske
land, og mun hann flytjast hing
að til lands jafnskjótt og fram-
kvæmdum við húsið er lokið.
Hann skýrði fréttamönnum í
stuttu máli frá væntanlegri starf
semi norræna hússins, og sagði,
að þetta ætti ekki einvörðungu
að vera menningarstofnun, heldur
einnig upplýsingamiðstöð og
mundi starfa á mjög breiðum
grundvelli við að efla og styrkja
FrambaJd a bls. 11.
SKORTIR UTANRIKISÞJO NUST-
UNA MARKMID OG TILGANG?
OÓ-Reykjavík, laugardag.
Það er nú ljóst að islenzka
utanríkisþj ónustu skortir nú
markmið og tilgang. segir í
grein, sem Guðjón B. Ólafs-
son, framkvæmdastjóri skrif-
stofu SÍS í London, ritar í Sam
vinnuna um utanríkisþ.ionustu
og viðskipti. Guðjon ræðir hve
lítils íslenzku sendiráðin er-
lendis megna ti: að örva
utanrikisviðskipti íslendinga og
veita útflutningsfyrirtækj-
unum aðstoð til að afla mark
aða i viðkomandi löndum og að
stoða við sölu afurða
í greininni segir, að dæmi
séu til þess að menn hafi leit-
að til sendiráða í viðskiptaer-
indum og fengið það svar, að
skrifað hafi verið til utanríkts-
ráðuneytisins í Reykjavík til
að spyrjast fyrir um hvort leyfi
legt væri fyrir sendiráðið að
sinna viðkomandi máli Mórg
dæmi mætti nefna til sönnunar
því að sendiráð íslands erlend
i.s eru ekki rekin í því mark
miði að aðstoða og vinna með
íslenzkum útfiutningsfynrtækj
um. Spyrja má hvert markmið
ið sé ,og væri æskilegt að
hrein stefnuyfirlýsing þar um
birtist sem skjótast frá íslenzk
um stjórnvöldum.
Þá segir Guðjón, að hætt sé
við að fjöldi og staðsetning
sendiráða hafi nokkuð markast
af „pomp og pragt“ sjónarmið
inu í upphafi, og vita allir að
auðveldara er að stofna iil
nýrra embætta en leggja þau
niður, jafnvel þótt starfsemin
hafi misst gildi sitt. Þannig
stöndum við nú uppi með þrjú
sendiráð á Norðurlöndum þa’'
sem iítið eða ekkert af afurð-
um okkar er sel-t. þrjú í Míð-
Evrópu þar sem sama gildu
um afurðir, og við lauslega
Framnaid a bls. 10.
EJ-Reykjavík, laugardag.
★ Sáttafundur um vísitölumál
ið hófst í gærbvöldi og stóð fram
til miðnættis, án þess nokkur ár-
angur næðist. Hófst fundur að
nýju kL 14 í dag, og var búizt
við að sá fundur yrði langur.
Verkföll 53 félaga, með
tæplega 20.000 félagsmenn, hefj-
ast í næstu viku, ef ekki næst
samkomulag fyrir mánudag. Eins
og málin stóðu fyrir sáttafundinn
í dag, var allt útlit fyrir að til
verkfalis myndi koma. Aftur á
móti má búast við svo til stöð-
ugum samningaviðræðum úr
þessu og fram á mánudag, og get
ur margt breytzt á þeim tíma. En
yfirleitt gætti í dag nokkurrar
svartsýni.
Engin rauiiuveruleg tilboð hafa
komið fram í þeim samningaiviff-
ræðum, er himgað til hafa verið
haddnir.
Þó munu launþegafluiltrúarmr
hafa látið að þvi liggja, að þeir
vaeru tiil viðtals um að vísitölu-
■bætiur kaamiu einungis á viss laun,
þ.e. að miðað verði við lægst laun
uðu stéttirnar innan Alþýðusam-
þands íslands. Er það veruleg eft-
irgjöf af hálfu launþega, að ein-
ungfis hluti fólagsmanna ASÍ fái
fullar verðlagsuppbætur vegna
bækkana firá 1. die-semiber til 1.
febrúar, en uipphaflega var kraf-
an um ófrávíkjanlega fullar vísi-
töluibætur á laun.
Aftur á móti hafði ekkert kom-
ið fram, er benti til þess að at-
vinnurekendur vilji fallast á jafn
vel slíkt fyrirkomuiag, er fundur
hófst í dag. Mun það álit þeirra
að fái einhverjir verðlagsuppbæt-
ur, þá endi það með þvi að all'r
fáiþær.
Aður hafði komið fram hjá jt-
vinnurekendum, að þeir væru til
viðtals um verðlagS'bætur, sem
kærnu fyrst til framkvæmda 1.
nóvember n.k., en þá miðað við
verðlag 1. október. Fulltrúar Al-
þýðusambandsins höfnuðu þess-u
boði
í dag höfðu 53 félög með um
20.000 félagsmenn boðað verkfall.
Framhaid a bls. 11.
Til lesenda
Hi3 íslenzka prentarafé-
lag hefur boðað verkfall
frá og með mánudeginum
4. marz. Komi bað til fram
kvæmda, mun Tíminn ekki
koma úf fyrr en að því
loknu.