Alþýðublaðið - 13.12.1989, Síða 8
MMIUBUDIB
Miövikudagur 13. des. 1989
Frá fjárveitinganefnd:
Útgjöld ríkisins hækki
um 1,182 milljónir
Fyrst og fremst tilkomiö uegna leiöréttinga á fjárlögum
Viðbótarútgjöld ríkisins
miðað við fjárlagafrum-
varpið sem lagt var fram í
haust munu verða rúmar
1.182 milljónir króna sam-
kvæmt breytingartillög-
um fjárveitinganefndar.
Af þeirri upphæð eru um
570 milljónir til komnar
vegna rangrar verðupp-
færslu og vanáætlana
rekstrarliða, tæpar 260
milljónir vegna ofmats á
sértekjum, 8 milljóna
króna hækkun vegna við-
halds og yfir 342 milljónir
vegna aukinna fram-
kvæmda.
Sighvatur Björgvinsson,
formaöur fjárveitinganefnd-
ar, kynnti breytingartillögur
nefndarinnar á Alþingi í gær
og sagði um hækkun fram-
lagstil framkvæmda. „Þessar
hækkunartillögur eiga all-
flestar uppruna sinn hjá fjár-
veitinganefnd og eru fyrst og
fremst vegna tillagna nefnd-
arinnar um hækkaðan stofn-
kostnað vegna hafnarmála,
sjúkrahúsa og heilbrigðis-
mála og varðandi framhalds-
skóla." Þá sagði Sighvatur
megin hluta hækkana til-
komna vegna leiðréttinga á
launaliðum, veröuppfærslum
og öðrum rekstrargjöldum
sem Fjárlaga- og hagsýslu-
nefnd hefur staðfest að séu
réttmætar.
Pálmi Jónsson gagnrýndi
fjárlagafrumvarpið harðlega
og sagði að „við nákvæma at-
hugun á frumvarpinu hefur
komi í Ijós að það er óvenju-
leg hrákasmíð." Þá hélt hann
því fram að raunverulegur
halli á fjárlagadæminu í ár
yrði um 7—8 milljarðar en
ekki um 3 milljarðar eins og
fjármálaráðherra hefur hald-
ið fram.
í nefndaráliti meirihluta
fjárveitinganefndar kemur
fram að ekki hefur enn verið
tekin afstaða til hvernig haga
skuli uppgjöri á skuldum rík-
isins við sveitarfélögin en það
verði gert fyrir 3. umræðu.
Eins hefur fjárveitingarnefnd
ekki tekið afstöðu til tillagna
menntamálaráðuneytisins
um lækkun á rekstrarkostn-
aði Þjóðleikhúsins.
Þá gagnrýndi Sighvatur
Björgvinsson fjárlagagerð
undanfarinna ára sem hefur
ár eftir ár haft í sér innbyggð-
ar skekkjur sem leitt hafa til
endurtekins fjárlagahalla. En
með þeirri breytingu, sem
fjármálaráðherra hefur tekið
upp með því að leggja fram í
upphafi haustþings bæði rík-
isreikning sl. árs og frumvarp
til fjáraukalaga líðandi árs,
hefði aðstaða fjárveitinga-
nefndar og Alþingis til þess
að áætla réttar gerbreyst.
Jón Baldvin Hannibalsson um ummœli Kristjáns Ragnarssonar:
Fleipur um alvarlegt mál
„Það er ekkert hégóma-
mál ef einn af helstu for-
svarsmönnum útgerðar á
íslandi fer með slíkt fleip-
ur um alvarlega hluti. Is-
lendingar höfðu barist fyr-
ir því í 19 ár að fá fram við-
urkenningu EFTA-ríkj-
anna á því að fríverslun
myndi taka til sjávaraf-
urða og það tókst loksins í
Osló í mars síðastiiðnum.
Og því var sérstaklega
fagnað af forsvarsmönn-
um íslensks sjávarútvegs.
Þessi grundvallarregla
þýðir að hún kemur til
framkvæmda næsta ár og
felur jafnframt í sér þá
skuldbindingu að Norð-
menn verða innan ákveð-
inna tímamarka að draga
úr og endanlega afnema
sína ríkisstyrki ■ sjávarút-
vegi, sem íslendingum hef-
ur verið mikill þyrnir í
augum. Ef Kristjáni Ragn-
arssyni þykir það mikið
hégómamál þá er hann ör-
ugglega ekki að tala þar
fyrir hönd íslenskra út-
vegsmanna. Það er að
sjálfsögðu engin ástæða til
að óttast að ríki eins og
Noregur standi ekki við al-
þjóðlegar skuldbinding-
ar,“ sagði Jón Baldvin
Hannibalsson utanríkis-
ráðherra í samtali við Al-
þýðublaðið í gær.
Tilefnið voru ummæli
Kristjáns Ragnarssonar for-
manns LIU í fjölmiðlum að
Oslóarsamþykktin sé orðin
tóm og hégómi að halda öðru
fram, enda myndu Norð-
menn áfram styrkja sjávarút-
veg sinn.
Jón Baldvin benti enn,
fremur á að samþykkt Osló-
arfundarins þýði að
EFTA-ríkin sem heild hafi
gengið til liðs við íslendinga
með þeim hætti að krafan um
fríverslun með fisk í samning-
unum við EB er samningsaf-
staða allra EFTA-ríkjanna.
„Það hefur með öðrum orð-
um stórlega styrkt samnings-
stöðu okkar í þeim samning-
um. Og það er heldur ekkert
hégómamál, þvert á móti
mjög þýðingarmikið mál."
Alþýðublaðið bar og undir
Jón frétt í Morgunblaðinu í
gær þess efnis að sjálfstæðis-
menn væru ráðherra afar
reiðir, þar sem þeir hefðu tal-
ið sig fyrir vantraustumræð-
urnar hafa bréf frá honum
um víðtækt umboð Alþingis
til EB-EFTA-viöræðnanna og
að reynt skyldi að taka upp
tvíhliða viðræður við EB-ríki.
„Afstaða mín sem utanrík-
isráðherra er að sjálfsögðu sú
að skapa sem mesta sam-
stöðu á Alþingi og meðal
þjóðarinnar allrar um þá
stefnu sem við mótum í þess-
um málum. Að sjálfsögðu
freistaði ég þess að ræða við
Þorstein Pálsson þegar ég
heyrði að talsmenn Sjálfstæð-
isflokksins virtust ekki hafa
unnið heimavinnu sína að því
er þetta mál varðar. En áður
en nokkuð reyndi á þetta
ruku þeir hins vegar til með
vantrauststillögu og byrjuðu
málþóf og upphlaup á þingi
með tillöguflutningi sem ég
taldi vera mjög skaðlegan,
um tvíhliða viðræður um
tollamál við EB. Þar með virt-
ist ekki vera mikill samkomu-
lagsgrundvöllur þegar svar
sjálfstæðismanna var annars
vegar tillaga um formlegar
tvihliða viðræður og hins
vegar vantraust" sagði Jón
Baldvin.
Kvennalistinn:
Vill 240 millj. framlag
til atvinnulífs kvenna
Þingmenn Kvennalist-
ans hafa lagt fram á Al-
þingi breytingartillögur
við frumvarp til fjárlaga.
Ber þar hæst tillögu um
200 milljóna króna fram-
lag til sérstaks átaks til að
efla atvinnulíf kvenna. Þá
leggja þeir til að tekinn
verði upp nýr liður hjá
Byggðastofnun, framlag
vegna atvinnuuppbygg-
ingar kvenna á lands-
byggðinni, og til hans fari
40 milljónir.
Þá leggja þingmenn
Kvennalista til að rúmum 3
milljónum króna verði varið
tii hjálparstarfs Sameinuðu
þjóðanna fyrir konur í þróun-
arlöndunum og að framlag til.
Kvennaathvarfsins í Reykja-
vík verði aukið úr rúmum 8
milljónum í tæpar 11 milljón-
ir. Þá vilja þeir margfalda
framlag til Samtaka kvenna
gegn kynferðislegu ofbeldi
eða úr 2 milljónum í 11 millj-
ónir króna.
2
Hitastig í nokkrum landshlutum kl. 12 í dag
ÍSLAND
Hitastig
iborgum
Evrópu
kl. 12
i gær
að íslenskum
tima.
Tölvunefnd er apparat
sem hefur það hlutverk
að vernda almúgann fyrir
kerfisbundinni skráningu
á upplýsingum er varða
einkamálefni. Nefndin
fjallar árlega um fjölda
beiðna og erinda, sem
náðu hámarki 1986 en
hafði fækkað um helming
1988. Flestar afgreiðslur
eru minniháttar og sjálf-
sagðar en í fyrra var aö
finna að minnsta kosti
eina fróðlega synjun:
Lyfjafyrirtækið Stefún
Tlwrarensen hf vildi fá út-
skrift úr þjóðskrá á nöfn-
um og heimilisföngum
kvenna á aldrinum
40—60 ára til afnota við
útsendingu á upplýsing-
um um nauðsyn þess að
borða kalk. En að mati
Ólafs Ólafssonar land-
læknis var um að ræða
óheimila lyfjaauglýsingu.
★
íslensk-sænska félagið
og Norræna húsiö halda
aö vanda Lúsíuhátíð í
dag, miðvikudaginn 13.
desember, kl. 20.30 í Nor-
ræna húsinu. Þar koma
fram kór Kársnesskóla
sem syngur Lúsíusöngva
og jólalög undir stjórn
Þórunnar Björnsdóttur.
Þá mun vísnasöngvarinn
Hanne Juul syngja og
segja frá heilagri Lúsíu.
Lúsíuhátíðin er ætluð
allri fjölskyldunni, ekki
síst yngri kynslóðinni.
★
Birglr Björnsson hin
gamalreynda handbolta-
kempa úr FH og fyrrum
landsliðsmaður í hand-
bolta er kominn aftur til
æskustöðvanna, Hafnar-
fjarðar, eftir alllanga dvöl
á Akureyri. Hann hefur
verið ráðinn forstöðu-
maður Iþróttahúsins í
Kaplakrika sem fyrirhug-
að er að taka í notkun í
febrúar á næsta ári. Það
eru FH og Hafnarfjarðar-
bær sem standa saman að
byggingunni en bærinn
mun sjá um rekstur þess
næstu árin.
Birgir þjálfaði KA í
handbolta um árabil og er
einnig þekktur í golf-
heiminum þó meira hafi
borið á konu hans á því
sviðinu, Ingu Magnús-
dóttur sem hefur verið í
fremstu röð golfkvenna
um langa hríð. Á árunum
fyrir norðan starfaði Birg-
ir hjá Slippstöðinni.