Tíminn - 20.04.1968, Qupperneq 3

Tíminn - 20.04.1968, Qupperneq 3
». aprfl 1968 Merkjasöludagur Ijósmæðra Árlegur merkjasöiludagur Ljósmiæðrafélags Reykjavíkur er á morgun sunnudag. Félagið rekur hvíldarheimili í Hvera- gerði fyrir ljósmæður, þar sem margar Ijósmæður hafa dvalið lengri eða skemmri tíma sér til hressingar. Ljósmæðra félagið hefur einnig gefið fé til mannúðarmáila og reynt að styrkja sjúkar eða fátækar ljós mæður af fremsta megni. Ljós mæðurnar telja það ljúfa skyldu sína að greiða veg ein stæðinga og munaðarleysingja, sem til þeirra leita. Þó að að- alstaríi ljósmæðra sé fyrst og fremst að hjálipa fæðandi kon- um, mega þær ekikert láta sér vera óviðkomandi, sem ö'llum þjóðfélagaþegnum er til heilla. Takið vel á móti börnunum sem bjóða ykkur merki ljós- mæðranna. Merkin verða afhent eftir kl. 10 á eftirtöldum stöðum: Álftamýrarskólanum, Hall- grímskirkja norður- dyr, Austurbæj arskóli gengið inn í portið, Hlíðaskóli, Lang hoiltisskóli, Vogaskóli, Breiða- gerðissikóli, Laugalækjanskóli, KFUM, Kirkjuteig 33, kjallara, Rauðarárstíg 40 hjá Guðrúnu Haíldórs Ijósmóður. FræðslunámskeiS Samb. ísl. sveitarfélaga Samiband íslenzkra sveitarfé laga heldur fræðslunámiskeið um sveitarstjórnarmál í Tjarn arbúð í Reykjavík dagana 22. —24. þessa mánaðar. Formaður sambandsins, Páll Líndal, borg arlögmaður, setur námskeiðið. Ingólfur Jónsson, landbúnaðar- ráðherra, flytur ávarp. Siðan verða flutt erindi um helztu við fangsefni oddvita og hrepps- nefnda. Fyrsta daginn flytur Hjálm ar Vilhjálmsson, ráðuneytis- stjóri í félagsmiálaráðuneytinu, erindi, um samskipti sveitar- stj. við önnur stjórnvöld Ölv- ir Karlsson, oddviti talar um sveitarstjórn í dreifbýli og Unnar Stefánsson, ritstjóri um sameiningu sveitarfélaga.Sigur- björn Þorbjörnsson, ríkisskatt- stjóri, hefur framsögu um staðgreiðslukerfi opinberra gjalda. Aðalsteinn Eíríksson, námsstjóri og Torfi Ásgeirsson skrifstofustjóri ræða skólamál og Gísli Kristjánsson ritstjóri talar um forðagæzlu. Annan daginn ræðir Guð- jón Hansen, tryggingafræðing ur um almannatryggingar, dr. Sigurður Sigurðsson, landlækn ir um læknaþjónustu í dreif býli, Magnús E. Guðjónsson, framkvæmdastjóri, um Lána- sjóð sveitarfélaga og Bjarg- ráðastjóðs íslands og Valdimar Óskarsson, skrifstofustjóri, um nýja fasteignamatið. Einnig verður rætt um þjóðskrá, bók- hald og samskipti sveitarfélaga við Hagstofu íslands. Erindi flytja Klemenz Tryggvason, hag stofustjóri, Ingimar Jónasson. deildarstjóri og Hrólfur Ás- valdsson, viðskiptafræðingur. Seinasta dag námskeiðsins tal ar Ásgeir Ólafsson, forstjóri, um brunavarnir í sveitum, Þor steinn Einarsson, íþróttafull- trúi, um félagsheimili, Birgir Kjaran alþm., um náttúru- vernd, Guðmundur G. Hagalín, bókavörður, um sveitabóka- söfn og héraðsbókasöfn og Vig fús Jónsson, oddviti um fran\ kvæmd sveitarstjórnarmála í kiauptúnahreppum. Námskeiðið sækja milli 40 og 50 oddvitar, hreppsnefndar menn og sveitarstjórar frá sveitarfélögum víða um land. Vér morðingjar frumsýnt kvöld í dag eru liðin 18 ár frá því að Þjóðleikhúsið var víigt. í kvöld verður frumsýning í Þjóðleibhúsinu á hinu þekkta 1-eikriti Guðmundar Kam'bans, Vér morðingjar, en þann 8. júní n. k. eru liðin 80 ár frá fæðingu Guðmundar Kambans. Leikstjóri er Benedikt Árna- son, en aðaihlutverkin eru leikin af Kristbjörgu Kjeld og Gunnari Eyjóifssyni. Slasaðir Bretar fluttir frá Vestf jörðum SE-Þingeyri, föstudag. Hingað til Þingeyrar komu í gær tvær flugvélar frá Birni Pá'lssyni, en þær urðu að vera hér í nótt, vegna þoku í Reykjavík, og flugvöllurinn þar lokaðist. Þá skeði það seint í gærkvöldi, að hingað kom brezkur togari með slasaðan mann, sem meiðzt hafði illa á handlegg. Togarinn heitir Ross Kandahar. Laust fyrir fimm í morgun var svo hringt hingað til af- greiðslu flugþjónustunnar og beðið um, að önnur flugvélin yrði send til ísafjarðar ti'l að sæ'kja þangað slasaðan Breta, sem togari hafði komið með þangað, en talið var að Bret inn hefði höfuðkúpubrotnað. Flugvélin var komin á loft um sexleytið í morgun, og flutti sjúklinginn til Reykjavíkur. Seinni flugvélin fór svo milli 8 og 9 í morgun og með henni slasaði Bretinn, sem hingað kom. Ágætis veður hefur verið að undanförnu, hlýtt og gott. Veg ir þorna nú óðum, en menn bíða með óþreyju eftir að fja'llvegir verði mokaðir. í fyrradag og í dag hafa verið hér tvö skip og losað áburð, Arnarfellið og Selá. Mótmæla „þyrlufluginu". Eftirfarandi ályktun gerði stjórn Félags Frímerkjasafn- ara á fundi sinum hinn 17. apríl. „Út af „Þyrluflugi“ þ. 10. þ. m. vill stjórn Félags Frí- merkjasafnara taka eftirfarandi ® fram: g Vér teljum, að hér sé um al M gert einkaflug Landssambands | frímerkjasafnara að ræða, þar eð engin tilkynning var gefin út af Póstmá'lastjórninni um þetta „Þyrluflug“ og gafst þvi almenningi ekki tækifæri til að senda bréf eða aðrar póst- sendingar með þyriunni. Þá teljum vér þessa fjáröfl- unaraðferð mjög vítaverða og sé hi;n til þess eins að spilla áliti manna á frímerkjasöfnun. Félag frímerkjas.afnara er ekki í Landssambandinu.“ Stjórn Félags frímerkjasafn- ara. TIMINN 3 ■ sqp Gunnar Ásgeirsson og sonur hans Ásgeir á nýja Volvo-verkstæSinu. ÞiS þekkiS vafaiaust farkostinn í baksýn, því aS það er enginn annar en Simon Templar sem ekur um á svona sportbíl — P-1800. Tímamynd-GE. NÝTT V9LV0-VERKSTÆÐI OPNAÐ Gunnar Ásgeirsson h. f. hefur opið hús fyrir almenning frá 2—6 í dag og á morgun, þar sem sýndar verða allar vörur, sem fyrirtækið hefur upp á að bjóða. GI-Reykjavik, föstudag. Gunnar Ásgeirsson h.f. hefur nú opnað viðgerðaverkstæði fyrir Volvo-bifreiðir í húsi umboðsverzl unar sinnar að Suðurlandsbraut 16. Verkstæðið er stórt og rúm- gott, um 750 fermetrar að fi’atar- máli og getur því tekið inn um 12 fólksbifreiðir og fjórar vöru- bifreiðir samtímis, auk þess sem 2—3 bifreiðir rúmast á réttinga- verkstæðinu í einu, en það er að- skilið frá aðalverkstæðinu. Til þessa hafa Dieselvélar h.f. rekið verkstæði þarna á sama stað, en það var mun minma, aðeins um 250 fermetrar. Um síðustu áramót tók umiboðsverzlun Gunnars Ás- geirssonar við verkstæðinu og hef ur eins og áður sagt, aukið mjög við það og búið það hinum full- komnu'stu tækjum. Verkstæðisformaður er Jan Jensen, en hanm hefur numið hjá Dieselvélum, en ásamt honum er sænskur maður, Karl Pettersen að nafni. Pettersen hefur verið fenginn hingað til lands sérstak- lega sem sérfræðingur um við- gerðir á Volvo-ibifreiðum, en hann hefur unnið um árabil bæði í Sví þj'óð og erlendis að stjórn Volvo- verkstæða. Bifvélavirkjarnir á verkstæðinu haifa allir gengið á sénnámskeið, sem kennarar frá Volvo verksmiðj unum hafa haldið hér. Aðalatrið- ið er að kenna þeim að fara með hinn mikla fj'ölda sér-verkfæra, sem nú eru til og eiga að flýta viðgerðum til muna. Sem dæmi má nefna, að skrúflyklar eru ekki notaðir. í þeirra stað koma loft- þrýstistútar, sem festir eru neð- Framhald á bls. 14. Málverka- og höggmyndasýn- ing í Ustamannaskálanum OÓ-Reykjavík, föstudag. Hjónin Kristín H. Eyfells og Jóhann Eyfells opna á morgun, laugardag, sýningu í Listamanna- skálanum. Sýnir Kristín andlits- málverk, teikningar, og nokkrar höggmyndir. Allar mynd ir Jóhanns á sýningunni eru vegg myndir, gerðar úr alúmin, járni og kopar. Er þetta önnur sam- eiginlega sýningin sem hjónin halda í Listaman naskálamun. Hin fyrri var haldin árið 1964. Jóhann hefur aðallega sýnt höggmyndir til þessa og má raun ar segja að hann geri enn, að þessu sinni, því myndir hans á sýningunni eru gerðar úr málm um ýmis konar, sem eru steyptir og bræddir saman og felldir í ramma. Höggmyndir Kristínar eru úr gipsi, og eru þær 13 talsins á sýningunni. Einnig sýnir hún 17 and'litsmá'lverk og teikningar. Veggmyndir Jóhanns eru 33. Þau hjón hafa áður haldið fjöida sýninga, bæði einkasýning ar og tekið þátt í samsýningum, hér á landi og erlendis, aðallega í Bandaríkjunum, en þar voru þau búsett í fjölda ára og stund uðu nám og störf. Fyrir utan list nám stunduðu þau nám á öðrum sviðum. Er Jóhann arkitekt að mennt og Kristín sáilfræðingur. Myndin er tekin af hjónunum Kristínu og Jóhanni Eyfells, er þau voru að koma myndum sínum fyrir í Lista. mannaskálanum í gær. Tímamynd: uGnnar.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.