Tíminn - 09.04.1968, Page 3
J*RB>.TU1>AGIIR 9. aprfl 1968.
TÍMINN
Minnzt 80 ára afmælis Kambans
HamrahlíSarskóli með
árshátíð í Lidó
GÞE-Reykjavík, mánudag.
Á morgun, þriðjudag, lieldur
Jlcnntaskólinn við Hamrahlíð
árshátíð sína. Hún er að því
leyti frábrugðin árshátíðum
annarra skóla, að nemendur
hyggjast flétta talsverðri alvöru
inn í gamnið, og flytja sam-
fellda dagskrá, er fjallar um
stríð, ógnir þeirra og tilgangs-
leysi. f fyrsta lagi verður flutt
ur einþáttuiigurinn Skemmti-
ferð á vígvöllinn, eftir Arrabal,
er Leikfélag Reykjavíkur flutti
fyrir nokkrum árum, en í ann-
an stað verður sýndur mjög
sérkennilegur leikþáttur, sem
nemendur hafa samið, með að
stoð Níelsar Óskarssonar tækni
fræðings.
Þessi þáttur nefnist „Við í
sláturhúsinu". Hann gerist fyr-
ir stríð, í stríði og eftir stríð,
sýnir orsök stríðsins, það, sem
hrind'ir því r|f stað, tilgangs-
leysi þess, og þann lærdóm,
sem. af því má draga, en eitt
megininntak verksins, er að
sýna fram á, að þennan lær-
dóm má öðlast, án striðs.
TJppsetning þáttanma er sér-
stæð að því leyti, að þeir eru
leiknir úti í miðjum áhorfenda
sal og eru án leikmyndar. Þetta
mun vera í fyrsta skipti, sem
slík tilraun er gerð hér á landi.
Leikstjóri er Bjarni Stein-
grímsson, en aðstoðarleikstjóri
Níels Óskarsson. Við litum að-
eins inn á æfingu í dag og
röbbuðum við Níels, og sagði
hann, að líklega væri þetta í
fyrsta skipti, sem menntaskóla
nemar hér á landi efndu til
slíkrar skemmtunar, og tækju
á þennan hlátt aifstöðu til að-
kal'lan-di málefnis. Mjög mikill
fjöldi nemenda tekur þátt í dag
skrá þessari og liafa þeir lagt
rnikið á sig til að gera skemmt
unina sem bezt ú,- .garði. Seldur
er aðgangur að árshátíðinni á
morgun, og fljótlega eftir páska
verða leikþættirnir endurtekn-
ir fyrir aðstandendur nemenda,
og aðra, sem áhuga hafa á.
Árshátíðin verður haldin í
Lídó og hefjast atriðin kl. 21.
Þjófurinn fundinn, en
glæpurinn óupplýsfur
OÓ-Reykjavík,
Fyrir nokkrum dögum ráf-
aði drukkinn maður um ganga
í húsnæði rannsóknarlögregl-
unnar og hafði meðferðis tvær
stórar bækur og þar sem lög-
reglumenn þóttust vita að þær
væru ekki eign mannsins, því
hann er þekktur að öðru en
bókaást, af þeim, sem þarna
vinna. Voru bækurnar teknar
af manninum og var hann sjálf
ur helzt á þeirri skoðun að
hafa stolið bókunum, en hvar,
hafði hann ekki hugmynd um.
Einnig átli hann bágt með
að átta sig á hvaða erindi hann
átti til rannsóknarlögreglunn-
ar. Tóku lögreglumenn bæk-
urnar í sína vörzlu og er eig-
andi þeirra beðinn að vitja
þeirra þangað, en bækur þess-
ar eru mikið tveggja binda
verk og nefnist Handbook of
Social Psycholiogy, eftir Gardn
er nokkurn Lindsey. Bækurn
ar eru í rauðu bandi, og vel
til þeirra vandað.
VerSlaunaðir fyrir góða
meðferð á tækjum
FB-Reykjavíik, mánudaig.
Fyrir nokkru veittu verktak
arnir við Búrfell nokkrum
mönnum verðlaun fyrir að fara
sérstaklega vel með vinnuvél-
ar þær, sem þeir hafa undir
höndum. Mennirnir fengu 3000
króna verðlaun og auk þess
hlíiðursskjal. Þá voru um leið
hækkuð laun nokkurra manna,
sem höfðu unnið sérlega vel.
að dómi yfirmanna þeirra.
Dymbilvaka
Að venju heldur Stúdenta-
félag Reykjavíkur kvöldvöku
miðvikudaginn fyrir páska að
Hótel Sögu í Súlnasal. Til
skemmtunar verður margt for-
vitnilegt m.a. mun Helgi Sæm
undsson flytja ávarp, mælsku-
keppni o.fl. Kvöldvaikan hefst
kl. 21, en búsið verður opnað
kl. 19. Fonmaður Stúdentafé-
la-gs Reykjavíkur er Ólafur
Egilsson, lögfræðingur.
„ VÉR MORÐINGJAR" SENN
SÝNT / ÞJÓÐLEIKHÚSINU
Þjóðleikhúsið frumsýnir leikrit- j dagur Þjóðlcikhússins. Það eru
ið „Vér morðingjar“, eftir Guð- núna liðin 18 ár frá því að Þjóð-
mund Kamban, 20. þ.m. en eins leikhúsið tók til starfa. „Vér morð
og kunnugt er, er 20. apríl afmælis
Kamban
ingjar“ er þriðji leikurinn, sem
Þjóðleikhúsið sýnir eftir Guðmund
Kamban, en hin voru „Þess vegna
skiljum við“ sýnt vorið 1952, og
í Skálholti, sýnt árið 1960, á 10
ára afmæli leikhússins.
Vér morðingjar var fyrst sýnt
á Dagmarleikhúsinu í Kaupmanna
höfn 2. marz árið 1920 og síðar
á sama ári hjá Leikfélagi Reykja
víkur.
Árið 1927 stjórnaði híöfundurinn
sjálíur sýningu á leiknum hér
í Iðnó og lék þá j-afnframt sjálf-
ur annað aðalhlutverk leikisins. Síð
ar sýndi leikflokkur undir stjórn
Gunnars R. Ifansen, leikinn hér
í Reykjavík og víðar út um land.
Ennfremur var leikurinn sýndur
hjá Leikfélagi Akureyrar árið
1923. Þetta mun því vera í fimmta
skiptið, sem leikuirinn er settur
á svið hér á landi.
Fyrsta leikritið, sem Kamban
skrifaði, var Hadda Padda. Leik-
urinn var fyrst sýndur í Kaup-
mannahöfn árið 1914 og ári síðar
hjá Leikfélagi Reykjavíkur. Þar
næst kom Konungsglíman, sýnt í
Framhaid a bls 14.
ASMUNDUR OG HJALTI
ÍSLANDSM EISTARAR
Hjsím.-Reykjavík, mánudag.
Tvímenningstkeppni íslandsmóts
ins í bridge var háð um helgina
og urðu ísladsmeistarar hinir
kunnu spilarar Ásmundur Pálsson
og Hjalti Elíaasson frá Bridge-
félagi Reykjavíkur, eftir skemmti
lega og harða keppni, þar sem
ýmsir höfðu skipzt um forustu,
en þeir fél-agar reynzt sterkastir
á lokasprettinum. Þálttakendur
voru tæpleiga 200 frá 11 félögum
og var spilað í tveimur flokkum,
meistara- og 1. flokki, og hefur
þátttaka aldrei verið svo mikil
í mótinu fyrr. Auk Reykvíkinga
voru þátttakendur frá Akranesi,
Keflavík, Hafnarfirði, Kópavogi,
Hveragerði og Selfossi.
f meistaraflokki urðu 10 efstu
þessir:
1. Ásmundur Pálsson og
Hjalti Elíasson, BR
2 Jón Áshjörnsson og
Karl Sigurihjartarson, BR
3. Eggert Benónýsson oig
Stefán Guðjohnsen, BR
4 Bernharður Guðmundsson
og Torfi Ásgeirsson, TBK
5. Hallur Símonarson og
Þórir Sigurðsson, BR
6. Benedikt Jóhannsson og
Framhald á bls. 15
mmm:... i
„Hillingar“ — ofið teppi, eftir
Vigdísi Kristjánsdóttur.
2 KONUR SYNA
8 BOGASALNUM
SJ-Reykjavík, mánudag.
Á laugardag var opnuð í Boga
sal Þjóðmirijasafnsins sýning á
listaverkum tveggja kvenna. Hin
kunna listvefnaðarkona Vigdís
Kristjánsdóttir sýnir 14 ofin teppi
og Elín Pétursdóttir Bjarnason 12
litógrafíur.
Myndir Vigdísar eru allar ofnar
úr íslenzku bandi og notar hún
mikið sauðaliti og jurtaliti. Þetta
er fjórða sjálfstæða sýning henn-
ar en hún hefur tekið þátt í mörg
urn samsýningum hér heima og
erlendis.
Þetta er fyrsta sýning Elínar
Pétursdóttur Bjarnason hér á
landi, en hún hefur verið búsett
í Kaupmannahöfn um 22 ára skeið
og hefur margoft sýnt listaverk
sín í Danmörku. Elín er fædd í
Eskiholti í Borgarfirði og hóf nám
í málaralist við Konunglega lista
háskólann í Kaupmannahöfn haust
ið 1945.
Sýningin verður opin daglega
frá kl. 12 til 10 síðd., til 14. apríl.
Framsóknarfélag Reykjavíkur heldur
RÁÐSTEFNU UM VERKALÝDSMÁL
dagana 19. tíl 21. apríl næstkomandi
Myndin er úr leikþættinum, sem sýndur verður. (Tímamynd Gunnar)
Ráðstefnan hefst föstudaginn
19. apríl kl. 20.30. ltáðstefnuna
setur Kristinn Finnbogason form.
Framsóknarfélags Reykjavíkur.
Þá mun Ólafur Jóhannesson for-
maður Framsóknarflokksins flytja
ávarp. Skúli Þórðarson magister
flytur erindi er nefnist Saga
verkalýðshreyfingarinnar. Að lok
um verður sameiginleg kaffi-
drykkja, fyrirspurnir og umræður.
Laugardaginn 20. apríl hefst
ráðstefnan aftur kl. 14. Þá tala
þessir: Erlendur Einarsson for-
stjóri SÍS — Samvinnu- og verka-
lýðshreyfingin, — Eyste*nn Jóns-
son alþm. — Framsóknarflokkur-
inn og verkalýðshreyfingin. — Síð
an verður kaffihlé kl. 16 og kl.
16.15 verða fyrirspurnir og unxæð
ur.
Sunnudaginn 21. apríl hefst ráð-
stefnan kl. 14. Þá ræðir Ilann'bal
Valdimarsson forseti ASÍ um
Verkalýðshreyfinguna í dag og
framtíð hennar og Egill Sigur-
geirsson hæstaréttarlögm. ræðir
um Vinnulöggjöfina. Að því loknu
verður kaffihlé, fyrirspurnir og
umræður, og Helgi Bergs, ritari
Frams.flokksins flytur lokaorð.
Stjórnandi ráðstefnunnar verður
Kristján Thorlacíus formaður
BSRB.
Tilkynna verður þáttöku í ráð-
stefnunni sem allra fyrst á skrif-
stofu Framsóknarflokksins að
Hringbraut 30, eða í síma 24480.
Allt stuðningsfólk Framsóknar-
flokksins í Reykjavík og nágrenni
velkomið.
Á föstudag og laugardag verður
ráðstefnan að Hallveigarstöðum
við Túngötu.
I