Alþýðublaðið - 13.12.1989, Qupperneq 5
Miðvikudagur 13. des. 1989
5
Rætt við Einar Inga um ný lög
um máleffni aldraða
Þaríir
aldraðra
Einar Ingi Magnússon aðstoðarfélagsmálastjóri Hafnarfirði ásamt syni sinum Magnúsi.
eru ákaflega misjafnar
Fyrr á þessu ári voru sett ný lög um málefni aldraðra í Al-
þingi. Þau lög taka gildi um næstu áramót. Lítil almenn um-
ræða hefurfariðfram um breytingarnar, sem eru í aðsigi og
þótti Alþýðublaðinu ekki úr vegi að veita lesendum sínum
innsýn í þá hliö mála sem snýr að neytendunum sjálfum?
Til þess að fræðast ögn um þessa hluti snéri blaðið sér
til Einars Inga Magnússonar aðstoðarfélagsmálastjóra hjá
Félagsmálastofnun Hafnarf jarðar en fyrrnefndar breytingar
munu snerta starfsemi þeirrar stofnunar verulega. Við byrj-
uðum á því að spyrja Einar Inga í hverju megin breytingin
væri fólgin?
VtÐTAL TRYGGVI HARÐARSON
Ef eitthvaö er
þá veröur fólk
sundurleitara
meö aldrinum
og meö sterkara
svipmót og þarf
því aö geta
hagrœtt
aöstœöum í
samrœmi viö
þaö.
,,Áöur en éi> svara þeirri spurn-
ingu beint vil ég drepa lítillega á
ástæður þess að eldri lögum frá
1982 var breytt. Að mínu mati er
viðhorfsbreyting til öldrunar al-
mennt meginforsendan. Reynslan
hefur kennt okkur að lífaldur einn
og sér er lélegur mælikvarði á
getu fólks og þörf þess á þjónustu.
Jafnframt er það því miður út-
breiddur misskilningur að flestir
verið eins eða svipaðir á efri árum.
Ef eitthvað er þá verður fólk sund-
urleitara með aldrinum og með
sterkara svipmót og þarf því aö
geta hagrætt aöstæðum í sam-
ræmi við það?
í annan stað vil ég nefna reynslu
annars staðar frá á Norðurlöndun-
um. Þar hafa sprottið upp mis-
munandi form og þjónustunet í
því skyni að prófa hver sé hag-
kvæmasta lausnin á aðbúnaði
aldraðra. Auk þess má nefna
kostnaðarhliðina sem fer stigvax-
andi vegna þess að sífellt fleiri
njóta meiri þjónustu. Loks vil ég
nefna samræmingu ýmiss konar í
takt við aðra félagslega þjónustu
og nýja verkaskiptingu ríkis og
sveitarfélaga."?
— Nýju lögin laka vœntanlega
mid af þessu?
,,Já, ég vil svara því játandi. í
þeim er kjörorðið hjálp til sjálfs-
hjálpar og kveðiö á um stóraukna
heimaþjónustu sem felur í sér fjöl-
breytilegri aðstoð en áður. Hug-
myndin er sú að heimaþjónustan
brúi bilið milli venjulegs heimilis
aldraöra og verndaðra þjónustu-
íbúða eða dvalarheimila. Um leið
verði þær þjónustu íbúðir aldr-
aðra, sem bjóða upp á takmark-
aöa þjónustu, þ.e. eingöngu hús-
vörslu og sameiginlegt rými ekki
meiri en gengur og gerist. Þessi
hlekkur keðjunnar hefur ekki
reynst nógu vel í því formi sem
veriö hefur, því að svo takmörkuö
þjónusta hefur ekki uppfyllt þær
þarfir sem aldraöir hafa haft þegar
frá líöur, t.d. hvað varðar sjúk-
leika. Þeir hafa því verið lítiö betur
settir en einhvers staðar úti i bæ.
Þó skal ekki gert lítið úr félagslega
þættinum eða húsvörslu en meira
þarf að koma til?
í stuttu máli getum við sagt að
heimaþjónustan komi til, þegar
aldraðir geta ekki sinnt öllum sín-
um daglegu umsvifum heima við
en geta bæði og vilja búa áfram á
sama stað. Einnig er gert ráð fyrir
sjálfseignarleigu-, leigu- og bú-
seturéttaríbúðum í lögunum. En
þar eru gerðar miklar kröfur um
aðbúnað og þjónustu við íbúa eða
þær sömu og þegar um verndaðar
þjónustuíbúðir eða dvalarheimili
er að ræða. Inntakið í þjónustunni
er að viðkomandi geti ekki, þrátt
fyrir heimaþjónustu, sinnt sínu
heimilishaldi. Þar á varsla að vera
allan sólarhringinn, öryggiskerfi í
hverri íbúð, kostur á mat, þrifum,
þvotti og félagsþjónustu. Auk þess
skal vera aðstaða fyrir læknis-
hjálp, hjúkrun og endurhæfingu á
staðnum eða í næsta nágrenni."?
— Er þetta þá endanlega upp
talid?
,,Nei, því að í framhaldi af þessu
er gert ráð fyrir rými á öldrunar-
stofnunum þegar fólk er orðið of
lasburða til að nýta sér næsta stig
á undan. Á því stigi vex hjúkrunar-
og læknisþjónustan til muna og
gert er ráð fyrir langtímadvöl."?
— Ef vid víkjum aftur ad heima-
þjónustunni. I hverju verdur hún
fólgin?
,,í lögunum er hún í sjálfu sér
ekki sundurliðuö heldur almennt
orðuð. En öldrunarnefndum, sem
eru nýmæli í lögum, og þjónustu-
hópum á hverju starfssvæði er ætl-
að að skila inn tillögum til sveitar-
stjórna um nákvæma tilhögun þar
aö lútandi. Hins vegar kemur fram
í frumvarpi til laga um félagsþjón-
ustu sveitarfélaga, sem verður aö
öllum líkindum lagt fram á yfir-
standandi þingi, að í félagslegri
heimaþjónustu felist hvers konar
aðstoð viö heimilishjálp, persónu-
lega umhirðu, félagslegum stuðn-
ingi og fleira. Félagsleg heima-
þjónusta tekur til miklu fleiri ein-
staklinga en aldraðra en þess er
sérstaklega getið að fullr.ir sam-
ræmingar verði gætt milli laga um
málefni aldraðra og væntanlegra
laga um félagsþjónustu sveitarfé-
laga'"?
— Heimaþjónuslan er væntun-
lega þáttur í starfsemi félagsmála-
stofnunar. Hefur einhver umrædu
fariö fram um hvernig skipulagi
slíkra þjónustu veröi háttaö?
„Því má ekki gleyma að þótt
gert sé ráð fyrir aukinni þjónustu
á þessu sviði er hún þegar til stað-
ar t.d. hér í Hafnarfirði. Að jafnaöi
njóta 90—120 heimili heimilis-
þjónustu, mismikillar og í mislang-
an tíma, í samráði við og eftir mati
forstöðumanns heimilishjálpar og
hjúkrunarfræðings frá Heilsu-
gæslunni. I þessu samhengi er
mér Ijúft að geta þess að samstarf
milli Félagsmálastofnunar og
Heilsugæslustöðvarinnar í Hafn-
arfirði hefur ætíð verið með ein-
dæmum gott. Haft er fyrir satt að
fyrirmyndin að þjónustuhópi fyrir
aldraðra sé sótt til Hafnarfjarðar.
Jafnframt vil ég minna á félags-
starf aldraðra sem stendur í mikl-
um blóma í bænum og er sífellt að
færa út kvíarnar og verða viða-
meiri. Hvern virkan dag er eitt-
hvað í boði og láta má nærri að
það sé orðið fullt starf að taka þátt
í öllu sem í boði er. Minna má á í
þessu sambandi aö fjölmörg fé-
lagasamtök í Hafnarfiröi hafa í
gegnum árin lagt fram ómetanlegt
starf af mörkum í sjálfboðavinnu
og gera enn, Þótt þáttur bæjarins
hafi aukist er skerfur félaganna
ómissandi."?
— Hverju ætlu menn aö ná meö
aukinni heimuþjónustu?
„Hvað aukningu á heimaþjón-
ustunni varöar þá hefur mér vitan-
lega ekki fariö fram nein formleg
umræöa um skipulag og inntak í
einstökum atriðum. Hins vegar
hefur ákveðnum hugmyndum
verið slegið fram, sem ganga í þá
átt að þétta bæði formlegt og
óformlegt öryggisnet aldraðra í
bænum, s.s. að koma smærri hóp-
um, 4—5 einstaklingum, allra aldr-
aöra í Haínarfirði, sem hafi dagleg
samskipti og aö einn í hverjum
hópi sé eins konar hópstjóri eða
tengill. Með því dregur úr þeirri
hættu að einhver einangrist, sé
miður sín, liggi slasaður eða látinn
um lengri tíma án þess að nokkur
viti. Það er jafnframt Ijóst að frek-
ari uppbygging heimaþjónustunn-
ar mun útheimta bæði tíma og at-
orku svo að til sóma megi verða."?
— Hvernig er Félagsmálastofn-
un í stakk búinn til aö mœta sltkri
þjónustu?
< „Þettaererfiðspurningþarsem
fyrrnefnd öldrunarnefnd sem á að
hafa yfirumsjón með skipulaginu
hefur enn ekki verið skipuð. Auk
þess teljum við margt á huldu um
hag og aðstæður aldraðra í bæn-
um, svo torvelt er að skoða málið
í smærri atriðum. Þó hefur ákveð-
inn undirbúningur að skipulagi
verið í bígerð, þ.e. að gera könnun
á stöðu aldraðra í Hafnarfirði. Slík
athugun hlýtur að teljast mjög
raunhæft upphaf að skipulegri
uppbyggingu. Hins vegar er Ijóst
að aukin umsvif kalla á frekari
starfskrafta og ég veit að bæjaryf-
irvöld í Hafnarfirði vilja leysa
þetta verkefni með reisn og vel-
ferð aldraðra í huga.“?