Alþýðublaðið - 13.12.1989, Page 6
6
Miðvikudagur 13. des. 1989
BÓKAFRÉTTIR
,SASK
»»BOKk
V
„aM) ISL islands
HANl HANl HANDBOKIN
“ %>.....
NArrúRA,
SAGA OG SÉRKENNI
Örn og Örlygur hafa gefiö út í fjórða
skipti á íslensku hina vinsælu fjöl-
fræðihandbók Heimsmetabók
Guinness, en hún mun vera mest
selda rit veraldar að biblíunni einni
frátalinni. Heimsmetabókin er rúm-
ar 400 blaðsíður og skiptist í ellefu
kafla sem bera heitin Undur jard-
ar, Heimur og geimur, Lífheim-
urinn, Vísindi og tækni, Mann-
virki, Samgöngur, Heimur við-
skiptanna, Afrek og þrautir,
Menning og listir, Lönd og þjóð-
líf og íþróttir.
I bókina hefur verið bætt mjög
miklu íslensku efni, íslensk met og
sérkenni en slíkt efni var fellt niður
úr síðustu útgáfu sem kom út áriö
1977. í bókinni er mikill fjöldi
mynda bæði innlendar og erlendar.
Vaka-Helgafell hefur gefið út aö
nýju bókina Leikir fyrir alla. sem
hefur verið ófáanleg um alllangt
skeið. Bókin er í flokki tómstunda-
bóka Vöku-Helgafells, en jiær eru
nú orðnar átta. Niels Ebbe Bindesleu
tók saman efni bókarinnar, Sigurd-
ur Helgason þýddi og staðfærði, en
myndir í bókinni eru eftir PeterSug-
ar.
Margir leikjanna, sem lýst er í
bókinni hafa skemmt fólki um langt
árabil, aðrir eru nýrri af nálinni. All-
ir eru þeir þrautreyndir og eiga að
lífga upp á andrúmsloftið.
Hjá Almenna bókafélaginu er kom-
in út bókin Skólaskop — Gaman-
sögur af kennurum og nemend-
um — en efninu hafa tveir kennarar,
Guöjón Ingi Eiríksson og Jón Sigur-
jónsson safnað.
I Skólaskopi er að finna kafla úr
ritgerðum nemenda, föst og laus
skot sem kennaraí hafa orðið fyrir í
tímum og gullvægar samræður
lærifeðra og námsmanna. í bókinni
eru bæði nýjar frásagnir og aðrar
sem heita má að séu orðnar sígildar.
Bókaútgáfan Reykholt hefur gefið
út bókina Vængir vitundar — Um
framhaldslíf og fleiri jarðvistir. I
henni eru viðtöl, frásagnir og grein-
ar, sem vafalaust eiga eftir að vekja
mikla athygli fyrir það sem fram
kemur.
Þeir sem við sögu koma eru m.a.
sr. Sigurdur Huukur Gudjónsson,
Einar H. Kuaran skáld, Miklabœjar-
Sólueig, sr. Sueinn Víkingur, Stella
G. Sigurdardóttir, Ulfur Ragnarsson
læknir, Guömundur Einarsson
verkfræðingur og Einar Benedikts-
son skáld. Samantekt var í höndum
Guömundar Sœmundssonar,
cand.mag.
Hjá Almenna bókafélaginu er kom-
in út bókin Snorri á Húsafelli,
Saga frá 18. öld, eftir Þórunni
Valdimarsdóttur. íþessari bók hefur
Þórunn lagt í þriggja alda ferö aftur
í tímann til ad rannsaka og túlka
sögulegar heimildir.
Textinn opnur dyr inn í öld sem ló
í landi fyrir u.þ.b. 250 árum. Mis-
jafnt litróf rnannlífsins uerdur sýni-
legt. LiTSnorra Björnssonar varp-
ar ljósi á magnaða þætti á skeiði
sem hefur verið álitið tímabil enda-
lausra harðinda og niðurlægingar.
Kringum Snorra eru miklar heimild-
ir þar sem hann er embættismaður,
rímnaskáld og sálmaskáld, höfund-
ur fyrsta leikrits á íslensku, náttúru-
fræðingur, áhugamaður um hið yfir-
náttúrulega og þjóðsagnapersóna.
Við fylgjumst með Snorra vaxa
upp, frá því fjandinn er særður úr
honum dagsgömlum í Melakirkju.
Sem í skáldsögu horfir höfundur
þessa verks, Þórunn Valdimarsdótt-
ir, í gegnurn sjónpípu heimildanna.
Hún lýsir þuí huernig fólkid sér stór-
tídindi aldarirmar, í stad þess ad
greina frá þeim ár kaldri ogyfirueg-
adri sögulegri fjarlœgd.
Leikkonan Bette Davis lést í októ-
ber. í minningu hennar sendir Bóka-
útgáfan Reykholt á markaðinn á ný
ævisögu hennar sem Bókaútgáfan
Rauðskinna gaf út fyrir örfáum ár-
um. Bókin heitir Bette Davis — Líf
og listir leikkonu. Höfundur bók-
arinnar er Charles Higham, en þýð-
andi Olafur Olafsson.
Bette Davis er ein mikilhæfasta
leikkona allra tíma. Hún vann stór-
kostlega leiksigra og hlaut ýmsan
frama fyrir list sína, m.a. Óskars-
verðlaun, en í einkalífinu átti hún
oft við erfiðleika að stríða. Bókin
segir frá báðum þessum þáttum í
ævi Bette á hreinskilinn og heiðar-
legan hátt, án þess að reynt sé að
draga neitt undan eða ýkja í eyður.
Út er komin hjá Máli og menningu í
handbókaflokknum Betra líf bókin
Útbrunninn? — Farðu betur með
þig (Brann inte ut dig!) eftir Barbro
Bronsberg og Ninu Vestlund, í þýð-
ingu Olafs G. Kristjánssonar.
Álag í vinnu og heima fyrir, upp-
söfnun þreytu og síðast en ekki síst
streita eru í sífellt ríkara mæli talin
orsök ýmissa sjúkdóma og andlegr-
ar sem líkamlegrar vanlíöunar.
Menn grípa ekki nógu fljótt í taum-
ana — jafnvel þótt þá gruni að ekki
sé allt með felldu — og afleiðingarn-
ar láta ekki á sér standa: Fyrr en var-
ir eru þeir „útbrunnir".
Út er komin hjá Erni og Örlygi „Vín-
viðir ástarinnar", íslensk ástar-
saga sem gerist í Reykjavík og New
York. Þetta er fyrsta skáldsaga Mar-
grétar Söluadóttur. Heitar mannleg-
ar tilfinningar, ást og afbrýði takast
á uns spennan nær hámarki sínu og
sagan fær óvænt endalok.
A baksviði er borgarsamfélag
samtímans með vandamál sín, feg-
urð og Ijótleika. Eiturlyf, morð og
barnsrán koma við sögu, en ástin
lætur líka til sín taka. Edda er ung
stúlka, sálfræðingur á stóru sjúkra-
húsi, sem í frístundum sínum starfar
með lögreglunni. Hana dreymir um
öryggi, hjónaband og börn, og eitt
kvöldið kynnist hún lögreglumann-
inum Birgi, en hann er kvæntur.
Út er komið hjá Erni og Örlygi mikið
rit, nýr lykill að landinu, ætlað þeim
sem vilja fræðast um landið sitt,
náttúru þess, sögu og sérkenni,
hvort sem þeir eru heima hjá sér, á
ferðalagi eða vinnustað. Ritið nefn-
ist Islandshandbókin og ber und-
irtitilinn náttúra, saga og sér-
kenni. Efni ritsins er að nokkru sótt
í hið vinsæla rit Landið þitt Island
en uppbygging og framsetning efnis
er með allt öðrum hætti.
í íslandsbókinni er efninu skipt
eftir sýslum landsins og í stafrófsröð
innan þeirra. I upphafi hvers sýslu-
kafla er kort af sýslunni. Á því korti
eru sýndir allir vegir sem um sýsl-
una liggja ásamt tilheyrandi veg-
númerum. Kortið kemur að notum
þegar fólk skipuleggur för sína um
sýsluna og sem vegakort eftir að
haldið er af stað. Á eftir sýslukortinu
kemur fyrst alhliða lýsing sýslunnar
en að sýslulýsingu lokinni er lýst öll-
um þeim stöðum sem vert er að
benda ferðafólki á. Sú staðalýsing er
í stafrófsröð. Þessir staðir eru allir
merktir á viðkomandi sýslukort.
Sýslukortin eru byggð á kortum
Landmœlinga Islands en unnin af
Jean-Pierrs Biard kortagerðar-
manni.
Frjálst framtak hf. hefur gefið út
bókina Eldvakinn eftir bandaríska
rithöfundinn Stephen King. Þetta er
fjórða bókin eftir Stephen King sem
Frjálst framtak gefur út. Áður hafa
komið bækurnar „Visnaðu",
„Eymd“, „Uppgjörið“ og „Umsát-
ur.“
Stephen King hefur um árabil ver-
ið vinsælasti spennusagnahöfundur
Bandaríkjanna og bækur hans hafa
jafnan verið vikum og jafnvel mán-
uðum saman á metsölulistum. Step-
hen King fer sjaldan hefðbundnar
leiðir í sögum sínum og oft fléttast
yfirnáttúrulegir atburðir inn í at-
burðarásina. Um Stephen King hef-
ur veriö sagt að sögur hans séu í
senn bókmenntaverk, magnaðar
spennusögur og dulrænar frásagnir.
Hjá Almenna bókafélaginu er kom-
in út bókin Nonni og Manni.
Nonni og Manni er ein af hinum
heimsfrægu og sívinsælu bókum
Jóns Sueinssonar. Hún er önnur
bókin í röðinni frá hans hendi, kom
fyrst út á þýsku 1915, næst á eftir
sögunni Nonna.
Nonni og Manni er sannkölluð
ævintýrabók. Henni er skipt í tvær
sögur, Nonni og Manni fara á sjó og
Nonni og Manni fara á fjöll. í fyrri
sögunni segir meðal annars frá því
þegar þeir bræður lenda í sjávar-
háska á Eyjafirði, sleppa með naum-
indum úr stórhættum og er loks
bjargað af frönsku herskipi.
Síðari sagan er ævintýri á fjöllum.
Þar komast þeir bræður meðal ann-
ars í kynni við mannýgt naut og
hitta jafnvel útilegumann.
• Krossgátan
□ 1 5“ r 4
5
6 .! □ 7
8 9
10 □ 11
□ 12
13 □ □
Lárétt: 1 lína, 5 listi, 6 dygg, 7
hvað, 8 ólar, 11 eðli, 12 stækka,
13 vondra.
Lóðrétt: 1 spor, 2 trausti, 3 slá, 4
mögla, 5 gata, 7 vægðarleysi, 9
skordýr, 12 sýl.
Lausn á síðustu krossgátu
Lárétt: ógagn 5, hvet, 6 vit, 7 au,
8 asanum, 10 ss, 11 æði, 12 æð-
ur, 13 tórir.
Lóðrétt: óviss, 2 geta 3 at, 4
naumir, 5 hvasst, 7 auður, 9
næði, 12 ær.
RAÐAUGLÝSINGAR
.Flokksstarfið
Jólaglögg — jólaglögg
Félag ungra jafnaðarmanna í Hafnarfirði heldur jóla-
glögg í Alþýðuhúsinu Hafnarfirði föstudaginn 15.
des. nk.
Húsið opnar kl. 20.00.
Guggnum ekki á glögginni.
Stjórnin
Alþýðuflokksfélag
Kópavogs 40 ára
Alþýðuflokksfélag Kópavogs býður til afmælis-
fagnaðar 27. desember nk. í Félagsheimili Kópa-
vogs 1. hæð.
Opið hús frá kl. 17—19
Við bjóðum upp á „góðar" veitingar.
Verið öll velkomin.
Stjórnin
Biluðum bílum
á að koma út fyrir