Tíminn - 20.04.1968, Blaðsíða 14

Tíminn - 20.04.1968, Blaðsíða 14
14 TIMINN LAUGARDAGUR 20. apri! 1968 Vörubílstjórar mót- mæla hækkunum EJ-iReykjaivík, flöstudag. í bréfi, sem Landssamfoand vöru onstjóra ritaffi Alíþingi fyrir nokkru, er frumvarpi ríkisstjórn- arinnar um haekkun á beinzíni, þungaskatti olíubifreiða og gúmmí gjaldi, sem varð að lögum fyrir nokkrum dögum, harðlega mót- mælt. í bréfinu segir, að vöru- biifreiðastjórar mótmiæli því harð- lega, „að við sem atvinnustétt séum lagðir í einelti og látnir bera hlutfallslega meiri byrðar én aðrir af þessum nýju álögum, eins og frumvarpið gerir þó ráð fyrirh. Gera þeir nokkuð nánar grein fyrir þessu í bréfinu, svofaijóð- andi: „Flestallar vörubifreiðir brenna nú olíu en ekki benzíni og er þessu öfugt farið með fólkstoifreið ir. Með frumvarpi þessu er þunga skattur benzíntoifreiða óbreyttur en þungaskattur oiíutoifreiða hækk aður um 100% miðað við algemg- ustu bifreiðastærðirnar. Með frumvarpinu er gert ráð fyrir, að eigandi 10 tonna bifreiðar borgi í þungaskatt af henni rúmlega 1000 krónur á viku, hvort sem vinnan er mikil eða lítil. Segja má, að eigandi benzínbifreiðar axl’ síinar byrðar með hæklcuðu benzínverði samkvæmt frumvarp- inu, og er það rétt, en þó hvergi til jafns við eigendur olíubifreiða. Þetta viijum við rökstyðja með eftirfarandi dæmi: Ef miðað er við fólksbifreið, sem eyðir 6000 lítrum af benzíni á ári, kemur hækkunin vegna faœfckaðs benzínverðs kr. 6.840.00, en þuingaskattsfaækkun á olíutoif- reið, sem er að eigin þunga 6000 kig. nemur kr. 18.040.00. Eninifremur má benda- á, að gúmmígjaldið kemur miklu verr Sendum ókeypis verðlista yfir frímerki og frímerkjavörur. FRIMERKJAHÚSIÐ I.ækjargötu 6A Ravkjcivik ~ Sími niður á vöruibfreiðunum, en frum varpið gerir ráð fyrir 300% hækk un gúmmígjaldsins. Það vekur furðu okkar, hvern- ig frumvarp þetta er byggt upp og hverjum er ætlað að bera þyngstar byrðarnar. Vörutoifreið- arnar þjóna atvinnuvegunum og Ihinum dreifðu byiggðum hvað að- idræt*' snertir, og eru því fiutn- ingátæki, sem bráðnauðsynlegt er fyrir þjóðina að séu starfrækt. Þessi tæki eru hins vegar með frumvarpi þessu skattlögð svo, að algert einsdæmi er, og það þótt um víða veröld væri leitað. Á sama tíma falla lúxusbifréiðar og þarflitlar fólkstoifreiðar undir mun lægri kvaðir samkvæmt frum varpinu“. VOLVO Framhald af bls. 3. an í loftið, og með þeim má viinna mun hraðar en með venjulegum skrúflyklum. Annað dæmi um hentugar sérvélar er tæki ti-1 að taka sundur gítokassa. Sé það gert með venjulegum áhöldum, tekur þáð um þrjár stundir. En með nýja tækinu má lj-úka verkinu á tíu miínútum eða svo. Nœstu daga gefst mönnum kost ur á að skoða nýja verkstæðið, en j'áflnframt- því heldur Gunnar Ás- geirsson h.f. sýningu á. vörum sín um. Sýningin verður opin á laug ardag og sunnudag frá kl-ukkau tvö til sex. Meðal þess, sem þar getur að líta, eru hraðbátar, segl- bátar, vélsleðar, froskmannsibún- i-ngar og fleira flyrir j)á, sem urjna útiMfi. Á neðstu hæðinni veröa Blaupunkt og riusquar.na^vörur. Þar verður og sýnd llusquavna- saumavél í niotkun og sýnir frú E-rla Ásgeirsdóttir vinnubrögð við jþœir saumávélar, Þlá verða áð sjáifsögðu sýndar Volvo-fólksbif- reiðir og þar á meðal P-1800 sport bíllinn, en hann er flestum að góðu kunnur, því að sjálfur dýrl- ingurinn Símon Templar ek-ur honum um þvera og endilaniga sjónvaripsskerma íslendinga á i hverju föstudagskvöldi. EINAR KVARAN Framhald af bls. Ifi Ævar R. Kvaran skýrði frá þessu á fundi í dag. Hann hefur áður snúið í ieikritsform verkum eftir Einar Kvaran. Það var fyrir 5 árum, að hljóðvarpið flutti Sfcefiftu thfí/ii/igei/YÚr V Nýtt umboð fyrir Happdrae+ti D.A.S. er í Bókabúð Jónasar Eggertssonar, Rofabæ 7. 74 möguleikar til stór- happs, auk fjölda húsbúnaðarvinn- inga. Sala á miðum stendur yfir. Happdrætti Útför Jóns Hallvarössonar, hæstarréttarlögmanns, sem andaðist 13. þ. m„ verður gerð frá Fossvogskirkju, þriðjudag- inn 23. þ. m., kl. 1.30. Þeim, sem vildu minnast hins látna, er bent á Slysavarnafélagið og 'Hjarta- og æðaverndarfélagið Ólöf Bjarnadóttir og börn hins látna. Þökkum hjartanlega auðsýnda samúð við andlát og jarðarför, SigurÖar Hannessonar, Hólum I Stokkseyrarhreppi. Systkini hins látna og aðrir vandamenn. einmitt framhaldsleikrit, sem hann gerði upp úr sögunum tveim ur Guil'l og Ofurefli. Það kom fram á blaðamanna- fundinum, að íslenzkar sögur og leikrit virðast njóta langmestra vinsælda af öllu efni meðal hlust enda, jafnt ungra sem gamalla, og vildi fólk hlusta á þetta a-ftur og aftur. Er þess því að vænt-a að þetta íslenzka verk m.uni eiiga miklurn vinsældum að fagna með al hlustenda. Svo sem að framan greinir, er leikritið í 6 þáttum. Ber hver þáttur sérstakt heiti eins og í sögunni. Lengd þeirra eru mjög misjafnir. Fyrstu tveir þættirnir taka allt að klukfcustund í flutn ingi, en þeir síðari um og tæip- lega 40 mínútur. Upptökum er að verða lokið. Með leikritinu er fllutt tónlist sem Magnús Blöndal Jóhannesson hefur samið við það. Um þessar mundir eru liðin rótt þrjátíu ár frá láti Einars H. Kvaran, og á því vel við að flytja þetta verk hans nú. Á næsta óri eru liðin 50 ár því að Sögur Rann vegiar komu út fyrs-t, og þess ber að geta, að verkið var flótlega gefið út í Danmörku í þýðingu dr. Valtýs Guðmundssonar. TRILLUR 'rámhaid af bls. 16 Netaafli er yfirleitt góður, 30 til 50 lesfir á bát, en trollbá'tarn ir -fiska misjafnlpya. Veðrið er með eindæmúm gott fyrir Suður landi og er atvinna í Eyjum geysi mikil og vantar fólk til áð viriqa í. flestum fiskvinns'lustöðvum. Hið langþráða saltskip kom tii Eyja í-fyrradag og var þá orðið tveim sólarhringum á eftir áætlun, en allt var að verða saltlaust og h-orfði tii stórvandræða af þeim sökum. En nú er nægilegt salt til. Þá eru fisktö.kuskip í Vest mannaeyjaihöfn' núna og vantar fólk til áð vinna að útskipun. Eig endur fiskvinnálustöðva hafa far ið fram á að skóla-piltum í fram haldisskólum verði gefið frí til að taka -þátt í atvinnulífinu, en slíkt leyfi mun ekki verða gefið, þar sem s-enn fer að líða að prófum og álíta forráðamenn skólanna að strákarnir eigi fremur erindi á skóla.bekkjunum þessa dagana en i fiskvinnslu. LANDBÚNAÐARSÝNINGIN Framhald af 1. síðu B-e-iðni um þátttöku í sýningu-nni seindist Búnaðarfélagi íslands fyr- i ir 1B. maí n. k. Nautgripir: — Af svæðinu frá varnargirðingu í Hvalfirði að Markárflljóti, er ráðgert að velja -í samráði við stjórnir nautgripa- ræktarfélaganna nautgripi til sýn ingar. Sýnd verða fjögur úrvals i kynbótanaut og væntamlega tivö ■ þeirra með þremur dœtrum hvort. | Betri hópurinn fær 35 000.00 kr. I verðlaun. Af yngri nautunum fær toetra nautið 5.0Ó0.00 kr. verðlaun. Sýndar verða 12 úrvals kýr i tvei-mur flokkum, eldri og yngri kýr. Það verða sömu verðlaun í toáðum flokkum: 1. verðlaun 10.000 kr. 2. verSlaum 8.000.00 kr. 3. verð laun 7.000.00 kr. 4. verðiaun 6.000 kr. 5. og 6. verðlaun 5.000.00 kr. Ein aukaverðlaun verða veitt fyrir beztu kúna, kr. 15.000.00. Sú nýbreytni verður tekin upp nú, að unglingar sýna kálfla, sem þeir hafa alið u-pp og gert taum- vana. Þessir kálifar verða tólf og sá ungling-urínn, sem sýnir falleg asta og bezt hirta kálfinn, fær kr. 10.000.00 en allir unglingarnir flá peningaverðlaun. Til viðbótar því, sem nefnt hef ur verið, verða þarna sýndir þrír holdagripir, átta nýfæddir kálfar og þrír al'i-kálfar. Flutning grip- anria að og frá sýningu apnast nautgriparæktarsamb'öndin eða félög. Eigendur gripanna þurfa að tryggja þá. Sauðfé: — Leyft hefur verið að' taka sa-uðflé til sýningarinmar af svæðinu á milli Hvítár og Þjórsár, þ. e. úr Hirep'pum, Skeiðum og Flóa. Gert er ráð fyrir að sýna fimmtíu kin-dur veturgamlar og eldri. All-t sýningarféð fær verð- laun og á lægsta upphæðin að vera það há, að eigan-di kindar- innar verði ekki fyrir fjórhags- tjóni af því að sýna kindina. Þá verða sýndar fim-m geitur með kiðlingum. Ennfremur a-llar tegundir aliifugla svo og svín“. ÞINGSÁLYKTUN Framhald ai Ols. 1. „Deildin ályktar að lýsa yfir þeirri skoðuu siinni, að deiluefni styrj-al-daraðila í Vi-etnam beri að leysa; með friðsamlegu-m hætti. Stór hætta er á því, að styrjöld þessi geti hvenær sem er breiðzt út og orðið uipphaf nýrrar heims- styrj'a'ldar, auk þess sem áfram- haldandi styrjail-darrekstur eykur sílfellt á langvarandi hörmungar viet’niömsku þjóðarinnar. Með þeirri takmör-kun lofltárása á Norður-Vietnam, sem ríkisstjóm Banidaríkjainina hefur nýlega ákveð ið, og þeim jákvæðu viðtorögðum, sem stjórnin í Hanoi hefur sýnt afl þessu tilefni, hefur nú skapazt hagstætt tækilfæri til undirtoún- inigis sáttagierðar í deilunni. Má einskis liáta ófreistað til að nota þetta tækiifæri sem bezt, svo að v'opnaihléi og viðræðum um frið- arsamininga verði komið á. Telur deildin, að þessu verði nú helzt fram komið með því: 1. að ríkisstj-órn Bandaríkjann'a stöðvi allar loftárásir á Norður- Vietnam, en jafnframt dragi stjórn Norður-Vietnam og Viet Oong-toreyfingm úr sóknaraðgerð- um aif sinni hiálflu og láti þannig í Ijós ótvíræða-n vil-ja til að ga-nga til samninga. 2. að au-k ríkisstjórnar Banda- ríkjanna og rikisstjómar Norður- Vietn'am verði ríkisstjórnin í Sai- gion' og Viet Congjhreyfingin að- ilar að samningsgerðinn'i, 3. að öfiugu. sáttas-tarfi í deil- unni verði haldið uppi á vettvangi Sameinuðu þjóðanna. Felur deildin ríkisstjóminni að fram'fylgja þessári ályktun á al- þj'óðavettvangi“. NATO-STYRKIR Framhald af bls. 16. beina sínum rannsóknum að verkefninu „ísland — frá hlutleysi til NATO-aðiId-ar,“ en Þorsteinn Thorarensen „Fiskim-enn á Norður- At-lantsih-afi í stríði og friði. Mat á þýðingu þeirra fyrir sjóheri NATO-ríkj- anna.“ 4 VfÐAVANGI Framhald af bls. 5. utgjöld. Og ég get ennfremur glaít ykkur með því, að niður! staðan verður hin sama, þótt| vísitala framfærslukostnaðar | sé notuð sem mælikvarði. Fyrst þið enduðuð ykkar grein; með vísu, langar mig til þess j að taka ykkur til fyrirnivndar i — í því — og kveð með þess- j ari spurningu og ósk: i Er ekki Maddaman ykkar orðin hálfgert skar? Hann Evsteinn ætti að vera eins og liann var. 18. apríl 1968.“ Mælir Alþýðublaðsins Það er ekki á hverjum degi, sem við f-áum svona ánægjuleg bréf úr stjórnarráðinu, og er vert að þakka það og birta. Menntamálaráðherra segir, að tiðurinn „konnslumál" á ríkis- reikningi sé ekki sambærilegt hlutfall árin 1955. 1958 og 1966 vegna þess að fyrri árjn voru niðurgreiðslur og útflutnings- | .bætur ekki á fjárlögunum, en hins vegar árið 1966. Þetta get ur vel skakkað einhverju, og vafalaust getur orkað tvímælis að nota þein.nan mæli á hlutfall framlaga til kennslumála. En memntamálaráðherra hefur sent andmæli gegn því á rangt blað. Það var Alþýðublaðið, sem valdi þennan mæli á menniu.tr- arvísitölu Gylfa, er það sagði. í páskaleiðara sínum: „Sem dæmi má nefna, að ár- ið áður em Gylfi Þ. Gíslason varð menntamálaráðherra, var veitt til kennslumála 73 millj. kr. en á áriniu 1966 (síðasta ári sem ríkisreikningur er til um) var upphæðin 560 milLj. eða um 800% hækkun“. Þar sem gera má ráð fyrir, að það sé tilvonandi memntamála- ráðherra, sem ritar þetta og velnr þennan mæli, var ekki nema eðlilegt, að Tímimn krefð- ist þess að rétt væri á hann les ið eftir beinhörðum tölum, en sá lestur getur ekki talizt veru- leg meðmæli með höfundinum í embætti menntamálaráðherra. Tíminn benti því á, að hækkun- in væri ekki 800% heldur 667%, og hann las einnig af þessum mæli Alþýðublaðsiins rétta hundraðshluta kennslu- mála eftir tölum ríkisreikning- anma þessi ár. Þegar Alþýðu- blaðið valdi þennan mæli til þess að finna mennimgarvísi- tölu menntamálaráðherra fanmst Gylfa engin ástæða til þess að skrifa bréf, meðan lesið var skakkt og honum í hag af mælinum. Eu þegar Tíminn Ieiðréttir og sýnir fram á, hvem ig hlutfall þessara talna er í rauu og vem, þá vaknar hann og lýsir yfir, að þessi mælir sé óhæfur og tölur ekki sam- bærilegar. Það má vel vera að einhverju leyti, eða aðeins not- hæfar í fölsum Alþýðuhlaðsins til að gylla Gylfa. Það er auðvitað hægt að miða hlutfall framlags til kennslumála við margvíslegar þjóðhagstölur og haga því svo að fá út hækkandi prósentutölur eins og Gylfi gerir í bréfi sínn, enda er hann frægur f jölbragða meistari við það, eins og íræg- ast varð í útreikningum verð- bólgumnar í fyrra, þegar hann sannaði tölulega, að þríburar væru minna en tvíburar. Gylfi segir t. d. að vel fari á að athuga, hver hlutdeild kennslumála hafi verið í þjóðar- framleiðslunni hin tilteknu ár. Þá komi í ljós, að til kemnslu- mála fóru 1,8% af þjóðarfram- leiðslu árið 1955, árið 1958 vom það 2,1% og árið 1966 var þessi hlutdeild komin upp í 2,6%. Rétt er það, að prósentu talain fer hækkandi, og því tel- ur Gylfi vafalaust þennan mæli góðan á verðleika sína. En þá ver'ður líka að lesa rétt af hon- um. Telji maður 0,1% eitt stig sést, að árin í vinstri stjóminni hækkaði hlutdeild kennslumála um eitt stig á ári, en árim 1959 —66, „viðreisnarárin“, hækkar hún ekki nema liðlega hálft stig á ári. Þessa hagfræði mætti orða á einfaldari hátt í eftir- fai-andi hendingum: Gylfi í vinstristjóm vann sér stig, sem vert er að hafa í minni en hálfdrættingur við sjálfan sig situr í „viðreisninni". Hann kemur sem sé líka vel fram á mæli Gylfa, ekki síður en Alþýðublaðsins, munurinn á því að vera í vondum félags- skap eða góðum, og í öllum þessum útrcikningum sínum lilýtur Gylfi að leiða s.iálfau. sig að sömu niðurstöðu og Hall- grímur Pétursson, að „hinn er ei nema hálfur maður, sem hafnar siðum góðum“.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.