Alþýðublaðið - 03.01.1990, Blaðsíða 10

Alþýðublaðið - 03.01.1990, Blaðsíða 10
10 Miðvikudagur 3. jan. 1990 Þau fengu fálkaorðuna SMAFRETTIR Á nýjársdag sæmdi forseti íslands, samkvæmt tillögu orðunefndar, eft- irtalda íslendinga heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu: Ágúst Bjarnason, f.v. skrifstofu- stjóra, Reykjavík, riddarakrossi fyrir störf að söngmálum. Almar Grímsson, lyfsala, for- mann Krabbameinsfélags íslands, Hafnarfirði riddarakrossi fyrir störf að heilbrigðismálum. Frú Ásdísi Sveinsdóttur, Egils- stöðum, riddarakrossi fyrir störf aö fræðslu- og félagsmálum kvenna. Frú Auði Laxness, Gljúfrasteini, Mosfellsbæ, riddarakrossi fyrir störf að menningarmálum. Baldvin Tryggvason, sparisjóðs- stjóra, Reykjavík, stórriddarakrossi fyrir störf að menningar- og spari- sjóðsmálum. Boga Pétursson, fv. verkstjóra, Akureyri, riddarakrossi fyrir störf að æskulýðsmálum. Eyþór Pórðarson, fv. kennara, Neskaupstað, riddarakrossi fyrir störf að skóla- og félagsmálum. Friðrik Pálsson, forstjóra, Reykjavík, riddarakrossi fyrir störf að markaðsmálum sjávarútvegsins. Garðar Cortex, óperusöngvara, Reykjavík, roddarakrossi fyrir störf að tónlistarmálum. Guðmund Guðmundsson (Erró), listmálara, París, riddara- krossi fyrir málaralist. Jón Tómasson, fv. stöðvarstjóra, Reykjavík, riddarakrossi fyrir embættis- og félagsmálastörf. Ólaf Skúlason, biskup, Reykja- vík, stjörnu stórriddara fyrir störf að kirkjumálum. Óla M. ísaksson, verslunar- mann, Reykjavík, riddarakrossi fyr- ir störf að atvinnumálum. Pálínu Ragnheiði Kjartans- dóttur, forstöðukonu, Hveragerði, riddarakrossi fyrir störf að mann- eldismálum. Pétur Sigurgeirsson, biskup, Reykjavík, stórkrossi fyrir störf aö kirkjumálum. Dr. Sigríði Þ. Valgeirsdóttur, prófessor, Reykjavík, riddarakrossi fyrir störf að uppeldis- og kennslu- málum. Sigurð Magnússon, fram- kvæmdastjóra ISI, Reykjavík, ridd- arakrossi fyrir störf að íþróttamál- um fatlaðra. Sveinbjörn Sigurðsson, bygg- ingameistara, Reykjavík, riddara- krossi fyrir störf að byggingamál- um. Dr. Þuríði J. Kristjánsdóttur, prófessor, Reykjavik, riddarakrossi fyrir störf í þágu kennaramenntun- ar. Nýtt hefti af Þroskahjálp Tímaritið Þroskahjálp 6. tölu- blað 1989 er komið út. Útgefandi er Landssamtökin Þroskahjálp. í þesu tölublaði segja foreldrar ungra barna og nýliðar í stjórn Þroskahjálpar hvað þeim helst liggur á hjarta varðandi lífið og tilveruna. Erindi Páls Skúlasonar sem hann flutti á Landsþingi samtakanna og nefnist RÉTTUR- INN TIL LÍFSINS birtist í heftinu. VILJUM HAFA ÁHRIF segja þroskaheftir sem finnst virðing fyrir þeim sem manneskjum oft fyrir borð borin og talað sé í kringum þau fremur en við þau. Sagt er frá því helsta sem fram kom á fundi Norræna sam- vinnuráðsins nú í haust og rabb- að við Margréti Margeirsdóttur um ráðstefnu sem hún sótti í Noregi um breytingar sem eru á döfinni þar í búsetumálum fatl- aðra. Þá kynnumst við undirbún- ingi að leiklistarstarfi á vegum Þroskahjálpar og Örykjabanda- lags. Fastir liðir eru á sínum stað s.s. AF STARFI SAMTAKANNA. Timaritið Þroskahjálp kemur út sex sinnum á ári. Það er sent áskrifendum og fæst í lausasölu í bókabúðum, á blaðsölustöðum og á skrifstofu Þroskahjálpar aö Nóatúni 17. Áskriftarsíminn er: 91-29901 Mynd mánaðarins Mynd janúarmánaðar í Lista- safni íslands er eftir Gunnar Örn Gunnarsson myndlistarmann. Verkið sem ber heitið „Mynd" er unnið með olíulitum árið 1976, stærð þess er 145 x 130,5 og var það keypt til safnsins árið 1976. Leiðsögnin „mynd mánaðar- ins" fer fram í fylgd sérfræðings, fimmtudaga kl. 13.30—13.45 og er safnast saman í anddyri. Listasafn íslands verður fram- vegis opið alla daga, nema mánudaga kl. 12—18. Veitinga- stofa safnsins er opin á sama tíma. Aðgangur er ókeypis svo og auglýstar leiðsagnir. • Krossgátan □ 1 2 3 4 5 □ 6 . 7 5 9 10 □ ii- □ 12 13 □ □ Lárétt: 1 þannig, 5 götu, 6 hreysi, 7 mynni, 8 tíðast, 10 sólguð, 11 stækkuðu, 12 pípur, 13 gramar. Lóðrétt: 1 salur, 2 rúmt, 3 einnig, 4 átt, 5 vöntunar, 7 karlmanns- nafn, 9 tóma, 12 trylltur. Lausn á síðustu krossgátu. Lárétt: 1 getur, 5 slit, 6 ker, 7 SU, 8 riðill, 10 að, 11 nái, 12 ægir, 13 tófan. Lóðrétt: 1 gleið, 2 eirð, 3 tt, 4 raulir, 5 skraut, 7 sláin, 9 Inga, 12 æf. t Gísli Guömundsson leiðsögumaður og kennari frá Tröð lést 29. desember. Anna M. Guðjónsdóttir Valgerður Guðmundsdóttir og börn hins látna. Berðu ekki við tímaleysi eða streitu í umferðinni. Það ert þú sem situr undir stýri. yUMFERÐAR RÁÐ RAÐAUGLÝSINGAR ffl Hundaeigendur V|t í Reykjavík Athygli ykkar er vakin á því að framvegis verður gjalddagi leyfisgjalds 1. janúarog eindagi 1. mars ár hvert. Við greiðslu gjaldsins, sem er kr. 7.200 fyrir hvern hund bereigendum aðframvísa hreinsunarvottorði eigi eldra en frá 1. september s.l. Gjaldinu er veitt móttaka á skrifstofu eftirlitsins, Drápuhlíð 14, daglega frá kl. 8.20 til kl. 16.15. Bent skal á, að hafi gjaldið ekki verið greitt innan 2ja mánaða (fyrir 1. mars 1990) fellur leyfið til að halda hund í Reykjavík niður.j Heilbrigðiseftirlitið væntir góðs samstarf við hundaeigendur í framtíðinni og hvetur þá til að kynna sér vandlega og virða ákvæði nýrrar sam- þykktar um hundahald í Reykjavík. REYKJkVIKURBORG Acuuan. át&cíun Þjónustuíbúðir aldraðra Dalbraut 27 Starfsfólk óskast til eftirtalinna starfa: Þvottahús, 100% starf og á vakt 100% starf. Upplýsingar gefur forstöðumaður milli kl. 10 ög 12 í síma 685377. Sjúkraþjálfari Aðstaða fyrir sjúkraþjálfara í tengslum við þjón- ustuíbúðirnar er laus til umsóknar. Upplýsingar gef- ur forstöðumaður milli kl. 10 og 12 í síma 685377. MENIMTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ Lausarstöður við framhaldsskóla: Við Fjölbrautaskóla Suðurlands, Selfossi vantar kennara til að kenna eftirtaldr greinar: Ferðamálagreinar (hlutastarf) og uppeldis- og sálar- fræði (hlutastarf). Þá vantar námsráðgjafa í hlutastarf og bókasafns- fræðing í % hluta starfs. Nánari upplýsingar veitir skólameistari. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 4, 150 Reykjavík, fyrir 5. janúar n.k. Menntamalaráðuneytið. Byggðastofnun auglýsir til sölu eftirtaldar eignir: 1) Hraðfrystihús í Höfnum 2) Sunnubraut 21, Vík í Mýrdal 3) Fiskverkunarhús í landi Þinghóls, Tálknafirði 4) ísborg, Garði 5) Glerárgötu 34A, Akureyri 6) Hótel Akureyri Nánari upplýsingar veitir Páll Jónsson á skrifstofu Byggðastofnunar, Rauðarárstíg 25, Reykjavík, sími 91-25133 og Valtýr Sigurbjarnarson, Byggðastofn- un, Geislagötu 5, Akureyri, sími 96-21210, varðandi eignirnar á Akureyri. Málflutningsskrifstofa Ragnar Aðalsteinsson hrl. Sigurður Helgi Guðjónsson hrl. Viðar Már Matthíasson hrl. tilkynnir, að TRYGGVI GUNNARSSON hefur gerst meðeigandi í málflutningsskrifstofunni frá 1. janúar 1990 að telja og er heiti skrifstofunnar frá þeim degi Málflutningsskrifstofa Ragnar Aðalsteinsson hrl. Sigurður Helgi Guðjónsson hrl. Viðar Már Matthíasson hrl. Tryggvi Gunnarsson hdl. Borgartúni 24. Pósthólf 399, 121 Reykjavík. Sími 27611. Telefax 27186. Telefax (051)-94014175 BORG G.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.