Tíminn - 09.04.1968, Side 14

Tíminn - 09.04.1968, Side 14
14 „VÉR MORÐINGJAR" FramhalG af bls 3. Reykjaivík áriS 1917, Sendilherr- ann frá Júpiter, sýnt hér árið 1927. Síðar laiuk hann við skáldsöiguna um Brynjólf biskup og samdi leik rit upp úr skáWsögunni, er hann nefndi f Skálholti, og hefur það verk orðið frægast af öllu því er Kamhan skrifaði. Leikurinn var fyrst sýndur árið 1946 hjá Leik- félagi Reyfcjaivíkur og síðar hjá Þjóðleikhúsinu árið 1960. Árið 1915 fór Guðmundur Kamh an til Bandaríkjanna og davld'i þar í tvö ár. Þar skrifaði hann tvö leikrit, Marmari, sýnt hjá Leik félagi Reyikjavíkur árið 1950, og þar lauk hann einnig við leiikritið Vér morðingjar. Óþarfi er að telja upp öll þau mörgu verk, sem Guðmundur Kamhan skrifaði, svo vel er hann þekktur af lands- mönnpm. Kamban varð stúdent árið 1910 og las í fjögur ár heimspeki og bókmenntir við Kaupmannahafnar háskóla. Jafnframt háskólanámi lagði hann stund á leiklistarnám í Kaupmannahöfn og varð síðar leikstjóri við ýms þekkt leikhús j Kaupmannahöfn. Dagmarleikhús ið 1920, Folke-Teatret 1922—24, og við Konunglega leitohúsið árið 1931—33. Ennfremur var hann þekktur upplesari og fyrirlesari. Guðmundur Kamban var fæddur 8. júní árið 1888, en féll fyrir vopnum óþekktra upphlaups- manna á frelsisdegi Dana þann 5. maí árið 1945. Á þessu ári eru liðin 80 ár frá fæðingu Guðmund ar Kamhans og af því tilefni er nú leikrit han,s Vér morðingjar, sýnt í Þjóðleikhúsinu.. Leikstjóri er Benedikt Árnason, en aðalhlut verkin eru leikin af Gunnari Eyj- ólfssyni og Kristhjörgu Kjeld. Aðr ir leikendur eru: Guðhjörg Þor- bj arnardóttir, Gíisli Alfreðsson, Erlingur Gíslason, Sigríður Þor- valdsdóttir, Anna Guðmundsdótt- ir. Leikmyndir og búningsteikn- ingar gerir Gunnar Bjarnason. Uppboð til slita á sameign á hluta af Sogavegi 132, þingl. eign Sverris Gíslasonar og Kristínar HrafnfjörS, fer fram eftir kröfu Kristins Einarssonar hdl., f.h. Kristínar Hrafnfjörð, á eigninni sjálfri, þriðju- daginn 16. apríl 1968 kl. 4 síðdegis. Borgarfógetaembættið í Reykjavík. ÞAKKARÁVÓRP Beztu þakkir færi ég öllum, sem á einn eða annan hátt glöddu mig á 75 ára afmælinu 3. apríl. Beztu kveðjur. Guðmundur á Brjánslæk. Innilegar þakkir öllum þeim er minntust mín með gjöfum, skeytum og heimsóknum, á 60 ára afmæli mínu 6. marz síðastliðinn. — Lifið öll heil. Þorvaldur Jónsson, Núpi. Alúðarþakkir sendi ég til allra þeirra sem heiðruðu mig, með skeytum, kveðjum og gjöfum, á sextugs- afmæli mínu, 27. marz s.l. — Lifið heil. Guðjón Halldórsson, Heiðarbæ. Innilega þakka ég öllu-m, sem sýndu mér vinar- hug á 70 ára afmæli mínu 30. marz, með heimsóknum, gjöfum og skeytum. Jón Einarsson, Hóli, Þverárhlíð. Föðursystir okkar Sigríður Sveinsdóttir frá Langárfossi sem lézt aðfaranótt 4. apríl, verður iarðsungin frá Borgarnes- kirkju 16. apríl kl. 2 e. h. Fyrir hönd vandamanna, Hrönn Aðalsteinsdóttir, Björk Aðalsteinsdóttir, Sveinn Aðalstelnsson. Okkar innilegasta þakklæti til allra sem sýndu okkur samúð og vináttu við andlát og jarðarför hjartkærrar dóttur okkar og systur Ólafar Ástu Geirsdóttur Dunhaga 13 Guðrún Pétursdóttir, Geir Einarsson, Gylfi Geirsson, Pétur Geirsson. TÍIVHNN RÁÐHERRA Fra'mhald af 1, síðu til forseta íslands, til utaiiríkisráð herra, forsætisráðherra og við- skipfaimálaráðherra, e-n hádegis- verð sinæddi hann í boði forset'ans að Bessastöðum. 'Síðdegis í dag, eða um kl. 16, fór hann í heimsókn í Þjóðminja- safnið, Li'Stasafn ríkisins og í safn Ásmundar Sveinssonar. í kvöld sat hann síðam kvöldverð í boði utaniiíkisráðherra í Ráðherrabú- staðnum við Tjarnargötu. Á morgun, þriðjudag, mun Bashev væntanlega sjá eitthvað af nágrenni Reykjavíkur. Er áætl að, að hanm fari um táuleytið í fyrramálið í ferð’alag að Reykj- um, Selifossi, Sogsfossum og Ilveragerði. Ifanin mun heimsækja Reykjaluind, dælustöðina á Reykj- um, írafossstöðina, en að írafossi snæðir hann hádegisverð í boði Landsvirkjunar. Að honum lokn- um fer Bashev í heimsókn í Mjólk urbú Flóamanina og síðan til Jíveragerðis, en væntanlega kem- ur hann aftur til Reykjavíkur um kvöldmatarleytið. Á miðvikudag dvelur utanríkis- ráðherrann í Reykjavík. Fer hann í heimsókn til borgarstjórans í Reykjavík, en fer síðan í skoðun- arferð um borgiina og snæðir loks hádegisverð í boði borgarstjóra. Eftir hádegi heimsækir Bashev •utanríkisráðherra að nýju og verð ur þar umdirritaður samniingur milli íslands og Búlgaríu um af- nám vegabréfaáritana. Eins munu þeir ræðast við um samskipti ís- lands og Búlgariu og um alþjóða- miál. Snemma á fimmtudagsmorgun heldur Bashev til Keflavíkurflug- vallar, og heldur utanrikisráðherr ann til megimlands Evrópu kl. 8,30. FRÚ KING FramhaW af bls. 1. um látna virðingu sína með þátttöku í göngunni. Gangan er og farin til að fylgja eftir kröfum sorphreinsunarinanna í borginni, en þeir eru flestir hverjir þeldökkir. Það var ein- mitt til að styrkja málstað þeirra sem Dr. King kom til borgarinnar, og liann ætlaði að stjórna kröfugöngu þcirra í dag. Eins og kunnugt er, var King skotinn á hótelsvölum, og í dag voru þær þaktar blóm um og ótölulegur fjöldi fólks gekk framhjá þeim. Þær eru nú orðnar sem helgur staður fyrir fjölda þeldökkra manna, sem litu á King sem þann er myndi leiða þá fram til betra lífs. Margir, bæði menn og konur, grétu sáran fyrir fram an blómum skrýddar svalirnar. Á að gizka 6000 hermönnum úr þjóðvarðliðinu hafði verið fyrirskipað að stöðva hverja tilraun til uppþota, og að hindra göngumenn í að fara aðrar götur en þær, sem borg aryfirvöld höfðu heimilað að gengið skyldi um. Fátt áhorf enda var utan þessara 6000 þjóðvarðliða frá Tennessee. Það orkaði ekki tvímælis að hin ir hvítu íbúar Memphis héldu sig innan dyra. eða sem lengst frá göngunni. Verzlununum á ieið göngunnar, var lokað og lögregla bannaði mönnum að standa uppi á húsþökum við götur þær sem gangan var far in um. Um það bil 500 sérþjálf- aðir verðir. allt ungir negrar. stóðu vörð á mikilvægustu stöðum. til að sjá um að göngu menn hlýddu í einu og öllu boðorðum Dr Kings um að beita ekki ofbeldi. Fjöldi þekktra manna, leik- ara. verkalýðsleiðtoga og stjórn málamanna, tók þátt í göng- unni Leið göngunnar var hálf ur þriðji kílómetri að lengd og það liðu u.m sex stundir þar til þeir sem aftastir voriu í röðinni, komu á leiðarenda, en þá var haldin stutt minningar- athöfn. Að skipan yfirvalda varð göngunni að verða lokið kl. 17 því að menn urðu að vera komnir til síns heima áð- ur en útgöngubannið gengi í gildi í borginni. Gangan hófst án þeirra frú King og dr. Al'bernathys, þar eð flu'gvélinni, sem Rockefeller rlfkisstjóri hafði lánað þeiim til afnota, seinkaði á flugvellin um í Atlanta, vegna þoku. Það var því efcki fyrr en gangan var kornin nokkuð áleiðis, að frú Coretta King kom inn í hana, ásarnit dóttur sinni Yolanda 12 ára gamiailli, og tveimur sonum, þeim Martin og Dexter, sem eru liO ára og sjö ára garmlir. Það var afllt með kyrrum kjörurn í Meimphis í dag, eftir fjögurra daga kynþáttaóeirðir, íkveikjur, leyniskothríð og gripdeildir. Það þarf ekki nema lítið til þess að óeirðirn ar blossi upp á ný, og því feng-u gönguimenn fyrirskipan ir um að tala ekki við áhorfend ur á leiðinni né heldur að svara ef að þeim væri hrópað, því að þá gæti soöið upp úr. Þessu fylgdu göngumenn í einu og öllu, því að nú gafst tækifæri til að sýna að friðsam legar mótmælaaðgerðir Kings lifðu enn þótt hanm væri látinn. Gangan var mjög kyrrlát. Menn sungu ekki né heldur voru hrópuð slagorð. Hver gekik hugsi og hljóður, nokkrir báru spjöld sem á var letrað „Til minningar um Dr. King“. — ,Jafnrétti í kynþátta málum“ — „Réttlæti í vei’ka- lýðsmálum", og „Ég á mér draurn." ÍSBJÖRN Framhald af bls. 16. fjarðarbáta og eru þeir farnir að taka upp net sín og færa þau vest ar, til að þau skemmist ekki und Ir ísnum. Bliikur er nú á Hornafirði og er á austurleið. Mun verða gerð tilraun til að sigla norður rneð fjörðum og alit ti'l Seyðisfjarðar. Eins og fyrr segir er Esja á suð uríeið og var í kvöld að komast út úr þóttasta ísnum úti fyrir DjúPavogi. í kjölifar hennar sigl ir vélbátur sem er á leið til Horna fjarðar. Skipstjórinn á Esju sagði í dag að hann hafi orðið var við tvö skip i ísnum fyrir austan. Eru það flutningaskip, annað rúss- neskt og hitt þýzkt. Eru þau á leið til Austfjarðahafna. Fjögra Herb. íbúS til sölu í Hlíðunum. Félagsmenn hafa forkaupsrétt að íbúð- inni. Byggirtgarsamvinnufélag Reykjavíkur, ÞRIÐJUDAGUR 9. apríl 1968, MINNING Jensína Bjarna- dóttir frá Hallbjarnareyri við Grundarfjörð. Fædd 27. apríl 1890. Dáin 31. marz 1968. Fyrir vesta-n vorið kemur senn varstu að Þæfusteini á Sandi fædd. Sárt er hve tíðum fa-lla mætir menn og meinin dýpstu iila jafnan grædd Að Setbergi þeim kunna kirkju- i stað komst þú sem lítið barn á þunnri skei. Og eitt er víst að minnast mætti á það að mi'kið séra Jens þér reyndist vel. Sem prestsdóttir þú gekkst um Grundarfjörð þá gömlu daga aftur kysir þú. Þú hentist samt í burt á höfðings- jörð Hallbjarnareyri reistir eigið bú. í fimmtíu ár þú festir yndi þar við fé og kýr og ekki síður hest. Og allt hjá þér í röð og reglu var já reyndar fínna og hreinna en víða sést. Þú greiddir hárið, gekkst á hrein- um kjól og gladdist við það starf sem fyrir bar. Þér fagnaði enginn betur sumri og sói þá sástu fegurð lífsins alls staðar. Börnum þínum varstu bljúg og góð og bónda þínum reyndist sómafrú. Hann orti til þín stundum lítið Ijóð og lífgaði upp neista af brostinni trú. Þér félli bezt að finna Ella þinn sem fluttur er á burt úr þessum heim. Hann býður niðrí vör með bátinn sinn og Breiðafjörður skín við ykkur tvejm. Hugi Hraunfjörð.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.