Alþýðublaðið - 06.01.1990, Síða 7
Laugardagur 6. jan. 1990
Ekkert fannst
athugavert við
rannsókn hjó
Hollustuvernd
Vegna einstaks matareitrunar-
tilfellis sem upp kom á Djúpa-
vogi og kvartana sem hafa borist
um óeðlilega lykt og bragð úr
niðursoðnum baunum frá Niður-
suðuverksmiðjunni Ora hf., hef-
ur Hollustuvernd ríkisins unnið
að athugun á framleiðsluvörum
og framleiðsluaðstæðum fyrir-
tækisins ásamt heilbrigðiseftir-
liti Kópavogssvæðis.
Tekin voru sýni af grænum baun-
um og maís baunum úr verslunum
og á lager hjá fyrirtækinu, auk þess
sem athuganir hafa verið gerðar á
vörum frá neytendum vegna kvart-
ana. Niðurstöður gerlarannsókna
benda ekki til þess að varan sé göll-
uð og niðurstöður úr skyndmati sem
framkvæmt hefur verið af rann-
sóknastofu Hollustuverndar ríkisins
benda ekki til þess að um alvarleg-
an galla í vörunni sé að ræða.
Hollustuvernd ríkisins og heil-
brigðiseftirlit Kópavogssvæðis
skoðuðu aðstæður hjá Niðursuðu-
verksmiðjunni Ora og fannst ekkert
athugavert við þá skoðun. Voru þá
einnig tekin sýni af hráefni til gerla-
rannsókna og fannst ekkert athuga-
vert við rannsókn þess.
Kvartanir frá neytendum benda til
þess að um einhverja galla hafi ver-
ið að ræða hvað varðar bragð og
lykt í hluta af niðursoðnum baunum
frá fyrirtækinu. Fyrirtækið vinnur
nú í samvinnu við heilbrigðiseftirlit
Kópavogssvæðis að því að kanna
hverjar ástæður þessa geti verið.
Niðurstöður örverurannsókna
benda hins vegar ekki til þess að
varan sé menguð af völdum gerla
og því ekki ástæða til að varast
neyslu vörunnar.
Guðlaugur
Guðmundsson
sjötugur
Guðlaugur Guðmundsson
Baldursgötu 17, fyrrverandi
afgreiðslumaður hjá Silla og
Valda í Aðalstræti, er sjötugur
í dag.
Guðlaugur hefur alla tíð fylgt
Alþýðuflokknum að málum og
færir Alþýðublaðið honum
innilegar heillaóskir. Guðlaug-
ur tekur á móti gestum að Bald-
ursgötu 17 í dag.
Ný keppni haf-
in af hógværð
Nú hefst ný tippkeppni fjölmiðl-
anna eða vorönnin. Haustönnina
unnum viö hér á Alþýðublaðinu
enda spámenn miklir. Hvort jafn vel
gengur á nýju ári er óvíst en viö för-
um afar varlega af stað og fullir hóg-
værðar.
Línur eru heldur farnar að skýrast
í enska fótboltanum en þó er enginn
leikur sjálfgefinn. Allir fjölmiðlarnir
tippa á sigur Arsenal og þeir flestir
eru sammála um að C. Palace,
Leeds, Everton og Tottenham vinni.
Liverpool er á toppnum eins og
stendur en Arsenal fylgir fast á eftir'
og á leik til góða. Eftir að hafa skoð-
að stjörnukort liða og leikmanna
komumst við að þeirri niðurstöðu
að úrslit leikja verði sem hér segir:
ij | 5 S 3 5 3 >í
LEIKIR 6. JAN. '90 j S s I 1 11 1 8 S tn < f SAMTALS 1 I X I 2
Blackburn - Aston Villa 2 2 2 2 j 2 X 2 12 2 1 1 . 8
Brighton - Luton 1 2 X 2 1 X 1 X 1 1 5 3 2
C. Palace - Portsmouth 1 1 2 1 1 1 1 1 1 1 9 Oi 1
Hull - Newcastle X 2 X 2 2 2 2 2 1 X i 3 6
Leeds - Ipswich 1 1 X 1 1 1 1 1 1 1 9 1,0
Man. City - Millwall 1 1 2 X 2 1 1 1 1 1 7 1 2
Middlesbro - Everton 2 2 2 2 2 2 2 X 2 2 0 1 9
Plymouth - Oxford X 1 X 1 X 1 1 X 1 1 6 4:0
Stoke - Arsenal 2 2 2 2 2 2 2 2 2 2 0 llí!»
Tottenham-Southampton 1 1 1 1 1 1 1 1 1 X 9 'I0
W.B.A. - Wimbledon X 2 2 X! 2 1 1 1 í 1 X 4 3 3
Wolves - Sheff. Utd. 1 2 1 1 1 X X 1 1 2 6 2! 2
7
SLEPPTU EKKI
HENDINNI
AF HEPPNINNI!
Hvergi í heiminum er jafnhátt vinningshlutfall og hjá Happdrætti Háskólans,
því 70% af veltunni renna beint til vinningshafa! Þar með er vinningsvonin hvergi jafnmikil
og hjá Happdrættinu. í ár eru yfir 2000 milljónir króna í pottinum. í raun gæti annar hver íslendingur
hlotið vinning því að vinningarnir eru 135.000 talsins. Mest getur þú unnið 45 milljónir á eitt
númer - allt skattfrjálst. Með trompmiða er hægt að vinna 10 milljónir króna í hverjum
mánuði og 25 milljónir í desember.
Tryggðu þér happamiða strax - þú mátt bara til!
HAPPDRÆTTI
HÁSKÓLA ÍSLANDS
vænlegast til vinnings
ARGUS/SlA