Alþýðublaðið - 03.01.1990, Page 11
Miðvikudagur 3. jan. Í990
11
ÚTLflND
Vopnaframleiðsla kemur mest
niður á þeim verst settu
Hann lét þau orð falla að sérhvert skotvopn sem framleitt
væri, sérhvert orrustuskip sem sjósett væri og sérhver eld-
flaug sem skotið væri á loft væru í rauninni þjófnaður frá
þeim sem svelta og fá ekki mat og frá þeim sem er kalt og
fá ekki klæði. Þetta eru stór orð en í þeim felst mikill sann-
leikur.
Frá því að heimsstyrjöldinni síð-
ari lauk hafa verið háð 120 stríð —
aðallega í þróunarlöndunum með
allri þeirri neyð og þeim hörm-
ungum sem þeim fylgir. Um 75
prósent af vopnaútflutningi í
heiminum hefur verið notaður í
þeim tilgangi sem þau voru fram-
leidd fyrir og má með sanni segja
að þar hafi fólk fengið steina fyrir
brauð í það minnsta fólkið sem
Divight Eisenhower,
hershöfdingi og seinna
forseti Bandaríkjanna,
sagdi árid 1956 eftir-
farandi: „Vandamáliö
viö átgjöld til varnar-
mála er aö vita hve
langt má ganga án þess
aö eyöileggja innanfrá,
þaö sem menn vilja
verja gegn árásum
utan frá.“
sveltur og hefur soltið undanfarna
áratugi. Skýrslur frá Alþjóða heil-
brigðisráðinu eru sorgleg lesning.
800 milljónir manna búa við sár-
ustu fátækt. 770 milljónir fá ekki
nægan mat til að hafa starfsgetu.
100 milljónir hafa ekki þak yfir
höfuðið. 1300 miiljónir hafa ekki
aðgang að drykkjarvatni. 14 millj-
ónir barna deyja árlega úr sulti og
svona mætti lengi telja. Þetta ger-
ist á sama tíma og eytt er billjón-
um í vopnaframleiðslu. Allir hljóta
að fyllast viðbjóði yfir þessari
eyðslu til eyðileggingar og hægt
væri að bjarga þeim nauðstöddu í
heiminum ef mannúð og miskunn
réði ríkjum á jörðu hér. Þetta
vandámál sem Eisenhower vakti
athygli á árið 1956 er ekki minna
í dag. Nú þegar gífurlegar breyt-
ingar eru farnar af stað til hins
betra á pólitíska sviðinu hljóta
jarðarbúar a vona, að sú stund fari
að renna upp þegar allir jarðarbú-
ar hafi nægilegt í sig og á. Ef svo
fer ekki á mannkynið sér ekki við-
reisnar von og hvað gagna þá nýj-
ustu tækni og vísindi?
(I>ýtt og endursagt.)
SJÓNVARP
Stöö 2 kl. 17.00
FIMM FÉLAGAR
(Famous Five)
Nýr framhaldsmyndaflokkur sem
fjallar um þau hin fræknu fimm sem
marga gátuna leystu hér í eina tíð í
bókum breska höfundarins Enid'
Blyton. Allir sem eitthvað eru
komnir til vits og ára muna eftir
Fimmbókunum, eins og þær voru
kallaðar, sem fjölluðu um fimm
krakka sem leystu sakamál af ýms-
um gerðum. Þessir krakkar voru
alltaf í sumarfríi, vetrarfríi, páska-
fríi, jólafríi. Með öðrum orðum, þau
voru aldrei í skólanum.
Sjónvarpiö kl. 20.35
JARÐFRÆÐI
REYKJAVÍKUR
Skyggnst er um í nágrenni Reykja-
víkur og hugað að náttúrufyrirbær-
um. Umsjón hafa þeir Halldór Kjart-
ansson og Ari Trausti Guðmunds-
son.
Stöð 2 kl. 21.00
FÍLAHELLIRINN KITUM
(Citum, the Elephant Cave)
Hér er á ferð heimildarmynd um
hella sem eru við rætur eldfjallsins
Mount Elgon, sem liggur á mörkum
Kenya og Uganda. Þessir dularfullu
hellar fundust fyrir um það bil öld
síðan en aragrúi leðurblaka hefst
þar við og á kvöldin fyllast hellarnir
af fílum. Leiðangursmenn könnuðu
lifnaðarhætti hellisbúanna um leið
og þeir könnuðu hellana sjálfa.
Sjónvarpið kl. 21.20
SVIK*’2
(Betrayal)
Bresk bíómynd, gerd 1983, leikstjóri
David Jones, adalhlutverk Jeremy
Irons, Ben Kingsley, Patricia Hodge.
Myndin byggir á samnefndu leikriti
eftir eitt þekktasta, og um leið virt-
asta, leikskáld Breta í seinni tíð, Har-
old Pinter. Leikritið sjálft er magn-
að, fjallar um ástarþríhyrning sem í
sjálfu sér er hefðbundið efni, en hér
gengur sagan aftur á bak í tíma.
Maltin, hinn mikli kvikmyndagagn-
rýnandi, gefur myndinni lægstu
einkun þrátt fyrir að hann hrósi leik-
urunum. Segir að myndin nái bara
alls ekki anda leikritisins. Við skui-
um bara vona að Maltin hafi rangt
fyrir sér að þessu sinni, það er eigin-
lega dauðasynd að eyðileggja Pint-
er verk.
Stöð 2 kl. 23.10
HINN STÓRBR0TNI
(Le Magnifique)
Frönsk bíómynd, leikstjóri Philippe
De Broca, adalhlutverk Jean-Paul
Belmondo, Jacqueline Bisset, Vit-
torio Capricoli, Monique Tarbes.
Fjallar um spennusagnahöfund sem
verður hrifinn af stúlku en stúlkan
er aðallega hrifin af sögupersónu
höfundarins. Höfundurinn afræður
að gera út af við sögupersónu sína
til að eiga sjálfur greiðari leið að
stúlkunni. En það er nú þannig með
sögupersónur, þær lifa sjálfstæðu j/f/
i vitund lesenda sinna og lifa ytir-
leitt höfunda sína að auki. Þetta
verður því kannski býsna erfitt fyrir
höfundinn.
0 ^}stöd2
17.50 Töfraglugginn 15.30 Litla stulkan meö eldspýturnar 17.05 Santa Barbara 17.50 Fimm félagar Nýir framhaldsþættir úr Enid Blyton bóka- flokknum um hin fimm fræknu
1800 18.50 Táknmálsfréttir 18.55 Poppkorn 18.15 Klementina 18.401 sviðsljósinu
1900 19.20 Hver á aö ráöa? (Who's the Boss?). Gamanmyndaflokkur 19.50 Tommi og Jenni 20.00 Fréttir og veöur 20.35 Jarðfrœði Reykjavíkur Skyggnst um i Reykjavík og nágrenni og hugað aö náttúrufyrirbærum 21.20 Svik (Betrayal). Bresk bíómynd frá árinu 1983, sem byggir á samnefndu leikriti eftir Harold Pinter um hiö sígilda þrihyrnings-þema. Aöalhlutverk Jeremy Irons, Ben Kingsley og Patricia Hodge 19.1919:19 20.30 Af bæ i borg 21.00 Fílahellirinn Kitum Stórmerk náttúruundur við eld- fjallið Mount Elgon i Kenya 21.55 Ógnir um óttubil 22 45 i Ijósa- skiptunum
2300 23.00 Ellefufréttir og dagskrárlok 23.10 Hinn stórbrotni Frönsk biómynd meö Belmondo og Bisset i aðalhlutverkum 00.45 Dagskrárlok