Alþýðublaðið - 03.01.1990, Blaðsíða 8

Alþýðublaðið - 03.01.1990, Blaðsíða 8
8 Miðvikudagur 3. jan. 1990 IÞROTTIR íþróttasamband Islands: þúsund iðkendur Iþróttasamband íslands var stofnaö í janúarmánuði 1912. Frá þvi aö vera fátæk og veikburða samtök, hefur iþróttahreyfingin vaxiö og dafnaö og er í dag fjolmennustu og virkustu félagasamtók landsins meö um 105 þús- und iðkendur. Margt og mikiö hefur gerst síöan skipuleg íþróttastarf- semi hófst hér á landi viö stofnun íþróttasambands íslands 19. janúar 1912. í upphafi var um aö ræða tiltölulega fámenn og veikburöa samtök, en í tímans rás er íþróttahreyfingin oröin fjölmennustu og virkustu félagasamtök landsins meö rúmlega 105 þúsund iðkendur innan sinna vébanda. Árið 1979 voru iðkendur rúml. 73 þúsund. 20 sérsambönd Sérsamböndin innan ÍSÍ eru nú 20 talsins og auk þess er íþrótta- sambandiö sérsamband þeirra íþróttagreina, sem ekki hefur ver- ið stofnað sérsamband um ennþá. Á árinu 1988 voru starfandi 351 íþrótta- og ungmennafélag á land- ÍÞRÓTTAIÐKENDUR 1988 ÍÞRÓTTAGREINAJR KOSUR KARIAR Yngri en 16 ára 16 ira og ddri Yngri cn 16 ára 16 ára og cldri ALLS BADMINTON 1183 2095 1471 3454 8203 BLAtC 571 753 610 977 2911 BORÐTENNIS 561 179 1002 717 2459 FIMLEIKAR 2913 453 604 287 4157 FRJÁLSAR ÍFRÓTTIR 3123 1103 3426 1533 9190 GLÍMA 25 15 183 170 398 GOLF 136 621 673 2926 4356 HANDKNATTLEDCUR 2635 1126 4375 2216 10352 HESTAÍFRÓTnR 417 725 ,419 1656 3217 IFRÓTTIR FATLAÐRA 74 235 95 353 757 JÚDÓ 58 25 576 463 1122 KARATE 133 94 643 572 1442 KNATTSPYRNA 2345 1123 11019 6918 21310 KÖRFUKNATTLEIKUR 692 . 420 1999 1722 4833 LYFITNGAR 14 77 202 443 736 SIGLINGAR 73 117 295 569 1054 SKIÐAtFRÓTnR 2625 1793 3376 2682 10476 SKOTFIMI 1 14 82 857 954 SUND 2183 8S4 1871 1013 5951 TENNIS 52 76 45 134 307 ASRAR ÍFRÓTnR 399 1398 514 874 3185 iFRÓTTAIÐKENDUR SAMTALS 20018 13331 33485 30536 97370 f STJÓRNUM OG NEFNDUM 273 2099 381 4909 7662 SAMTALS IÐKENDUR OG STIÓRNENDUR 20291 15430 33866 35445 105032 24000 22000 20000 18000 16000 14000 12000 10000 8000 6000 4000 2000 0 inu, sem síðan skiptust í 230 deild- ir eða samtals í 584 starfseiningar. KR stærst Stærsta félag landsins er Knatt- spyrnufélag Reykjavíkur (KR) með 5192 skráða félagsmenn og 3624 iðkendur, en Tennis- og badmin- tonfélag Reykjavíkur er með flesta skráða iðkendur eða 5145. Auk skiptinga í sérsambönd og félög er íþróttahreyfingunni skipt í íþróttahéruð eða héraðssambönd og innan þeirra starfa síðan sérráð hverrar íþróttagreinar. Alls eru héraðssamböndin nú 28 talsins. Hér hefur verið sagt frá um- fangsmikilli starfsemi Iþróttasam- bandsins, sérsambandanna, auk héraðssambands, sérráða og fé- laga, sem er grasrótin, en einnig starfar Ungmennafélag íslands af miklum krafti, þar sem íþróttirnar skipa öndvegi. Allsherjarmót Á næsta ári efna bæði ÍSÍ og UMFÍ til allsherjarmóta hérlendis. Þeir fyrrnefndu, ÍSÍ, halda íþrótta- hátíð í Reykjavík og nágrenni dag- ana 28. júní til l. júlí. Þessi ÍSÍ-há- tíð er haldin 10. hvert ár. Lands- mót UMFÍ fer fram í Mosfellsbæ, 12.—15. júlí, en þar er risin ein glæsilegasta íþróttaaðstaða lands- ins eins og kunnugt er. Ekki er að efa, að báðar þessar hátíðir fara fram með glæsibrag og verða iþróttunum til mikils sóma og framdráttar. Örn Eiösson skrifar Vinningstölur laugardaginn 30. des. ’89 VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA 1. 5af 5 3 896.385 A PUjSíSÍStíS 4. 4af5^fM 5 93.328 3. 4af 5 169 4.763 4. 3af 5 5.507 341 Heildarvinningsupphæö þessa viku: 5.838.992 UPPLÝSINGAR: SÍMSVARI 681511 - LUKKULÍNA 991002

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.