Tíminn - 20.03.1968, Page 5

Tíminn - 20.03.1968, Page 5
"yyíyY,-: MIÐVIKUDAGUR 20. marz 1968 TÍMINN Verkfallsvaldurinn Umfangsmesta og dýrasta verkfalli er lokið. Tildrög þess — og raimar úrslit, svo sem til var stofnað — eru með ein dæmum í kjarabaráttusögunni. Ástæða verkfallsins var ekki kauphækkunarkröfur verka- manna, heldur varnarbarátta gegn óréttlæti ríisstjórnarinn- ar, í júnísamkomulaginu svo- nefnda 1964 gerðist sá merki- legi atburður, að forsætisráð- herra landsins, Bjarni Bene- diktsson, skrifaði undir samn- inga sem þriðji aðili að kjara- samningum, og var undirskrift hans gerð til staðfestingar því heiti, að ríkisstjórn hans og stuðningsflokkar hennar skyldu lögfesta á Alþingi að nýju verðtryggingu kaups eftir vísi tölu, en niðurfelling !aga- ákvæðis um það hafði verið morgunverk þessarar stjórnar. Á s.l. hausti lögfesti svo þessi sami forsætisráðherra samn- ingsrof sín og afnam með lög- um gUdi undirskriftar sinnar á þann veg að afnema verðtrygg ingarákvæðin. Hefur ekki ann ar forsætisráðherra, svo vitað sé, orðið þannig lögskipaður ómerkingur orða sinna og und- irskriftar. Síðan varpaði hann þrætueplinu út á mUli stríð- andi herja tU þess að þjóðin mætti berjast um það. Þannig lét þessi forsætisráðlierra þing lið sitt beinlínis stofna til verk faUsins vitandi vits. Innan við múrvegginn En í stuðningsliði stjórnar- innar er flokkur sá, sem kenn ir sig við alþýðu, og eitt sinn var hann eiginlega sama og allsherjarsamtök alþýðustétt- anna. Nú gerðust ráðherrar og þingmenn þessa flokks kylfing ar Bjarna Benediktssonar við að kasta þrætueplinu. Þeir sátu innan við múrvegginn í stjórnarráði og Alþingishúsi, meðan flokksmenn þeirra utan múrsins gengu í verkfallsstríð ið. Þannig hefui- nú Alþýðu- flokkurinn utan múrsins staðið í verkfaUi gegn Alþýðuflokkn- um innan múrsins tU þess að freista þess að ná rétti sínum undan hælunum innan við múrvegginn. Fátt hefur sýnt betur en þetta verkfall, að ráðherrar A1 þýðuflokksins hafa átt of lengi sæti innan við múrvegginn og eru þar viljalausir og herleidd ir menn. Þeir sátu þar í þessu verkfalU hálfvegis vakandi og hálfvegis eins og í draumi og hlustuðu á niðinn. Eftirlitsríkisstjórn Ríkisstjórnin hefur við þessa samninga undirritað eins kon- ar loforð um að vinna næstu mánuði að málurn þjóðarinnar á þann veg, sem ríkisstjórn- um í öðrum lýðræðislöndum er talin bera skylda tU, án þess að á það sé minnzt, hvað þá að þær séu látnar gera um það skriflega skuldbindingu. Hin skriflcgu og undirrituðu loforð ríkisstjórnarinnar eru sama eðlis og maður sem ráð- inn er til þess að byggja hús, yrði að undirrita loforð um að byggja húsið úr efniviðnum, sem honum væri fenginn, en brenna hann ekki. Mundi ýms um byggingameistara þykja l<'ra.mli.aJcl á bis. 15 verið kyrkt með snæri. í öðru herbergi fannst líkið af Micha el. Hér á myndinni sjáum við Michael St. John 0‘Carrol, 53 ára gamall verðbréfasali og ijós myndafyrirsætuna Janet Alice Wiiliam'S, sem þekkt er undir nafninu Janet Carrol, tuttugu og fimm ára. Þau Michael og Bítlarnir hafa í hyggju að gera kvikmynd um andlegan læriföður sinn Maiharaisihi Ma- besh Yogi að því er fréttir frá Nýju Delhi herma. Sagt er að George Harrison hafi þegar rætt um þetta við Maharishi. Kvikmyndin á að vera sam- bland af bítlatónlist og ind- verskum trúarbrögðum, vis- indurn og dulspeki ásamt þotu öldinni og friðinum í Himal- aya. Aðalpersónur myndarinnar eiga að vera bítlarnir og Mahar ishi og eftir fregnum að dœma eru bítlamir nú að ieita að rit- höfundi til þess að skrifa hand rit að myndinni. Þekktur finnskur mynd- höggvari hefur eytt sjö árum af ævi sinni til þess að ljúka við minnismierki um tónskáld ið Sibelius og á það að standa í almenningsgarði í Helsing- fors. Verkið á að tákna orgel pípur og listakonan hefur gert hvert sm'áatriði listaverksins með eigin hendi. Áður hefur hiún gert styttur fyrir Fiatverk smiðjurnar og bílateiknarann Pinin Farina. Salvador Dali, súrrealistinn frægi hefur ek'ki verið mikið fyrir að leggja sig niður við smámuni. Nú hefur hann gert eina undantekningu og hann hefur skreytt lúxusútgáfu af kvæðasafni. Höfundur safrisins sem þessarar náðar nýtur er enginn anriaf'en Mao Tse tung. Janet fundust myrt í Lundún um fyrir skömmu. Lík Janet fannst í rúmi í íbúð Miohaels og hafði hún Tveimur óbreyttum hermönn um bandarískum í Vietnam þótti vistin þar heldur leið og ekki höfðu þeir fengið heima- bakaða köku svo miánuðum skipti. Þeir tóku sig því til og skrifuðu Róbert Kennedy bréf og spurðu: „Kann Ethel að baka kökux“? en Ethel er eins og allir vita eiginkona Róberts. Bobby er sagður 9kilja hlutina fyrr en sikellur í tönri- um og nokkrum dögum eftir að hermennirnir skrifuðu bréfið, hafði þeim borizt stór köku- kaissi. Hermönnunum tveim þótti þetta mikið snjallræði og þegar þeir höfðu tæmt kassann ákváðu þeir að skrifa annað bréf, og það var tii Johnsons forseta. Þeir spurðu hann sömu spurningarinnar og Bobby: ,,Kann Lady Bird að baka köku?“ gvar við því bréfi hefur þeim enn ekki borizt og eru þó liðnir nokkrir mánuðir síðan þeir sendu það. Elvis Priestley hafa verið boðnir áttatíu og fimm þúsund d'ollarar fyrir að skemmta á kabarett í Hilton Hótelinu á Miami Beaeh. Ef hann tekur þessu tilboði er þetta í fyrsta sinn í átta ár, sem hann kem ur fram á sviði. Nikolai Malachevski er pólsk ur strætisvagnabílstjóri. Aðal- áhugamál hans eru brunar, og það gerðist fyrir nokkru, þegar hann var að aka strætisvagni futlum af fariþegum, að hann heyrði í hrunaliðsbilum. Hann ók í humátt á eftir þeim með fariþegana í strætisvagninum. Nikolai var sektaður fyrir ati hæfið. Fyrir nokkru síðan var fram- ið morð í Mexioo og hefur morð þetta vakið mikla athygli þar í landi og talsverð blaða skrif. Maðurinn, sem var myrt ur er þekktur „playboy" í Acapuloo og hét Cesare d‘ Acquarone greifi. Morðinginn er þekkj. og auðug kona, Sofia Bassi, sem mikið hefur tekið þátt í samkvæmislífinu í Acap ulco og var hún tengdamóðir greifans. Þeim hafði lengi kom ið illa saman og einn sólríkan eftirmiðdag krækti Sofia sér I bvssu og skaút tengdason sinn niður á svölunum á villu þeirri sem hann bjó í. Þegar hún hafði hleypt af fyrsta skotinu greip hana eitthvert æði og hún hélt áfram að skjóta allt í kringum sig þar tii byssan var orðin tóm. Málari nokkur, sem þar var í nágrenninu varð fyrir kú'lnaregni en sa'kaði þó ekki. Hins vegar hefur hann höfðað mál á hendur Sofiu fyrir morð tilraun aí ásettu ráði. Heill henskari af lögfræðing um vinnur nú að því að því að verja frúna og er einkum reynt að leggja áherzlu á það, að þessi verknaður hafi verið framinn í augnabliks brjálæði. ¥ Teviot l'ávarður er ekki einn af hinum dæmigerðu ensku að alsmönnum. Hann lifir hvorki á titlinum né eignum sínum heldur stundar hann venju- lega vinnu, hann er nefnilega slátrari. Áður en hann gerðist slátrari var hann eftirlitsmað- ur í strætisvögnum og strætis- vagnabilstjóri. Fyrir nokkru lézt faðir hans, sem var níutíu og þriggja ára gamall og átti sæti í brezku lávarðadeildinni og við það erfði sonurinn titil- inn. Hann mun samt ekki gera mikla breytingu á háttum sín- um og starfa áfram sem slátr ari, en innan skamms hyggst hann þó taka sér frí frá slátr arastarfinu öðru hverju og notfæra sér sæti sitt í lávarðar deildinni. ★ Donovan hefur nýlega gert handrit og tónlist að kvi'k- mynd, sem þrjú stór kvik- myndafélög rífast nú um að fá að gera. Kvikmyndin á að verða eins konar ævintýrasöng leikur og er Paul McCartney sérstaklega ætlað eitt hlutverk ið. Hinn heimsfrægi leikstjóri, Ingmar Bergman hefur látið í Ijós ósk um að fá að sviðsetja kvikmyndina. Taka kvikmynd- arinnar hefst í sumar. ★ Elizabeth Englandsdrottning hefur tapað kosningum. í Ox- ford hefur Union, sem er mál- fundaklúbbur háskólans, kosið um það hvort gera ætti drottn inguna að heiðursfélaga klúbbs ins, þegar hún kemur í heim sókn í maí. Tveir stjórnendur klúbbsins voru með því að hún yrði gerð að félaga en þrír á móti. Á VÍÐAVANGI

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.