Tíminn - 18.05.1968, Side 6
18
TIMINN
LAUGARDAGUR 18. maí 1968
„Gifta fylgi fram-
tíð Sigluf jarðar”
Viðtal við Jón Kjartansson, forstjóra
í tilefni þessana tímamóta ræddi
blaðamiaður Tímans við Jón Kjart
ansson, forstjóra, um Siglufjörð,
fortíð hans og framtíð, eo Jón
var bæjarstjóri í Siglufirði tæp
9 ár. Hann hefur um áratugi unn
ið að hagsmunamálum Siglufjarð
ar og gjörir enn. Hann ér nú for
maður Siglfirðingafélagsins í
Reykjavík, en það er allfjölmenn
ur félagsskapur, sem lætur sig
miklu skipta hag Siglufjarðar.
Hvað er þér ríkast í huga nú á
þessum tímamótum í sögu Siglu-
fjarðar?
Þegar maður í huganum lítur til
baka — þá er eins og flett sé
blöðum í gamalli bók, og maður
þekkir hana allvel — löngu.liðnir
atburðir þyrpast fram í hugann
og maður reynir að raða þeim upp
eftir atburðarás, þó skipulágið
verði e. t. v. ekki sem bezt. Hugur
in-n hvanflar að sjálfsögðu fynst til
gamla mannsins, Þormóðs ramma
landnámsmannsins. — Ekki veit
ég, hvernig honum var innan-
brjósts víð landtökuna, en feginn
mun hann hafa verið, þegar hann
af opnu hafi stýrði fleyi sínu inn
í höfnina góðu fyrir miðju Norð
urlandi. Siglunesið er en-n líkt og
það var á hans dögum. Það hefur
e. t. v., eitthvað breyzt en það
hefur ætíð haft mikilvægu hlut
verki að gegna. Vöxtur Siglufjarð
ar byggðist á hinni góðu höfn,
sem fjörðurinn er og legu stað
arins við fiskimið.
Þrautseigir hljóta þeir að hafa
verið sem héldu uppi byggð í
Siglufirði. Fyrsta nákvæma mann
tal, sem gjört er í Siglufirði, er
tekið 1819. Þá var að-eins 161
sál í öllum hreppnum — þar af
aðeins 8 á Þormóðseyri. Frá þess
um tíma og til þessa dags hefur
mikið vatn runnið til sjávar. Allt
af hefur búið í Siglufirði dugandi
fólk, hjálpsamt, óeigingjarnt, fram
farasinnað, sjálfstætt en þó nokk
uð stolt fólk sem staðið hefur
fyrir sínu í blíðu og stríðu. Þetta
fólk á einmitt í dag þakkir skyld
ar fyrir þann þátt, sem það hefur
átt í því að byggja upp ísland nú-
tímans.
Verðmætasköpun sú, sem fram
fór á íslandi á árunum frá því
Siglufj örður fékk kaupstaðarrétt
indi og næstu 30 árin þar á eftir,
fór fram í ríkum mæli einmitt í
Siglufirði, til heilla landi og lýð.
Það sanna tölulegar staðreyndir
Hagtíðinda. Þessi staðreynd er
ofarlega í mínum huga um þessar
mundir, en þar við hlið er einnig
sú dapra mynd, sem blasir við
i dag, þegar litið_ er norður yfir
b«4ðar og fjöIL ís fyrir Norður-
Iandi, snjóiþakin fjöll í vorbirt-
unni, skip bundin við bryggju,
verksmiðjur án verkefna, verka-
menn án vinnu — hljóður bær,
sem man fífil sinn regri. „Ekkert
annað en vonin heldur x manni
vitinu", sagði eitt sinn við mig
aldraður vitmaður, sem sá á vissu
æfiskeiði ekkert annað en himin
háa erfiðleika steðja að sér og
sínum. Von hans varð að veru
leika. Það birtá.
Að sjálfsögðu er efst í mínum
huga vonin um vor — sannkallað
vor fyrir Norðurlandi, ekki ein-
vörðungu vor í náttúrunni, sem
ræ'ki burt ís og allan kulda, held
ur einnig von um gróanda í út-
gerðar- 'og atvinnulífi, sem gjör-
bylti öllu til hins betra fyrir mína
gömlu sveitunga og alla lands-
byggðina.
Jón Kjartansson
Það er sagt, að von og trú geti
flutt fjöll, en ég tel að nyrðra séu
svo mikil vandamál óleyst í at-
vinnumálum, að fleira þurfti til
að koma, og þá fyrst, skipulag
uppbygging atvinnuveganna frá
hálfu löggjafans og framkvæmda
valdsins. —
Ég tel að á þessum tímamótum
í sögu Siglufjarðar eigi ábyrgir
aðilar að marka ákveðna uppbygg
ingarstefnu í atvinnumálum stað
arins og hefjast handa til að hún
verði að veruleika.
— Segðu mér: Hvernig líkaði
þér sem dreng og unglingi að búa
í Siglufirði?
— Fljótsagt — dásamlega.
— Af hverju finnst manni svo
vænt um gamlar slóðir? y
— Ég held, að það sé m. a.
af því að það er eins og eimhvers
bonar geislabaugur sé yfir bernsku
og æskustöðvum flestra manna.
Svo er a.m.k. í mínum huga, jafn
vel yfir norðaustanstórhríðunum
og storminum, sem skók litlu hús
in okkar, svo þau nötruðu hvað þá
um sólskinsdagana sem eru ógleym
anlegir.
íslendingar eru almennt trygg-
lyndir. Við unnum allir þúfunni
okkar. Já, okkur leið vel í Siglu
firði. Tign fjallanpg — kyrrðin —
heiðríkjan — himinbláminn og
jafnvel hjarnið — allt þetta íók
á vellíðan okkar, að viðbættri síld
arlyktinni — Væri hún „stabil“,
þá þurfti engu að kvíða.
— Þú minntist áðan á fyrsta
manútalið. Geturðu brugðið upp
nokkrum tölum um íbúafjölda í
Siglufirði áður fyrr og nú?
— Já, árið 1820 eru íbúar
hreppsins 154 — árið 1850 214 og
fyrir 100 árum, árið 1868, þá eru
aðeins 303 íbúar þar. Flestir hafa
íbúar Siglufjarðar verið 3103 var
Slglufjarðar
það árið 1948 en 1. deg. s. L voru
þeir 2354.
En fyrst við erum að tala um
Siglufjörð fyrir 100 árum, þá má
minna á, að þá voru gerð út fjórt
án hákarlaskip frá Siglufirði
(opnu skipin meðtalin). Það eru
fleiri skip en gerð eru út þaðan
í dag, en um smálestafjölda skul
um við þó ekki tala í þessu sam-
bandi.
— Hvað viltu segja okkur um
atvinnu- og verzlunarmálin?
— Ég hefi lítillega minnzt á
atvinnumálin. — Stærstu atvinnu
fyrirtækin í Siglufirði eru í eigu
ríkisins — Verksmiðjurnar vantar
síld til vinnslu, svo sem kunnugt
er, og hraðfrystihúsin á staðnum
eru hráefnalaus mikirvn hluta árs
ins. Tunnuverksmiðjan starfar að-
eins hluta úr ári og aðeins 1/3
úr sólanhringnum, þá hún starf
ar. Markað vantar fyrir fram-
leiðslu niðurlagningarverksmiðju
ríkisins, og margt er öðruvísi en
það ætti að vera. Tekjur bæjar-
félagsins eru of litlar, og gjalda
allir þessa, en byrgðarnar leggj
ast þyngra og þyngra á einstakl
ingana'. Fyrsta verzlunin, sem vit
að er um, að var í Siglufirði var
stofnsett þar. 1788. Árið 1816 voru
margir verzlunarstaðir löggiltir á
íslandi, en ekki Siglufjörður.
Gjörði þá amtmaður fyrirspurn
um það, hvort leggja skyldi niður
verzlun á Siglufirði. Svarið barst
1818, er konungur löggilti Siglu
fjörð sem verzilunarstað.
Eftir að Siglufjörður híaut kaup
staðarréttindi fjölgaði kaupmönn
um þar, og Kaupfélag Siglfirðinga
var stofnað árið 1929.
— Hvenær varð Siglufjörður
sérstakt læknishérað, og hvað um
skólamálin?
Árið 1879 var fyrsti héraðslækn
irinn skipaður til Siglufjarðar. Var
það Helgi Guðmundsson, ungur
Reykvíkingur, sonur Guðmundar
frá Hól, Þórðarsonar. Læknishér
aðið var stærra en Siglufjörður
einnig Grímsey, Ólafsfjörður og
Austur'Skagafjörður að Hófsósi
fylgdu með. Héraðslæknir á eftir
Helga Guðmundssyni var Guð-
mrundur T. Hallgrímsson. Að hon
um látnum tók við því embætti
Halldór Kristinsson, en nú er
héraðslæknir í Siglufirði, Sigurð
ur Sigurðsson og hrósa Siglfirð
ingar happi að hafa slíkan ágætis
lækni.
Sjúkrahús var byggt í Siglufirði
1927. Tók til starfa 1928. Það hef
ur nú verið fjarlægt, en nýtt
sjúkralhús risið, svo að segja á
grunni hins gamla. Er það í
alla staði hið ágætasta sjúkrahús.
Læknir þar er Ólafur Þorsteinsson
ágætur skuxðlæknir, en fyrsti
sjúkrahúslæknir Siglfirðinga ''var
snillingurinn ógleymanlegi, Stein-
grímur Eyfjörð Einarsson.
Skipulögð barnakennsla hófst í
Siglufirði 1883. Fyrsti kennarinn
var Helgi Guðmundsson héraðs-
læknir. Árið 1899 var byggt skóla
hús, 1913 var annað byggt og
það endurbætt 1916, eða 17 og
fyrir nokkrum árum var þetta
sama hús enn stækkað og er hið
vistlegasta. Nýr gagnfræðaskóli
Framhald a bls. 22. É
Hér fer á eftir meginhluti
yfirlitsgreinar, er bœjarstjór-
inn á Siglufirði hefur rR.að í
tilefni afmælis Siglufjarðar og
birtast mun í heiM í næsta
tölublaði Sveitarstjórnarmáia.
Landnám
Á milli Eyjafj'axðar og
Skagafjarðar er mikill skagi,
Tröllaskagi, krýndur hrikaleg-
um fjalágarði, sem teygir him
inhá þverhníipt björg í sjó
fram. Inn í þennan skaga
skerst frá norðri lítiH fjörður,
Siglufjörður, fjöllum vafinn á
þrjá vegu, en variinm nesi í
norður (Siglunes), lífhöfn sæ
Æarenda frá landnámistíð.
Fynstú hemildir um Siglu-
fjörð er að finna í Landn'áma-
bók, en þar greinir frá land-
námi Þormóðs ramma, norsks
víkiings, er _„nam Siglufjörð all
an milíi Úlfsdala og Hvann-
dala ok bjó á Siglunesi“.
Hann sigldi skipi sínu knn »
fjörðinn að eyri þeirri, vestan
fjarðarins, sem við hann er
kennd, Þormóðseyri, hvar
Siglufj'arðarkaupstaður stemd
ur nú og teygir by,ggð síina um
lönd hinna gömlu jarða Hafn-
ar og Hvanneyrar. Svæðið frá
Þórðarhöfða í Skagafirði að og ,
me'ð Siglufirði var nurnið af,
10 landmámsmönnum, norsk-
um, gauzkum, sænskum, suður
eyskum, afkomendum Ragnars ■
ioðlbrókar, Hörða-Kára, Har-
alds víkings og Upplemdiinga-
jarla. Ein þeirra var kvæní-
ur dótturdótbur Kjarvals íra
konungs. Óvíða á landinu
mun jafn líti'ð svœði hafa ver-
ið numið frá jafn mörgum
löndum, af jafnmörgum og
jafnmiætum miönnum.
Einangruð byggð
Flátt er til heimilda um
byggð í Skagafirði frá land-
Það hefur verið kaldranalegt á Siglufirði að undanförnu. ís gekk
inn í fjörðinn. Þessi mynd var tekin í Sigluflrði fyrir skömmu.
< ' s' ;
■
Gagnfræðaskóli Siglufjarðar.
I